Morgunblaðið - 17.12.1994, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Viðræður standa yfir um sölu Viking Brugg
KEA og Valbær vilja
kaupa fyrirtækið
Fyrsti óbó-
leikarinn
útskrifaður
í FYRSTA sinn verður braut-
skráður nemendi í óbóleik frá
Tónlistarskólanum á Akureyri
en á sunnudaginn, 18. desem-
ber kl. 17 verða 8. stigs tón-
leikar Gunnars Benediktsson-
ar óbóleikara á sal skólans.
Gunnar hóf nám í óbóleik 9
ára, fyrst hjá Roari Kvam, síð-
an hjá Christopher A. Thorn-
ton en síðastliðið ár hefur hann
lært hjá Jacqueline F. Simm.
Gunnar hefur m.a. leikið
með Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands, Sinfóníuhljóm-
sveit æskunnar og Orkester
Norden. Hann brautskráist af
tónlistarbraut frá MA næsta
vor.
Á efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir Telemann, Bellini,
Walmisley og Berkeley. Að-
gangur er ókeypis.
Félagsvist
SÍÐASTA félagsvist Þórs
verður annað kvöld, sunnu-
dagskvöldið 18. desember kl.
20.00 í féalgsheimiiinu Hamri
við Skarðshiíð.
MESSUR
■ AKUREYRARPRESTA-
KALL: Sunnudagaskóli Akur-
eyrarkirkju verður i Safnaðar-
heimilinu kl. 11.00. Gengið
verður í kringum jólatré og
jólasaga lesin. Guðsþjónusta
verður í Akureyrarkirkju kl.
17.00 á morgun, sunnudag.
Jólatónleikar Kórs Akur-
eyrarkirkju kl. 20.00.
■ GLERÁRKIRKJA: Guðs-
þjónusta verður kl. 11.00 ár-
degis, sunnudag. Einleikur á
fiðlu, Anna Podhajska. Barna-
samkoma verður í kirkjunni á
sama tíma. Börnin munr. taka
þátt í fyrri hluta guðsþjón-
ustunnar, en undir sálmi fyrir
predikun munu þau ganga inn
í safnaðarsalinn. Þar verður
brúðuleikhúsið „Litlu-jólin hjá
Guðfinnu" flutt. Jólafundur
æskulýðsfélagsins verður í
kirkjunni kl. 18.00. Kyrrðar-
stund í hádeginu næsta mið-
vikudag frá kl. 12-13. Orgel-
leikur, helgistund, altaris-
sakramenti og fyrirbænir.
Léttur málsverður með jóla-
bragði að stundinni lokinni.
■ HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Samkoma í umsjá ungs fólks
kl. 20.30 í kvöld, laugardags-
kvöld. Safnaðarsamkoma
sunudag kl. 11.00. Jólin sungin
inn á sunnudag kl. 20.00.
■ HJÁLPRÆÐISHERINN:
Fjölskyldusamkoma kl. 17.00.
á sunnudag. Jólin sungin í
garð. Krakkar verða með
helgileik. Opið hús verður á
aðfangadagskvöld kl. 18.00.
Þátttaka tilkynnist til Hjálp-
ræðishersins fyrir 19. desem-
ber.
■ KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Messa í dag, laugardag kl.
18.00. og sunnudag kl. 11.00.
Safnað
í áramóta-
brennu
FÉLAGARNIR Jóhann, Sverr-
ir, Viðar, Eyjólfur og Sigurður
hafa síðustu daga safnað efni
í áramótabrennu á Bárufellsk-
löppum. Fjölmargir hafa lagt
þeim lið og komið með eldsmat
í brennuna en þeir sögðust
ekki hafa mikinn áhuga á að
fá járnarusl í hana ein eitthvað
hafði borið á slíkum sending-
SÍÐARI umræða um fjárhagsáætlun
bæjarsjóðs Akureyrar verður á fundi
bæjarstjómar á þriðjudag, en á milli
umræðna hafa komið fram nokkrar
breytingartillögur við áætlunina.
Hvað tekjur varðar er gert ráð fyrir
að skattar af fasteignum hækki um
4 milljónir króna og verða heildar-
skatttekjur bæjarins því 1.490.540
þúsund. í kjölfar breytinga sem lagt
er tii að gerðar verði við frumvarp
að fjárhagsáætlun er áætlað að kostn-
aður við rekstur málaflokka verði
1.094.539 þúsund sem er nokkru
lægra en áætlað var við fyrri umræðu.
Fjárveiting til leikskóla í einka-
rekstri hækkar um 3 milljónir sem
er vegna rekstrarkostnaðar á 10
rýmum á leikskólanum Stekk. Þá
hækkar launaliður hjá tónlistarskól-
anum og heimilisþjónustu en stefnt
er að því að ná fram hagræðingu í
VIÐRÆÐUR standa yfir um sölu
á verksmiðju Viking Brugg á Akur-
eyri. Delta hf. í Hafnarfirði á verk-
smiðjuna en um skeið hafa farið
fram viðræður við hugsanlega
kaupendur sem eru Kaupfélag Ey-
firðinga og hlutafélagið Valbær á
Akureyri.
rekstri upp á 15 milljónir króna. í
því sambandi er nefnt að ekki er
gert ráð fyrir að ráðinn verði sérstak-
ur nýr starfsmaður til að sinna verk-
efnum reynslusveitarfélags heldur
verði um að ræða færslu starfsmanns
frá öðru verkefni, en með því verður
hægt að ná fram sparnaði í launa-
kostnaði. Leikskólanefnd er falið að
taka til umfjöllunar og úrvinnslu
skýrslu urn úttekt á rekstri leikskóla
og gert er ráð fyrir endurskoðun á
rekstri skóladagheimila í tengslum
við einsetningu skóla.
Launakostnaður
endurskoðaður
Þá er íþrótta- og tómstundaráði
falið að ijalla um skýrslu um íþrótta-
mannvirki og leggja tillögur fyrir
bæjarráð. Rekstrarkostnaður
Iþróttaskemmunnar verður endur-
Verði af kaupum þessara aðila á
versmiðjunni mun eignarhaldið
skiptast til helminga milli KEA og
Valbæjar og er hugmyndin sú að
stofnað verði nýtt hlutafélag um
rekstur verksmiðjunnar.
Hugsanleg sala verksmiðjunnar
var kynnt starfsmönnum Viking
skoðaður með tilliti til minnkandi
nota með tilkomu leikfimihúss við
Oddeyrarskóla og sviðsstjórnum er
falið að skoða launakostnað ein-
stakra deilda og stofnana bæjarsjóðs
og móta tillögur sem geta lækkað
hann. Þá verða innkaup á rekstrar-
vörum, þjónustu og efni til fram-
kvæmda skoðuð sérstaklega með til-
liti til útboða og eins verður nefnda-
kerfi bæjarins endurskoðað.
Lagt er til að fjárveiting til gjald-
færðrar fjárfestingar verði tæplega
143 milljónir króna, þar af fara 55
milljónir til gatnagerðarfram-
kvæmda og 35 til holræsafram-
kvæmda. Þá er lagt til í fjárhagsáætl-
un að um 195 milljónir króna fari
til eignfærðrar fjárfestingar, þar af
50 milljónir vegna byggingar leik-
skóla við Kiðagil og 83 milljónir til
framkvæmda við skóla.
Brugg á fimmtudag. Samningavið-
ræður eru langt komnar og er stefnt
að því að nýir eigendur taki við
rekstrinum um næstu áramót.
Hjá Viking Brugg eru framleidd-
ar nokkrar bjórtegundir, meðal ann-
ars Viking, Thule, Lövenbrau og
Icebjór.
Signrður J. Signrðsson
Hlutabréf
seld fyrir
100 millj.
SIGURÐUR J. Sigurðsson, bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks í bæjar-
stjórn Akureyrar, lagði til á fundi
bæjarráðs í vikunni að bæjarstjóra
verði heimilað að selja af hlutabréfa-
eign Framkvæmdasjóðs fyrir allt að
100 millj. kr. til að greiða vaxta-
kostnað sjóðsins og lækka skuldir.
Jafnframt lagði hann til að Rafveitu
Akureyrar verði gert að greiða 20
millj. árlegt fjárframlag sem arð af
til Framkvæmdasjóðs.
Fram kemur í bókun Sigurðar á
fundi bæjarráð, að með vísan til
þeirrar skoðunar hans, að hægt væri
að ná sambærilegri niðurstöðu í
rekstri bæjarins án skattahækkunar,
væri hægt_ að grípa til margvíslegra
aðgerða. Á meðal tillagna hans er
að ráða ekki starfsmann til að vinna
að reynslusveitarfélagaverkefninu
heldur láta núverandi starfmenn
sinna því, flölga ekki starfsmönnum
atvinnumálanefndar og hækka ekki
fjárveitingar til nefndarinnar, fjölga
ekki fastanefndum á vegum bæjarins
og að endurskoða rekstur skóladag-
heimila og einnig að endurmeta
rekstur íþróttaskemmunnar.
-----»■♦ '4---
Sigríður Stefánsdóttir
Rafveitan
greiði afgjald
til bæjarins
SIGRÍÐUR Stefánsdóttir, bæjarfull-
trúi Alþýðubandalags, hefur lagt til
að á árinu 1995 greiði Rafveita Akur-
eyrar 2% afgjald af eigin fé veitunn-
ar í árslok 1994 til bæjarsjóðs. Upp-
hæðin, 16,5 millj. kr., eigi ekki að
hafa áhrif á gjaldskrá veitunnar held-
ur á framkvæmdir og lántökur.
Aðrar breytingartillögur Sigríður
við íjárhagsáætlun fela í sér hækkun
upp á 22 millj. kr. M.a. Ieggur hún
til að framlag til jafnréttis- og
fræðslufulltrúa verði hækkað um 2
millj., og að til komi 10 milljóna
framlag í Framkvæmdasjóð. Þá legg-
ur Sigríður til að útgjöld verði lækk-
uð um 5,5 milljónir; framlag til skrif-
stofu bæjarverkfræðings lækki um 2
milljónir, 2,5 milljónir verði teknar
af óskiptu fé til gatnagerðar og
vegna atvinnuátaks um 1 millj. kr.
um.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fjárhagsáætlun afgreidd á fundi bæjarsljórnar í næstu viku
Skatttekjur alls um
1,5 milljarðar króna
JOLAGJÖF FRA ÞUMALINU 45% afsláttur
ULLARNÆRFATNAÐUR fyrir börn og unglinga RÖNDÓTT: Rautt/hvítt, blátt/hvítt. Stærðir 92-164. Sett: Bolir/síðbuxur.
ULLAR- OG SILKIFATNAÐUR 30% silki - 70% ull. Unnið án kemiskra efna og hrein ull, mjúk sem siiki. 15% afsláttur. Fyrir KARLA? KONUR7BÖRN?
ÚL ;6>
y\ í.<, ' t
r K V\
\
/
KARLAR KONUR KORNBÖRN ELDRI BÖRN
Hlýrabolir Hlýrabolir Bolir: Stutterma Hlýrabolir
stutterma stutterma langerma stutterma
langerma langerma Síðbuxur langerma
Síðbuxur Síðbuxur Samfellur Síðbuxur
ÝMISLEGT
Grifflur, lanolinborin
ullarteppi,
BH-innlegg, ullarsokkar,
ullarskór O.fl.
ÞUMAIiNA
Leifsgötu 32.
Opið laugard. og sunnud. kl 13-17
Sjón er sögu ríkari. Kíktu inn og skoðaðu úrvalið. Allt fyrir litlu börnin frá nærfötum til útigalla og m.a. landsins mesta bleyjuúrval. VERNDUM LANDIÐ. Veljum vistvænar
bleijur fyrir hamingjusöm börn. Kostnaður yfir bleijutímabilið aðeins kr. 17.800,- miðað við 30 hágæðableijur og 10
TuffTuff bleijubuxur, þær bestu fáanlegu og mest seldu á Norðurlöndum. GERIÐ VERÐSAMANBURÐ. Póstsendum s. 12136 sb. 626536, ALLTAF í LEIÐINNI.
I
Í
1
X
»
»
I
»
1
í
»
I