Morgunblaðið - 22.02.1995, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.02.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995 13 ir að hafa verið án vinnu í 260 daga. Það er nógu erfitt að vera atvinnulaus mánuðum eða árum saman þó að þessi bótamissir bætist ekki við. Ég sakna þess mikið að þetta skuli ekki vera með í yfirlýsingu ríkisstjórnar- innar. Það verður að vera bar- áttumál verkalýðshreyfingarinn- ar að leiðrétta þetta síðar úr því það tókst ekki nú. Það er hins vegar afar jákvætt að skattlagning á lífeyri skuli verða úr sögunni á samningstím- anum. Afnám tvisköttunar á líf- eyri hefur verið baráttumál verkalýðshreyfingarinnar í mörg ár.“ Björn Grétar Sveinsscn Meira náðist ekki án verkfalla „Þ AÐ ER alveg klárt að það var ekki hægt að ná meiru út úr þessum samningum miðað við þann ramma sem við vorum bún- ir að setja okk- ur. Ef við hefð- um ætlað að ná meiru hefði það þýtt verk- fall og það var mat okkar í samningahóp Verkamanna- sambandsins að það ættum við ekki að leggja út í,“ sagði Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambands íslands. „Þessi samningur kallar ekki á verðbólgu. Hann á að fram- kalla kaupmáttaraukningu. Við getum sagt samningnum upp eft- ir eitt ár ef þessi forsenda samn- ingsins gengur ekki eftir.“ Björn Grétar viðurkenndi að það hefði kosti og galla að velja krónutöluleið frekar en að hækka kaup með prósentuhækk- un. „Þegar við skoðuðum þessi mál í heild var það okkar kalda mat að þetta kæmi betur út fyrir okkar fólk í þetta skiptið. Ég lít á þessa samninga sem skref til tekjujöfnunar. Þarna er verið að stíga skref út úr tima langvarandi kaupmáttarrýrnun- ar. Þetta er skref fram á við og vonandi fylgja fleiri á eftir. Ég er mjög ánægður með þessa grundvallarbreytingu sem verður gerð á lánskjaravísi- tölunni. Þar fellst ríkisstjórnin á kröfu sem kom frá nánast öllum í þjóðfélaginu. Afnám tvísköttun- ar á lífeyri er einnig mjög mikil- væg kraifa sem við náðum fram. Það eru fleiri mjög jákvæð atriði í yfirlýsingunni. KJARASAMNINGAR Morgunblaðið/Sverrir NAFNARNIR Magnús Gunnarsson, formaður VSÍ, og Magnús L. Sveinsson, formaður VR, kampakátir við undirritun kjarasamningsins. Forystumenn BSRB og BHMR taka dræmt í samninginn Samningsréttur ann- arra samtaka skertur Það er samt alltaf þannig í samningum að menn vilja sjá meira. Ég hefði mjög gjarnan viljað sjá meira í sambandi við skattamál. Við settum fram margar góðar hugmyndir um aukningu á barnabótum og fleiru. Það er hins vegar ekki hægt að kreista endalaust. Það er mitt mat að við höfum kreist það út úr þessum samningum sem frekast var mögulegt." Björn Grétar tók fram að það fólk sem unnið hefði að gerð samninganna fyrir hönd Verka- mannamannasambandsins hefði staðið sig einstaklega vel. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir Náðum okk- ar mark- miðum „ÉG ER ánægð. Við verslunar- menn náðum okkar markmiðum. Við fengum mestu hækkunina á lægstu launin og samningurinn er því í þeim anda sem við lögðum upp með,“ sagði Ingibjörg R. Guðmunds- dóttir, formað- ur Landssam- bands ís- lenskra versl- unarmanna. Hún sagði samninginn fela í sér umtalsverða launahækkun fyrir verslunarfólk á lágum töxtum sem ynni mikla yfirvinnu. . „í yfirlýsingu ríkisstjórnarinn- ar eru tvö atriði sem skipta mestu máli. Ég á þar við breyt- inguna á lánskjaravísitölunni og afnám tvísköttunar á iðgjöld í lífeyrissjóð. Breytingin á lífeyris- sjóðsiðgjöldunum skiptir mjög miklu máli. Breytingin hækkar skattleysismörkin og jafnframt er tvísköttun iðgjaldagreiðslna launþega afnumin, sem er mikið sanngirnismál. Þetta er einnig fallið til að draga úr skattsvikum, - þviaðþettanýtistekkifyrirþá sem stunda svokallaða svarta atvinnustarfsemi.“ Ingibjörg sagði afar mikilvægt að nú væri farin sú leið að hækka sjálft taxtakaupið. Þessi hækkun leiddi til hækkunar á yfirvinnu- taxta og kæmi þvi láglaunafólki vel sem ynni mikla yfirvinnu. „Launafólk hefur gengið í gegnum erfitt timabil þar sem laun hafa ekkert hækkað meðan reynt hefur verið að byggja upp atvinnulífið. Það er því eðlilegt að ávinningnum af þessari stefnu sé fyrst skilað til þeirra sem minnst hafa. Við erum með þessu að feta okkur út úr þessum lág- launatöxtum. Fyrsta skrefið hef- ur verið stigið." FORYSTUMENN samtaka opin- berra starfsmanna, sem ekki hafa hafið kjaraviðræður, taka dræmt í niðurstöðu samninganna á al- mennum vinnumarkaði. Ögmund- ur Jónasson, formaður BSRB, og Páll Halldórsson, formaður BHMR, telja þrengt að eigin sam- tökum með samningsniðurstöð- unni. „Vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í þessu máli eru gagnrýnisverð. Hún kemur að kjarasamningum með aðgerðir sem snerta allt launafólk í landinu og öll samtök þeirra, en neitar að ræða við nema hluta þeirra," sagði Ögmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. „Eg verð að segja að þessi yfírlýsing ríkisstjórnarinnar er mjög opin og óljós um margt. Þannig er t.d. sagt að það eigi enn eftir að ákveða með hvað hætti tekna skuli aflað til að fjármagna þær skuldbindingar sem- ríkissjóður er að taka á sig. Reyndar er sagt að annaðhvort verði þessu tekj- utapi mætt með auknum álögum — og þá spyr maður sig á hvem — eða með auknum niðurskurði. Mín persónulega skoðun er, að við breytingar á iðgjöldum í lífeyr- issjóð hefði átt að stefna að því að bæta kjör lífeyrisþega. Sú leið sem farin er gagnast augljóslega best þeim sem hafa hæstu tekj- urnar. Þeir fá mest í sinn hlut. Þetta tal um stórkostlega kjara- jöfnun á öllum sviðum gengur ekki upp að öllu leyti.“ Ögmundur sagði að ýmislegt í yfirlýsingu ríkisstjómarinnar væri jákvætt eins og breytingin á láns- kjaravísitölu. Hann sagðist ekki geta svarað því hvaða áhrif samn- ingarnir myndu hafa á samninga- viðræður opinberra starfsmanna og ríkisins. Samningsumboðið væri hjá einstökum félögum. Fé- lögin hefðu hins vegar vísað ákveðnum atriðum til BSRB. BSRB hefði ítrekað óskað eftir viðræðum við stjómvöld um þessi atriði, en af þeim hefði ekki orðið enn. Reynt að þrengja okkar stöðu Páll Halldórsson, formaður Bandalags háskólamanna-BHMR, segir ekki tímabært að leggja mat á hvað felist í samningum lands- og svæðasambanda ASI og vinnu- veitenda þar sem ekki lægju fyrir upplýsingar um einn þeirra þriggja þátta sem samningarnir byggi á, þ.e.a.s. hvað sérkjara- samningar fælu í sér. Páll sagðist fagna þeirri breyt- ingu sem yfirlýsing ríkisstjómar- innar boðaði varðandi verðtrygg- ingu en önnur atriði, t.d. skatt- frelsi lífeyrisiðgjalda, kæmu seint fram og að miklu leyti væri yfír- lýsingin almennt orðuð. Þá væri varhugavert að við- haldið væri því einkenni þjóðar- sáttarsamninganna að í samn- ingnum fælist sú hótun að um markmið samningsins verði að nást víðtæk samstaða. „Þarna setjast þessir aðilar niður og segja að aðrir verði að fallast á þetta. Með því er í raun verið að reyna að skerða samningsrétt annarra," sagði Páll. Samningar einstakra BHMR- félaga við ríkið eru lausir. Einstök félög hafa kynnt kröfugerð og eitt aðildarfélag, HÍK, á nú í verk- fallsbaráttu, en eiginlegar samn- ingaviðræður við önnur félög em ekki hafnar, að sögn Páls. „Það verður sjálfsagt reynt að nota þennan samning til að þrengja okkar stöðu. Fjármála- ráðherra hefur lýst því yfír að ekki verði fallist á aðrar hækkan- ir en samið verði um á almennum markaði og í annan stað vofir yfir sú hótun um að aðrir verði að fallast á forsendur þessa samn- ings ASÍ,“ sagði Páll. Hann kvaðst telja að mikið vanti upp á að BHMR geti fellt sig við ASÍ-samninginn sem nið- urstöðu í eigin viðræðum, sérstak- lega þar sem menn hafí ýtt á undan sér því vandamáli að raun- verulegt launakerfí í landinu og taxtakerfí verkalýðshreyfíngar- innar hafi verið að þróast hvort frá öðm. * Víkingalottó»Tvöfaldur«Víkingalottó*Tvöfaldur*Víkingalottó*Tvöfaldur*Víkingalottó*Tvöfaldur*Víkingalottó*Tvöfaldur* Víkingalottó*Tvöfaldur*Víkingalottó*Tvöfaldur*Víkingalottó»Tvöfaldur»Víkingalottó*Tvöfaldur«Vikingalottó« Síðast var fyrsti vinningurinn í Víkingalottóinu rúmlega mffljónir kr. w Vertu með í fyrirkl 17:00 / aagl í tvöföldum potti. Tvöfaldur pottur! Freistaðu gæfunnar - kannski er röðin komin að þér! • Vikingalottó»Tvöfaldur*Vikingalottó»Tvöfaldur»Vi'kingalottó*Tvöfaldur*Vikingalottó«Tvöfaldur»Vikingalottó«Tvöfaldur* Víkingalottó»Tvöfaldur»Vikingalottó»Tvöfaldur»Víkingalottó»Tvöfaldur»Víkingalottó»Tvöfaldur»Víkingalottó» Víkingalottó*Tvöfaldur»Víkingalottó*Tvöfaldur>Víkingalottó*Tvöfaldur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.