Morgunblaðið - 22.02.1995, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Ulfhundurinn
og indjánarnir
KVIKMYNDIR
Sagabíó
ÚLFHUNDURINN 2
„WHITE FANG 2“ Vi
Leikstjóri: Ken Olin. Aðalhlutverk:
Scott Bairstow, Charmaine Craig,
Alfred Molina, Geoffrey Lewis.
Walt Disney. 1994.
FRAMHALDSMYNDIN úlfhund-
urinn 2 um ævintýri úlfhundsins,
sem Jack London skrifaði um á sín-
um tíma, er gersamlega viðburða-
snautt og óspennandi ævintýri en
mest væmin og leiðinleg ástarsaga
á milli nýs eiganda hundsins og indj-
ánastelpu í nágrenninu. Það er
hending ef eitthvað gerist í mynd-
inni sem vekur hinn minnsta áhuga.
Úlfhundurinn 2 hefur allar réttu
meiningamar í málefnum eins og
umhverfísvemd og sambýli ólíkra
kynþátta en hún gerist á indjána-
slóðum. Sagan er hins vegar fárán-
leg og handritið gerir svo lítið úr
indjánunum að það nálgast grófa
kynþáttafordóma, sem er vont fyrir
mynd sem annars stærir sig mjög
af réttum siðaboðskap. Indjánunum
er lýst sem gersamlega dáðlausum
mönnum er sitja og bíða eftir því
að hvíti úlfhundaeigandinn, hann
er vart kominn af bamsaldri, leiði
þá út úr ógöngunum, þ.e. fari til
flalla og finni hreindýrahjörðina
þeirra. Af hveiju þeir gera það ekki
sjálfír í stað þess að liggja og láta
sig dreyma er alltaf hulin ráðgáta
nema hvíti strákurinn sé svona
miklu klárari en aumingja indján-
amir.
Ken Olin heitir leikstjóri myndar-
innar (gott ef hann er ekki leikarinn
úr sjónvarpsþáttunum „Thirtie-
something) og stýrir hann henni af
fullkomnu dáðleysi. Undir stjóm
hans verður væmin og langdregin
ástarsaga drengsins og indjána-
stúlku í þorpinu sérlega lýjandi og
þegar við bætist vont handrit er
ekki nema von að útkoman verði
helber leiðindi. Leikurinn mundi
henta vel í sjónvarpsþætti nema
Alfred Molina er svolítið ógnandi í
óþokkahlutverkinu og Geoffrey
Lewis gerir gott úr örsmáu hlut-
verki.
Arnaldur Indriðason
Gróa gasprar
á Ekkjutindi
KVIKMYNDIR
Háskólabíó
EKKJUHÆÐ
„WIDOW’S PEAK“ ★ ★ Vj
Leiksijóri: John Irvin. Aðalhlutverk:
Mia Farrow, Joan Plowright,
Natasha Richardson. The Rank
Organisation. 1994.
SÖGUSVIÐ bresku gamanmynd-
arinnar Ekkjuhæð eða „Widow’s
Peak“ er Kilshannon, írskur sveita-
bær, á þriðja áratugnum. Honum
virðist stjómað af hópi síslúðrandi
kerlinga, undir forystu Joan Plow-
right, sem allar klæðast svörtu, því
þær em ekkjur. Þegar ung og glæsi-
leg ensk kona (Natasha Richardson)
flytur í þorpið og verður óvinur
helstu piparmeyjar staðarins (Mia
Farrow) fara gróusögumar á flug
og brátt heyrast raddir um yfírvof-
andi morð og meiðingar.
Þrjár góðar leikkonur fara með
aðalhlutverkin í þessari skoplegu
úttekt á smábæjarslúðri og hvemig
má hafa gagn af því ef rétt er hald-
ið á spilum og þær halda myndinni
mikið til uppi af eigin rammleik.
Plowright er í essinu sínu sem yfír-
snobb staðarins er lætur sig varða
um allt og ekkert og notar stóran
sjónauka til að ekkert í bæjarlífinu
fari framhjá henni. Mia Farrow er
skemmtilega viðskotaill í.hlutverki
konu sem veit lengra nefí sínu en
virðist líka haldin ofsóknarbrjálæði.
Richardson dregur upp fína mynd
af tálkvendi sem allir vita frá upp-
hafí að er ekki nákvæmlega sú sem
hún segist vera.
★
Hér er sárasaklaust grín á ferð-
inni sem treystir á svarta kómed-
íuna, skondna persónusköpun og
skoplegt andrúmsloft smábæjamm-
hverfisins með ívafi dæmigerðrar
Agöthu Christie-sakamálasögu.
Margt spaugilegt kemur uppúr
dúmum en sagan er alltof lengi að
fara í gang og virkar heldur gegnsæ
þegar á líður. Fjöldi skemmtilegra
aukaleikara koma við sögu og fylla
út í smábæjarlífíð og leikstjórinn
John Irvin, sem áður gerði þá ger-
ólíku mynd „Hamburger Hill“, gefur
stjömunum sínum það rými sem þær
þurfa. En myndin virkar alltaf betur
sem svört karakterkómedía en saka-
málasaga, sem bæði er langsótt og
ekki ýkja spennandi þegar til kemur.
Arnaldur Indriðason
Morgunblaðið/Guðmundur Vignir Karlsson
HLUTI leikhóps ML við æfingu á söngleiknum Fiðlaranum á þakinu.
Fiðlarinn á Laugarvatm
Laugarvatni. Morgunblaðið.
LEIKHÓPUR Menntaskólans á
Laugarvatni frumsýnir á næst-
unni söngleikinn Fiðlarann á
þakinu. Leikverkið tekur þrjár
klukkustundir í flutningi og er
stjórnað af Ingunni Jensdóttur
9jg h(jómsveitarstjóri er Hilmar
Orn Agnarsson. Sextíu nemend-
ur ML koma að verkinu á einn
eða annan hátt.
Undanfarnar vikur hefur
hópurinn stundað æfingar af
kappi. Söngleikurinn um fiðlar-
ann á þakinu er byggður á sög-
unum um Yevye mjólkursala
sem Sholom Rabonovítsj skrif-
aði í jiddísk blöð undir nafninu
Sholom Aleikhem fyrir u.þ.b.
hundrað árum. Fiðlarinn hefur
verið settur upp um allan heim
og hvarvetna notið mikilla vin-
sælda.
Sögusviðið er lítið gyðinga-
þorp í Austur-Evrópu um 1900,
Anetevka. í nánd eru tímar
breytinga og umbyltii.ga sem
þorpsbúar verða að mæta. Sýn-
ingar á verkinu verða sem hér
segir, frumsýning í ML 24. feb.
kl. 21.00, Félagsheimilinu á
Flúðum 25. feb. kl. 15.00 og
21.00, í Gunnarshólma 26. feb.
kl. 15.00 og 21.00, Félagsh.
Kópavogs 27. feb. kl. 21.00,
Grunnskólanum Þorlákshöfn 1.
mars kl. 21.00.
Hátíðartónleikar Tónskáldafélagsins í Háskólabíói
Kona í fyrsta sinn á stjórnenda-
palli Sinfóníuhljómsveitarinnar
LOKATÓNLEIKAR Myrkra mús-
íkdaga á fímmtudagskvöld marka
tímamót í sögu Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar því þá mun í fyrsta
sinn standa kona á stjómendapalli
hljómsveitarinnar. Kona sú er ríð-
ur á vaðið er bresk og heitir Anne
Manson.
Anne Manson stundaði tónlist-
amám í Bretlandi og síðar í
Bandaríkjunum þar sem hún lauk
prófí frá Harvard-háskólanum.
Hún hefur unnið mikið við óperu-
uppsetningar og m.a. hefur hún
verið aðstoðarmaður Claudio
Abbado við ýmsar uppfærslur á
Salzburg og Vínarborg. Hún er
nú tónlistarstjóri Mecklenburgh-
ópemnnar í London. I tónlistar-
heiminum hefur Anne Manson
vakið sérstaka athygli
fyrir túlkun sína á
nútímatónlist.
Einleikarar á tón-
leikunum em Rascher
saxafón-kvartettinn
sem stofnaður var af
Sigurd Rascher árið
1969. Enn leika með
kvartettinum tveir af
stofnendum hans. Lít-
ið var um tónlist fyrir
saxófónkvartett þeg-
ar Rascher-kvartett-
inn var stofnaður en
í dag era til 200 tón-
verk sem sérstaklega
em tileinkuð honum.
Á efnisskrá tónleikanna eru
verk fjögurra íslenskra tónskálda,
þar af tvö sérstaklega samin fyrir
þessa hátíðartónleika
Tónskáldafélagsins.
Langnætti eftir Jón
Nordal var samið í til-
efni 25 ára afmælis
Sinfóníuhljómsveitar
íslands árið 1957.
Coniunctio eftir Snor-
ra Sigfús Birgisson og
Ljáðu mér vængi eftir
Atla Heimi Sveinsson
sem samin er í tilefni
af 50 ára afmæli Tón-
skáldafélags íslands.
Verkin eru styrkt af
Tónskáldasjóði Ríkis-
útvarpsins. Ljáðu mér
vængi er tileinkað
Rascherkvartettinum. Tónleikun-
um lýkur á forleiknum Geysi eftir
Jón Leifs.
Anne Manson
Sric Sricson
og kammerkór hans
Tónleikar í Langholtskirkju sunnudaginn 26. febrúar 1995 kl. 17:00
Hlýðið á margverðlaunaðan kammerkór og
stjórnanda hans flytja úrval norrænna kórverka.
rcrir Miðapantanir i síma 693587. Miðasala í Langholtskirkju samdægurs frá kl. 16:00
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
FRÁ sýningu Framhaldsskólans á Laugnm á söngleiknum Hárinu.
Framhaldsskólinn á
Laugum sýnir Hárið
Laxamýri. Morgunblaðið.
LEIKHÓPUR Framhaldsskólans á
Laugum sýnir um þessar mundir
söngleikinn Hárið sem byggir á kvik-
mynd sem gerð var árið 1979 og er
sú fmmmynd verksins sem nemend-
ur hafa sett upp. Lögin sem eru sung-
in em þau sömu þó svo textar hafi
verið skomir niður.
Leikstjóri er Einar S.H. Þorbergs-
son frá Húsavík en æfíngar hafa
staðið yfir síðan í október. Tónlistar-
stjóri er Björn Þórarinsson en hljóm-
sveit nemenda við skólann sér um
undirleik.
Framsetning verksins hefur vakið
athygli og var þessum ungu leikend-
um klappað mikið lof í lófa á þeim
sýningum sem búnar em. Sýningum
fyrir almenning verður haldið áfram
eftir þvf sem aðsókri leyfír.