Morgunblaðið - 08.01.1995, Blaðsíða 10
10 B SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
DÆGURTÓNLIST
Hvab hefur breyst?
Gamlingjarnir
gera það gott
TÓNLEIKATÍÐ þótti góð
vestan hafs á nýliðnu ári,
og margar gamalmenna-
sveitir högnuðust á tón-
leikahaldi, engin þó betur
en Rollingunum.
Rolling Stones lagði upp
í heimsreisu snemma
á árinu og hóf leikinn í
Bandaríkjutjum. Síðasta
ferð sveitarinnar um
Bandaríkin, Steel Wheeels
ferðin 1989, skilaði henni
sex milljörðum króna, en
að þessu sinni var innkom-
an vel á áttunda milljarð.
í öðru sæti varð önnur
gamalmennasveit, Pink
Floyd, sem velti um sjö
milljörðum, þriðja gaml-
ingjasveitin, Eagles, náði
tæpum sex milljörðum, en
varð að hætta í miðju kafi
vegna veikinda Glenns
Freys, Barbra Streisand
rúmum fimm, Grateful
Dead álíka og Elton John
og Billy Joel náðu hálfum
fjórða milljarði á sameigin-
legri för sinni um Banda-
ríkin. Þar fyrir neðan eru
svo Aerosmith, Lollapalo-
oza-sumargleðin og Phil
Collins.
Gullkarlar Rolling
Stones.
Tangarsókn safnplatnanna
Hljómar
og hljóð
Á STUTTPLÖTU Bjarkar
Guðmundsdóttur með langa
nafninu sem má var að finna
nokkur endurhljóðblönduð lög
vakti athygli teymið Sabres
of Paradise, sem átti stóran
hluta laganna. Fyrir stuttu
kom út með hljómsveitinni
plata af eigin verkum.
Sabres of Paradise er hug-
arfóstur Andys Weat-
heralls, sem er líklega áhrifa-
mesti takkamaður Bretlands
síðustu árin. Hann hefur
unnið með grúa sveita og
margir telja hann einn helsta
spámann breska dansrokks-
ins. Vegsemd hans hefur
aukis óðfluga upp á síðkastið
og breiðskífum Sabres of
Paradise, sem heitir Haunted
Dancehall, er spá mikilli vel-
gengni.
Haunted Dancehall sækir
innblástur sinn í samnefnda
sögu eftir Jameds Woodbo-
ume og minnir um margt á
kvikmyndaskífu, þar sem
mikið er lagt í að ná fram
réttu andrúmslofti og farið
fimum höndum um hljóma
og hljóð til að ná settu marki.
Smáskífan Wilmont, sem náð
hefur hylli í danshúsum Bret-
lands, er gott dæmi um
stílinn, en um þá skífu vélar
Portishead-flokkurinn.
Rokkmennt
er máttur
ROKKIÐ þarf að læra
eins og aðra iðju, ef
menn vilja ná langt.
Þannig eru starfandi
fjölmargir skólar sem
kenna hljóðfæraslátt
og söng, en um þessar
mundir fer af stað nýr
skóli og all ólíkur fyrri
rokkmenntastofnun-
um.
Rokkskólinn, sem
Stefán Hjör-
leifsson gítarleikari
rekur, er að stíga sín fyrstu
skref um þessar mundir, en
Stefán segir að þar sé kennt
á öll helstu hlóðfæri rokksins,
raf- og kassagítar, trommur,
bassa og söng, en að auki er
kennd tónfræði og ýmislegt
faglegt. Stefán segir að helsta
nýjungin sé líklega að skólinn
er farskóii, þ.e. kennt verðu
á nokkrum stöðum á Stór-
Reykjavíkursvæðinu til að
færa námið nær nemend-
Stefán
Hjörlelfs-
son skóla-
stjóri og gít-
arleikari.
unum. Auk Stefáns,
sem kennir á gítar
meðfram skóla-
stjóminni, starfa við
skólann Guðmundur
Pétursson gítarleik-
ari, Andrea Gylfa-
dóttir söngkona,
Gunnlaugur Briem
og Ólafur Hólm
trommuleikarar og
Eiður Amarson bas-
saleikari, en einnig
koma fleiri við sögu
eftir því sem þurfa
þykir. Stefán segir að kennsl-
an byggist á tíu vikna nám-
skeiðum, en allir nemendur
em metnir inn í skólann og
raðað saman eftir kunnáttu,
en byijendakennsla segir
hann verði í þriggja manna
tímum og svo framhalds-
kennsla í einkatímum.
PLÖTUJÓLIN voru um
margt merkileg. ekki síst
fyrir þá sök að erlendar
rokksveitir blönduðu sér í
toppslaginn, aukinheldur
sem safnplötur áttu góðan
dag og reyndar voru
sveimsafnplötur með
mestmegnis erlendum
flytjendum í fjórða og
fímmta sæti á sölulistum.
Sala á íslenskum plötum
var líka dreifðari en áður;
tindamir lægri og dalimir
grynnri.
Bubbi Morthens átti
söluhæstu plötuna
að þessu sinni, eins og svo
oft áður, en Diddú gerði
harða hríð að honum á
■■■■■■ loka-
eftir Árne
Matthíasson
spretti-
num, þó
hún hafí
aldrei
náð að
ógna
honum. í
þriðja
sæti varð
svo safnplatan Reif í sund-
ur, sem var á mikilli sigi-
ingu fram á slðasta dag
og seldist meira en tvöfalt
á við næst söluhæstu safn-
plötu síðustu ára. Fjórða
sætið hreppti síðan platan
með íslenskri útgáfu á
Hárinu. Björgvin Hall-
dórsson marði svo aðra
sveimsafnplötu, Reif í
skeggið, og náði fímmta
sæti, en sú síðamefnda
varð í því sjötta. í sjöunda
sæti var ný sveit á ferð,
Spoon, með sína fyrstu
breiðskífu, sem verður að
telja vel af sér vikið. At-
hygli vekur að endurút-
gáfa af lögum Vilhjálms
Vilhjálmssonar varð í átt-
unda sæti, en tónleika-
plata Nirvana varð í því
níunda. í tíunda sæti er
síðan jólaplatan Senn
koma jólin, en breiðskífa
SSSólar, sem flestir höfðu
spáð betri árangri, lenti í
ellefta sæti, en Jet Black
Joe var ekki langt undan
í tólfta sæti. Þar fyrir neð-
an komu svo Heyrðu 5,
REM, Mariah Carey, Bítl-
amir, Pearl Jam,
Transdans 3, Cran-
berries, Tweety,
Unun og The Boys.
Töluverður munur
er á milli Bubba og
þeirra sem á eftir
koma, en síðan em
Diddú, Reif I sund-
ur, og Hárið mjög
áþekkar í sölu,
Björgvin, Reif í
skeggið, Spoon,
Vilhjálmur og Nir-
vana, SSSól, Jet
Black Joe, Heyrðu
5, REM og Mariah
Carey.
Hvað veldur
Skýringar á
dreifðri plötusölu
em vitanlega fjöl-
margar, sú nær-
tækust að tónlist-
arsmekkur ung-
menna er
breyttari en áður
og óteljandi stefnur og
straumar í gangi. Það
hlýtur og að skipta máli
að þær hljómsveitir sem
helst hafa sett svip sinn
á plötumarkaðinn undan-
farin ár em ekki lengur
til og liðsmenn þeirra
hafa átt erfítt að fóta sig
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Framtíðarsveit 3 Unun á góðri stUnd
í Þjóðleikhúsjallaránum.
með nýjum sveitum.
Þannig farnast þeim ekki
ýkja vel liðsmönnum
Todmobile sálugu í Twe-
ety og Bong, sem þurfa
greinilega lengri tíma
til að ná fót-
festu. Athygli
vekur og að Æ?
SSSól, sem gekk
hljómsveita best í
ballspiliríi í sumar
skuli ekki hafa
uppskorið eins og
búist var við. Af
nýjum hljómsveit-
um má nefna vel-
gengni Spoon, sem
er vel að sjöunda
sætinu komin, en
margir höfðu spáð
því að sveitin væri
bara sumarbóla
sem ætti ekki er-
indi á jólamarkað-
inn. Það er þó
ástæða til að reikna
með enn sterkari
Spoon á komandi
mánuðum, og
kannski er þar
komin ein af þeim
sveitum sem leysa
af hólmi Sálina,
Todmobile og Ný-
danska á toppnum
á næstu árum, jafnvel með
Tweety og Unun sér við
hlið.
Framtíðarsveit 1 Spoon kom sá og
sigraði.
Framtíðarsvelt 2 Tweety vinnur á
með tíð og tíma. .