Morgunblaðið - 19.02.1995, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Forstjóri Bifreiða-
skoðunar íslands hf.
Þörf á að
lækka
gjaldskrá
KARL Ragnars, forstjóri Bifreiða-
skoðunar Islands hf., segir að fyrir-
tækið geri ráð fyrir því að þurfa að
lækka gjaldskrá sína til móts við þær
verðlækkanir sem hafa orðið á þess-
um markaði.
Eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu í fyrradag verður ný skoðun-
arstöð, Athugun hf., opnuð i Reykja-
vík í næsta mánuði og hafa forsvars-
menn hennar lýst því yfír að þeir
muni bjóða lægri skoðunargjöld en
samkeppnisaðilamir, Bifreiðaskoðun
íslands og Aðalskoðun hf. „Við erum
alveg meðvitaðir um það að við þurf-
um að kljást við þær verðlækkanir
sem fram eru komnar og lifum ekki
af öðru vísi,“ segir Karl.
Hann fagnar tilkomu nýja fyrir-
tækisins en segir að sá markaður sem
þessi þijú fyrirtæki kepþi á sé í kring-
um 110-120 milljónir króna á ári.
„Mér fmnst býsna miklar fjárfesting-
ar hafa verið gerðar á litlum mark-
aði, ef þeir í Hafnarfírði hafa íjár-
fest fyrir 40 milljónir og þeir í Kletta-
görðum fyrir 70-80 milljónir króna
miðað við árlegar telqur á þessum
markaði sem eru upp á 110-120
milljónir króna.“
Aðalskoðun lækkar
hugsanlega verðskrá
Aðalskoðun hf. hefur boðið upp á
þá nýjung að fyrirtækjum og stofn-
unum er boðinn allt að 25% afsláttur
af skoðunargjöldum beini þau við-
skiptum sínum þangað. Gunnar Sva-
varsson, framkvæmdastjóri, segist
ekki útiloka að Aðalskoðun lækki
verðskrána bjóði Athugun hf. upp á
lægri gjöld.
„Mér sýnist vera að myndast tvær
stórar stöðvar með stórum og
traustum hluthöfum og svo annars
vegar stöð hér í Hafnarfirði sem er
einstaklingsframtak 22 einstakl-
inga. Við ætlum okkur að halda úti
þessari þjónustu, stuttum biðtíma
og lágu verði og reyna að lesa mark-
aðinn."
Sjálfstæðismenn hefja
kosningaundirbúninginn
manns Sjálfstæðisflokksins og
forsætísráðherra. Að því búnu
var rætt um kosningaundirbún-
inginn. Var rætt um helstu
verkefni ríkissljórnarinnar og
málefnagrundvöll flokksins í
komandi Alþingiskosningum.
Morgunblaðið/Þorkell
Tæplega 500 manns án atvinnu í Reykjavík í yfir 6 mánuði
40% langtímaatvinnu-
lausra 61 til 70 ára
TÆPLEGA 500 manns höfðu verið
atvinnulausir samfleytt í sex mán-
uði í Reykjavík um síðustu mánaða-
mót, þar af 310 konur og 188 karl-
ar. Stærstur hluti kvennanna er
ungar konur í verslunarstétt, en
meirihluti karlanna í hópnum er á
aldrinum 51-70 ára með fjölbreytta
menntun að baki. Um 40% lang-
tímaatvinnulausra, þ.e. þeirra sem
hafa verið atvinnulausir 52 vikur
eða lengur, eru á aldrinum 61 til
70 ára. Þetta eru meðal niðurstaðna
sem lesa má könnun á högum at-
vinnulausra sem Vinnumiðlun
Lesendaþjónusta Morgnnblaðsins
Spurt og svarað um
tilvísunarkerfið
Heilbrigðisráðherra hefur gefið
út reglugerð um tilvísunarkerfí í
heiibrigðisþjónustunni. Til að
auðvelda lesendum að átta sig á
þessari breytingu mun Morgun-
blaðið taka á móti spumingum
þeirra í síma 691100 milli kl. 10
og 11 árdegis, mánudaga til
föstudaga. Spumingunum verður
komið á framfæri við heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytið, svo og
Sérfræðingafélag íslenzkra
lækna, eftir því, sem efni þeirra
gefur tilefni til og verða svörin
birt svo fljótt sem unnt er. Les-
endur geta beint spumingum sín-
um til annars hvors aðilans eða
beggja ef því er að skipta. Nauð-
synlegt er að nöfn og heimilisföng
fylgi spumingum lesenda.
Reykjavíkurborgar hefur látið gera.
Rúmlega helmingur kvenna,
sem verið hafa á atvinnuleysisskrá
samfellt í sex mánuði, er á aldrin-
um 21-40 ára, en helmingur karl-
anna er á aldrinum 51-70 ára. Sjö
sinnum fleiri konur á aldrinum 21
til 30 ára eru búnar að vera at-
vinnulausar þennan tíma en karlar
á sama aldri.
Karlarnir úr mun fleiri
félögum en konurnar
Tæplega helmingur kvennanna
er félagsmenn í Verslunarmanna-
félagi Reykjavíkur. Þetta eru
mest ungar konur. Einnig hefur
fjölmennur hópur fullorðinna
kvenna úr Verkakvennafélaginu
Sókn verið án vinnu í sex mán'-
uði. Karlarnir í þessum hópi at-
vinnulausra koma úr mun fleiri
félögum en konurnar og hafa fjöl-
breyttari menntun að baki.
Stærsti einstaki hópurinn meðal
karlanna er fullorðnir menn úr
Dagsbrún og VR.
Rúmlega helmingur karlanna í
hópnum og tæplega helmingur
kvennanna er barnlaus. í hópnum
eru 30 einstæðar mæður eða um
10% af konunum. í hópnum eru
tveir atvinnulausir karlar með
fimm börn á framfæri og fjórtán
konur með fjögur börn á fram-
færi.
Hagir langtímaatvinnulausra
kannaðir
Um 40% langtímaatvinnu-
lausra, þ.e. þeirra sem hafa verið
atvinnulausir 52 vikur eða lengur,
eru á aldrinum 61 til 70 ára að
því er fram kemur í niðurstöðum
könnunar Vinnumiðlunar Reykja-
víkurborgar á högum langtímaat-
vinnulausra.
Oddrún Kristjánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Vinnumiðlunarinn-
ar, segir að verið sé að kanna hvort
hægt sé að bjóða fólkinu verkefni
við hæfi í tengslum við átaksverk-
efni borgarinnar á yfirstandandi
ári. Alls er um að ræða 85 einstakl-
inga, 47 konur og 38 karla.
„Okkur fannst í framhaldi af
niðurstöðunni nauðsynlegt að tala
við einstaklingana og kölluðum þá
í viðtal," sagði Oddrún. Hún sagði
að ýmislegt athyglisvert hefði þá
komið fram. „Margir voru orðnir
mjög beygðir og fannst dapurlegt
að ljúka starfsævinni á þennan
hátt. Flestir voru með fullan bóta-
rétt, þ.e. höfðu verið í fullri vinnu,
og höfðu leitað fast eftir vinnu
fyrst eftir að þeir misstu vinnuna
en síðan gefíst upp. Almennt
fannst fólki það mjög afskipt og
var yfirleitt þakklátt fyrir að fá
tækifæri til að tala við einhvem
og tjá sig.“
Lára Margrét Ragnarsdóttir með nýjar upplýsingar um kostnað við tilvísanakerfið
Tilvísanakerfið eykur kostnað
LÁRA Margrét Ragnarsdóttir alþingismaður
segir að tilvísanakerfið muni auka kostnað við
heilbrigðiskerfíð. Nýjar upplýsingar sýni að
þær forsendur sem menn hafi byggt útreikn-
inga á kostnaði við tilvísanakerfið hafi reynst
rangar. Kerfið feli í sér lítt dulbúna tilraun til
að koma í veg fyrir einkarekstur á lækninga-
stofum.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti
1993 að tilvísanakerfi yrði ekki komið á fót í
heilbrigðiskerfínu, enda hafi ekki verið sýnt
fram á að það feli í sér spamað. Davíð Oddsson
forsætisráðherra sagði í Morgunblaðinu í gær
að forsenda fyrir því að fallist hefði verið á sjón-
armið Sighvats Björgvinssonar heilbrigðisráð-
herra um að taka upp tilvísanakerfi hefði verið
að kerfið væri talið spara 100 milljónir króna.
Landsfundur flokksins hefði hafnað tilvísana-
kerfí sem ekkert sparaði.
Kemur í veg fyrir rekstur lækningastofa
„Heilbrigðisnefnd flokksins hefur rætt þetta
mál ítarlega síðan þessi samþykkt landsfundar-
ins var gerð og það hafa komið fram ýmsir
nýir fletir á þessu máli. Menn hafa bent á að
þama væri um að ræða Iítt tilbúna tilraun til
að koma í veg fyrir einkarekstur á lækningastof-
um. Tilvísanakerfíð felur í sér miðstýringu sem
að mínu mati er ekki í samræmi við heildar-
stefnu flokksins.
Að undanförnu hef ég fengið upplýsingar
um að þær forsendur sem voru lagðar til grund-
vallar útreikningum um þennan sparnað sem
kerfið átti að gefa hafi verið afar villandi og
sumar þeirra beinlínis rangar. Samkvæmt þess-
um leiðréttingum sem ég hef séð á forsendun-
um mun kerfið ekkert spara. Það mun frekar
leiða til meiri útgjalda. Auk þess mun kerfið
hafa mikil óþægindi í för með sér fyrir almenn-
ing því það felur í mörgum tilvikum í för með
sér tvær heimsóknir í stað einnar,“ sagði Lára
Margrét.
Hún sagðist enn ekki hafa haft tækifæri til
að ræða þessar nýju upplýsingar við Davíð
Oddsson, en hún myndi gera það fljótlega.
► l-48
Unglingahegðun að
byrja að reykja
►Þrátt fyrir stöðuga fræðslu og
fleiri reyklaus heimili aukast reyk-
ingar unglinga, einkum hjá piltum
15-16 ára./10
Valdatafl í Varsjá
►Á meðan Lech Walesa leikur
borðtennis við skriftaföður sinn í
forsetahöllinni í Varsjá væna and-
stæðingamir hann um valdníðslu
og hroka./12
Eru gleraugu feig
►Leysiaðgerðirtil að lagfæra
nærsýni hafa verið í boði á almenn-
um markaði víða um heim seinustu
ár. Sumirtelja að hún muni leysa
gleraugu af hólmiað miklu leyti í
náinni framtíð./14
Eftirlaunamái í ólestri
►Tæpur helmingur þjóðarinnar
illa á vegi staddur með skipulagn-
ingu eftirlaunasparnaðar/18
Við erum bestar
►í Viðskiptum og atvinnulífí er
rætt við Ólöfu de Bont, fram-
kvæmdastjóra Fjölprents. /20
B
► 1-28
Kristur nægir mér
► Séra Sigurður Ægisson fékk að
reyna djúpasorg eftir sviplegan
vinarmissi. í kjölfarið fylgdi sjálfs-
skoðun og uppgjör við almættið.
Hann ákvað að skipta um vettvang
og fara til þjónustu í norsku kirkj-
unni á lítilli eyju við heimskauts-
baug./l
Nýjungar í norrænu
sjónvarpssamstarfi
►Enn eru uppi hugmyndir um
norrænt sjónvarpssamstarf á sviði
gervihnattasendinga þótt fyrri
áætlanir um frekara samstarf á
þessu sviði hafí aldrei orðið að
veruleika. /10
Vil vinna við tónlist
►Margrét Örnólfsdóttir, fyrrum
Sykurmoli, hefur verið ráðin til að
taka að sér bamatíma á Stöð 2/12
Vetur
►Vetur konungur ræður enn ríkj-
um á íslandi, en þess sjást þó víða
merki að tök hans linast óðum
með hækkandi sól/14
Hús í sérflokki
►Á 25 ára afmælisfundi Húsfrið-
unarnefndar afhenti Hörður Ág-
ústsson handrit sitt að ritinu Hús-
vemd./26
C
BILAR
► 1-4
Jaguar
►Breski eðalbílaframleiðandinn
hyggst smíða jeppa./l
Scania til Heklu
► Heimsókn í aðalstöðvar Scania
í Svíþjóð./4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/8/bak
Leiðari 24
Helgispjall 24
Reykjavíkurbréf 24
Minningar 26
Myndasögur 34
Bréf til blaðsins 34
ídag 36
Brids 36
Skák 36
Stjömuspá 37
Fólk i fréttum 38
Bíó/dans 40
íþróttir 44
Útvarp/sjðnvarp 45
Dagbók/veður 47
Mannlífsstr. 6b
Dægurtónlist 8b
Kvikmyndir 9b
INNLENDARFRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-6