Morgunblaðið - 02.04.1995, Qupperneq 14
14 B SUNNUDAGUR 2. APRÍL1995
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR
Hverjar eru ncestu myndir Altmansf
Sýnd á næstunni; Hoffman í „Outbreak."
50.000 höfðu
séð Konunginn
ALLS höfðu um 50.000
manns séð Disney-
teiknimyndina Konung ljón-
anna í Sambíóunum eftir síð-
ustu helgi.
Þá sáu 5.000 manns
spennumyndina Banvænan
ieik með Sean Connery fyrstu
sýningarhelgina, 21.000
höfðu séð Afhjúpun, 7.000
Gettu betur, 3.500 Táldreg-
inn, 18.000 Viðtal við vamp-
íruna og 22.000 Leon eftir
Luc Besson.
Næstu myndir Sambíó-
anna eru m.a. „Richie Rich“
og „Outbreak" með Dustin
Hoffman, sem sýndar verða
um páskana, „Miami
Rapsody", „Low Down Dirty
Sharne", „Boys on the Side“
með Whoopi Goldberg, „The
Puppetmasters" með Donald
Sutherland og barnamyndin
André, sem fjallar um sel.
í sumar eru væntanlegar
í Sambíóin myndir eins og
„Die Hard 3“ og „Batman
Forever."
ALLIR vilja Forrest Gump; Robert Altman við tökur.
Kansasborg
ROBERT Altman er mjög í fréttum eftir að Lagerfeld fékk
dæmt lögbann á myndina hans, Smellpassar eða „Pret-a-
porter", í Þýskalandi. Hún gekk lítið í Bandaríkjunum, berst
við Lagerfeld í Evrópu og sjálfur er Altman ekkert of ánægð-
ur með útkomuna og segir myndina„mistök“.
HANN kennir engum um
nema sjálfum sér.
Hann ætlaði að gera fransk-
an farsa. „Eg var að reyna
við Feydeau," er haft eftir
honum. Síð-
ast þegar
hann gerði
farsa hét
hann „Bey-
ond
Therapy"
eftir Arnald og var ak-
Indriðason vondur. En
Altman hef-
ur í nógu að snúast. Hann
verður sjötugur á árinu og
ein af næstu þremur myndum
hans er framhald meistara-
verksins „Short Cuts“ eða
Klippt og skorið.
Fyrst ætlar hann þó að
gera mynd sem hann kallar
Kansasborg. Kansas er fæð-
ingarborg leikstjórans og
myndin gerist á tveimur dög-
um á meðal jassara, pólitík-
usa og glæpamanna í borg-
inni á fjórða áratugnum.
Jennifer Jason Leigh fer með
hlutverk verkakonu sem ræn-
ir Kim Basinger í veikburða
tilraun til að fá smákrimma
lausan. Harry Belafonte leik-
ur borgarstjórann, sem kall-
aður er Sjaldséður, og fjöldi
þekktra aukaleikara kemur
við sögu. „Ég á eftir að
skemmta mér dægilega við
gerð hennar," er haft eftir
Altman en tökur hefjast þann
18. þessa mánaðar, „vegna
þess að ég get gert hana
nákvæmlega eins og ég vil
hafa hana. Hún kostar ekki
mikið. Ég er ekki að stela
peningum neins," segir hann
og kvartar undan markaðs-
fræðingunum sem séu á hæl-
unum á honum en hafa ekki
náð honum ennþá.„„Þeir vilja
aðeins það sem gert hefur
verið áður,“ segir hann. „Þeir
vilja allir Forrest Gump.“
x Frakkar eru borgunar-
menn Kansasborgar enda
hefur Altman ekki alltaf ver-
ið í náðinni í Hollywood
(strax árið 1968 rak mógúll-
inn Jack Warner hann per-
sónulega vegna þess að
„bjáninn lét tvo leikara tala
í einu“). Borgin sem hann
ætlar að lýsa í myndinni er
syndum spillt bæli þar sem
kynþáttafordómar vaða uppi
og jassinn dunar til morguns.
Bófarnir fá jafnvel áheyrn
hjá Roosevelt forseta og fjór-
ir eru drepnir á kosningadag-
inn, sem myndin lýsir. „Og
það eru aðeins forkosning-
arnar."
Hann segir að þetta geti
orðið ágætis bíómynd en
hann segir að söguþráður
hafi aldrei verið hans sterka
hlið. „Rammi myndarinar -
lýsingin á borgarlífinu - er
næstum því mikilvægari en
myndin sem verður innan í
rammanum."
Hinar tvær myndirnar sem
Altman ætlar að gera eru
„More Short Cuts“ eða Meira
klippt og skorið, sem hann
byggir á fleiri sögum Raym-
ond Carvers og síðan Englar
í Ameríku eftir tveimur sviðs-
verkum Tony Kushners. Alt-
man hefur blómstrað á efri
árum og þótt hann ráði
kannski ekki við farsa búa
slíkir galdrar í honum að fáu
verður til jafnað.
BORGARSTJÓRI í vanda; Pacino og Cusack í „City Hall“.
Athyglisverð norsk
mynd er nú í vinnslu
þar sem tveir valinkunnir
Hollywood-leikarar fara
með aðalhlutverk, þeir Cliff
Robertson og Robert Mitc-
hum, ásamt Erland Josep-
hson og Espen Skjönberg.
Leikstjóri er Leidulv Risan.
Myndin heitir Sólseturs-
drengirnir eða Samningur-
inn eftir því hvort enska eða
norska heitið er notað og
segir af fjórum rosknum
læknum sem halda saman
til Heidelberg í Þýskalandi
að standa við samkomulag
er þeir gerðu á námsárum
sínum fyrir stríð. Með aðal-
kvenhlutverkið fer Hanna
Schygulla.
Myndinni er lýst sem
gamandrama en leikstjór-
inn Risan og handritshöf-
undurinn, Arthur Johansen
að nafni, hafa unnið í hand-
ritinu í sex ár. Áætlað er
að frumsýna myndina í
Noregi í september nk.
HOLLYWOOD í Noregl; Robertson, Josephson, Mitchum
og Skjönberg ásamt leikstjóranum Risan.
Norsk
mynd um
vinskap
Al Pacino í Ráðhúsinu
Nýjasta mynd Ai Pacinos
heitir „City Hall“ eða
Ráðhúsið, en það er pólitísk-
ur tryllir með Pacino í hlut-
verki borgarstjórans í New
York og John Cusack í hlut-
verki mannsins sem rann-
sakar hvort borgarstjórinn
sé viðriðinn morð.
Leikstjóri er Harold Bec-
ker en síðast þegar hann og
Pacino unnu saman gerðu
þeir „Sea of Love“. Með
önnur hlutverk fara Bridget
Fonda, Martin Landau og
Danny Aiello, framleiðandi
er Castle Rock og handrits-
höfundur Bo Goldman, sem
síðast skrifaði aðra Pacino-
mynd, Konuilm eða „Scent
of a Woman“.
Cusack hefur ekkert
nema gott að segja um A1
og eftir lýsingum hans að
dæma er stórleikarinn hrein-
asti engill að vinna með.
■ KVIKMYND er í und-
irbúningi um ævi hinnar
goðsagnakenndu kvik-
myndastjörnu Marlene
Dietrich og mun Uma
Thurman leika hana.
Myndin er byggð á ævi-
sögu leikkonunnar sem
dóttir hennar, Maria
Riva, skráði en franski
leikstjórinn Louis Malle
mun leikstýra eftir hand-
riti John Guare.
■ FYRST Keanu Reeves
tókst það hvers vegna þá
ekki Johnny Depp? Ke-
anu er orðinn eftirsóttasti
spennumyndaleikari kvik-
[Yilk
myndanna og nú hyggst
Depp fylgja í fótspor hans
og leika í nýjasta trylli
John Badhams, „Nick of
Time“. í myndinni leikur
hann föður ungrar stúlku
sem reynir að bjarga henni
úr höndum mannræn-
ingja. Tökur hefjast í apríl.
■ ÞEIR félagar John
Travolta (annar mjög eft-
irsóttur þessa dagana) og
Christian Slater leika
saman í nýrri spennumynd
sem heitir „Broken
Arrow“ flugmenn sem
reyna hvað þeir geta að
stöðva kjarnorkusprengju
er skotið hefur verið í loft-
ið í ógáti. Leikstjóri er
Hong Kong - hetjan John
Woo og framleiðandi er
Mark Gordon sem einnig
framleiddi Leifturhraða
(þ.e. „Speed“).
I bíó
FREGNIR hafa borist af
því að Sódóma, Reykja-
vík, gamanmynd Óskars Jón-
assonar, hafí fengið einkunn-
ina A í myndabandagagnrýni
í bandaríska skemmtiiðnað-
arblaðinu Entertainment We-
ekly. Það eru gleðileg tíðindi,
en ljóst var frá upphafi að
myndin mundi spjara sig vel
erlendis, því gamansemin í
henni hentar ágætlega til út-
flutnings, þótt hún geri út á
alíslenska smákrimmaflóru.
Ástæðan er einkum sú að
nú ríða húsum í Hollywood
heimskra manna ráð.
Draumaverksmiðjan sendir
frá sér hveija gamanmyndina
á fætur annarri þar sem
heimskan er fyrirrúmi, en
einhver vinsælasta myndin
það sem af er árinu vestra
heitir einmitt Heimskur og
heimskari og skartar Jim
Carrey í aðalhlutverki, sem
orðinn er stórstjarna í gegn-
um heimsku myndirnar.
Sódóma Reykjavík smellp-
assar í heimskuhúmorinn og
þykir greinilega ein af þeim
bestu á þessu sviði.