Morgunblaðið - 22.02.1995, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995
i Aiunm
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Samþykkt bæjarstjórnar um uppbyggingu grunnskólanna
Tvær álmur og nýr skóli
rísa á næstu 4 árum
BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam-
þykkti í gær tillögu skólanefndar
um uppbyggingu grunnskóla norð-
an Glerár til nokkurra næstu ára.
í áætluninni felst að byrjað verð-
ur að byggja nýja álmu við Glerár-
skóla, svokallaða stjómunarálmu, í
sumar. Næsta stórverkefni á sviði
skólamála verður bygging nýrrar
kennsluálmu við Síðuskóla og bygg-
ing nýs grunnskóla í Giljahverfi.
Stefnt er að því að allir grunnskól-
ar á Akureyri verði einsetnir í upp-
hafi skólaárs árið 1998.
Einsetning á næsta ári
Ásta Sigurðardóttir, Framsókn-
arflokki, formaður skólanefndar,
kynnti áætlunina á fundi bæjar-
stjómar í gær og kom þá m.a. fram
í máli hennar að með byggingu
stjórnunarálmu í Glerárskóla losn-
uðu 6-8 kennslustofur sem gerði
að verkum að hægt yrði að einsetja
skólann þegar næsta skólaár.
Byggingu Giljaskóla hefur lengi
verið frestað og svo er enn á þessu
ári en fyrirhugað að hefja fram-
kvæmdir á því næsta og ljúka fyrsta
áfanganum árið 1997. Þetta sagði
Ásta vera í samræmi við niðurstöð-
ur könnunar sem gerð var á vilja
foreldra bama í hverfinu, sem ein-
dregið var sá að fá skóla í hverfið,
en börnin hafa sótt Glerárskóla. Þá
verður byggð upp ný kennsluálma
við Síðuskóla og lýkur framkvæmd-
um samkvæmt áætlun skólanefndar
árið 1998 og verður þá hægt að
einsetja skólann.
Ásættanleg leið
Sigurður J. Sigurðsson, Sjálf-
stæðisflokki, sagði að oft hefði
bærinn með skólabyggingum sínum
verið að elta nemendafjöldann milli
hverfa og væri ástæða til staldra
við og skoða málin. Nemendafjöldi
í Giljahverfi hefði ekki vaxið í sam-
ræmi við þær áætlanir sem gerðar
vom. í hverfínu væri lítið af félags-
legum íbúðum og svo virtist sem
barnaú'ölskyldur væri ekki eins stór
hluti íbúa og ráð var fyrir gert. Sú
leið sem skólanefnd hefði valið
væri þó ásættanleg.
Ásta sagði að vissulega hefði
uppbygging Giljahverfis ekki verið
eins hröð og búist var við, en með
nýjum atvinnutækifærum og nýju
fólki sem væntanlega flytti til bæj-
arins í kjölfarið yrði bærinn að gera
það sem í hans valdi stæði til að
ný hverfi væm aðlaðandi. Eitt af
því væri að skóli væri í hverfinu.
Djákna-
störf
kynnt
MIÐSTÖÐ fólks í atvinnuleit verður
með opið hús í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju í dag, miðvikudag-
inn 22. febrúar, milli kl. 15 og 18.
Gestur á þeirri samveru verður
Valgerður Valgarðsdóttir sem ný-
lega var vígð til djáknastarfa í
Akureyrarsókn með verksvið á
Fjórðungssjúkrahúsinu.
Valgerður sem á að baki langt
starf sem hjúkmnarfræðingur mun
kynna nám og störf djákna og svara
fyrirspumum. Valgerður hefur tek-
ið vígslu til starfa við FSA.
Allir eru velkomnir til að kynnast
þessum nýja vaxtarbroddi í kirkju-
legu starfí, en mikill áhugi er nú á
að ráða djákna til starfa og sinna
fræðslu og líknarmálum í söfnuðin-
um.
Umsjónarmaður Safnaðarheimil-
is gefur nánari upplýsingar um
starfsemina og tekur einnig við
tímapöntunum fyrir „Lögmanna-
vaktina" sem er á miðvikudögum
frá kl. 16.30 til 18.30.
Metraþykkur
skafl á þaki
SVANUR Karlsson var í óða önn
að moka snjónum ofan af þaki
húss síns við Þingvallastræti í vik-
unni. Blautum snjó kyngdi niður
um helgina og bættist þá verulega
við það magn sem fyrir var á
þakinu, var orðið um einn metri
á hæðina. Þegar svo fór að hlýna
í byijun vikunnar vildi Svanur
forða því að snjórinn myndi leka
inn á stofugólf og greip því skófl-
una galvaskur.
Rættum
fram-
kvæmd
loforða SH
FULLTRÚAR Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna sátu fund með
fulltrúum úr bæjarstjórn Akur-
eyrar fyrr í vikunni þar sem rætt
var um tilboð SH til eflingar at-
vinnulífs á Akureyri í tengslum
við sölumál Útgerðarfélags Akur-
eyringa.
Gísli Bragi Hjartarson bæjar-
fulltrúi Alþýðuflokks sem situr í
meirihluta með Framsóknarflokki
sagði að fram hefði komið hjá
fulltrúum SH að við allt yrði stað-
ið varðandi þau atvinnutilboð sem
- lögð voru fram í janúar þegar til
tals kom að skipta um söluaðila
fyrir afurðir ÚA.
„Þetta er verkefni sem gengið
verður í að leysa, þeir skýrðu út
með hvaða hætti gengið yrði í
málið,“ sagði Gísli Bragi. Þriðj-
ungur starfsemi SH flyst norður
í sumar, þá verður stærsti hluti
starfsemi Umbúðamiðstöðvarinn-
ar fluttur til Akureyrar undir
haustið og öflugri starfsemi á veg-
um Eimskips á haustmánuðum.
Upplýsingar til þeirra
sem flytja norður
Gísli Bragi sagði að einnig hefði
verið rætt um á hvern hátt bærinn
gæti komið inn í málið m.a. með
hagnýtum upplýsingum til þeirra
sem flytja sig um set norður, t.d.
varðandi skólamál og fleira. Þá
gæti þurft að vinna einhveija
skipulagsvinnu í tengslum við auk-
in umsvif Eimskips á Akureyri.
Aðalfundur 1995
Aðalfundur Sæplasts hf. verður haldinn í
Sæiuhúsinu á Dalvík fimmtudaginn 9. mars
1995 og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 16. gr.
samþykkta félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins til
samræmis við ný lög um hlutafélög.
3. Önnur mál löglega upp borin.
Reikninga félagsins ásamt dagskrá fundarins og
endanlegum tillögum, munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins viku fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
fundarstað.
HÚSIN við Hrauneyjar, sem ekki fást þinglýst, þar sem enginn
eigandi er að afréttinum, landinu, sem þau eru reist á.
Enginn eigandi að afrétti
Leigusamningum
fæst ekki þinglýst
Selfossi -Eigendur ferðaþjónustu-
húsa við Hrauneyjar geta ekki feng-
ið Ióðaleigusamningi vegna húsanna
þingiýst með venjuiegum hætti þar
sem enginn þinglýstur eigandi er að
landinu, afréttinum, sem þau eru
staðsett á.
Eigendur húsanna eru með í hönd-
unum lóðaleigusamning frá Holta-
og Landsveit sem hefur með afrétt-
inn að gera en er ekki formlegur
eigandi landsins. Sýslumannsemb-
ættið í Rangárvallasýslu getur ekki
þinglýst samningnum með venjuleg-
um hætti eins og gert er með lóða-
leigusamninga í byggð þar sem eng-
inn formlegur eigandi er að afréttin-
um.
Enginn þinglýstur eigandi
afréttarins
Landið sem húsin standa á er
afréttur sem enginn þinglýstur eig-
andi er að. Ríkið gerði eignar-
dómskröfu til landsins 1981 en því
var hafnað í Hæstarétti. Sveitarfé-
lögin fengu skertan eignarrétt úr
þeim dómi. Sveitarfélagið hefur nú
sem áðyr alla eignalega lögsögu með
afréttinum en skortir hinn formlega
rétt sem þau hafa á landi í byggð.
Eigendur þjónustuhúsanna fengu
öll leyfí til bygginga þeirra hjá
Holta- og Landsveit. Skipulagsupp-
drættir voru gerðir og samþykktir
af Skipulagi ríkisins. Þrátt fyrir það
er þinglýsing lóðaleigusamnings
ekki sjálfsögð þar sem í 24. grein
þinglýsingarlaga er ákvæði um að
þinglýstur eigandi þurfi að vera að
íóðinni.
Málið er í óformlegri athugun hjá
sýslumannsembættinu í Rangár-
vallasýslu. Formleg beiðni um þing-
lýsingu hefur ekki verið lögð fram.
Málið er ekki fullreynt fyrr en það
hefur verið gert og þinglýsingar-
möguleikar kannaðir að fullu sam-
kvæmt þeim lögum sem fyrir hendi
eru.
Fasteignatryggð Ián fást ekki
Á meðan lóðarleigusamningi fæst
ekki þinglýst geta eigendur húsanna
ekki fengið afgreidd þau fasteigna-
tryggðu lán sem þeim bjóðast vegna
framkvæmdanna. Á meðan svo er
eru húsin metin sem lausafé og þurfa
aukalega baktryggingu.
Sveinn Tyrfingsson, einn eigenda
húsanna, sagði þetta bagalegt og
gera mönnum erfitt fyrir í þessari
ferðaþjónustuuppbyggingu því eng-
an hefði órað fyrir þessum hnökrum
í kerfínu.
Á svæðinu við Hrauneyjar hefur
þegar verið byggt gisti- og þjónustu-
hús. Uppsetning húsanna hófst á
síðastliðnu sumri og starfsemi eftir
áramótin og að sögn Sveins Tyrf-
ingssonar hafa góðar bókanir borist
fyrir næsta sumar.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
GUÐMUNDUR Gestur Þórisson, grenjaskytta,
með hvíta Langanesrefinn.
Með fannhvíta
lágfótu í farteskinu
Þórshöfn- Grenjaskyttan á
Langanesi, Guðmundur Gestur
Þórisson, var að koma úr leið-
angri er fréttaritari hitti hann á
dögunum. Vel bar í veiði hjá
þeim báðum því Guðmundur var
með fannhvíta lágfótu í fartesk-
inu. Fréttaritarinn var að sama
skapi ánægður með sinn feng og
„skaut“ þegar í stað á refa-
fangarann með myndavélinni.
Refurinn, sem var pattaraleg-
ur og vel á sig kominn, var skot-
inn yzt úti á Langanesi, en að
sögn Guðmundar hefur ekki ver-
ið mikið um tófu þar undanfarið.
Guðmundur hefur verið grenja-
skytta frá árinu 1988 og unnið
yfir 60 greni en hann sér um
Langanesið, Brekknaheiði og
Tunguselsheiði.
Guðmundur, sem jafnframt er
formaður Björgunarsveitarinnar
Hafliða á Þórshöfn, notaði ferð-
ina einnig til þess að koma við í
Albertsbúð úti á Skálum, en það
er neyðarskýli björgunarsveitar-
innar. Allt reyndist þar í besta
lagi og svaraði Siglufjarðarradíó
talstöðvarkalli Guðmundar að
bragði. Það er hagkvæmt að
Fgrenjaskytta gegni stöðu for-
manns björgunarsveitar því hann
er hagvanur um fjöll og óbyggð-
ir og ágætlega í stakk búinn ef
til björgunarleiðangurs eða leit-
ar kæmi á þessu stóra, óbyggða
svæði.
[4-
-i
<
!
!
I
i
í
r
i
I
l
I
*
í
I