Morgunblaðið - 19.02.1995, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.02.1995, Blaðsíða 25
24 SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ -4- MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1995 25 STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. BREYTT VIÐHORF ÞÓTT ekkert liggi fyrir um það, hvort samningar tak- ist um þessa helgi, þegar for- ystugrein Morgunblaðsins er skrifuð á laugardagsmorgni, fer þó ekki á milli mála, að grund- vallarbreyting hefur orðið á við- horfi og sjónarmiðum þeirra að- ila, sem koma að kjarasamning- um miðað við það, sem áður var. Sú stefnubreyting, sem varð með kjarasamningunum í febrúar 1990 er augljóslega að festast í sessi. Samningar sem byggðir eru á raunhæfum forsendum munu leiða til þess að uppsveifl- an í íslenzku efnahagsllfi kemst á fulla ferð. Þeir, sem hafa fylgzt með sviptingum á vinnumarkaðnum á undanförnum áratugum, verk- föllum, óraunhæfum kauphækk- unum, óðaverðbólgu og öllu sem því fylgir, hafa átt erfitt með að sannfæra sjálfa sig um það, að breytt viðhorf hafi náð að festa rætur. En þegar tekið er mið af opinberum yfirlýsingum aðila vinnumarkaðar, hvort sem þeir eru í hópi vinnuveitenda eða verkalýðsfélaga, fer tæpast á milli mála, að nú eru allt önnur sjónarmið uppi en áður var. Uppbygging hagdeilda á veg- um verkalýðsfélaganna á áreið- anlega ríkan þátt í þessum breyttu viðhorfum. Forystumenn launþega hafa nú undir höndum upplýsingar um stöðu þjóðarbús- ins og fyrirtækja, sem unnar eru af þeirra eigin starfsmönnum. Þeir hafa jafn hæfa sérfræðinga í sinni þjónustu og bæðj ríki og vinnuveitendur. Þeir hafa að- gang að sömu upplýsingum og geta lagt sjálfstætt mat á þær. Þessi sjálfstæða upplýsingasöfn- un verkalýðsfélaganna um þjóð- arbúskapinn á örugglega mikinn þátt í breyttri afstöðu verkalýðs- hreyfingarinnar. Reynslan af tveggja áratuga óðaverðbólgu á einnig þátt í breyttri afstöðu. Stjórnendur fyrirtækja hafa kynnzt því að auðveldara er að reka fyrirtæki, þegar stöðugleiki ríkir. Starfs- menn fyrirtækjanna háfa með ýmsum hætti notið góðs af þeim stöðugleika. Hinn almenni borg- ari finnur það í eigin heimilis- rekstri að stöðugleiki og lítil verðbólga er honum til hagsbóta. Þessi breyttu viðhorf vekja bjartsýni um framtíðina. Þau vekja vonir um að okkur muni takast að halda þjóðarskútunni á réttum kili næstu árin og sigla upp úr öldudalnum. Takist skyn- samlegir samningar nú er þess tæplega langt að bíða að ríkis- valdið geti farið að létta skatt- byrði almennings smátt og smátt, sem hefur þyngst mjög á undanförnum kreppuárum. Stundum er sagt, að skattar, sem einu sinni hafa verið lagðir á, verði aldrei lagðir niður. Þessi ríkisstjórn, eða.sú, sem við tek- ur, á að afsanna þær staðhæf- ingar. Tekjur ríkissjóðs hafa aukist mjög með batnandi tíð og fyrr eða síðar á það að skila sér til skattgreiðendanna sjálfra. Það yrði martröð fyrir þjóðina alla, ef við horfðum fram á lang- an og erfiðan verkfallavetur. En með sama hætti yrði það gífur- legur léttir, ef tækist nú um þessa helgi eða næstu daga að ljúka vinnudeilum með friðsam- legum hætti og með skynsamleg- um og raunhæfum samningum. Fyrri hluti þessa áratugar hef- ur verið erfiður. Seinni hlutinn getur orðið tími mikilla framfara og þjóðfélagsumbóta, ef rétt er á haldið. STUÐNING- URVIÐ LANDBÚNAÐ ÞÓRÐUR Friðjónsson, for- stjóri Þjóðhagsstofnunar, skýrði frá því á fundi með ráðu- nautum Búnaðarfélags íslands og Rannsóknarstofnunar land- búnaðarins fyrir nokkrum dög- um, að stuðningur stjórnvalda við landbúnað væri hér enn með því hæsta, sem þekktist meðal aðildarríkja OECD. Fram á árið 1992 var ísland í fyrsta sæti að þessu leyti, en á árinu 1994 er Island talið vera í fjórða sæti. Þetta er þeim mun athyglis- verðara, þar sem verulegur nið- urskurður hefur orðið á þessu kjörtímabili á fjárframlögum til landbúnaðarins. Er talið, að hann nemi á fjórum árum 6-7 milljörðum króna. Á árinu 1992 kom til framkvæmda nýr bú- vörusamningur og samkvæmt honum voru útflutningsbætur lagðar niður, en þær námu 2,4 milljörðum á árinu 1991. Bændur hafa lagt hart að sér á undanförnum árum til þess að laga framleiðslu sína og starfs- hætti að breyttum tímum og nýjum markaðsaðstæðum. Draga má í efa, að nokkur þjóð- félagshópur hafi orðið fyrir jafn mikilli röskun á stöðu og högum og þeir á svo skömmum tíma. Þær upplýsingar sem fram komu í erindi Þórðar Friðjóns- sonar benda hins vegar til þess, að hér sé ekki hægt að Iáta stað,- ar numið. Og þótt bændum kunni að þykja það hart komast þeir ekki hjá því að horfast í augu við þennan veruleika. Sala á kindakjöti hefur t.d. dregizt saman um 16% frá árinu 1990 og sala kjötafurða í heild hefur minnkað á undanförnum árum. Breyttar neyzluvenjur fólks koma hér við sögu og þeim verð- ur ekki breytt með opinberum tilskipunum eða fjárframlögum hins opinbera. HELGI spjall NASTASJA FILIPPOVNA VIÐ PARFJON ROGOZHÍN (EÐA MYSHKIN FURSTI) En ást þín var hnífur og helvíti mitt var hjarta sem blæddi og drap yndi sitt og dauðinn var lausn eins og dagur sem fer með draumkenndan hroll inní myrkrið með sér. Ég hugsa um furstann en horfi á þig ég er hóran Nastasja og þú keyptir mig, hann sagði ég væri göfug og góð þú grézt þar sem dauðinn við rúmið mitt stóð. Það var indælt að finna hann elskaði mig hann elskaði báðar og fuglana og þig og hönd hans var mjúk eins og kulið við kinn en ég kaus þó að deyja sem fávitinn þinn. En fuglarnir kviðra við kvöldlúna grein og kvíðagult lauf þar sem dagsljósið skein unz skógurinn þagnar og þögnin ber minn þráláta harm inní dauðann með sér. Nastasja Filippovna í Þjóðleikhúsinu. M (meira næsta sunnudag) IÓLAFS SÖGU THORS ER M.A. sagt frá bréfaskiptum þeirra bræðra, Ólafs og Thors Thors, sem þá var sendiherra íslands í Washington. í bréfi, sem Ólaf- ur skrifaði Thor bróður sínum rúmri viku eftir þingkosningar, sem fram fóru haustið 1949, sagði hann m.a. um úrslit kosninganna: „Jónas Rafnar glimrandi. Það var gott fyrir mig, því víða heyri ég utan að mér, einmitt nú, að ég hafi teflt eins og asni, þegar ég setti J.R. á Akureyri en M.J. (Magnús Jónsson) í sýsluna. Raunar réði ég því engan veginn. En ef illa hefði til tekizt, er vafalítið hver skömmina hlaut. - Framsóknarmenn töldu Kristin kosinn [Kristinn Guðmundsson síðar utanríkisráð- herra].“ í sögu Ólafs Thors segir einnig um þess- ar kosningar: „Það vekur einkum athygli, hve Jónas Rafnar bætti miklu fýlgi við Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri í þessum kosningum. Hann hlaut 1292 atkvæði en í kosningunum á undan fékk flokkurinn 961 atkvæði." Jónas G. Rafnar, fyrrum alþingismaður og bankastjóri, sem jarðsettur verður nk. þriðjudag, var einn í hópi glæsilegra ungra manna, sem komu til liðs við Sjálfstæðis- flokkinn á fyrstu árunum eftir heimsstyij- öldina síðari og settu mjög svip á flokkinn og forystusveit hans næstu áratugi. Það var reisn yfir sjálfstæðismönnum á Norð- urlandi, þar sem þeir fóru í fararbroddi sameiginlega, þannig að ekki bar skugga á, þeir Jónas G. Rafnar og Magnús heitinn Jónsson frá Mel. Jónas G. Rafnar var hlédrægur maður og hógvær og hafði sig ekki mikið í framrni. En hann var einn þeirra manna, sem á löngum þingferli mynduðu kjölfest- una í Sjálfstæðisflokknum. Það tók langan tíma að kynnast Jónasi G. Rafnar en þá kom í ljós, að þar fór maður, sem hafði til að bera traustari dómgreind, en margir þeirra, sem létu meira að sér kveða. Það var afar lærdómsríkt fyrir unga menn að tala við Jónas G. Rafnar um stjómmál. Slík var yfirsýn hans og þekking á mönn- um og málefnum. Þeir, sem á annað borð kynntust þekkingu hans, dómgreind og víðsýni, leituðu til hans aftur og aftur. Samskipti Jónasar G. Rafnar og rit- stjóra Morgunblaðsins voru ekki mikil framan af árum en þegar harðna tók á dalnum innan Sjálfstæðisflokksins eftir kosningarnar 1978 og hálfgert styijaldar- ástand ríkti á vettvangi flokksins næstu árin á eftir, fjölgaði þeim fundum enda gott og gagnlegt að hlýða á mann, sem stóð utan við átökin en hafði einlægan áhuga á velferð Sjálfstæðisflokksins. Leið- sögn Jónasar G. Rafnar á þeim árum kom viðmælendum hans vel.Og þrátt fyrir sam- eiginlegan pólitískan áhuga á þessum árum undir lok kalda stríðsins skildi hann vel þá þróun til sjálfstæðis Morgunblaðs- ins, sem þá þegar hafði verið mörkuð og fylgt fram hægt og bítandi.Grundvallar- stefna Sjálfstæðisflokksins var sameigin- legt markmið enda hefur hún nú einnig sett svip sinn á aðra stjómmálaflokka. Þótt Jónas G. Rafnar hefði ekki mikil bein afskipti af innri málefnum Sjálfstæð- isflokksins, eftir að hann var sjálfur hætt- ur þátttöku í stjómmálum, lét hann þó óvænt en rækilega að sér kveða fyrir borg- arstjómarkosningarnar 1982. Þá hafði vinstri meirihluti setið að völdum í Reykja- vík í fjögur ár og sjálfstæðismönnum kappsmál að endurheimta meirihluta sinn. Hins vegar hafði Sjálfstæðisflokkurinn klofnað við myndun ríkisstjómar tveimur árum áður, þegar Gunnar Thoroddsen, varaformaður flokksins, myndaði ríkis- stjórn í andstöðu við mikinn meirihluta sjálfstæðismanna. Albert Guðmundsson hafði heitið þeirri ríkisstjórn hlutleysi, þeg- ar hún var mynduð, en hann sat einnig í borgarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn. I prófkjöri vegna borgarstjórnarkosning- anna hafði Albert lent í þriðja sæti á eftir Davíð Oddssyni og Markúsi Emi Antons- syni. í janúarmánuði 1982 höfðu forystumenn vinstri flokkanna leitað mjög eftir sam- starfi við Albert Guðmundsson og jafnvel gefið til kynna, að færi hann fram með sérstakan framboðslista í borgarstjórnar- kosningunum ætti hann kost á borgar- stjóraembætti í samstarfi við þá að kosn- ingum loknum. Þeir Jónas og Albert vora samstarfsmenn í Útvegsbanka íslands, þar sem Albert var formaður bankaráðs, þegar hér var komið sögu. í desembermánuði 1981 hafði Jónas G. Rafnar samband við forsvarsmenn Morg- unblaðsins og óskaði eftir trúnaðarsamtali við þá. í minnispunktum ritstjóra blaðsins um þetta samtal segir m.a.: „Erindi hans var, að hann og tveir aðrir menn hefðu rætt sín í milli um borgarstjómarkosning- amar 1982. Þeir væru sannfærðir um, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði möguleika á meirihluta í þeim kosningum, ef flokkurinn stæði sameinaður, en til þess, að svo yrði væri nauðsynlegt að hafa Albert Guð- mundsson á listanum. Jónas sagði, að hann og samstarfsmenn hans tveir hefðu engra hagsmuna að gæta, en væra í þeirri aðstöðu, að þeir gætu lagt að Albert Guð- mundssyni að taka skynsamlegar ákvarð- anir. Jónas Rafnar reifaði síðan stöðuna í sambandi við borgarstjómarlistann og sagði að það væri auðvitað ljóst, að Davíð Oddsson yrði borgarstjóraefni og líklega væri ekki kostur á því að hafa tvo borgar- stjóra og svöraðum við því til, að það væri rétt mat hjá honum. Hins vegar sagði hann, að Albert legði mikið upp úr því að halda sæti sínu í borgarráði og teldi það í nokkurri hættu eftir að Markús Öm varð fyrir ofan hann í prófkjörinu og jafnframt ræddi Jónas um þann möguleika, að Al- bert yrði ásamt því að vera áfram í borgar- ráði forseti borgarstjórnar. Tilmæli Jónas- ar voru þau, að við ræddum þetta við áhrifamenn í Sjálfstæðisflokknum til þess að kanna, hvort þeir hefðu áhuga á aðstoð hans og hans manna í þessum efnum.“ í kjölfarið fylgdu í janúarmánuði fundar- höld og samráð á milli forystumanna Sjálf- stæðisflokksins. í þeim samtölum kom skýrt fram, hvert traust Geir Hallgríms- son, þáverandi formaður Sjálfstæðis- flokksins, bar til Jónasar G. Rafnar. Um skipan framboðslista Sjálfstæðisflokksins urðu miklar sviptingar og um skeið leit út fyrir, að Albert Guðmundsson yrði ekki á listanum en svo fór þó í janúarlok, að samkomulag náðist um, að Albert yrði I framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Um vorið endurheimti Sjálfstæðisflokkurinn meirihluta sinn í borgarstjóm með glæsi- legum hætti undir forystu Davíðs Oddsson- ar. Ritstjórar Morgunblaðsins minnast sam- skipta við Jónas G. Rafnar með þakklæti. Hann var einn þeirra manna, sem gerðu Sjálfstæðisflokkinn verðan þess að hljóta almannastuðning. Jöfnun sam- keppnisskil- yrða Á SIÐUSTU ÁRUM hefur krafan um jöfnun samkeppnis- skilyrða í atvinnu- og viðskiptalífi orð- ið mjög hávær. Hún birtist með ýmsum hætti. Þeir, sem reka atvinnufyrirtæki, sætta sig ekki lengur við margvísleg afskipti opinberra aðila af rekstri einstakra fyrirtækja. Einkafyrir- tæki í skipasmíðum sættir sig ekki við fjár- framlög opinberra aðila í einu eða öðru formi til annarra skipasmíðastöðva. Það skekkir samkeppnisskilyrðin. Fyrirtæki, sem starfa að hugbúnaðar- gerð, sætta sig ekki við, að opinber fyrir- tæki séu umsvifamikil í hugbúnaðargerð og búi við allt aðra skattlagningu en einka- fyrirtækin. Það má spyija, hvort eðlilegt sé, að mjólkurbú sé úrelt með almannafé en síðan notað til þess að hefja nýja drykkj- arvöraframleiðslu í samkeppni við einka- fyrirtæki, sem þurfa að standa undir mik- illi fjárfestingu. Fyrirtæki, sem keppa við Póst og síma, hafa ítrekað bent á ójöfn samkeppnisskilyrði á þeim vettvangi. Um þetta má nefna fjölmörg dæmi. Tíðarand- REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 18. febrúar Mbl/Rax inn er sá, að þetta sé óþolandi og óviðun- andj. Sl. fímmtudag efndi Félag viðskipta- fræðinga og hagfræðinga til fundar um íslenzkan fjármagnsmarkað um aldamót. Á þessum fundi flutti Ragnarpnundarson, einn af framkvæmdastjórum íslandsbanka hf., ræðu, þar sem hann fjallaði um að- stöðumun einkafyrirtækja, sem starfa á fjármálamarkaðnum, og opinberra fyrir- tækja. í ræðu þessari hélt Ragnar Önund- arson því fram, að bankar og aðrar lána- stofnanir í eigu ríkisins fengju um 3.600 milljónir króna í ólögmætan styrk á ári í formi arðgreiðsluleysis og undanþágu frá ríkisábyrgðargjaldi. Rökstuðningur framkvæmdastjórans fyrir þessum staðhæfíngum er sá, að 0,25% ríkisábyrgðargjald hefði verið lagt á sumar lánastofnanir í eigu ríkisins, stofninn til gjaldtöku væri 64 milljarðar en ætti að réttu að vera 385 milljarðar króna. Tekjur ríkissjóðs af gjaldinu ættu að vera 960 milljónir en væra einungis 160 milljónir en mismunurinn, 800 milljónir, væri í raun ríkisstyrkur, sem ekki væri skýlaus laga- heimild fyrir. Þá hélt Ragnar Önundarson því fram, að þessar stofnanir ættu 51 milljarð króna í eigin fé og ef greiddur væri af því há- marksarður, 8,5%, væri um að ræða 4,6 milljarða á ári, sem ríkissjóður yrði af í tekjum. Raunhæfara væri að reikna með 5-6% arði, sem væri þá um 2,8 milljarð- ar. Þessi eftirgefni arður er að mati fram- kvæmdastjórans óréttlátur gagnvart ís- landsbanka og sparisjóðunum. Hann taldi ennfremur ólíklegt, að hann samrýmdist samningunum um EES, þar sem hann kynni að gera erlendum lánastofnunum á íslandi erfitt fyrir í samkeppni. Vafalaust verða einhveijir til þess að gera athugasemdir við þessa röksemda- færslu Ragnars Önundarsonar. Hitt er al- veg ljóst, að einkafyrirtæki, sem starfa á fjármálamarkaðnum, hljóta með sama hætti og einkafyrirtæki í öðrum starfs- greinum að gera kröfu til þess að sam- keppnisskilyrði I þessari atvinnugrein séu jöfn. Þar sitji allir við sama borð. I upphafi þessa kjörtímabils var töluvert rætt um einkavæðingu ríkisbanka. Morg- unblaðið taldi á þeim tíma ráðlegast að fara hægt í sakimar í þeim efnum. Banka- kerfíð var að fara inn í mjög erfitt tíma- bil mikilla afskrifta vegna tapaðra skulda. Þetta tímabil er senn að baki. Nú er tíma- bært að hefja umræður á nýjan leik um eðlilegar breytingar á aðild ríkisins að fjár- málastofnunum. í því sambandi er ástæða til að vekja athygli á þeim umræðum, sem að undan- förnu hafa farið fram á vegum ríkisstjóm- arinnar um framtíð þriggja fjárfestingar- lánasjóða, sem að hluta til a.m.k. eru tald- ir í eigu hins opinbera. Niðurstaða ríkis- stjómarinnar varð sú, að breyta annars vegar Fiskveiðasjóði og hins vegar Iðn- lánasjóði og Iðnþróunarsjóði í tvö hlutafé- lög. Væntanlega er markmiðið með því að breyta sjóðunum í hlutafélög að selja smátt og smátt hlutabréfín í þeim á fijáls- um markaði. Morgunblaðið hefur vakið athygli á því, að það sé í raun og veru fortíðarfyrirbæri að starfrækja sérstaka fjárfestingarsjóði af þessu tagi. Nú geta vel rekin og öflug fyrirtæki, sem hugsa til fjárfestinga, boðið út fjármögnun slíkra fjárfestinga og gefið bönkum og sparisjóðum, verðbréfafyrir- tækjum og erlendum lánastofnunum kost á að taka þátt í útboðinu. Það má m.ö.o. færa rök fyrir því, að það sé ekki lengur þörf á sérstökum fjárfestingarlánasjóðum, eins og hér hafa tíðkazt. Þótt æskilegra hefði verið, að ríkisstjórnin hefði stigið skrefíð til fulls, er það þó spor í rétta átt að breyta sjóðunum í hlutafélög. í kjölfar- ið hlýtur röðin að koma að ríkisbönkunum. Hluti af heimsmark- aði I ÞESSU SAM- bandi er ekki úr vegi að vekja at- hygli á hugleiðing- um Guðmundar Haukssonar, fram- kvæmdastjóra Kaupþings hf., á fyrrnefnd- um fundi viðskiptafræðinga og hagfræð- inga. Hann sagði m.a.: „Verðbréfamarkað- urinn er t.a.m. aðeins nokkurra ára gam- all og stutt er síðan Seðlabanki íslands ákvað alla vexti í landinu. Bankar höfðu takmarkaðar heimildir, þær vora að mestu bundnar við innlend viðskipti og sam- keppni þeirra á milli var mjögtakmörkuð. Þessi staða endurspeglar margt í þjóðfé- lagi okkar. Forsjárhyggjan var lengi í for- sæti þannig að lítið rými var til skapandi hugsunar. Þjóðfélagið nýtti sér seint feng- ið sjálfstæði og því varð bið á framföram á mörgum sviðum. Á meðan miklar fram- farir urðu á vettvangi fjármálaþjónustu erlendis gerðist lítið serh ekkert hér á landi. Eins og áður var getið skorti menn skilning á þessari atvinnugrein. Hugurinn var um of bundinn við hefðbundna atvinnu- vegi og enn í dag vantar mikið á, að eðli- leg viðurkenning fáist á þessari starfsemi. Reyndar tel ég að þetta hugarfar hafí komið í veg fyrir nýsköpun á fleiri sviðum.“ Og síðar í ræðu sinni sagði fram- kvæmdastjóri Kaupþings: „Árið 2000 er skammt undan. Þó er líklegt að við eigum eftir að sjá miklar breytingar eiga sér stað á þessum skamma tíma. Annars vegar er nýlega búið að fella niður ýmis boð og bönn í viðskiptalífínu hér á landi sem lík- legt er að fyrirtæki færi sér í nyt, hins vegar mun þróun mála erlendis hafa áhrif á okkur, þar sem við tengjumst nú í rík- ara mæli alþjóðlegu viðskiptaumhverfí. Heimurinn verður í stóram dráttum eitt fjármálasvæði og ísland hluti þess. Er mikilvægt að við nýtum okkur vel þá sókn- armöguleika, sem í þessu felast. Það fer aldrei hjá því, að ýmsir ókostir fylgi opnu kerfi eins og hér er spáð og samkeppnin á verðbréfamarkaði verður fyrir bragðið mun harðari en við höfum áður þekkt.“ Framfarir í fjármálaþjónustu á íslandi á einum áratug hafa fyrst og fremst orðið fyrir frumkvæði fyrirtækjanna sjálfra, sem starfa á þessum markaði, bæði nýrra og gamalla. Stjórnmálamennirnir hafa ekki haft þar forystu heldur fylgt á eftir kröfum fyrirtækjanna og markaðarins með laga- breytingum og annarri aðlögun að nýjum starfsháttum. Nú er tímabært að stíga skrefíð til fulls. „Það tók langan tíma að kynnast Jónasi G. Rafnar en þá kom í ljós, að þar fór maður, sem hafði til að beratraustari dómgreind, en margir þeirra, sem létu meira að sér kveða. Það var afar lærdóms- ríkt fyrir unga menn að tala við Jónas G. Rafnar um stjórnmál. Slík var yfirsýn hans og þekking á mönnum og mál- efnum. Þeir, sem á annað borð kynntust þekk- ingu hans, dóm- greind og víðsýni, leituðu til hans aftur og aftur.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.