Morgunblaðið - 02.04.1995, Síða 32
32 B SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
R AD AUGL YSINGAR
Reykvískar húsmæður ath.!
Skráning stenduryfir í orlofsferðir sumarsins.
Hótel Örk 1.-5. maí.
Vestmannaeyjar 18.-21. maí (örfá sæti)
Höfn- Vatnajökull 9.-11. júní.
Kaupmannahöfn 26.júní-3. júlí (örfá sæti)
Portugal- Algarve 13. september og
20. september (laus sæti)
Orlofsnefnd húsmæðra.
Hverfisgötu 69, sími 12617.
Orðsending frá
menntamáiaráðu-
neytinu
varðandi iðnréttindi ísímsmíði.
Þeir, sem vilja afla sér iðnréttinda í sím-
smíði, skulu sækja um þau til menntamála-
ráðuneytisins.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá
menntamálaráðuneytinu, sími 560 95 60,
Félagi íslenskra símamanna, sími 563 65 61
og Félagi tæknifólks í rafiðnaði, sími 568 14 33.
Verkakvennafélagið
Framsókn
Orlofshús sumarið 1995
Byrjað verður mánudaginn 3. apríl að taka á
móti umsóknum félagsmanna varðandí dvöl
í orlofshúsum félagsins.
Þeir sem ekki hafa áður dvalið í húsunum
hafa forgang til umsókna 3., 4. og 5. aprfl
1995.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
félagsins að Skipholti 50A alla daga. Ath.
ekki er tekið á móti umsóknum í síma.
Félagið á 3 hús í Ölfusborgum, 1 í Flóka-
lundi, 2 á Húsafelli, 1 í Svignaskarði, 1 á
Kikjubæjarklausti og íbúð á Akureyri. Einnig
er boðið upp á dvöl á Einarsstöðum og llluga-
stöðum.
Stjórnin.
Newman’s Own
Styrkurtil líknarmála
Newman’s Own fyrirtækið, sem stofnað var
af leikaranum góðkunna Paul Newman, aug-
lýsir styrk til líknarmála.
Newman’s Own framleiðir ýmsar matvörur
s.s. örbylgjupoppkorn og spaghettisósur og
hefur ágóði af sölunni runnið til líknarmála.
Heildverslun Karls K. Karlssonar hf.,
umboðsaðili Newman’s Own á íslandi,
auglýsir hér með eftir umsóknum líknarfélaga
um styrkinn.
Umsóknum skal skilað til heildverslunar Karls
K. Karlssonar hf., Skúlatúni 4, 105 Reykjavík
merktar: „Newman’s styrkur" fyrir 20. apríl
1995.
Umsóknin skal tilgreina megintilgang og
starfsemi félagsins og hvernig fjármununum
skuli ráðstafað.
Eftirfarandi gögn skulu auk þess fylgja
umsókninni:
- Vottorð frá heilbrigðisráðuneytinu um að
félagið sé rekið eingöngu í góðgerðaskyni.
- Síðasti endurskoðaður ársreikningur
félagsins.
- Bæklingar og annað efni sem lýsir starf-
semi félagsins, ef slíkt er fyrirliggjandi.
Umsókninni og öllum gögnum henni fylgj-
andi skal skila á ensku.
KARL K. KARLSSON HFT
• ShíUl'mi4 • PlMfltXM » / ^ M 6WU • Irtjte ) (M » ftwi**1 / M> • l t •
Til sölu
Til sölu er skrifstofuhúsnæði í Borgartúni.
Húsnæðið er með öllum nauðsynlegustu
þægindum eins og salerni, kaffistofu o.fl.
Vinsamlegast sendið tilboð á afgreiðslu
Mbl. fyrir 10. apríl 1995 merkt: „NW 7“ ef
áhugi er fyrir hendi.
Skrifstofuhúsnæði óskast
Óska eftir að kaupa 100-300 fm skrifstofu-
húsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Góðar
greiðslur í boði fyrir rétta eign. Skilyrði er
að inngangur og aðkoma séu snyrtileg.
Upplýsingar sendist afgreiðslu Mbl- merktar:
„Snyrtilegt - 100-300“.
Ift
Frá grunnskólum
Reykjavíkur
Innritun sex ára barna (þ.e. barna sem fædd
eru á árinu 1989) fer fram í skólum borgarinn-
ar miðvikudaginn 5. og fimmtudaginn 6. apríl
1995, kl. 15-17 báða dagana.
Sex ára börn sem hefja nám í Engjaskóla í
haust verða innrituð í Rimaskóla á sama
tíma.
Það er mjög áríðandi að foreldrar láti inn-
rita börnin á þessum tilgreinda tfma vegna
nauðsynlegrar skipulagningar og undirbún-
ingsvinnu í skólunum.
Til sölu eða leigu
um 200 fm húsnæði í vesturbæ Kópavogs.
Húsnæðið getur verið algerlega tvískiptan-
legt með 2 stórum innkeyrsludyrum. Loft-
hæð um 4,5 m. Innréttað sem fiskvinnsluhús
með tækjum.
Upplýsingar í síma 622160.
Til leigu - vel staðsett
í Borgarkringlunni
TI1 leigu eða sölu 100 fm nettó verslunarhús-
næði á fyrstu hæð í Borgarkringlunni, ein
besta staðsetning fyrir verslun í Borgar-
kringlunni.
Upplýsingar í síma 685277.
Stýrimannaskólinn íReykjavík
30 rúml. réttindanám
hefst mánudaginn 3. aprfl kl. 18.00.
Bóklegri kennslu og prófum lokið 5. maí.
Slysavarnaskóla, skyndihjálp, lýkur 13. maí.
Öllum er heimil þátttaka.
Þátttökugjald er kr. 24.000 fyrir 130 kennslu-
stundir.
Við innritun greiðist kr. 15.000.
Prófskírteini þeirra sem luku prófi 18. febr-
úar sl. verða afhent í Sjómannaskólanum
föstudaginn 7. aprfl nk. kl. 17.00.
Upplýsingar í síma 13194.
Skólameistari.
@Sígild tónlist
________- leiklist
Við leitum að húsnæði í miðborg Reykjavíkur
fyrir vinnustofu listamanna. Æskileg stærð
er ca 80-100 fm. Óinnréttað húsnæði t.d.
ris kemur vel til greina.
„Skipulögð vinnubrögð11
í vinnu með börnum og unglingum með
einhverfu eða aðra málhömlun.
Námskeiðið verður haldið í Reykjadal (SLF),
Mosfellsdal dagana 8., 9 og 10. maí nk. Fjall-
að verður m.a. um TEACCH-líkanið, boð-
skipti og atferlismeðferð. Fyrirlesarar Sigrún
Hjartard., sérkennari, Sólveig Guðlaugsd.,
geðhjúkrfræð. og Svanhildur Svavarsd., boð-
skiptafr. Námskeiðsgjald er 12.000. Umsókn
sendist fyrir 20. apríl nk. til Umsjónarfélags
einhverfra, Fellsmúla 26, 108 Rvík.
Frá grunnskólum Kópavogs
Innritun 6 ára barna (börn fædd 1989) fer
fram í grunnskólum Kópavogs miðvikudag
5. og fimmtudag 6. apríl kl. 10.00-12.00 og
kl. 13.00-16.00.
Innritun skólaskyldra barna og unglinga, sem
flytjast milli skólahverfa, flytja í Kópavog
og/eða koma úr einkaskólum, fer fram sömu
daga kl. 10.00-12.00 og kl. 13.00-15.00 á
Skólaskrifstofu Kópavogs, Fannborg 4, s.
41988 og 41863.
Skólafulltrúi.
Frá Skólaskrifstofu
Reykjavíkur
Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem
þurfa að flytjast milli skóla fyrir næsta vetur
fer fram í Skólaskrifstofu Reykjavíkur, Tjarn-
argötu 12, sími 28544, miðvikudaginrv 5. og
fimmtudaginn 6. apríl nk. kl. 10-15 báða
dagana.
Þetta gildir um þá nemendur sem flytjast til
Reykjavíkur eða úr borginni, koma úr einka-
skólum eða þurfa að skipta um skóla vegna
breytinga á búsetu innan borgarinnar.
Það er mjög áríðandi vegna nauðsynlegrar
skipulagningar og undirbúningsvinnu að
öll börn og unglingar sem svo er ástatt um
verði skráð á ofangreindum tíma.
Þá nemendahópa sem flytjast í heild milli
skóla að loknum 7. bekk þarf ekki að innrita.
Rafmagnslyftari
með snúningi óskast til kaups.
Vinsamlega hringið í síma 588-7600.
Óskum eftir að kaupa
fasteignir gegn yfirtöku skulda.
Landsbyggðin ekki undanskilin.
Einnig viljum við kaupa skuldlaus hlutafélag.
Upplýsingar í síma 871033.
Rafstöð
Óska eftir að kaupa 300 kw rafstöð eða
stærri.
Tilboð sendist blaðinu merkt: „Rafstöð -
17551“ fyrir 6. apríl nk. ásamt nánari upplýs-
ingum um verð, búnað, gerð og ástand
stöðvarinnar.