Morgunblaðið - 22.02.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.02.1995, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRUAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Réðst á FLYTJA þurfti fanga úr Síðumúla- fangelsi á slysadeild seint í fyrra- kvöld eftir að annar fangi hafði veitt honum áverka á höfði og_ baki með ydduðum tannbursta. Áverkarnir reyndust minniháttar. Að sögn Haraldar Johannessen fangelsismálastjóra réðst einn fangi á annan með tannbursta að vopni á opnum gangi rétt fyrir lokun fanga inni á klefa seint í fyrrakvöld. Fangavörður, sem staddur var hjá, greip inn í árásina en þá veittist þriðji fangi að fangaverðinum til þess að aftra því að honum tækist að stöðva árásina. Þá komu að fleiri fangaverðir og tókst þeim að uppr- æta það ástand sem var að skapast. „Þetta gerist allt á örskammri stundu og það er okkár mat að ef fangaverðir hefðu ekki verið svo nærri atburðum hefði getað farið mun verr,“ segir Haraldur. Annar fanganna, sem að árásinni stóð, var fluttur í fangaklefa á lög- reglustöðinni við Hverfisgötu og fer rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík með rannsókn málsins. Haraldur segir að fangelsisstjóri Síðumúlafangelsisins taki afstöðu til þess hvort og þá hvaða agaviðurlög- um fangarnir tveir verði beittir. Þeg- ar niðurstaða rannsóknar liggi fyrir meti lögreglustjórinn í Reykjavík síð- an hvort hann sendi ríkissaksóknara málið til meðferðar. Borgarráð samþykkir að taka upp viðræður víð stjórn Eirar Farið fram á eftirgjöf lóðar í Suður-Mjódd Utför Jónasar Rafnar ÚTFÖR Jónasar G. Rafnar, fyrr- um alþingismanns, var gerð frá Dómkirkjunni í gær. Séra Arn- grímur Jónsson jarðsöng en lík- menn voru ráðherrarnir Þor- steinn Pálsson og Halldór Blönd- al, Jóhannes Nordal fv. seðla- bankasljóri, Baldvin Tryggvason sparisjóðsstjóri, Lárus Jónsson framkvæmdastjóri LÍN, Halldór Guðbjarnason bankastjóri Lands- bankans, Pétur Guðmundarson lögfræðingur og Jónas Fr. Jóns- son lögfræðingur Verslunarráðs. Útfararstjóri var Sverrir Olsen. Eir verði aðili að framkvæmdum við hjúkrunarheimilið BORGARRÁÐ hefur samþykkt með þremur atkvæðum tillögu borgarstjóra um að óska eftir viðræðum við stjóm hjúkrunarheimilisins Eirar um að stofnunin gefi eftir lóð í Suður-Mjódd, sem henni var úthlutað árið 1991 undir hjúkrunarheimili. Andlát OLIM. ISAKSSON ÓLI Magnús ísaksson, fyrrverandi forstjóri Stefnis hf., er látinn 97 ára_ að aldri. Óli fæddist 26. jan- úar 1898 á Eyrar- bakka, sonur ísaks Jakobs Jónssonar verslunarstjóra þar frá Yindási í Landsveit og Ólafar Ólafsdóttur frá Árgilsstöpum í Hvols- hreppi. Óli var ungur sendur í fóstur til Sig- urðar Ólafssonar að Nesi á Seltjamarnesi og konu hans, Ástríðar Ólafsdóttur en Sigurð- ur var móðurbróðir Óla. Óli lauk prófí frá Verzlunarskóla íslands árið 1914 og var meðal fyrstu nemenda sem útskrifuðust úr skólanum. Að námi loknu starf- aði hann hjá Garðari Gíslasyni hf. um nokkurt skeið en síðan hjá Jónatan Þorsteinssyni, sem var einn af fyrstu innflytjendum bif- reiða hingað til lands. Þar starfaði hann til ársins 1929 er hann réðst til Sveins Egilssonar hf. sem framkvæmdastjóri og Óli M. ísaksson starfaði þar til ársins 1946. Það ár stofnaði hann Stefni hf. ásamt Sigfúsi Bjamasyni. Sigfús keypti síðar hlut Óla og stofnaði Heklu hf. og starfaði Óli þar til ársins 1991 er hann lét af störf- unij 93 ára að aldri. Oli var einn af stofnendum og sat í stjórn og samninga- nefndar Sambands bifreiðaverkstæða, sem síðar varð Bíl- greinasamband ís- lands, og var hann kjörinn heiðursfélagi sambandsins. Þá átti hann sæti í stjórn Vinnuveitendasambands ís- lands um áraraðir. Hann var einn dyggasti stuðn- ingsmaður Sólheima í Grímsnesi og færði heimilinu fjölmargar gjaf- ir. Óli var sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu. Kona Óla var Unnur Ólafsdóttir listamaður sem lést árið 1981. Þeim varð ekki bama auðið. Jafnframt er óskað eftir að Eir gerist aðili að þeirri viljayfirlýsingu um framkvæmdina sem þeim hefur verið kynnt og þegar hafí verið undir- rituð af hálfu borgarinnar og stjóm- ar Reykjavíkurdeildar Rauða kross íslands. Vinnubrögð borgarstjóra gagnrýnd Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins gagnrýndu harðlega vinnu- brögð borgarstjóra varðandi bygg- ingu hjúkrunarheimilisins og sögðu í bókun sinni að félagsmálaráð væri sniðgengið í umfjöllun um málið. Þá væri ámælisvert að undirrituð hafí verið viljayfírlýsing við aðra aðila en Eir um nýtingu lóðar sem úthlutað hafí verið til Eirar. Þetta sé gert áður en svar hafi borist við erindi frá Eir um frekara samstarf um uppbyggingu á lóðinni. Þá segir: „Fyrrgreind viljayfirlýs- ing er í algjörri andstöðu við þau áform sem Eir og borgaryfírvöld hafa unnið sameiginlega að sl. þrjú ár. Á þessum fundi borgarráðs hefur borgarstjóri gengið enn lengra og heimtað viðræður við Eir um að lóð samtakanna verði skilað. Þessi vinnubrögð eru ekki til þess fallin að afla fjár til byggingar hjúkrunar- heimila hjá þeim félagasamtökum sem annars væru til þess reiðubúin." Á verk- og valdsviði borgarsljóra Borgarstjóri segir í bókun sinni að það sé bæði á verk- og valdsviði borgarstjóra að hafa umsjón með hverskyns viðræðum og samningum sem gætu haft skuldbindingar í för með sér fyrir borgarsjóð. Slíkar við- ræður stæðu yfír við alla þá aðila sem sýnt hafa áhuga á byggingunni. Bókanir sjálfstæðismanna leiði athygli að nánu samstarfí fyrrver- andi meirihluta við sjálfseignarstofn- unina Eir og umtalsverðum íjármun- um sem vísað var úr borgarsjóði til stofnunarinnar án samþykkis borg- arstjómar, án umfjöllunar í borgar- ráði og án samninga um kostnaðar- hlut borgarinnar. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Kjarvalsstaðir Gunnar endur- ráðínn BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt tillögu menningarmála- nefndar um að ráða Gunnar Kváran forstöðumann Kjarv- alsstaða frá 1. mars 1995 til næstu fjögurra ára. Tvær umsóknir bárust um stöðuha. Jafnframt var samþykkt að miða ráðningu forstöðmanns við fjögurra ára tímabil. I tillögu menningarmála- nefndar segir að báðir um- sækjendur um stöðuna hafí verið hæfír en afgerandi mun- ur væri á menntun og starfs- reynslu. í ljósi þess mælti nefndin með því að Gunnar yrði endurráðinn. Þá var samþykkt að breyta 2. grein samþykktar um Kjarvalsstaði á þann veg að í stað þess að heimilt sé að miða ráðningu forstöðumanns við sex ár verði framvegis miðað við fjögurra ára tímabil að loknum 3ja mánaða reynslutíma. Jafnframt var samþykkt heimild til að endur- ráða sama aðila einu sinni til jafn langs tíma. samfanga með yddum tannbursta Fjörlegt fuglalíf í skógræktarstöðinni í Fossvogi Sjaldséðir flækingar o g þrestir í þúsundavís í skógræktarstöðinni í Foss- vogi er fjölbreytt fuglalíf og þar hafa sést ýmsir sjaldséðir flækingsfuglar. Gunnar Þór Hallgrímsson skrifar fréttir af flækingsfugl- um í nýjasta fréttabréf Fugla- vemdarfélags Islands. Þar nefnir hann m.a. að fjallafinka, dómpápi og skógarsnípa hafi sést í Fossvogi. Hann segir að dómpápar hafi verið að sjást á mörgum stöðum á landinu síð- an í haust og hafi aldrei áður sést jafnmargir dómpápar í einu á Islandi. Skógarsnípa íFossvogi Hjá Gunnari kemur fram að Ijóshöfðaönd haldi sig inni í Fossvogi eða við olíustöðina í Skerjafirði og að skeiðandar- kolla hafi haldið til á Reykja- víkurtjöm í allan vetur, utan þess að hún hafi horfið um tíma í kringum jólin. Hvinendur hafi haldið til við olíustöðina í Skerjafirði í vetur eins og und- anfarin ár og hafi þær verið 32 þegar mest var. Frá áramótum hafi sést skógarsnípa í skógræktinni. Hún haldi sig við Fossvogslæk- inn, sem rennur í gegnum skóg- ræktina. „Um miðjan síðasta mánuð sást svo skyld tegund, sem heitir dvergsnípa, og var hún í skurði við bæinn Lund í Kópavogi, sem á land að skóg- ræktinni. Lappajaðrakan hélt sig í Skerjafirði, en hann hefur ekkert sést eftir áramót.“ Svartþröstúr mikill söngfugl Hólmfríður Geirsdóttir, ræktunarstjóri hjá Fossvogs- stöðinni, segir mikið um að fólk komi í stöðina til að fylgjast með fuglalífinu, m.a. komi skólanemar til að fylgjast með skógarþresti þegar hann komi inn í ljósaskiptunum á kvöldin. „Svefnstaður hans er í stöð- inni. Þeir fara héðan í þúsunda- vís þegar fer að birta og koma aftur þegar fer að skyggja,“ segir Hólmfriður. Hún segir að svartþröstur sé eftirtektarverður þar sem hann sitji í efstu toppum tijánna og syngi mikið en hann hafi verið i stöðinni undanfarin ár. Þá hafí sést snæugla og fleiri teg- undir sjaldséðar. „Smyrillinn er nokkuð algengur, hann flýg- ur um og eltir smáfuglana. Svo er mikið af hrafni hér núna. Skógarsnípa Hann er hér í hópum þessa dagana.“ Fossvogsstöðin öllum opin Hólmfríður segir að margir fastagestir komi í stöðina til að fylgjast með fuglum en Foss- vogsstöðin er opið svæði fyrir Dvergsnípa almenning og þangað er hægt að koma hvenær sem er. Meðfylgjandi teikningar eru eftir Steen Langvad og eru fengnar úr bókinni Fuglum á Islandi og öðrum eyjum í Norð- ur-Atlantshafi, sem Skjaldborg gaf út 1991.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.