Morgunblaðið - 22.02.1995, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995 41
FÓLK í FRÉTTUM
DEAN Martin hinn sprækasti
fyrir skömmu.
Dean Mart-
in klekkir á
krabbanum
FYRIR fáum mánuðum var
skemmtikrafturinn kunni Dean
Martin talinn dauðvona af læknum
og honum var það ljóst. Þessi fyrr-
um glæsilegi og
hressi kappi var
lítið annað en
skinn og bein, vóg
aðeins 50 kíló.
Hann var illa hald-
inn af krabba-
meini, auk þess
sem hann hefur
um árabil átt við_________
erfitt áfengis- deAN fyr-
vandamál að jr hálfu ári.
stríða og reykti í
ofanálag að jafnaði 80 sígarettur á
dag. Læknar sögðu honum að lítil
von væri til að komast fyrir meinið,
en hann gæti hugsanlega lengt líf-
daga sína með því að lifa heilbrigð-
ara lífi.
Dean á sex uppkomin böm og
auk þeirra svaraði fyrrum kona
Martins, Jeanne Biggers, kallinu.
Þau tóku á móti Martin er hann
kom af sjúkrahúsi og hafa hugsað
um hann síðan. Dean hætti að
drekka og reykja og fór að borða
hollan mat. Núna, hálfu ári seinna
er allt annað að sjá hann. Það geta
lesendur sjálfír séð á myndunum.
Önnur er tekin af honum helsjúkum
á miðju síðasta ári, en hin er tekin
nýlega er kappinn steðjaði hinn
sprækasti inn á eftirlætisveitinga-
stað sinn í Beverly Hills. Við það
tækifæri sagði hann viðstöddum,
að hann væri kominn í „súperform"
og væri ekki dauður enn.
Ekkja Harpos
ánægð með lífið
SUSAN Marx hóf feril sinn sem
dansari á Broadway, en flutti
sig siðar um set og lék í fjöl-
mörgum kvikmyndum í Holly-
wood á fjórða áratugnum undir
nafninu Susan Fleming. Árið
1932 kynntist hún einum Marx-
bræðra, Harpo, og þar með var
framtíð hennar ráðin. Það tók
hana fjögur ár og þijú bónorð
að ná Ilarpo i hnapphelduna.
Að þvi loknu lagði hún leiklist-
ina á hilluna og sneri sér að því
að rækta fjölskylduna, en þau
hjónin ættleiddu fjögur börn.
„Við sögðum börnum okkar
þegar í upphafi að þau væru
ættleidd," segir Susan. „Við
bjuggum til sögur um hvernig
þau hefðu verið valin sérstak-
lega. Minnie var einu sinni spurð
hvernig það væri að vera ætt-
Ieidd. Hún svaraði að bragði:
„Hvernig er að vera ekki ætt-
lædd?“
Harpo lést á brúðkaupsaf-
mæli sínu árið 1964 og á hverju
ári síðan safnast fjölskyldan
saman á þeim degi, eða 28. sept-
ember, á heimUi Susan í Palm
Springs. „ Við gerum þetta ekki
til að minnast andláts hans, held-
ur til að fagna stofnun fjölskyld-
unnar,“ segir Susan.
Susan og Harpo kynntust í
kvöldverði heima þjá kvik-
mjndajöfrinum Sam Goldwyn.
„Eg heillaðist strax af Harpo,“
segir Susan. „Hann var hlýr,
skemmtilegur og það var yndis-
legt að ræða við hann. Allir vildu
eiga hann sem vin, en hann fór
mjög varlega í sakirnar. Hann
gerði sér ljóst að honum líkaði
vel við mig og vildi eyða tíma
sínum með mér.“
Sérkenni Harpos í kvikmynd-
um Marx-bræðra voru harpan,
hárkollan og málleysið. „Mál-
leysið kom til þegar þeir bræð-
urnir voru á ferðalagi með
skemmtidagskrá sína. Groucho
og Chico höfðu mjög hnyttin tils-
vör, svo Harpo ákvað að leika
málleysingja. Hárkollan er
sprottin frá þeim tíma sem
Harpo vann fyrir hárkolluhönn-
uð og tók nokkur sýnishorn með
sér heim.
Hvað hörpuna varðar hafði
hún lengi verið í eigu fjölskyld-
unnar og legið ónotuð inni í
skáp. Harpo fann hana og hafði
mjög gaman af að leika á hana.
Hvenær sem honum áskotnuðust
einhveijir aurar keypti hann
nýjan streng í hörpuna fyrir
þá.“
Árið 1958 fékk Harpo fyrir
hjartað í fyrsta skipti og á með-
an hann náði bata gaf hann
hörpuna upp á bátinn og sneri
sér að málaralist. „Hann varð
svo góður málari,“ segir Susan,
„að verk hans gengu út eins og
heitar lummur. Hann féUst þó
aðeins á að selja þau að því til-
skildu að andvirðið rynni til
góðgerðarmála.“
Núna segist Susan vera
ánægð með lífið, enda á hún
fjögur uppkomin börn. Hún seg-
ist ætla að njóta lífsins héðan í
frá og bæði ferðast og mála.
Auk þess ætlar hún að skrifa
bók um hjónaband sitt og Harp-
os.
HARPO í faðmi fjölskyldunnar.
SUSAN með málverk af döprum trúði eftir Harpo.
SUSAN með börnum sínum Jim, Alex, Minnie og Bill.
BÖRNIN í heimsókn á tökustað myndarinnar „A Night In Casa-
blanca" með frændum sínum Chico og Groucho og föður sínum Harpo.
HEILSUBÓTAR'
DAGAR
REYKHÓLUM í
SUMAR
UPPLÝSINGASÍMl 554-4413
MILLIKL. 18-20 VIRKADAGA
SIGRÚN OLSEN OG ÞÓRIRBAREBAL
CAFE BOHEM
- VITASTÍG 3 —
Opið í kvöld.
Stanslousar uppákomui öll kvöld.
Opið miðvikudag - sunnudags.
• •
SIÐUSTU DAGAR UTSOLUKNAR
GERIÐ GOÐ KAUP ^
MIKIL VERÐLÆKKUN
eneiion
í
LAUGAVEGI 97 SIMI 55 22 555
J