Morgunblaðið - 08.01.1995, Qupperneq 20
20 B SUNNUDAGUR 8. JANÚAR1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUA UGL YSINGAR
Ritstjóri
Auglýsingastjóri
Austurland auglýsir laus störf ritstjóra og
auglýsingastjóra frá 1. mars nk.
Nánari upplýsingar veita Elma Guðmunds-
dóttir í síma 97-71750 eða 97-71532 og
Smári Geirsson í síma 97-71620 eða
97-71630.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar nk.
Umsóknir berist til ritstjórnar Austurlands,
Pósthólf 75, 740 Neskaupstað.
Ritstjórn Austurlands.
Heilsugæslustöðin Patreksfirði
Laus staða læknis
Laus er staða heiisugæslulæknis við Heilsu-
gæslustöðina Patreksfirði. Stöðunni fylgir
hlutastarf á Sjúkrahúsinu á Patreksfirði.
Æskileg sérgrein heimilislækningar.
Staðan veitist frá 1. júní 1995 eða eftir sam-
komulagi.
Umsóknir sendist stjórn Heilsugæslustöðv-
arinnar, Patreksfirði, fyrir 1. mars 1995.
Einnig vantar lækna til sumarafleysinga.
Nánari upplýsingar veita Jón B. G. Jónsson,
yfirlæknir, og Símon Fr. Símonarson, fram-
kvæmdastjóri, í síma 94-1110.
Laus störf
1. Viðskiptafræðingur. Endurskoðunar-
skrifstofa óskar eftir að ráða viðskipta-
fræðing af endurskoðunarsviði. Ráðning
verður fljótlega.
2. Skrifstofustarf hjá opinberri stofnun í
Reykjavík. Starfið felst í tölulegri úr-
vinnslu. Skilyrði er að viðkomandi sé tölu-
glöggur og hafi þekkingu á dBase eða
sambærilegu. Vinnutími er frá kl. 8-16.
3. Afgreiðslustarf í bókaverslun í Reykjavík.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu
af afgreiðslu bóka auk kunnáttu í vélrit-
un/ritvinnslu. Vinnutími er frá k. 9-14.
Ráðning frá 1. febrúar nk.
4. Fjölbreytt starf hjá útgáfufyrirtæki. Ýmis
konar tölvuvinnsla, kynningar og útrétt-
ingar. Verður að leggja til eigin bifreið.
Vinnutími er frá kl. 9-17.
Umsóknarfrestur er til og með 11. janúar
1995.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-14.
Skólavörðustíg 1a - 101 Reykjavik - Slmí 621355
Bifvélavirki/vélvirki
Eimskip leitar að bifvélavirkja/vélvirkja til
starfa á vélaverkstæði fyrirtækisins. Viðkom-
andi þarf að vera reglusamur og vanur góðri
umgengni og geta unnið á vöktum.
Óskað er eftir starfsmanni með:
• Full réttindi þ.e. meistarabréf og starfs-
reynslu.
• Reynslu í viðgerðum á þungavinnuvélum
og vörubílum.
• Reynslu í vinnu við raf- og vökvakerfi.
Þeir, sem hafa áhuga, eru vinsamlega beðn-
ir um að leggja inn umsókn til starfsþróunar-
deildar EIMSKIPS í Pósthússtræti 2, fyrir 9.
janúar nk. Hægt er að fá frekari upplýsingar
í s. 697 452 og 697 411.
Farið verður með allar umsóknir sem trún-
arðarmál og öllum umsóknum verður svarað.
EIMSKIP
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Fálkaborg
Leikskólakennara, þroskaþjálfa eða annan
starfsmann með sérmenntun vantar í stuðn-
ingsstarf í leikskólann Fálkaborg.
Einnig vantar starfsmann með táknmáls-
kunnáttu. Vinnutími eftir hádegi.
Nánari upplýsingar gefa leikskólastjórar í
síma 78230.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
eru reyklausir vinnustaðir.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
BORGflRSPÍTALINN
Hjúkrunarfræðingar
- skurðhjúkrun -
Hjúkrunarfræðinga vantar nú þegar til starfa
við skurðhjúkrun á skurðdeild E-5 Borgarspít-
alanum.
Áhugaverð aðlögun er í boði fyrir hjúkrunar-
fræðinga sem ekki hafa starfsreynslu við
skurðhjúkrun. Aðlögunin gefur tækifæri til
að bæta við þekkingu og öðlast þjálfun við
skurðhjúkrun. Skurðaðgerðir eru gerðar á
sjö skurðstofum við fimm sérgreinar skurð-
lækninga.
Nánari upplýsingar veitir Gyða Halldórsdótt-
ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
696357.
REYKJ AVÍKURDEILD
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Umsjónarmaður
Nytjamarkaðar RRKÍ
Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands óskar
að ráða umsjónarmann nytjamarkaðs sem
taka mun til starfa innan tíðar.
Starfið felst í að vera umsjónarmaður nytja-
markaðs á notuðum húsbúnaði.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu iðn-
aðarmenn (rafvirkjar, smiðir eða vélvirkjar
eða sambærilegt) og með einhverja reynslu
af rekstri. Viðkomandi þurfa að vera þjón-
ustuglaðir og liprir í mannlegum samskiptum
auk þess að vera töluglöggir.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 16.
janúar nk. merktar: „RRKÍ - 15747“.
Spennandi starf
fyrir duglegt sölufólk
Við leitum að kraftmiklu og metnaðarfullu
sölufólki á aldrinum 25-45 ára sem vill taka
að sér heimakynningar á vegum Sjónvarps-
markaðarins. Um er að ræða vöru frá þekktu
bresku tískufyrirtæki. Góð framkoma og
snyrtimennska nauðsynleg. Skemmtilegt
starf og góð sölulaun í boði.
Áhugasamir sendi umsóknir sínar á af-
greiðslu Mbl. merktar: „X - 18038" í síðasta
iagi föstudaginn 20. janúar.
Sjónvarps
markaðurinn
Sölustarf
Vilt þú starfa sjálfstætt og ráða tíma þínum
sjálf(ur)?
í boði er starf við sölu á snyrtivörum í háum
gæðaflokki sem seldar eru á heimakynning-
um um allt land. Líflegt og skemmtilegt starf
fyrir rétta aðila. Há sölulaun, kennsla og
starfsþjálfun fyrir þá sem koma til greina.
Skilyrði er að viðkomandi hafi áhuga á snyrt-
ingu og förðun, sé drífandi og heiðarlegur.
Áhugasamir hafi samband í síma 91-872949
mánudag og þriðjudag.
böy
Laus staða
Starf umsjónarmanns/húsvarðar Listasafns
Kópavogs - Gerðarsafns er laust til umsókn-
ar. Um er að ræða 60% starf. Góð smíða-
kunnátta og verklagni er æskileg.
Upplýsingar um starfið gefur forstöðumaður
í síma 44501 alla daga frá k. 10-12.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist starfsmannastjóra
Kópavogskaupstaðar fyrir 16. janúar.
Starfsmannastjóri.
Varnarliðið/-
Stjórnunarstarf
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óskarað ráða
skrifstofustjóra í bifreiðaþjónustudeild Stofn-
unar Verklegra Framkvæmda.
Umsækjendur hafi reynslu af stjórnunar-
störfum og fjárhagsáætlanagerð ásamt inn-
sýn í almenna viðhalds- og viðgerðaþjón-
ustu. Um er að ræða yfirgripsmikið starf sem
krefst skjótrar aðlögunar og ákvarðanatöku.
Kunnátta í meðferð smátölva nauðsynleg.
Mjög góðrar enskukunnáttu krafist.
Umsóknir berist til Ráðningardeildar Varnar-
málaskrifstofu, Brekkustíg 39, Njarðvík, sími
92-11973, eigi síðar en 16. janúar 1995.
Starfslýsing liggur þar frammi til aflestrar
fyrir umsækjendur og er þeim bent á að lesa
hana áður en sótt er um.
Umsóknareyðublöð fást einnig á sama stað.
Auglýsingastjóri
Við erum að leita að einstaklingi sem hefur
yfirumsjón með sölu auglýsinga í Morgun-
póstinn og öflun nýrra viðskiptasambanda.
Skilyrði er að viðkomandi hafi marktæka
reynslu í auglýsingasölu eða öðrum sölu-
störfum.
Við erum að leita að drífandi og markaðs-
þénkjandi einstaklingi með skipulögð vinnu-
brögð sem á auðvelt með að vinna sjálf-
stætt og með öðrum.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst.
Góð laun eru í boði fyrir réttan aðila.
Áhugasamir sendi umsóknir sínar til Morg-
unpóstsins c/o Framkvæmdastjóri, Vestur-
götu 2, 101 Reykjavík fyrir 15. janúar nk.
Morgunpósturinn hóf göngu sina i október sl. og hefur því
komið út í rúma 3 mánuði. Morgunpósturinn kemur út tvisvar
í viku á mánudags- og fimmtudagsmorgnum. Viðtökur almenn-
ings viö Morgunpóstinum hafa verið vonum framar og hefur
lesendum fjölgaö jafnt og þétt. Skv könnun Gallup lásu 24%
landsmanna á aldrinum 15 til 75 ára Morgunpóstinn um miðj-
an nóvember sl., en það var 14. tbl. Morgunpóstsins. Hjá
Morgunpóstinum starfa í dag um 30 manns auk fjölda af blað-
burðarfólki og umboðsmönnum um allt land.