Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 12
12 B SUNNUDAGUR9. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ Halls- tröm leik- stýrir Roberts SÆNSKI leikstjórinn Lasse Hallström („Mit liv som en hund“) hefur komið sér vel fyrir í Hollywood og ieik- stýrir nú Julia Roberts, Dennis Quaid, Robert Du- vall og Gena Rowlands í fjöl- skyldudrama, sem enn á eft- ir að fá heiti. MESTU athygli vekur að Roberts fær litlar 12 milljónir dollara fyrir leikinn og er það hæsta íjárhæð sem nokkur leikkona hefur fengið í kvikmyndaborginni til þessa. Handritið gerir Callie Khouri, sem skrifaði söguna um Thelmu og Lou- ise. Roberts leikur dóttur forríkra hrossaræktenda í Suðurríkjunum sem þvinga hana til að fyrirgefa eigin- MÆLTI með Halls- tröm; Roberts. manninum framhjáhald. Roberts mælti með Halls- tröm í leikstjórastólinn. En af hveiju Svía til að segja þessa suðurríkjasögu? „Þú þarft aðeins að þekkja hann í hálfa mínútu — hann skilur mannfólkið,“ er haft eftir handritshöfundinum Kho- uri. BARKIN sem Calam- ity Jane. HAPPATALA eða hvað?; Morgan Freeman og Brad Pitt í spennumynd Finchers. Pitt og Free- man í Sjöunni BRAD Pitt og Morgan Free- man hafa verið áberandi í bíólífinu hér á landi undan- farnar vikur, Pitt í Vindum fortíðar og Freeman í Shawshank-fangelsinu. Þeir leika saman í nýrri spennu- mynd sem nú er í fram- leiðslu og heitir Sjö eða „Se- ven“ og David Fincher (Ali- en 3) leikstýrir. * ITRYLLINUM eru þeir rannsóknarlögreglumenn á slóð illskeytts íjöldamorð- ingja sem skilur fórnarlömin eftir í stellingum er vísa í dauðasyndimar sjö. Þetta er önnur mynd leikstjórans, sem þótti takast bærilega upp í Alien-myndinni. Pitt slasaðist við tökur þegar höndin á honum fór í gegnum bílrúðu og kvik- myndagerðarmennirnir, Arnold Kopelson er framleið- andi, urðu að bæta því inn í handritið svo nú er persóna Pitts með höndina í fatla einhvern hluta myndarinnar. '""HVIKMYNDI^'v ■ Gullpálmahafinn Steven Soderbergh sendir- frá sér nýja bíómynd í þessum mán- uði sem heitir „The Und- erneath" og er með Peter Gallagher úr Kynlífi, lyg- um og myndbandi í aðal- hlutverki. Soderbergh skrif- ar einnig handritið en mynd- in segir af manni sem snýr aftur til fyrrum kærustu sinnar sem nú er gift mafí- ósa og sá er ekkert yfir sig hrifínn. MÞá verður frumsýnd vestra í þessum mánuði nýj- asta mynd mexíkóska leikstjórans Alfonso Arau, „A Walk in the CIouds“ með Keanu Reeves og Aitana Sanchez- Gijon. Arau gerði síðast Kryddlegin hjörtu en þessi nýja mynd segir af Ree- ves þegar hann kemur heim til sín úr seinni heims- styijöldinni og lendir í flókn- um ástamálum. 6000 manns höfðu séð Corrinu Corrinu ALLS höfðu um 6.000 manns séð myndina Corr- ina, Corrina með Whoopi Goldberg og Ray Liotta í aðalhlutverkum í Laugar- ásbíói um síðustu helgi. ÞÁ höfðu um 4.500 manns séð gaman- myndina Vasapeninga og 3.500 hrollvekjuna Inn um ógnardyr eftir John Car- penter. Gamanmyndin Heimsk- ur, heimskari byijaði um þessa helgi en næstu mynd- ir Laugarásbíós eru„I.Q“ með Tim Robbins og Meg Ryan og Dauðinn og stúlk- an eða „Death and the Ma- iden“ eftir Roman Polanski með Ben Kingsley og Sigo- urney Weaver í aðalhlut- verkum. Sýningar byrja seinni partinn í maí. Aðrar eru „Hunted“ með Christopher Lambert og erótíska myndina Delta og Venus eftir konung fölbláu myndanna, Salman King. í sumar sýnir Laugarás- bíó meðal annars myndirnar „Don Juan and the Center- fold“ með Johnny Depp og Marlon Brando og cyperp- önk-myndina „Johnny Mnemonic" með Keanu Reeves. SÝND á næstunni; Kingsley og Weaver í Dauðanum og stúlkunni eftir Polanski. Hvemig vegnar Finnanum í draumaverksmibjunni? EKTA sjóræningjamynd; Davis og Modine í „Cutthroat Island“. auðvelt að gera bardagaatr- iði með byssum, þú skýtur bara fólk. En þegar þú fæst við sverð og kuta er kóreó- grafíkin allt önnur og erfið- ari. Hvað með það,“ segir Harlin, „ef þetta væri ekki ómögulegt hvað væri þá gaman að því?“ Þegar, og ekki fýrir svo löngu, Renny lærði kvik- myndagerð í Finnlandi var honum hafnað af löndum sínum í stéttinni, að eigin sögn, vegna þess að kvik- myndagerðarmenn litu fyrst og fremst á sig sem lista- menn. „Allt sem viðkom sölumennsku var fáránlegt. Þetta eru asnar," er haft eftir leikstjórunum, sem skrifaði ásamt félaga sínum handrit að hasarmynd og sendu Chuck Norris vestur í Hollywood. Chuck beit á agnið og þótt ekkert yrði úr myndinni var Renny kom- inn á skrið, setti sig í sam- band við framleiðendur vestra og á nokkrum árum varð „finnska undrið" að veruleika. Finnar virðast eftir frásögnum að dæma mjög hrifnir af Hollywood- manninum sínum þótt hann sé kannski ekki að þeirra viti neinn sérstakur lista- maður. Harlin íHollywood Hollywood-maður; Renny Harlin. líklega við af Reed). Harlin segir þetta einu alekta sjó- ræningjamyndina sem gerð hefur verið en samt hefur hann komið fyrir nokkrum einkabröndurum í henni eins og Brugghús Harlins og finnski fáninn (þótt hann hafi ekki ve'rið til þá) bera vitni um. Um 75 prósent myndar- innar gerast úti á rúmsjó og þrátt fyrir erfiðleikana segist Harlin hafa haft gaman af öllu saman. „Þetta er erfiðari mynd en bæði „Die Hard“ og „Cliff- hanger" vegna þess að hún gerist í fortíðinni. Það er FINNSKI leikstjórinn Renny Harlin hefur átt gríðarlegri velgengni að fagna í Hollywood á undraskjótum tíma og er án efa þekktasti Norðurlandabúi draumaverksmiðjunnar. Tvær hasarmyndir settu hann á stall með þeim bestu vestra; „Die Hard 2“ og „Cliffhanger“. Honum virðast allir vegir færir en það hefur ekki gengið átakalaust fyrir hann að gera nýjustu hasarbombu sína, sjóræningjamyndina „Cutt- hroat Island“ með hinni nýju eiginkonu sinni, Geenu Davis. VANDRÆÐIN byijuðu þegar Michael Douglas skilaði 12 milljón dollurum og hætti við að leika aðal- hlutverkið í myndinni. Matt- hew Mod- ine tók við hlutverkinu en telst varla neinn hvalreki samanborið við Dougl- as. Annar leikari, Oli- ver Reed, var rekinn eftir meint fyllerí við upptökur, Harlin rak að sögn alla þá deild sem sá um listrænt útlit og svo varð að skipta um kvikmyndatökumann þegar Oliver Wood fótbrotn- aði. Sauma þurfti fjögur eftir Amald Indriðason spor í hausinn á Modine eft- ir heilmikið stormatriði og hjónin Harlin og Davis lágu rúmföst í flensu. Þá eru ótal- in öll vandræðin sem fylgt hafa því að fjármagna myndina, sem kostar um 70 milljónir dollara, en Harlin sjálfur hefur þurft að punga út talsverðum fjárhæðum til að halda tökunni gangandi. „Cutthroad Island“ er tekin við Möltu og því er spáð að hún verði ein af vin- sælustu myndum sumarsins. Hún gerist árið 1650 og segir af sjóræningjadóttur sem erfir fjársjóðskort eftir pabba sinn og leggur í fjár- sjóðsleit ásamt þræli nokkr- um en á hælum þeirra er óþokki myndarinnar, sem Frank Langella leikur (tók MEnn brokka vestrarnir á hvíta tjaldið. Sá nýjasti er Villti Bill Hickok með Jeff Bridges og Ellen Barkin, sem leikur Calamity Jane, undir leikstjórn Walter Hills. Hann er fjórði vestr- inn á stuttum tíma, hinir eru „Maverick", „Tombstone" og „Wyatt Earp“. Síðast gerði Hill indjánamyndina „Geronimo", sem ekki fékk dreifingu í Evrópu en kom út á myndbandi og reyndist glettilega góð. Spurning hvort Villti Bill fái sömu meðferð. ÍBIÓ ÚRVALIÐ í kvik- myndahúsunum hefur verið dágott undanfarn- ar vikur og standa nokkrar nýjar myndir uppúr. I Shawshankfangels- inu fara Tim Robbins og Morgan Freeman á kostum í frábærri fang- elsissögu eftir Steven King. Linda Fiorentino er ný uppgötun í nýnoir tryllinum Táldreginn en hún leikur þar eitt mesta glæfrakvendi allra tíma. Vindar for- tíðar er skemmtilegur rómans úr Sögusafni heimilanna og Matur, drykkur, maður, kona er nýr réttur frá Kína- mönnum. Sean Connery heldur uppi spennumyndinni Banvænn leikur og Redford er orðinn einn af bestu leikstjórum draumaverksmiðjunnar eftir Gettu betur. Og ekki má gleyma nýsjá- lenska meistarastykk- inu Himneskar verur, sem setur frumlegan frásagnarstíl í öndvegi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.