Morgunblaðið - 22.02.1995, Qupperneq 48
i rfíly* jfl-ifa Opið
frá 8 til 5
SJOVAOgrALMENNAR
alltafá
Miövikudögum
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SlMI 669 1100, SÍMBRÉF 669 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRVM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 86
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRUAR 1995
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
T' 'y •(r
4
- s '
■
H . " ^ ' ’'
Morgunblaðið/Halldór
Á leið í kuldann
FLUGVÉL af gerðinni Saab
2000 lenti á Reykjavíkurflug-
velli í gær á leið frá Svíþjóð til
Grænlands. Um er að ræða
þriðju frumgerð vélar sem verk-
smiðjumar em að hanna um
þessar mundir.
Gert er ráð fyrir að hún geti
flutt 50-58 farþega, vænghafið
er tæpir 25 metrar og fer vélin
676 kílómetra á klukkustund.
Aflvélin er af gerðinni Allison
GMA 2100A og flugþol
vélarinnar 2.320 kOómetrar.
Flugvélin er á leið tíl Syðri-
Straumsfjarðar á Grænlandi
þar sem hún fer í svokallað
„kuldatékk" samkvæmt upplýs-
ingum frá Flugþjónustunni á
Reykjavíkurflugvelli. Verður
vélin látin standa í 10 tima í 25
gráða frosti en að því búnu er
hún gangsett á eigin rafhlöðum
og allur búnaður kannaður.
Vélin kemur til baka á föstudag
en 13 manns eru í áhöfn.
Kaupmáttur vex um 3% á samningstíma nýrra kjarasamninga
aðila vinnumarkaðarins að mati Þjóðhagsstofnunar
Verðbólgan 2,5%
eins og er í OECD
KAUPMATTUR vex um 1,5% að
meðaltali á þessu ári og aftur um
1,5% á næsta ári eða samanlagt um
3% að mati Þjóðhagsstofnunar á
samningstíma nýrra kjarasamninga
aðila vinnumarkaðarins sem undir-
ritaðir voru í fyrrinótt. Gert er ráð
fyrir að verðbólga verði um 2,5% í
ár og einnig á næsta ári, sem er
sama verðbólga og spáð er í öðrum
aðildarríkjum OECD. Segir í mati
Þjóðhagsstofnunar að verði þessir
kjarasamningar fyrirmynd annarra
samninga séu forsendur fyrir því
að stöðugleiki ríki áfram í þjóðarbú-
skapnum.
í gærkvöldi kom fram á Alþingi
lagafrumvarp um nauðsynlegar
breytingar á skattalögum vegna
yfírlýsingar ríkisstjórnarinnar í
tengslum við kjarasamningana.
Samningarnir verða bomir undir
atkvæði í fyrstu stéttarfélögunum í
dag. Verslunarmannafélag Reykja-
víkur verður með fund um af-
greiðslu samninganna í kvöld á
Hótel Sögu og Rafiðnaðarsamband
íslands verður með fund í Reykjavík
seinnipartinn. Iðja og Verkalýðs- og
sjómannafélag Keflavíkur hafa boð-
að fundi um kjarasamningana ann-
aðkvöld, svo dæmi séu tekin. Á
stjómarfundi í Dagsbrún í dag verð-
ur ákveðið hvenær félagsfundur
verður um samningana.
Þjóðhagsstofnun áætlar að kostn-
aður ríkissjóðs vegna aðgerða til að
greiða fyrir kjarasamningum nemi
þremur milljörðum króna miðað við
heilt ár þegar allur kostnaðurinn sé
kominn fram, en stærstur hluti þess
kostnaðar sé tilkominn vegna þess
Játar ránið
í Áskjöri
ÁTJÁN ára piltur hefur verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald vegna
ráns í versluninni Áskjöri við As-
garð á sunnudagskvöld. Hann ját-
aði ránið í yfírheyrslum hjá RLR í
gær.
Pilturinn var handtekinn í fyrri-
nótt og yfírheyrður í gær. Farið var
fram á 43 daga gæsluvarðhald og
verður pilturinn í gæsluvarðhaldi
til 5. apríl
---:—» ♦ ♦
Aflaverðmæt-
ið yfir hálfur
milljarður
Á SÍÐASTA ári var frystitogarinn
Baldvin Þorsteinsson EÁ með mest-
an afla íslenskra fískiskipa, alls
7.635 tonn.
Hann var ennfremur með mestan
afla á úthaldsdag, tæp 25 tonn,
meðalskiptaverðmæti á úthaldsdag
var 1,4 milljónir króna og aflaverð-
mæti alls 578 milljónir króna. Höfr-
ungur III AK og Vigri RE fískuðu
j£innig fyrir meira en hálfan milljarð
króna í fyrra.
■ Baldvin með mestan afla/Bl
-----» ♦ ♦----
Samningi fæst
ekki þinglýst
Selfossi. Morgunblaðið.
EIGENDUR ferðaþjónustuhúsa við
Hrauneyjar glíma nú við sérstætt
vandamál. Þeir geta ekki fengið
lóðaleigusamningi vegna húsanna
þinglýst með venjulegum hætti.
Astæðan er sú að enginn þing-
lýstur eigandi er að afréttinum sem
húsin standa á. Eigendur húsanna
eru með í höndunum lóðaleigu-
samning frá Holta- og Landsveit
sem annast afréttinn, en það dugar
ekki til.
■ Leigusamningum/14
Morgunblaðið/Júlíus
Þúsund lítrar
að heimilt verður að draga framlag
launþega í lífeyrissjóð frá tekjum
við álagningu skatta.
Tryggja stöðugleika
Davíð Oddsson, forsætisráðherra,
segir að þó kjarasamningarnir kosti
aukinn halla ríkissjóðs sé það þess
virði vegna þess að samningamir
tryggi stöðugleika og lága verð-
bólgu. Hann segir að þessir samn-
ingar hljóti að gefa fordæmi varð-
andi samninga við opinbera starfs-
menn og aðra hópa sem eigi eftir
að gera kjarasamninga.
Jón Baldvin Hannibalsson, utan-
ríkisráðherra, segir að niðurstaða
kjarasamninganna og útspil ríkis-
stjómarinnar í tengslum við þá sé
tímamót í hagstjóm landsins. Meg-
inatriði sé að efnahagsbatinn sé í
nafni réttlætis nýttur til lífskjara-
jöfnunar án þess að verðbólga fari
úr böndunum.
Magnús Gunnarsson, formaður
Vinnuveitendasambands íslands,
segir að launajöfnun einkenni kjara-
samningana. Þeir feli í sér verulegan
útgjaldaauka fyrir fyrirtækin og það
reyni á stjórnendur þeirra að láta
fyrirtækin taka á sig kostnaðarauka
án þess að hækka vömverð.
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Dagsbrúnar, segir valda von-
brigðum hvað kauphækkanir séu
litlar, því kaup hjá verkafólki sé
lágt. Hann sagði að frá árinu 1942
hefðu kjarasamningar sem stjórn
Dagsbrúnar mælti með aldrei'verið
felldir á félagsfundi.
Amar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fískvinnslustöðva, segir að
samningarnir kosti fískvinnsluna
5-600 milljónir, en á næsta ári séu
hækkanir heldur minni.
Forsvarsmenn BSRB og BHMR
telja að þrengt sé að samtökunum
með samningsniðurstöðunni.
■ Kjarasamningar/
6/10/12/13/24/25
á viku
STÓRRI bruggverksmiðju í sum-
arbústað í Mosfellsdal, skammt
fyrir ofan Mosfellskirkju, var
lokað í gærmorgun. Tveir menn
voru yfirheyrðir vegna málsins í
gær l\já fikniefnadeild lögregl-
unnar í Reykjavík.
í verksmiðjunni voru um 200
lítrar af landa og 250 lítrar af
gambra. Auk þess voru suðutæki
og síur gerð upptæk. í vörubíl
með upphituðu húsi við bústað-
inn voru fjögur ker á borð við
það sem lögreglumenn eru hér
með, sem hvert um sig rúmaði
um þúsund lítra af gambra. Þau
voru öll tóm þegar að var komið.
Að sögn Kristjáns Inga Krist-
jánssonar, yfirmanns fíkniefna-
deildar, má áætla að afkastageta
verksmiðjunnar hafi verið um
eitt þúsund litrar af landa á viku
ef miðað er við 40% styrkleika.
Stefnt að samkomulagi um yfirlýsingu allra þingflokka
Réttíndí kennara verði
tryggð eftir flutning
STEFNT er að þvi að ná samkomu-
lagi um skriflega yfírlýsingu allra
þingflokka á Alþingi um að tryggja
á næsta kjötímabili áunnin lífeyris-
og starfsréttindi kennara, eftir að
grunnskólinn flyst frá ríkinu til
sveitarfélaga. Með því móti yrði
greitt fyrir afgreiðslu frumvarpsins
á Alþingi og komið til móts við
kröfur kennarafélaganna.
„Ég veit ekki hvort þetta tekst
en það er þessi virði að reyna það.
Það þýðir hins vegar að málið frest-
ast fram á fímmtudag," sagði Ólaf-
ur G. Einarsson menntamálaráð-
herra í gærkvöldi.
Fulltrúar kennarafélaganna hittu
menntamálaráðherra og mennta-
málanefnd Alþingis í gærkvöldi. Á
þeim fundi náðist ekki samkomulag,
þar sem fulltrúar kennara töldu
ekki að fyrirliggjandi tillögur
tryggðu réttindi þeirra nægilega
eftir flutning grunnskólans til sveit-
arfélaganna. Tillögur lágu m.a. fyr-
ir um að fresta gildistöku frum-
varpsins til 1. ágúst 1996, í stað
1. janúar 1996, og tengja hana lög-
um um réttindi og lífeyrismál.
Kennarar greiði áfram í LSR
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins leggja kennarar áherslu
á að vera áfram í Lífeyrissjóði starfs-
manna ríkisins, þótt þeir verði
starfsmenn sveitarfélaganna.
Stjórnvöld eru tilbúin að fallast á
að kennarar haldi áunnum réttindum
við flutninginn, en ekki er talið raun-
hæft að kennarar sem verða ráðnir
til starfa eftir flutning greiði í LSR.
Elna K. Jónsdóttir formaður HÍK
segir að vel geti verið að samningar
þeir sem undirritaður voru í fyrri-
nótt hafí áhrif á samningaviðræður
við kennara, þar sem frá upphafi
þeirra hafí verið rætt um að þegar
og ef samningar næðust á almenn-
um vinnumarkaði yrði tekið „eitt-
hvert mið af þeim, einhvers staðar
í málinu“. Hún sjái vonarglætu i
samningamálum, en varar við
óraunsæjum væntingum um skyndi-
lausnir.