Morgunblaðið - 22.02.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995 7
FRÉTTIR
Hlutabréf ein-
staklinga 18,5
milljarðar
Framtalinn arður innan við milljarð
Mikil nákvæmnisvinna
að setja saman skútur
Morgunblaðið/Kristinn
RÚMLEGA 31.500 einstaklingar
áttu samtals 18,5 milljarða í
hlutabréfum í árslok 1993 sam-
kvæmt skattframtölum. Þar af
greiddu 2.600 eignarskatt af
bréfunum og þúsund manns
greiddu tekjuskatt.
Þetta kemur fram í svari fjár-
málaráðherra á Alþingi við fyrir-
spurn Vilhjálms Egilssonar þing-
manns Sjálfstæðisflokks. Einnig
kemur fram að af þessum 18,5
milljörðum voru rúmlega 8 millj-
arðar eignarskattskyldir en skatt-
frelsi hlutabréfa er bundið við 1,2
milljón hjá einstaklingum. Um
2.600 einstaklingar greiddu eign-
arskatt af hlutabréfaeign á árinu
1994, samtals um 140 milljónir.
Framtalinn arður af hlutabréf-
um nam 949 milljónum og var
fjöldi framteljenda 17.747. Um
helmingur arðsins var skattfrjáls-
ar tekjur en skattfrelsi arðs er
bundið við 10% af nafnverði hluta-
fjár að hámarki hjá einstaklingum.
Tæplega 1.000 einstaklingar
greiddu tekjuskatt af arði, samtals
um 200 milljónir. króna.
Eitthvað er að
„Það vekur athygli mína hvað
einstaklingar eiga ótrúlega lítið
af hlutabréfum, samanborið við
sparifé í bönkum eða fasteignir.
Og það er einnig athyglisvert hvað
þetta gefur lítið af sér. Framtalinn
arður sem allt atvinnulíf landsins
greiðir einstaklingum er aðeins
innan við milljarður króna. Ég tel
að þetta sýni, að eitthvað er að
hjá atvinnulífinu og að það vanti
hreinlega hagnað,“ sagði Vil-
hjálmur Egilsson.
SIGURÐUR V. Jónsson, 67 ára
eftirlaunaþegi, hefur síðustu
árin sett saman fjölmörg skipa-
líkön í frítíma sínum og kveðst
hann hafa byrjað á þessu fyrir
hreina tilviljun þegar hann fékk
í afmælisgjöf módel af skipi.
Nú er Sigurður með hillu fulla
af likönum heima hjá sér en
merkustu skipin, Norska ljónið
og Titanic, skipa sérstakan heið-
urssess.
Sigurður hefur einnig sett
saman kútter sömu gerðar og
voru til um siðustu aldamót.
Hann þekkir nokkuð vel til sögu
skipanna og sagði meðal annars
að Norska ljónið hefði verið
smíðað í tíð Matthildar Dana-
drottningar og Friðriks prins
þegar Danir háðu styrjöld við
Svía. Stríðinu hefði lokið fljót-
lega eftir að Norska ljónið
komst á flot. Líkanið er 1,30
metrar á hæð frá kili til mast-
urs. „Eg var fjögur og hálft ár
að setja það saman en ég hef
sett saman mörg skip. Svo er
ég hér með tvær litlar skútur.
Önnur þeirra er Santa Maria,
skúta Kólumbusar, en hún er
úr plasti sem og önnur dönsk
sportsiglingarskúta. Þær fékk
ég báðar gefins," sagði Sigurð-
ur.
Sigurður setti saman likan af
Titanic, skemmtiferðaskipinu
sem fórst í jómfrúarsiglingu
sinni, fyrir nálægt 20 árum,
skömmu eftir að hann kom frá
Bretlandi þar sem hann gekkst
undir hjartaaðgerð. Hann segir
að þetta sé mikil nákvæmnis-
vinna, hann noti stækkunargler
við vinnu sína og verði alltaf að
gæta sín á því að loka sig ekki
úti við verkið. „Böndin sem
fylgdu Norska ljóninu þurfti ég
að láta liggja í 90 gráðu heitu
vatni í klukkustund til þess að
geta sveigt þau. Það er svo
margt í kringum þetta. Svo þarf
að koma fyrir fallbyssunum og
hlerunum en það er nákvæm-
lega sama efni haft í líkönin og
í upprunalegu skipin," segir Sig-
urður.
Nýtt og glitrandi gott!
Nú er CHtra
kom'm i nýjar
umbúðir!
Glitra uppþvottaduftið er komið
i nýjar umbúðir og heitir nú
Þvol GLITRA.
Þessar umbúðir eru neytenda-
vænar og þœgilegar og með sér-
stökum öryggistappa.
Þvol GLITRA er afburða þvotta-
duft i allar uppþvottavélar.
Kíktu eftir Þvol GLITRU í ncestu
verslunarferð og tryggðu glitr-
andi góðan árangur við upp-
þvottinn.
Gæðin eru trygg!