Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 22
22 B SUNNUDAGUR 9. APRÍL1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIIM N UaÍJGL YSINGA R
Leikskólakennarar
Leikskólakennara og leikskólafuiltrúa vantar
að leikskólanum Smábæ í Hrísey.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma
96-61762, en umsóknarfrestur ertil 21. apríl.
Sveitarstjóri.
Atvinnuráðgjafi
á Vestfjörðum
Starf atvinnuráðgjafa á Vestfjörðum er laust
til umsóknar. Atvinnuráðgjafi starfar undir
yfirstjórn framkvæmdastjóra Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga. Skrifstofa ráðgjafans er
í Stjórnsýsluhúsinu á ísafirði.
Um frekari upplýsingar varðandi starfið er
væntanlegum umsækjendum bent á, að snúa
sér til framkvæmdastjóra sambandsins á
skrifstofutíma í síma 94-3170 eða 94-4780,
eða formanns stjórnar, Péturs H. R. Sigurðs-
sonar, í síma 94-4368.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl og ber að
skila umsóknum til skrifstofu sambandsins,
Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1,
400 ísafirði.
Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga.
Tæknival
Tæknival hf. er 12 ára gamaU framsœkið
tölvufyrirtœki með u.þ.b. 100 starfsmenn og veltan á
siðasta ári var yfir milljarð ísL króna. Fyrirtcekið
býður viðskiptavinum sínum heildarlausnir í iðnaði,
sjávarútvegi og verslunarrekstrL Vegna enn aukinna
umsvifa óskar Tœknival hf. eftir að ráða starfsmann
þjónustudeildfyrirtækisins.
TÆKNIMAÐUR I
ÞJÓNUSTUDEILD
VIÐ LEITUM AÐ duglegum og framsýnum
einstaklingi sem hefur áhuga á netstýrikerfiim
og er tilbúinn að ieggja sig fram í kröfúhörðu
og líflegu starfsumhverfi.
HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur séu
með tæknimenntun og/eða haldbæra reynslu af
Novell netkerfum. Áhersla er lögð á fagleg og
skipulögð vinnubrögð, þægilega framkomu auk
dugnaðar og eljusemi í starfi.
í BOÐI ER áhugavert starf hjá öflugu og
framsæknu fyrirtæki með góðan liðsanda. Gerð
er krafa um að starfsmaðurinn ljúki CNE-prófi
innan 12 mánaða frá ráðningu.
Vinsamlega athugið að fyrirspurnum varðandi
ofangreint starf verður eingöngu svarað hjá
STRA Starfsráðningum hf. Umsóknarfrestur er
til aprílloka.
Umsóknareyðublöö eru fyrirliggjandi á skrifstofunni
sem opin er frá kl.10-16, en viðtalstímar eru frá
kl.10-14.
ST
Starfsrádningar hf
Suðurlandsbraut 30 ■ 5. hceð ■ 108 Reykjavik
' BBIiá** FúX 588 30,0
Cubný Hariardóttir
ORKUSTOFNUN
GRENSÁSVEGI 9-108 REYKJAVfK
Bygginga-
verkfræðingur
Orkustofnun óskar að ráða byggingaverk-
fræðing til starfa við Vatnsorkudeild.
Aðalverksvið verður við gerð frumáætlana
um vatnsaflsvirkjanir og samanburð virkjana-
kosta. Góð forritunarkunnátta nauðsynleg
og kunnátta í notkun Arc/lnfo og Oracle
upplýsingakerfa mjög æskileg.
Skriflegar umsóknir, sem greini aldur,
menntun og fyrri störf, skulu sendar Guðnýju
Þórsdóttur, starfsmannastjóra eigi síðar en
5. maí 1995.
Frekari upplýsingar veitir HaukurTómasson,
forstjóri Vatnsorkudeildar Orkustofnunar.
ÆZÉzi#
Starfsmaður í
markaðsdeild
Marel hf. vill róða starfsmann í markaðsdeild fyrir-
tækisins. StarfiS hentar framsæknum einslaklingi með
verkfræðimenntun eða sambærilegan bakgrunn. Krafa
er um gott vald á ensku og norðurlandamáli, en færni í
spænsku og/eða frönsku er kostur.
Starfsmaðurinn jxirf að geta unnið sjálfstæltað spenn-
andi verkefnum, aðstoðaðviðgerðtilboða, samningaog
„layout' teikninga í AutaCad umhverfi. Starfið krefst
töluverðra ferðalaga erfendisog mikilla beinna samskipta
við íslenska og erlenda viðskiptavini.
Umsáknum skal skilað til Marel hf. fyrir 24. apríl nk.
Nánari upplýsingar veita deildarstjórar í markaðsdeild í
síma 563-8000.
Mard hf.
Höfðabakki 9*112 Reykjavík
S!mi: 563 8000 • Fax: 563 8001
Rekstrarráðgjafi
Hagvangur hf. óskar eftir að ráða rekstrar-
ráðgjafa til starfa. í dag starfa hjá fyrirtækinu
8 ráðgjafar.
Hagvangur hf. er eitt elsta og virtasta
ráðgjafafyrirtæki landsins, stofnað 1971.
Hagvangur hf. er eitt af leiðandi fyrirtækjum
landsins á sviði ráðgjafar, m.a. í stefnumótun,
gæðastjórnun, umhverfis- og skipulagsmálum,
markaðsráðgjöf og markaðskönnunum.
Hagvangur hf. rekur elstu og eina af virtustu
og stæstu ráðningarþjónustum landsins.
Starfssvið rekstrarráðgjafa:
Almenn rekstrarráðgjöf með sérstaka áherslu
á stefnumótun, fjármál og markaðsmál.
Við leitum að háskólamenntuðum manni á
sviði viðskipta og/eða rekstrar.
Framhaldsmenntun erlendis nauðsynleg.
Reynsla úr íslensku atvinnulífi og/eða reynsla
af störfum erlendis æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Reynir Kristinsson,
framkvæmdastjóri.
Farið verður með allar fyrirspurnir og
umsóknir sem trúnaðarmál.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar
„Hagvangur hf.“, fyrir 22. apríl nk.
Sku rðstof u h j ú kr u n-
arfræðingur óskast
í 80-100% deildarstjórastöðu í Handlækna-
stöðina hf.
Upplýsingar gefur deildarstjóri í síma
686311.
„Au pair“ í Þýskalandi
Við erum fjögurra manna fjölskylda, búsett
í Schleswig-Holstein.
Við leitum að barngóðri au pair til að annast
stelpurnar okkar, sem eru eins og hálfs og
þriggja og hálfs árs.
Þarf helst að geta byrjað sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar gefur Inga eða
Schwandeck í síma 00-49-4624-8913.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða leikskólakennara eða annað
uppeldismenntað starfsfólk í störf við neðan-
greinda leikskóla:
Fálkaborg v/Fálkabakka, s. 557-8230.
Foldakot v/Logafold, s. 587-3077.
Funaborg v/Funafold, s. 587-9160.
Klettaborg v/Dyrhamra, s. 567-5970.
Sunnuborg v/Sólheima, s. 553-6385.
í 50% starf e.h.
Funaborg v/Funafold, s. 587-9160.
Einnig óskum við eftir að ráða aðstoðarleik-
skólastjóra í leikskólann
Klettaborg v/Dyrhamra, s. 567-5970.
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik-
skólastjórar.
Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklausir
vinnustaðir.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími552-7277.
le RÁÐ H.F.
CONSULTANTS
LÖGFRÆÐI OG
REKSTRARRÁÐGJÖF
STOFNANIR SVEITARFÉLÖG
@ FYRIRTÆKI EINSTAKLINGAR ®
^GARÐASTR. 38, RVK. g552-8370/^
Atvinnu-
og eignarhlutur
Fyrir einn af umbjóðendum okkar óskum við
eftir framkvæmdastjóra. Fyrirtækið er með
þekktari aðilum í sölu vandaðra húsgagna,
innréttinga og húsbúnaðar til heimilis- og
skrifstofunota á íslandi.
Skilyrði er að hinn nýi framkvæmdastjóri
kaupi allt að 50% hlut í fyrirtækinu.
Áætlað kaupverð er 5 milljónir.
Hæfniskröfur:
Leiðað er eftir aðila, sem hefur viðskipta-/
hagfræði- eða sambærilega menntun.
Æskilegt er að viðkomandi sé ekki undir
30 ára aldri og hafi þar með aflað sér ein-
hverrar reynslu í atvinnulífinu.
Hér er um að ræða gott tækifæri fyrir réttan
aðila til þess að eignast hlut í góðu og fram-
sæknu fyrirtæki og skapa sér spennandi starf
til framtíðar.
Vinsamlegast sendið upplýsingar til undirrit-
aðs fyrir 20. apríl 1995, þar sem Jón Atli
Kristjánsson mun veita nánari upplýsingar.
Ráðhf.,
lögfræði- og rekstrarráðgjöf,
Garðastræti 38, sími28370.