Morgunblaðið - 22.02.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.02.1995, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. EFNAHAGSBAT- INN TIL LÁG- LAUNAFÓLKS KJARAJÖFNUN er tvímælalaust helzta einkenni nýju kjarasamninganna. Er það fagnaðarefni, því efnahags- samdráttur undanfarinna ára hefur bitnað mest á láglauna- fólki. Ríkisstjórnin og forusta vinnuveitenda og verkalýðs- hreyfingar hafa margítrekað þá stefnu, að kjarabætur til láglaunafólks eigi að hafa forgang. Nú hefur orðið ofan á að nýta aukinn hagvöxt, sem spáð er á næstu tveimur árum, til að bæta stöðu þeirra verst settu í þjóðfélaginu. Það er lofsvert af forustu verkalýðssamtakanna að standa fast á þessari stefnumörkun, því hagsmunir eru misjafnir innan hreyfingarinnar og margir orðnir langeygir eftir kjarabótum. Fyrir láglaunafólk, og reynar landsmenn alla, skiptir höfuðmáli, að samningarnir eru ekki taldir hleypa verðbólgu af stað á nýjan leik. Talsmenn vinnuveitenda fullyrða, að kostnaðarhækkanir atvinnulífsins raski ekki samkeppnis- hæfni á erlendum mörkuðum. Stöðugleiki sé því tryggður í efnahagslífinu og ekki sé þörf á breyttu gengi krónunnar. Kjarajöfnun samninganna má m.a. sjá af því, að laun undir 60 þúsundum hækka um 11,3% að meðaltali á samn- ingstímanum, laun á bilinu 60-84 þúsund um 9,2% og meðal- talshækkun allra launa er metin 6,9%. Láglaunabætur á laun undir 80 þúsund krónum verða greiddar í maí og desem- ber hvort ár samningstímans og desemberuppbót hækkar nokkuð í desember 1996. Þessu til viðbótar eru mikilvæg ákvæði í aðgerðum ríkisstjórnarinnar, sem koma láglauna- fólki sérstaklega til góða. Þar skal fyrst nefna breytingar á lánskjaravísitölunni, sem framvegis miðast við framfærslu- kostnað. Það á m.a. að tryggja, að vísitölubundin lán hækki ekki sjálfkrafa í kjölfar samninganna. Þá verður skattlagn- ing iðgjalda í lífeyrissjóði afnumin í áföngum á tveimur árum, sem þýðir í raun hækkun skattleysismarka. Ráðstaf- anir verða og gerðar til að létta greiðslubyrði fólks vegna húsnæðislána. í heild er um verulega kjarajöfnun að ræða. Miklu skipt- ir að þeirri stefnu verði fylgt fast eftir á vettvangi fyrirtækj- anna sjálfra. Brýn þörf var á að bæta kjör þeirra verst settu eftir Iangvarandi efnahagssamdrátt, bæði launþega og bótaþega almannatrygginga, sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að fái sömu hækkanir. Efnahagsbatinn verður ekki betur nýttur en í þessu skyni. Davíð Oddsson forsætisráðherra um kjarasamningana Tryggja stöðugleika og lága verðbólgu Fordæmi fyrir samninga opinberra starfsmanna Forystumenn ríkisstjóm- arinnar leggja áherslu á að kjarasamningarnir bæti kjör þeirra verst settu og tryggi stöðug- leika. Forsætisráðherra segir þá fordæmis- skapandi og utanríkis- ráðherra kallar þá tíma- mót í hagstjóm. DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að þótt nýgerðir kjarasamning- ar á almennum vinnumarkaði séu dýru verði keyptir fyrir ríkið vegna aukins halla á ríkissjóði séu þeir vel þess virði vegna þess að samningam- ir tryggi stöðugleika og lága verð- bólgu. Hann segir að þessir kjara- samningar hljóti að gefa fordæmi fyrir samninga opinberra starfs- manna og aðra hópa sem eigi ósamið. „Ég tel afskaplega mikilvægt að það hafi náðst heildarkjarasamningar í landinu. Þeir eru að mínu mati á mjög skynsamlegum nótum, leitast er við að tryggja að stöðugleiki hald- ist og verðbólga fari ekki úr böndum. Jafnframt er í fyrsta skipti í langan tíma gert ráð fyrir að kaupmáttur vaxi nokkuð og langmest hjá þeim sem minnst hafa borið úr býtum. í þessum samningum hefur auk þess tekist að leysa úr allskonar deilumálum vinnuveitenda og verka- lýðsfélaga sem talist hafa til sérkja- rasamninga en var alltaf ýtt út af borðinu í svokölluðum þjóðarsátt- arsamningum. Má því vænta þess að ríkari sátt sé um þessa samninga en ella,“ segir Davíð. Ríkissjóður nýtur góðs af hagvextinum Gert er ráð fyrir að boðaðar að- gerðir ríkisvaldsins til að liðka fyrir samningum kosti ríkissjóð liðlega 6,5 milljarða kr. alls fram yfir samnings- tímabilið til ársloka 1997. Forsætis- ráðherra segir að það sé út af fyrir sig rétt að samningarnir séu dýru verði keyptir. „Ríkið leggur töluvert mikið á sig til að stuðla að því að lyktir náist í málinu en ég tel að það sé vel þess virði því mál stóðu þannig að ella hefði verið hætta á að þau markmið sem aðilar vinnumarkaðarins og rík- isvaldið hafa viljað berjast fyrir, til dæmis stöðugleiki, lágt verðlag á nauðsynjum og lækkandi skuldir við útlönd, hefðu ekki náðst. Þessir samningar raska ekki þeim forsend- um og ég tel því vetjanlegt af ríkis- ins hálfu að koma þetta mikið til móts við sjónarmið launþega." Davíð segir að ríkisstjórnin hafi áskilið sér rétt til að láta niðurskurð eða spamað mæta hallanum. En áður en til ákvarðana um slíkt komi þurfi að sjá hvaða ávinning ríkissjóður hafi af þeim hagvexti sem þessir samningar ættu að tryggja en hann komi að hluta til á móti fyrirgreiðslu ríkisins. Síðan þyrfti að meta það hvað miklu ætti að mæta með niður- skurði, hverju með nýjum tekjum og hversu mikinn halla menn væru til- búnir til að sætta sig við tímabundið á meðan verið væri að ganga í gegn- um þetta skeið. Hægt að treysta framfærsluvísitölunni Forsætisráðherra segir að umdeil- anlegt hafi verið að breyta lánskjara- vísitölunni og taka framfærsluvísitölu upp sem viðmiðun. „í þessu felst sú breyting væntan- lega að vaxtaákvæði svokallaðra Ólaf- slaga verða afnumin ásamt lánskjara- vísitölunni í þeirri mynd sem við þekkj- um hana. En þetta mun jafnframt hafa í för með sér að ekki verður leng- ur hægt að breyta grundvelli verðbóta eða slíkra þátta með reglugerðum. Og vísitalan sem nú verður notuð er þekkt um allan hinn vestræna heim. Lánskjaravísitalan var séríslensk, til dæmis þurfti jafnan að útskýra hana fyrir erlendum ljárfestum. Ég tel því að þó það sé mjög varasamt að hringla með mál af þessu tagi og ríkisstjómin hafi verið mjög hugsandi yfir því, megi færa fyrir því rök að nú séu mál komin í réttan farveg eft- ir hringlið sem varð 1989. Vísitalan sé komin í alþjóðlegra samhengi en áður og menn megi frekar treysta þeim grundvelli sem nú er lagður," segir Davíð. Opinberir starfsmenn eru með lausa samninga. Davíð segir að allt raunsæi segði að í þessum samningum hefði verið farið eins langt og þorandi var. Það sé fremur gagnrýnisvert af at- vinnurekendum og ríkisvaldi að hafa teflt á of tæpt vað en ganga of skammt. „Það er ekki vafí í mínum huga að þessir samningar, sem ná til lang- stærsta hluta vinnumarkaðarins, þess hluta sem lýtur lögmálum þjóðartekn- anna meira en aðrir, verða algerlega fordæmisskapandi fyrir aðra samn- inga.“ Unnið hratt að framkvæmd Davíð segir að unnið verði eins hratt og mögulegt er að því að koma einstökum atriðum í yfirlýsingu rík- isstjómarinnar til framkvæmda. Unn- ið sé að ákveðnum málum í þinginu. Telur hann að málin nái fram að ganga í góðri sátt. Það hafi verið venja í þinginu að stjómarandstaðan á hveijum tíma virti nauðsyn þess að ljúka málum af þessu tagi innan þess tímaramma sem menn hefðu ætlað sér og segist ekki eiga von á öðru en að það verði einnig nú og málin næðu fram að ganga strax og verkalýðsfé- lögin hefðu staðfest samningana. Hlutfallshækkun mánaðarlauna á samningstímanum IÁ' t?>' <?-• <bfo' #' ej*' &' b,T'<b°' <2^' Q1" Mánaðarlaun fyrir samninga Jón Baldvín Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins KENNARAR SEMJI SAMNINGAR kennara og samninganefndar ríkisins hafa verið í sjálfheldu undanfarna sólarhringa. Öll rök hníga að því, að kennarar semji á þeim nótum, sem samningar hafa tekist um á almenna vinnumarkaðnum. Kennarar eru komnir í þá óþægilegu stöðu að sitja eftir í verkfalli, á meðan launþegum á almenna vinnumarkaðnum hefur tekist að ná kjarasamningum við viðsemjendur sína, til tæplega tveggja ára, án þess að til verkfalla kæmi. Auðvitað er Ijóst, að slík staða er fjarri því að vera óska- staða, þegar um er að ræða stétt manna, sem þegar hefur hafið verkfall, eins og á við um kennara. Hvað sem því líð- ur gera samningarnir á hinum almenna vinnumark-aði það að verkum, að kennarar hljóta að endurmeta stöðu sína frá grunni og hvert framhaldið verði hjá þeim. Kennarar verða á næstu dögum að gera upp við sig, hvort líkur séu á, að þeim takist að sækja meira til viðsemj- enda sinna, þ.e. samninganefndar ríkisins, en um hefur verið samið á milli Alþýðusambands íslands annars vegar og Vinnuveitendasambands íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna hins vegar. Niðurstaða þeirra hlýtur, í ljósi yfirlýsinga ríkisstjórnarinnar, að verða sú, að útilokað sé að þeir nái fram umfram kjarabótum. Valkostir kennara í kjaradeilu þeirra eru ekki margir. Annað hvort ganga þeir nú til samninga, sem taka mið af því, sem um hefur verið samið á markaði, eða þeir ákveða að hafna samningum við ríkisvaldið, sem verði hliðstæðir við þá samninga sem tekist hafa á almenna markaðnum. Velji kennarar síðari kostinn, eru þeir um leið að velja langvinnt verkfall. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra, enda einsýnt að kennarar yrðu afar lengi að vinna upp það tekjutap sem þeir yrðu fyrir í langvinnu verkfalli, sé þess á annað borð nokkur kostur, að vinna slíkt tekjutap upp að fullu. Efnahagsstefnan hefur skilað sér í kjarajöfnun og kj arabótum JÓN Baldvin Hannibalsson, utan- ríkisráðherra og formaður Al- þýðuflokksins, segist líta á niður- stöðu kjarasamninganna og útspil ríkisstjórnarinnar í tengslum við þá sem tímamót í hagstjórn lands- ins. Meginatriðið sé að efnahags- batinn sé í nafni réttlætis nýttur til lífskjarajöfnunar en raunsætt mat segi að ekki hafi verið farið út fyrir þau mörk sem tryggja að verðbólga fari ekki úr böndum. Fyrstu kjarasamningarnir sem kjarajöfnun „Vonir standa til að þessir kjarasamningar og aðgerðir rík- isstjórnarinnar í tengslum við þá tryggi hvorttveggja að efnahags- batinn sem aðilar vinnumarkað- arins meta upp á tíu milljarða króna verði nýttur til kjarabóta og kjarajöfnunar. Og að þær kjarajöfnunaraðgerðir sem felast í samningunum og aðgerðum rík- isstjórnarinnar tryggi að stöð- ugleikinn haldi áfram. Það er grundvöllur nýs framfaraskeiðs. Ég er þeirrar skoðunar að fyr- irtækin í landinu, ekki síst í úflutn- ings- og samkeppnisgreinum, sem hafa verið að styrkja stöðu sína, hafi beðið eftir niðurstöðu kjara- samninga áður en þau færu að taka ákvarðanir um nýjar fjárfest- ingar sem munu auka hagvöxtinn og skapa ný störf á næstu misser- um,“ segir Jón Baldvin. Hann segir að þetta séu fyrstu kjarasamningar sem hann muni eftir þar sem við samningaborðið hafi tekist að tryggja kjarajöfnun. Það gerist með fastri krónutölu og sérstökum kaupauka á lægstu laun upp að vissu tekjumarki. „Þetta er aðalatriði kjarasamn- inganna og vegna þess að þetta tókst var ríkisstjórnin reiðubúin til að styðja þessa kjarajöfnun með því að afnema lánskjaravísitöluna i þeirri mynd sem hún hefur verið og tryggja þannig að raunhæfar kjarabætur skili sér í raunveruleg- um kaupmætti. 1 sögu kjarasamn- inga eru þetta því að mínu mati tímamótasamningar og út frá sjónarmiði ríkisstjórnar er þetta innsiglun á því að árangur af efna- hagsstefnu ríkisstjórnarinnar á örfiðum tímum hefur nú skilað sér í kjarajöfnun og raunhæfum kjíirabótum til launafólks án þess að tefla stöðugleikanum í tví- sýnu.“ Rímar við ályktanir Alþýðuflokksins „Mig langar til að bæta því við, út frá sjónarmiðum míns flokks, að þessi niðurstaða rímar, mér liggur við að segja fullkomlega, við ályktun aukaflokksþings AI- þýðuflokksins frá því 4. og 5. febr- úar. Þar kom fram að við mátum efnahagsbatann sem væri til skipt- anna upp á um það bil tíu millj- arða. Við mæltum með fastri krónu- tölu og kaupauka á lægstu laun. Við lýstum okkur reiðubúna til að taka jákvætt undir óskir aðila vinnumarkaðarins um breytingar á lánskjaravísitölu, ef þessar for- sendur héldu. Við fluttum enn- fremur tillögu um opinbera nefnd til þess að rannsaka sérstaklega hverra kosta væri völ við að draga úr tilkostnaði í opinberum rekstri þar sem um er að ræða einokun eða fákeppni og lækka þar með þjónustugjöld sem skilaði sér í kaupmáttarauka án verðbólgu og er það inni í yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar. Ríkissljórain lýsti því yfir 10. desember síðastliðinn að hún væri reiðubúin til að afléttra meintri tvísköttun á lífeyrisgreiðslum elli- lífeyrisþega. Nú er skrefið stigið til fulls með því að gefa skattafrá- drátt á iðgjaldagreiðslur launþega en það er jafnframt aðgerð til að hækka skattleysismörk í yfir 60 þúsund kr. á mánuði. Þegar við lítum á málið í heild er einnig ánægjulegt til þess að vita að tillaga ríkisstjórnarinnar um samstarf aðila vinnumarkað- arins og þingflokkanna um út- færslu á fyrirliggjandi tillögum um fjármagnstekjuskatt sem gæti tekið gildi um næstu áramót hefur nú í stórum dráttum náð fram þannig að sú nefnd mun taka til starfa," segir Jón Baldvin Hannib- alsson. ÞJÓÐHAGSÁHRIF SAMNIIMGANNA MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995 25 Þróun kaupmáttar dagvinnulauna mismunandi tekjuhópa IU Jan. 1995 = 100 110 /45.000 108 106 104 109 /as^ 60.000 "" 1 75.000 s 100 ' ^— 1 120.000 s 1 í J FMAMJ J Á S O N D J F M A M J JÁSOND 1995 I 1996 Verðbólguþróun, 3 mán. breyting Kaupmáttur vex um 3% á samningstímabilinu Þjóðhagsstofnun spáir 2,5% verðbólgu í ár og á næsta ári LAUNABREYTINGAR sam- kvæmt þessum kjara- samningum virðast í öllum aðalatriðum vera í sam- ræmi við þjóðhagsleg skilyrði og framhald stöðugleika í þjóðarbú- skapnum," sagði Þórður Friðjóns- son, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, í samtali við Morgunblaðið um ný- gerða kjarasamninga aðila vinnu- markaðarins. „Verði þessir kjarasamningar fyr- irmynd annarra samninga má búast við að verðbólga verði um 2,5% á ári næstu tvö árin. Það er sama verðbólga og reiknað er með í öðrum OECD-ríkjum, sem búa við stöðug- leika,“ segir hann. Þjóðhagsstofnun telur að kjara- samningarnir og aðgerðir ríkis- stjórnarinnar muni leiða til þess að kaupmáttur muni aukast um nálægt 1,5% á þessu ári og aftur um sama hlutfall á næsta ári. Fyrri áætlanir stofnunarinnar gerðu ráð fyrir 0,5-1% kaupmáttaraukningu. „Þetta er töluvert meiri kaup- máttur en í fyrri áætlunum en þó ekki það mikill að hann stefni af- gangi á viðskiptajöfnuðinum í um- talsverða tvísýnu,“ segir Þórður. Kaupmáttur þeirra lægstlaunuðu eykst mest Þar sem kjarasamningurinn felur í sér að lægstu launin hækka hlut- fallslega mest eykst kaupmáttur þeirra sem eru á lægri launum meira en annarra á samningstímanum. Að mati hagdeildar ASI verður kaup- máttur dagvinnulauna þeirra sem eru með 60 þúsund krónur í tekjur 5% hærri í loks samningstímabilsins en í upphafi þess og kaupmáttur 45 þúsund króna launa vex um ná- lægt 9%. Kaupmáttur 90 þúsund króna launa verður hins vegar 2% hærri í lok samningstímabilsins en í upphafi þess. Hagdeildin spáir að framfærsluvísital- an muni hækka um 2,8% á þessu ári og um 2,4% á næsta ári. í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga er ákveðið að verðtrygging fjárskuld- bindinga sem nú miðast við láns- kjaravísitölu verði framvegis miðuð við framfærsluvísitölu. Ef lánskjara- vísitalan gilti áfram myndi hækkun hennar á samningstímabilinu verða einu prósentustigi meiri en hækkun framfærsluvísitölunnar eða 6,2% samanbonð við 5,2% samkvæmt mati ASÍ. Þetta þýðir að einnar milljónar Þjóðhagsstofnun telur að nýgerðir kjarasamn- ingar séu í samræmi við þau skilyrði sem ríki í þjóðarbúskapnum og ef þeir verði fyrirmynd annarra kjarasamninga séu forsendur til að stöðugleiki ríki áfram í efnahagsmálum. Kaup- máttur mun aukast talsvert meira en áður hafði verið gert ráð fyrir en stofnunin telur aukinn halla ríkissjóðs veikleika samkomulags ríkisstjómar og launþegahreyfingar. Verðbólga á Islandi og í OECD Aætl. Spá Sama verA- bólga og í OECD-ríkjum króna lán sem stæði óhreyft myndi hækka um 62 þúsund krónur miðað við lánskjaravísitölu en 52 þúsund krónur miðað við þróun framfærslu- vísitölu á samningstím- anum. Höfuðstóll ijög- urra milljóna króna láns sem stæði óhreyft myndi þannig hafa hækkað í 4.208 þúsund miðað við framfærsluvísitölu, en í 4.248 þúsund miðað við hækkun lánskjaravísitölunnar sama tímabil. Aukin þjóðarútgjöld Þórður Friðjónsson sagði að meiri launabreytingar en samið var um hefðu getað valdið óróleika sem hefði óhjákvæmilega leitt til kjara- skerðingar. „Nægir að benda á ýmis önnur lönd í því sambandi sem hafa búið við efnahagslega erfið- leika af einhveiju tagi, svo sem Svíþjóð, Ítalíu og Mexíkó, þar sem óróleiki í efnahagslífi þessara landa leitt til kjaraskerðinga fyrir almenna launþega," sagði hefur hinn hann. Þórður sagði að kjarasamning- amir, ásamt aðgerðum ríkisstjórnar- innar, hefðu í för með sér ------------------- að þjóðarútgjöld ykjust Breyting á ívið meira en áður var lánskjaravísi reiknað með og að heldur tölu til bóta minni afgangur yrði af ___________ viðskiptajöfnuðinum við útlönd. Þar væri þó ekki um það gjöldum og minni tekjum með að- gerðum til að koma hallanum aftur niður á það stig sem menn höfðu reiknað með á næstu árum. Veik- leikinn í þessu er sá að hallinn á ríkissjóði er meiri en viðunandi er þegar til lengri tíma er litið,“ sagði Þórður. Hann sagði ennfremur að breyt- ingin á lánskjaravísitölunni væri til bóta og skynsamlegasti kosturinn fyrir alla aðila að miða framvegis við vísitölu framfærslukostnaðar en þessi breyting kæmi hins vegar ekki til með að hafa mikil áhrif í þjóð- arbúskapnum. „En það er rétt að viðurkenna að breytingin á vísitölunni sem gerð var 1989 var í öllum atriðum óskyn- samleg," sagði Þórður og kvaðst jafnframt vera þeirrar skoðunar að vinna ætti að því að losa allar skammtíma skuldbindingar sem væru til skemmri tíma en t.d. fimm ára við vísitölubindingar. Kostnaður ríkissjóðs um 3 milljarðar Áætlað er að kostnaður ríkissjóðs vegna aðgerða í tengslum við kjara- samninga á almenna vinnumark- aðinum verði samtals um þrír millj- arðar kr. miðað við heilt ár þegar allur kostnaðurinn er kominn fram. Þar munar mest um að 4% lífeyris- sjóðsframlag launþega verður að fullu frádráttarbært í áföngum eða á fjórum árum. Kostnaðurinn dreif- ist þannig að 1,8 milljarðar falla til á þessu ári, um 500 milljónir hvort árið 1996 og 1997 og lokst 250 millj. árið 1998. Kostnaður ríkissjóðs vegna frá- dráttar lífeyrissjóðsframlaga er áætlaður um 800 millj. kr. á þessu ári og samtals 2,2 milljarðar á öllu tímabilinu, skv. Upplýsing- um fjármálaráðuneytisins. Annar kostnaður ríkis- sjóðs stafar m.a. af hækk- un eingreiðslna og trygg- ingabóta og af skuldbreyt- stórar tölur að ræða að það raskaði heildarmyndinni. Aukinn halli ríkissjóðs veikleiki samkomulagsins „Aðgerðir ríkisstjórnarinnar fela í sér um það bil þriggja milljarða króna útgjöld sem dreifast á næstu fjögur ár, mest á yfirstandandi ár og næsta ár. Halli ríkissjóðs af þess- um völdum er áhyggjuefni og fram- haldið byggist nokkuð á því hvernig tekst að mæta þessum auknu út- ingum í húsnæðislánakerfinu. Hagdeild Alþýðusambandsins tel- ur að heimild launþega til að draga 2% af lífeyrissjóðsframlagi frá tekj- um við álagningu skatta 1. apríl muni auka kaupmátt um 0,8%. Frá og með 1. júlí 1996 verður heimilt að draga frá 3% sem mun leiða til 0,4% kaupmáttaraukningar og um sama hlutfall frá 1. júlí 1997. Sam- tals gerir ASí ráð fyrir að frádráttur á framlagi launþega í lífeyrissjóði frá skatti muni þýða 1,7% kaup-» máttaraukningu að meðaltali.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.