Morgunblaðið - 22.02.1995, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 22.02.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995 9 FRETTIR Þungir á brún Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar 71,6% tekna bæjar- sjóðs fara í rekstur i ÁÆTLAÐAR tekjur bæjarsjóðs Hafnarfjarðar fyrir árið 1995 eru rúmir 1,8 milljarðar og er það 9% hækkun miðað við upphaflega áætlun ársins 1994. Áætluð rekstrargjöld eru rúmir 1,3 millj- arðar eða 71,6% af sameiginlegum tekjum. í lokaorðum Magnúsar Jóns Ámasonar bæjarstjóra í grein- \ argerð fjárhagsáætlunar bæjarins er bent á að vandi bæjarsjóðs sé mikill og að hann stafi fyrst og fremst af erfiðri skuldastöðu. í fjárhagsáætluninni kemur fram Samkeppnisráð Þrír brjóta I lög um verð- upplýsingar SAMKEPPNISRÁÐ hefur úr- skurðað að auglýsing frá Sam- vinnuferðum-Landsýn, sem birtist 15. janúar síðastliðinn samrýmist ekki samkeppnislögum. í henni voru auglýstar utan- I landsferðir á 7.900 krónur, stað- } greiddar án flugvallarskatts og gjalda og segir í niðurstöðu að upplýsingarnar séu ófullnægjandi samkvæmt lögum um verðupplýs- ingar í auglýsingum og lögum um alferðir. Einnig hefur samkeppnisráð bannað auglýsingar frá Radíóbúð- inni frá 8. desember 1994 þar sem samtala höfuðstóls, vaxta og * kostnaðar var ekki gefin upp í tengslum við afborgunarverð til- ) tekinnar vöru. Loks hefur samkeppnisráð lagt bann við auglýsingum Heimsferða frá 15., 22., og 19. janúar þar sem gefið var upp verð á tilteknum ferðum án flugvallarskatts og for- fallagjalda. Lagt er bann við auglýsingum þar sem endanlegt verð er ekki tilgreint og verða fyrirtækin beitt | dagsektum að upphæð 50.000 | krónur hlíti þau ekki úrskurði sam- keppnisráðs. að nettóskuldir bæjarsjóðs við ára- mót voru 2,5 milljarðar og jafn- framt að íjárhagsáætlunin fyrir árið 1995 miðist við að nettórekstr- argjöld verði innan við 72% af sam- eiginlegum tekjum. Útsvar hefur verið ákveðið 9,2% og er það hámarksálagning sam- kvæmt lögum. Áætlaðar útsvars- tekjur árið 1995 eru 1.363.628 þús. Fasteignagjöld eru 0,375% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis, 1,25% af atvinnuhúsnæði og sér- skattur af verslunar- og skrifstofu- húsnæði er 1,25%. Fasteignagjöld af hesthúsum hækka í 0,5% auk þess sem lóðarleiga reiknast 1% af fasteignamati allra lóða í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir að tekjur af fasteignaskatti árið 1995 verði rúmar 468,8 millj. og aðrir skattar og gjöld verði 45 millj. Ekkert framlag úr jöfnunarsjóði í fjárhagsáætlun er ekki gert ráð fyrir tekjujöfnunarframlagi úr jöfn- unarsjóði sveitarfélaga á árinu og ekki er búist við framlagi úr sjóðn- um árið 1996, þrátt fyrir að sveitar- félagið fullnýti alla möguleika til álagningar. Búist er við að endur- skoðun á úthlutunarreglum leiði til þess að stærri og öflugri sveitarfé- lög fái ekki framlag þrátt fyrir fullnýtta álagningu á íbúanna. Fram kemur að gert er ráð fyrir að framleiðsla ÍSAL á árinu verði nálægt 100.000 tonn af áli. Miðað við gildandi samninga um hlutdeild bæjarins í álgjaldi er reiknað með 45 millj. í bæjarsjóð. Aðhald í rekstri Þá segir að ýtrasta aðhalds hafi verið gætt við áætlun rekstrar- gjalda án þess að skerða þá þjón- ustu sem veitt er af stofnunum bæjarins. Þrír liðir lækka mest milli ára en það eru húsaleigubætur sem lækka úr rúmlega 31,2 millj. í 17,2 millj., fjárhagsaðstoð lækkar úr rúmum 67,8 millj. í rúmar 56,6 millj. og til skrifstofu félagsmála- stjóra er áætlað að veita 31,9 millj. en áætluð niðurstaða ársins 1994 er 37 millj. EITTHUNDRAÐ læknar úr Sérfræðingafélagi íslenskra lækna komu saman til fundar á sunnudagskvöld til þess að ræða afleiðingar tilvísanaskyldunnar sem gengin er í gildi. Að sögn Bárðar Sigurgeirs- sonar ritara félagsins var mikill hiti í fundarmönnum og segir hann að um 95% sérfræðinga hafi nú sagt upp samningi sín- um við Tryggingastofnun. Ekki sé rétt að taka augn-, röntgen-, og krufningalækna méð inn í reikninginn yfir þá sem ekki hafi sagt upp samningum því ekki þurfi tilvísanir til að leita til þeirra. Bárður segir ennfremur að ákveðið hafi verið á fundinum að hittast að tveimur vikum liðnum og sérfræðingar muni ekki grípa til frekari aðgerða að svo stöddu. „Við ætlum að einbeita okkur að því að upp- lýsa almenning á meðan og munum birta opinberlega nöfn allra þeirra lækna sem sagt hafa upp samningi við Trygg- ingastofnun svo hægt verði að sjá það svart á hvítu,“ segir hann. UTSALA - UTSALA 20-50% afsláttur Síðasta vika. FILA Cortína sport j aU Skólavörðustíg 20, sími 21555. iMBnri REIÐI INSLA AFANGÁSKIPTING í hestamennskunámi er efni fræðslufundar í félagsheimili Fáks fimmtudaginn 23. febrúar. Fundurinn hefst kl. 21, en ekki kl. 20:30, eins og áður var auglýst. Ræðumenn verða Bjarni E. Sigurðsson, Erlingur Sigurðsson, Eyjólfur ísólfsson, Hafliði Halldórsson, Kári Arnórsson og Sigur- björn Bárðarson. Fræðslunefnd Fáks. Ókeypis lögfræðiþjónusta íkvöld milli kl. 19.30 og 22.00 ísíma 55 11012. Orator, félag laganema. Vestmannaeyingar - Vestmannaeyingar Komið í Félagsheimilið Seltjarnarnesi á árshátíð Kvenfélagsins Heimaeyjar laugardaginn 25. febrúar og skemmtum okkur saman eins og Vestmannaeyingum einum er lagið. Hljómsveitin þín" leikur fyrir dansi — Laugi í Logum, Ég veit þú kemur..., Á trillu ég fór með trana... og fleiri Eyjalög. Söngvarinn Tony Moro skemmtir og veislustjóri verður Árni Johnsen. Forsala verður í Félagsheimilinu Seltjarnarnesi fimmtudaginn 23. febrúar kl. 17-19. Skemmtinefndin. .......... Kr. 500.000 EQJ-TENGT SPARISKÍRTEINI FIMM HUNDRUÐ 1‘ÚSUND KRÓNUlt v7Vv7\A.A/vA.'\ a Gengistryggð spariskírteini ECV spariskírteini með erlendri vaxtaviðmiðun Þú þarft ekki að kaupa erlendan gjaldeyri með tilheyrandi kostnaði. Þú þarft ekki að taka árlega við vaxtamiðunum og hafa fyrir því að fjárfesta þá aftur. Þú getur alltaf selt skírteinin þegar þörf krefur, á þinum heimamarkaði. Það er auðvelt að innleysa skírteinin. Þú greiðir engin há þjónustugjöld. Þú nýtur ákveðins skattfrelsis. Þú fjárfestir erlendis hér heima á þægilegan og öruggan máta. Útboð á ECU-tengdum spariskírteinum fer fram í dag kl. 14:00. Hafðu samband við ráðgjafa Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa með tilboð í vexti ECU-tengdra spariskírteina. Leitaðu ekki langt yfir skammt. Ráðgjafar Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa veita þér upplýsingar um ECU-tengd spariskírteini. Síminn er 562 6040. Með ECU-tengdum spariskírteinum ríkissjóðs fjárfestir þú í sameiginlegri mynteiningu Evrópuríkja, með erlendri vaxtaviðmiðun, rétt eins og þegar þú fjárfestir ( erlendum skuldabréfum. Munurinn er sá að með ECU-tengdum spariskírteinum ertu á þínum eigin heimamarkaði og þú þekkir skuldarannl ÞJONUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6,2. hæð (neðsta húsið við Hverfisgötu) sími 562 6040, fax 562 6068 Hvað sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.