Morgunblaðið - 19.02.1995, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.02.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1995 27. MINNINGAR GUNNAR GUÐJÓNSSON + Gunnar Guð- jónsson fæddist í Saurbæ á Vatnsnesi í V-Húnavatnssýslu 7. ágúst 1925. Hann lést á Landakots- spitala 12. febrúar síðastliðinn. For- eldrar Gunnars voru Guðjón Guðmunds- son bóndi (f. 1893) og Ragnheiður Björnsdóttir (f. 1890). Systkini Gunnars eru: Jónas (f. 1916), Björn (f. 1919, látinn), Þor- grímur (f. 1920, látinn), Hólm- fríður Þóra og Asdis Margrét (f. 1922), Ólafur (f. 1928, Iátinn) og Rósa (f. 1933). Eftirlifandi eiginkona Gunn- ars er Sólveig Sigurðardóttir (f. 8. ágúst 1925) frá Ósi í Breiðdal. Hennar foreldrar voru Sigurður Jónsson og Jó- hanna Sigurðardóttir. Börn Gunnars og Sólveigar eru: 1) Ragnheiður Guðrún (f. 1948), gift Ásgeiri Kaaber, þeirra börn eru Gunnar Þór, Ingibjörg og Elín. 2) Jóhanna (f. 1949), gift Hirti Jónssyni, þeirra börn eru Iljördís Arna og Jón Iflört- ur. Sonur Jóhönnu og Ómars Skarp- héðinssonar er Gunnar Veigar, sonur ' Gunnars Veigars og Dagm- arar Björnsdóttur er Kristinn. Eigin- kona Gunnars Veigars er Fríða Björk Másdóttir. 3) Erla (f. 1953), gift Ástþór Gíslasyni, þeirra börn eru Eldar, Hrefna og Sunna. 4) Sigurður Gunnar (f. 1959), kvæntur Magneu Björk ísleifsdóttur, þeirra börn eru ísleifur Örn, Sólveig Rún og Sólbjört. Gunnar flutti ungur úr for- eldrahúsum og vann ýmsa vinnu þar til hann hóf störf hjá Strætisvögnum Reykjavikur sumarið 1946 og hefur starfað þar síðan. Gunnar verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju á morgun og hefst athöfnin kl. 13.30. ÞAÐ ER góður íslenskur siður að fylgja gestum til dyra og kveðja þá þar. Þeð þessum fáu orðum vil ég kveðja mág minn Gunnar Guðjóns- son sem er látinn eftir löng og erf- ið veikindi. Gunnar var Húnvetningur, alinn upp í Saurbæ á Vatnsnesi, næst yngstur sjö systkina. Hann fór ung- ur að heiman og eins og margir af hans jafnöldrum varð hann að kom- ast áfram af eigin rammleik. Hans veganesti var fyrst og fremst góð greind, dugnaður og samviskusemi. Hann fór til Reykjavíkur og stund- aði þar ýmiss konar verkamanna- vinnu til að byija með, en lærði snemma á bíl og eftir það varð bif- reiðaakstur aðalstarf hans. Hann var lengi ökumaður hjá Strætis- vögnum Reykjavíkur, en mörg síð- ustu árin skrifstofumaður þar. Árið 1948 kvæntist hann Sól- veigu Sigurðardóttur og er ég full- viss um að það var heillaspor fyrir þau bæði. Þau eignuðust fjögur börn sem öll eru úrvalsfólk. Fjöl- skylda þeirra er sérstaklega sam- hent og kom það best fram í veik- indum Gunnars. Aldrei heyrði ég nokkum mann hallmæla Gunnari og hafði hann þó umgengni við marga meðan hann var ökumaður strætisvagn- anna. Rólegur í fasi og öruggur við starf sitt hefur hann trúlega vakið traust þeirra sem vora farþegar hans. Þetta var á þeim áram sem einkabílar voru ekki við hvers manns dyr og almenningsvagnar troðfullir suma tíma dagsins. Eins og fram hefur komið er ég mágkona Gunnars, gift Jónasi, elsta og eina eftirlifandi bróður hans. Það vildi svo til að strætisvagninn sem Gunnar ók lengi, átti leið um hverf- ið þar sem við búum. Engan áttum við bílinn og drengjunum okkar, sem þá voru á barnsaldri, þótti hið mesta ævintýri að „ferðast með strætó“ eins og þeir orðuðu það. Ekki man ég hver voru tildrög þess, að þeir hlupu á sunnudags- morgnum, þegar farþegar voru hvað fæstir, alllanga leið í veg fyr- ir Kleppsvagninn og fengu að sitja í, stundum fleiri en einn hring. Að hæfilegum tíma liðnum var þeim skilað á sama stað. Svona var Gunn- ar, fundvís á að gleðja þá smáu, hlýr og notalegur. Þau hjónin Sólveig og Gunnar bjuggu á ýmsum stöðum í bænum. Um tíma vora þau í litlu húsi skammt ofan Suðurlandsbrautar. Þá var mátulega löng gönguleið milli heimila okkar og oft farin. Viðtökurnar voru ætíð á sömu lund, hlýjar og glaðlegar og okkur leið vel í návist þeirra. Árið 1961 byggðu þau raðhús í Ásgarði 40 og hafa búið þar síðan. Árin liðu. Bömin uxu úr grasi, fóru og eignuðust sín eigin heimili, en tengslin við foreldrana voru allt- af jafn náin. Það sást vel um helg- ar, þegar flestir áttu frí, að hópur barna og bamabama kom saman á heimili þeirra hjóna. Gagnkvæm umhyggja þessara þriggja ættliða var öllum auðsæ. í mannlegu samfélagi era skuggahliðarnar sjaldan langt und- an. Gunnar greindist með illkynjað- an sjúkdóm og þrátt fyrir erfiða lækningameðferð tókst ekki að bjarga heilsu hans. Hann tók mót- lætinu með ró og stillingu eins og honum var lagið. Hann • dvaldi heima, studdur af eiginkonu, böm- um og tengdabörnum. Kæmi fólk í heimsókn bar hann sig alltaf vel og ræddi fremur um annað en sín veikindi. Hann hafði fótavist þar til fáum dögum fyrir andlát sitt, að hann varð fyrir áfalli, sem dró hann til dauða. Við hjónin og fjölskyldur okkar vottum eiginkonu hans, bömum og öðram ættmennum innilegustu samúð. Blessuð sé minning hans. Ingibjörg Björnsdóttir. Á mánudag fer fram útför Gunn- ars afa okkar og viljum við, bama- böm hans, kveðja hann með nokkr- um orðum. Núna síðastliðna daga hafa rifjast upp fyrir okkur margar minningar sem tengjast afa eins og gefur að skilja. Við munum vel eftir öllum sunnu- dagsheimsóknunum í Ásgarðinn til afa og ömmu, sem hefð hefur verið fyrir síðan við munum eftir okkur. Gunnar afi og Solla amma sáu til þess að enginn fór þaðan svangur eða þurfandi. Oftar en ekki fóru leikar svo að við fengum að gista og okkur öllum fannst það mjög spennandi. Punkturinn yfir i-ið var svo ef við fengum að fara með afa í vinnuna og sitja með honum í strætó. Erfidrykkjur J| Höfum glœsilega c sali og tökum að okkur erfidrykkjur HÓmfy.LAND sími 687111 Við minnumst allra þeirra hluta sem var gaukað að okkur af miklum hlýhug og væntumþykju. Við fund- um alltaf vel að afi bar hag okkar fyrir bijósti og fylgdist vel með því sem við tókum okkur fyrir hendur, sama hvar við vorum: Reykjavík, Suðumesjum, Vestmannaeyjum, Noregi, Spáni eða Bandaríkjunum. Solla amma og Gunnar afi sáu líka alltaf til þess að öll barnabömin, líka þau sem nálgast þrítugsaldur- inn ískyggilega, fengju sælgæti og málshátt á páskunum. Amma og afi stóðu fyrir dags- ferðum íjölskyldunnar til Þingvalla áður fyrr. Þau komu með nesti eins og til þriggja ára og stoppað var við hveija lækjarsprænu svo að „bömin 'geti vaðið“. Það sem er okkur minnisstæðast era jólin sem era mikil fjölskylduhá- tíð hjá okkur og það er ekki síst ömmu og afa að þakka. Við sjáum afa fyrir okkur lesa á jólapakkana. Hann passaði alltaf vel upp á að yngstu fjölskyldumeðlimirnir væra með pakka í höndunum. Og það var greinilegt að afi sinnti þessu hlut- verki sínu af mikilli alvöra og hafði ánægju af því. Aðeins einu sinni baðst hann undan þessu starfí, en þá vora veikindin farin að hrjá hann. Eftir að hann veiktist gerði hann sitt besta til að íþyngja ekki fjölskyldunni með sínum vandamál- um. Hann var rólegur og hógvær maður alla tíð. Við fengum mislang- an tíma með afa, þau yngstu okkar vora rétt búin að kynnast honum. Við éram þakklát fyrir þær stundir sem við fengum með afa og söknum hans mikið. Ömmu Sollu vottum við okkkar dýpstu samúð, hennar missir er mikill. Barnabörn. Góður maður er genginn. Friður- inn fenginn. Hörðu stríði, sem hann mætti með æðruleysi, er lokið. Gunnar var mikill fjölskyldumað- ur og traustur vinur vina sinna. Gunnar og Solla, kona hans, sam- stillt svo af bar. Missir hennar er því mikill. Gunnar gekk til allra starfa af miklum dugnaði og sam- viskusemi og ber húsið þeirra í Ásgarðinum þess glöggt vitni. Heimili þeirra stóð ævinlega opið gestum og gangandi, oft fullt út úr dyrum af frændfólki og vinum. Við undirrituð og bömin okkar voram ein af þeim sem nutu góðra stunda í Ásgarðinum og úti í náttúr- unni. Að leiðarlokum viljum við þakka Gunnari vináttuna og traustið, sem hann sýndi okkur alla tíð. Með þessum fátæklegu skrifum kveðjum við kæran vin og vonum að guð styrki Sollu og fjölskyldu hennar í sorginni. Alda og Einar. Aðeins örfá orð til þess að þakka Gunnari kynnin. Þau vora svo sém aldrei náin eins og það heitir; það var helst á góðri stund heima hjá Erlu dóttur hans og tengdadóttur okkar hjóna sem fundum okkar og Sólveigar konunnar hans bar saman brot úr degi. En stopul umgengni við góðan mann er stóram betri en engin. Mikið hvort hún er ekki mannbæt- andi. Gunnar bar hóglætið í fasi sínu, hlýjuna í brosinu. Hér skal Fersk blóm og skreytingar við öll tækifærí Persónuleg þjónusta. Fákafeni 11, sími 689120. engin tilraun gerð til úttektar á mannkostum þessa vinar sem við eignuðumst fyrir liðlega tuttugu áram. Það lá í hlutarins eðli að við kynntumst ijölskyldumanninum í honum öllu best, eljumanninum óeigingjama sem fannst það eins sjálfsagt og dagur fylgir nótt að hlúa að fólkinu sínu — og fólki fólksins síns. Þar var hann óþreyt- andi nánast til hinsta dags. Sjúkdóminn sem leiddi hann til dauða bar hann af æðraleysi. Hann fékk hægt andlát umvafínn kær- leika sinna nánustu. Þannig upp- skar hann eins og hann sáði. Við hjónin vottum Sólveigu, börnum hennar og öðram vanda- mönnum innilegustu samúð okkar. Guðný Sigurgísladóttir, Gísli J. Ástþórsson. Lát Gunnars kom ekki á óvart. Hann hafði átt við að stríða krabba- mein í nokkur misseri. Þau veikindi bar hann vel og háði sína baráttu með reisn til lokadags. Þegar litið er til baka við fráfall starfsfélaga rifjast upp hve hérvistin er skömm og óviss. Fyrr en varir er úr tíma- glasinu rannið. í hugann koma góð- ar minningar og svo það að sam- fylgdin hefði mátt vera svolítið lengri, en ekki skal við dómarann deilt. Hér er Gunnars minnst sem kröftugs vinnufélaga sem skilur eftir sterkar minningar á meðal samferðamanna. Gunnar var starfs- maður Strætisvagna Reykjavíkur frá júlí 1946 til dánardægurs eða í tæpa hálfa öld og var með lengst- an starfsaldur starfsmanna SVR. Hann var fyrstu starfsárin vagn- stjóri, þá um langt árabil vaktfor- maður fyrir C-vakt og síðar deildar- stjóri umferðardeildar. Til þessa vann hann með eigin verðleikum. Gunnar kom til borgarinnar af Vatnsnesi þar sem hann ólst upp. Hann var af þeirri kynslóð sem fjö|- mennti til bæjarins og haslaði sér völl með vinnusemi og atorku. Hann hafði stundum orð á því að hann hefði getað þolað meiri menntun og þótti sjálfum furða hvað hann hafí slampast með sitt bamapróf. Staðreyndin er sú að það bætti hann vel upp með leiftrandi áhuga og langri reynslu. Hann uppiifði það á sjálfum sér að fyrir þá menn sem hafa eðlisgreind, atorku og vilja til verka gerast vegimir færir. Hann var glöggur og fundvís á lausnir. Hann gat verið harður í hom að taka og fastur á sinni meiningil, en kröfuharður var hann fyrst og fremst við sjálfan sig. Gunnar hafði sterka réttlætiskennd og gætti þess ætíð að farið væri að starfsreglum gagnvart farþegum, starfsmönnum og fyrirtæki. Hann vann hjá SVR langan dag og leysti þar mörg vandasöm verkefni, gaf sig til sinna verka af ósérhlífni og helgun og var í áratugi mikilsverður burðarás í starfssmi SVR sem stjórnandi. Þó stundirnar hjá SVR væru oft margar duldist engum að hlutverk heimilisföðurins var honum næst hjarta. Þau Sólveig bjuggu sér og bömum sínum myndarlegt heimili þar sem fjölskyldan gat búið við það traust og festu sem frekast má fínna í nútíma samfélagi. í þessu sem öðra var Gunnar gæfu- maður. Við þessi tímamót er efst í huga þakklæti fyrir að hafa kynnst Gunn- ari og fengið að eiga með honum nokkra samleið. Honum fylgja hlýj- ar hugsanir. Megi hann í friði fara og virðing rílqa um minningu hans. Hörður Gíslason. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför GUÐMUNDAR JAFETSSONAR vélstjóra, Svöluhrauni 9, Hafnarfirði. Sérstakar þakkirfærum við Landhelgis- gæslunni fyrir hlýhug og virðingu, Knattspyrnufélaginu Haukum og öllum góðum vinum og vandamönnum fyrir ómetanlegan stuðning. Guð blessi ykkur öll. Erla Gunnarsdóttir, Margrét Halla Guðmundsdóttir, Jón Sigurðsson, Björg Guðmundsdóttir, Helgi Sverrisson, Elva Guðmundsdóttir, Eiríkur Sigurðsson og barnabörn. t Útför eiginmanns míns og föður, SVEINBJÖRNS JÓHANNSSONAR, Álftamýri 34, Reykjavík, ferfram frá Fossvogskirkju mánudaginn 20. febrúar kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er vin- samlegast bent á líknarfélög. Þórdís Bjarnadóttir, Hildur Sveinbjörnsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GRÉTARS INGIMUNDARSONAR, Hrafnakletti 2, Borgarnesi. Sérstakar þakkir til Sigurðar Árnasonar læknis og starfsfólks A-deildar Sjúkra- húss Akraness. Ingigerður Jónsdóttir, Margrét Grétarsdóttir, Bjarni Guðjónsson, Ingimundur Grétarsson, Björk Ágústsdóttir, Sigurbjörn Grétarsson, Elm Bára Karlsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.