Morgunblaðið - 19.02.1995, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.02.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1995 17 Listaklúbbur Leikhúskjallarans Bellman 200 ára ártíð SÆNSKI vísna- söngvarinn Jan 0. Berg mun koma fram í Listaklúbbi Leikhúskj allarans mánudaginn 20. febrúar, ásamt gítarleikaranum Erik Möllerström. Flytja þeir ljóð eftir hið ástsæla þjóð- skáld Svía, Carl Michael Bellman, og segja frá skáld- inu og verkum þess. í kynningur segir: „Jan 0. Berg hefur helgað mesta hluta lífs síns söng og tónlistarflutningi en hann starfar einnig sem hagfræðingur. Hann hefur sungið í fjölda kóra meðal annars í Háskólakórum í Stokkhólmi og Uppsölum og Kon- unglega óperukómum. Hann hef- ur einnig starfað sem höfundur, söngvari og leikari í revíuleikhúsi. Hin síðari ár hefur henna í æ rík- ara mæli lagt áherslu á flutning laga eftir Bellman en hann er eitt af skólaskáldum Svía og getið sér gott orð á þeim vettvangi. Erik Möll- erström starfar sem einleikari á gítar og tónskáld og liggur eftir hann íjöldi tónverka fyrir klassískan gítar. Möllerström kennir við tónlistarskóla í Stokkhólmi og Maríuhöfn auk þess sem hann rek- ur eigin gítarskóla í Stokkhólmi. Jan 0. Berg og Erik Möll- erström koma hingað í tengslum við Sólstafí, Norrænu menningar- hátíðina, sem nú stendur yfír í Reykjavík." Dagskáin í Listaklúbbnum á mánudagskvöldið hefst um kl. 20.30. Ekki eru tekin frá borð en húsið verður opnað kl. 20. Miða- verð er kr. 500, en kr. 300 fyrir félaga í Listaklúbbi Leikkúskjall- arans. JAN O. Berg INGRID Jónsdóttir, Guðbjörg Thoroddsen og Guðlaug María Bjarnadóttir. Leiklist með kaffinu ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda áfram sýningum á einleikunum Dóttir, Bóndinn og Slaghörpuleik- arinn, eftir Ingibjörgu Hjartar- dóttur, sem frumfluttir voru í Lis- taklúbbi Leikhússkjallarans 30. janúar síðastliðinn. í fréttatilkynningu segir: „Þetta eru sannar sögur sem byggðar eru á lífí þriggja íslenskra nútíma- kvenna. Þijár ólíkar konur segja sögu sína og velta fyrir sér lífí sínu og tilfinningum. Það sem er sameiginlegt með konunum er að þær eru allar á svipuðum aldri, hafa líka lífssýn og eru aldar upp við svipuð skilyrði. Þetta eru lífs- reynslusögur með brennipunktinn á nýorðnum atburði, sárum missi, sem þær allar standa frammi fyrir og verða að horfast í augu við. Leikkonurnar Guðlaug María Bjarnadóttir, Guðbjörg Thorodd- sen og Ingrid Jónsdóttir leika kon- urnar þijár. Leikstjóri er Sigríður Margrét Guðmundsdóttir. Næstu sýningar verða í dag, sunnudaginn 19. febrúar og sunnudaginn 26. febrúar og hefj- ast klukkan 16.15. Húsið er opnað klukkan 15.30. Miðaverð er kr. 800, hópafsláttur er mögulegur. Þú færð fleira en gott kaffi frá Merrild Þegar þú hellir uppá með Merrild kaffi færðu fleira en gott kaffi því nú geturðu um leið eignast fallega skandinavíska nytjalist. Það eina sem þú þarft að gera er að taka þátt í söfnunarleik Merrild og klippa toppa af rauðum Merrild eða Merrild Light og senda ásamt seðlinum með nafni þínu og heimilisfangi og ávísun ef þarf. Fyrir 30 toppa og 990 kr. ívísun er hægt að fá dúk frá Södahl, fyrir hverja 6 toppa færðu diskamottu frá Södahl, fyrir 40 toppa og 990 kr. ávísun færðu vasa frá Finlandia, fyrir 45 toppa og 1.290 kr. ávísun færðu hitakönnu frá Emsa og fyrir 35 toppa ferðu skreytta Merrild kafFidós og mæliskeið frá Eva Trio. Einnig er hægt að fá greitt fyrir toppana. Hvert heimili má senda hámark 60 toppa og gildir leikurinn til 15. janúar 1996. Nánari upplýsingar eru í Merrild bæklingnum sem fest í öllum matvöruverslunum. Heimskór æsk- unnar í Kanada HEIMSKÓR æskunnar eða „World Youth Choir“ var stofnaður árið 1989. Kórinn hefur starfað einn mánuð á hveiju sumri og alltaf á ólíkum stöðum í heiminum. Kórfélagar eru tæplega 100 talsins á aldrinum 17 til 24 ára og eru valdir úr hópi þúsunda umsækjenda hvaðanæva úr heiminum. Þeir þurfa að hafa staðgóða kunnáttu í nótnalestri og raddbeitingu ásamt reynslu í kórsöng og kórstarfí. Nokkrir íslenskir kórsöngvarar hafa sungið með Heimskór æskunnar og staðið sig með mikilli prýði. Á þessu sumri mun Heimskór æskunnar starfa í Quebec í Kanada ojg fara tónleikaferð um Kanada og Bandaríkin 4.-29. júlí. Kórfélagar vérða sjálfír að bera kostnað af ferðinni milli heimalands og Kanada. Islensk- um kórsöngvurum á aldrinum 17 til 24 ára gefst kostur á að þreyta inntökupróf í kórinn. Upplýsingar veitir Þorgerður Ingólfsdóttir, kórstjóri, í síma 5626239. Utanáskriftin er: Merrild Kaffi Pósthólf 4132 124 Reykjavík □ □ □ □ □ □ Södahl diskamottur stk. Meðfylgjandi eru x 6 toppar. Södahl dúkur (140x180 cm)_____stk. Meðfylgjandi eru ___x 30 toppar auk___x 990 kr. ávísunar. Finlandia glervasi. Meðfylgjandi eru 40 toppar auk 990 kr. ávisunar. MewU£d -setur brag á sérhvern dag! Merrild kaffidós ogEva Trio mœliskeið. Meðfylgjandi em 35 toppar. Emsa hitakanna. Meðfylgjandi em 45 toppar auk 1.290 kr. ávísunar. Endurgreiðsla (hámark 30 toppar í hvert sinn). Ég vilgjaman fá meðfytgjandi___toppa greidda. Hver toppur er 20 kr. virði. Nafh:................................................ Heimilisfang:........................................ Póstnúmer:........................................... Skrifíð með prentstöfíim YDDA F27.16/SIA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.