Morgunblaðið - 22.02.1995, Side 44
44 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
★★★ A.l Mbl.
Leikstjóri
Friðrik Þór Frið
★★★ Ó.H.T. Rás 2.
★★★ Þ.Ó. Dagsljós
★★★ Ó.M. TÍMINN
íafsson Bríet HéÖinsdóttir
Á KÖLDUM KLAKA
Hann ætlaði í sólina á Hawaii, en
hafnaði í ísköldum faðmi
drauga og furðufugla.
Gamansöm ferðasaga með ívafi
spennu og dularfullra atburða.
Nýjasta kvikmynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar um ævintýri
ungs Japana á íslandi.
Stuttmynd Ingu Lísu
Middleton,
„í draumi sérhvers
manns", eftir sögu
Þórarins Eldjárns
sýnd á undan „ Á KÖLDUM
KLAKA".
Aðalhlutverk: Ingvar E. Sigurðsson.
★★★ Ó.H.T. Rás 2.
ÍSLENSKUR BÍÓPAKKI
TVÆR MYNDIR - EINN MIÐI
Miðaverð 700 kr.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
200 kr. afsláttarmiði á piz-
zum frá HRÓA HETTI fylgir
hverjum bíómiða á myndina
Á KÖLDUM KLAKA.
FRANKENSTEIN
★★★ G.B. DV
„Kenneth Branagh og
leikarar hans fara á kostum í
þessari nýju og stórbrotnu
útgáfu hinnar sígildu sögu
um doktor Frankenstein og
tiiraunir hans til að taka að
sér hlutverk skaparans."
ROBERT DE NIRO KENNETH BRANAGH
-|-i MARY SHELLEY’S T
tRANKENSTElN
TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Sýnd kl. 4.50, 9 og 11.15. B. i. 16 ára.
AÐEINS ÞÚ
Sýnd kl. 7.10.
STJÖRNUBÍÓLÍNAN
SÍMI 991065
Taktu þátt í spennandi
kvikmyndagetraun.
Verðlaun: Boðsmiðará
myndir í STJÖRNUBÍÓI.
Verð kr. 39,90 mín.
STING faðmar Elton John að sér eftir að hafa
veitt honum Bresku tónlistarverðlaunin.
Elton John ekki dauð-
ur úr öllum æðum
FOLK
Morgunblaðið/Júlíus
INGVAR Þórðarson og Hallur Helgason.
ÁGÚST Jakobsson tók nær allan hluta tónleikaspólu rokksveit-
arinnar Nirvana, sem nú er mest selda spóla heims samkvæmt
Billboard-listanum.
ÁHORFENDUR risu úr sætum sín-
um og klöppuðu Elton John lof í
lófa þegar hann veitti Bresku tón-
listarverðlaununum viðtöku fyrir
æviframlag sitt og langvarandi vin-
sældir í tónlistarheiminum. „Gamla
stelpan er ekki dauð úr öllum æðum
ennþá,“ sagði Elton John af þessu
'tilefni og flutti iagið „I’m Still
Standing" af mikilli innlifun.
Rod Stewart sem hefur verið
kallaður risaeðla rokksins af gagn-
rýnendum sagði við Elton John:
„Þú ert frábær söngvari, lagasmið-
ur og flytjandi - en ekki eins góður
og ég.“ Skírskotaði hann þá til
þess að hann fékk bresku tónlistar-
verðlaunin fyrir æviframlag sitt á
undan eða fyrir tveimur árum.
Hljómsveitin Blur fékk fjögur
verðlaun af fjórtán og þarf að yfir-
vinna „bölvun Bresku tónlistar-
verðlaunanna", en hljómsveitarnar
Bros og Five Star féllu báðar í
gleymsku á sínum tíma. Madonna
sem flutti lag á afhendingunni fékk
engin verðlaun, en k.d. Lang var
valin besta söngkonan.
Nellee Hooper, sem var maður-
inn á bak við nýjustu plötu Mad-
onnu, „Bedtime Stories“ var valinn
besti framleiðandi, en hann útsetti
plötu Bjarkar Guðmundsdóttur
„Debut“ á sínum tíma. Þá gladdi
það augað að Prince tók við verð-
launum fyrir að vera besti karl-
söngvari, en lítið hefur sést til hans
undanfarið.
út
úr bíl-
skúrnum
► ÚT ÚR BÍLSKÚRNUM er
vinnuheiti kvikmyndar sem Ing-
var Þórðarson, Hallur Helgason
og Ágúst Jakobsson eru með í
bígerð í samvinnu við Flugfélag-
ið Loft, sem setti upp Hárið í
fyrra, og verður í anda hinnar
sígildu kvikmyndar Friðriks
Þórs Friðrikssonar Rokk í
Reykjavík. Fengu þeir félagar
til þess styrk frá Kvikmynda-
sjóði sem nam tveimur milljón-
um króna, en áætlað kostnaðar-
verð myndarinnar er tiu til
fimmtán milljónir.
Eiturlyf, kynlíf og sjálfsvíg
Ágúst Jakobsson verður kvik-
myndastjóri, en hann hefur
undanfarin fjögur ár unnið að
gerð tónlistarmynda fyrir marg-
ar rokksveitir erlendis.
Ágúst tók meðal annars upp
tónleikaferðalag Guns N’ Roses
sem teygði sig um allan heim
og stóð yfir i tvö ár. Efni úr
þeirri ferð hefur verið notað í
fjölda tónlistarmyndbanda og
heimildamyndir á sölumynd-
bandsspólur í Japan og Banda-
ríkjunum. Auk þess er tónleika-
spóla með hljómsveitinni Nir-
vana mest selda spólan í heimin-
um í dag samkvæmt Billboard-
listanum, en Ágúst tók nær alla
þá mynd.
Ágúst er staddur í Los Ange-
les við vinnu, en Ingvar og Háll-
ur voru teknir tali af blaða-
manni Morgunblaðsins og
spurðir hvernig undirbúningi
myndarinnar liði. „Undirbún-
ingur er á fleygiferð," segir
Ingvar. „Stefnt er að því að
upptökur hefjist í apríl og standi
yfir fram í júní. Það má kannski
geta þess að við erum núna í
viðamikilli leit að hljómsveitum
og öðrum uppákomum í mynd-
ina og erum opnir fyrir öllum
góðum hugmyndum.“
Um hvað fjallar myndin?
„Það má segja að myndin
verði einskonar ferðalag um
menningarheim unga fólksins í
Reykjavík," segir Hallur. „Kaf-
að verður ofan i næturlífið,
fylgst með rokksveitum á tón-
leikum og partíum." Ingvar tek-
ur undir með Halli og bætir við:
„Við munum þreifa á öllu sem
því tengist, hvaða nafni sem það
nefnist; náttúrunni, skemmtana-
lífi, eyðni, kynlífi, eiturlyfjum,
alkóhólisma og sjálfsvígum."
Hefur verið ákveðið hvaða
hljómsveitir koma fram ímynd-
inni?
„Viðræður við hljómsveitir
standa yfir núna,“ segir Hallur.
„Það verður líkast til ekki erfið-
íeikum bundið að fá hljómsveit-
irnár til að koma fram í mynd-
inni, en myndgerðin byggist á
því að gott samstarf náist.“
Stefnuleysi eina stefnan
Hvenær verður myndin frum-
sýnd?
„Við stefnum að því að hún
verði frumsýnd um miðjan sept-
ember," segir Ingvar. „Viku eft-
ir frumsýninguna verða síðan
haldnir stórtónleikar með þeim
íslensku rokksveitum sem koma
fram í myndinni. Auk þess stefn-
um við að því að fá Slash, gítar-
leikara Guns N’ Roses, til að
koma hingað til lands með hlið-
arhljómsveit sinni „Snakepit".
Þó er best að lofa sem minnstu,
en Slash lofaði Ágústi að hann
myndi koma til landsins ef nógu
mikið viskí væri til í landinu.”
Erjafn mikið um að vera í
íslensku tónlistarlífi núna eins
og þegar Rokk í Reykjavík var
tekin?
„Það er ekki minna að ger-
ast,“ segir Ilallur. „Þegar pönk-
ið var og hét spratt það upp úr
stéttabaráttu sem háð var í
Bretlandi. 1 dag ríkir hinsvegar
upplausn og stefnuleysi meðal
ungs fólks á íslandi. Línur
stjórnmálanna eru óskýrar og
hugsjónir eiga erfitt uppdrátt-
ar.“ Ingvar bætir við: „Á sama
tíma og stefnuleysið virðist vera
eina stefnan hefur næturlífið
aldrei verið trylltara."