Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 32
32 B SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ EKKI eru það ýkjur að víða fer íslenskt tónlistarfólk. Kristínu Mjöll Jakobs- dóttur fagottleikara var á árinu 1991 boðin ársstaða við Hong Kong Philharmonic Orc- hestra, eftir að hafa lokið meist- araprófi í Yale-háskóla og fram- haldsnámi í Amsterdam og Cinc- innati. Hefur hún síðan verið bú- sett í Hong Kong. Þar býr hún með manni sínum, bandaríska fag- gotleikaranum Gerald Anthony Alivas, sem nú er fastráðinn hjá Hong Kong Philharmonic Orch- estra, og með 19 mánaða gamla dóttur, Halldóru Kristínu. Hún sagði í símtali að mjög gott væri að búa í Hong Kong. Þar er nú vetur, sem hún segir að sé eins og íslenskt sumarveður. Píanóleikarann David Knowles Játvarðsson þekkja íslendingar frá því hann starfaði um árabil við píanókennslu á Egilsstöðum og í Reykjavík, og kom mikið fram í útvarpi og sjónvarpi. Hann hefur starfað með tónlistarmönnum víða í Evrópu, t.d. á Norðurlöndum. Á síðari árum hefur David numið hjá hinum þekktu píanóleikurum Dal- ton Baldwin og Geoffrey Parsons, en er nú tímabundið búsettur í Hong Kong. Jósef Fung bjó langdvölum er- lendis við nám og störf áður en hann sneri aftur til fæðingarborg- ar sinnar Hong Kong. Starfaði m.a. að námi í Bretlandi loknu á íslandi við gítarkennslu, uns Hug- urinn leitaði til tónsmíða og hann hélt til frekara náms í Amsterdam og í Vínarborg. Jósef hefur oft- sinnis tekið þátt í flutningi norr- ænnar nútímatónlistar. Hann var m.a. meðlimur í Nordic Ensemble, fyrsta vestræna kammermúsík- hópnum á sviði nútímatónlistar sem boðið var til Kína af kínversk- um stjórnvöldum 1987. Nú hafa semsagt þessir þrír ís- lensku ríkisborgarar sett sig niður í Hong Kong og hugur í þeim að að kynna norræna og íslenska tón- list á þessum slóðum i Asíu. Stofnuðu kammermúsíkklúbb „Við höfum nýverið stofnað kammermúsíkhóp sem nefnist Rímur,“ sagði Kristín þegar leitað var frétta af því sem Islendingarn- ir í Hong Kong eru að gera. „Við þrjú munum skipuleggja tónleika og ráða efnisskrá. Svo fáum við til liðs við okkur þá tónlistarmenn sem til þarf hveiju sinni. Okkur þótti þó ráðlegt að hafa á bak við okkur ákveðinn grunn- hóp góðra hljóðfæraleikara og höfum valið blandaðan hóp hljóð- færa til að stuðla að fjölbreytileika í verkefnavali. Það verður að mestu bundið við þessa öld, sem leiðir af sjálfu sér þegar um ís- lenska tónlist er að ræða. Við munum þó að öllum líkindum ekki eingöngu binda okkur við íslenska og norræna tórilist í framtíðinni, þó flutningur hennar sé aðal- markmiðið." Nú eru í undirbúningi tónleikar hópsins í Hong Kong Cultural Centre þann 4. júní næstkomandi og ætlunin að flytja þar íslensk og norræn kammerverk og segir Kristín að efnisskráin verði í frek- ar hefðbundnara lagi til að geðjast óhörðnuðum eyrum áheyrenda þeirra og stuðningsmanna. „Hér er vöntun á öflugri tónlistarstarf- semi, sérstaklega hvað varðar kammertónlist og nýsköpun í tón- list. Það er ætlun okkar í Rímum að fylla þetta rými að einhveiju leyti og veita þar með gott for- dæmi.“ Nú kosta slíkir tónleikar eitt- hvað? Kristín viðurkennir að út- lagður kostnaður sé verulegur. Þau hafí þegar fengið stuðning og vel- vilja nokkurra aðila þar ytra. Kjör- ræðismaður íslands, mr. Anthony RÍMUR í HONG KONG í Hong Kong hafa þrír íslenskir ríkisborgarar stofnað kammermúsík- hópinn Rímur. Þau Kristín M. Jakobsdóttir, David Knowles Ját- varðsson og Jósef Fung eru nú m.a. að undirbúa tónleika í Hong Kong Cultural Centre í júní. Og þau munu flytja ís- lenska og norræna tón- list víðar í Asíu, m.a. í Kína, að því er Kristín tjáði Elínu Pálmadótt- ___ur í símtali._ Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagottleikari í Hong Kong. Kristín og maður hennar, Gerald Anthony Aliva, eru bæði fagott- leikarar. Þau leika í Hong Kong Philharmonic Orchestra. Gítarleikarinn Jósef Fung bjó langdvölum erlendis, m.a. á Islandi, og er íslenskur ríkis- borgari, en starfar nú aftur í heimalandinu, Hong Kong. David Knowles Játvarðsson píanóleikari og hjónin Gerald Anthony Aliva og Kristín M. Jakobsdóttir með Halldóru Kristínu dóttur sína. J. Hardy, hafí af örlæti boðið þeim að taka þátt í leigu tónleikasalar og norræn sendiráð hafí einnig tek- ið framtaki þeirra vel. Sendiráðin hafí stungið upp á því að þau leit- uðu til norrænna fyrirtækja í Hong Kong um frekari stuðning, sem þau eru að gera. Einnig hafa þau skrif- að íslenska menntamálaráðuneyt- inu, í von um að það sýni framtak- inu nokkurn áhuga og stuðning í einhverri mynd. Blönduð kínversk og vestræn tónlist Ef vel tekst til með tónleika Rímna í júní í Hong Kong segir Kristín að ætlunin sé að halda tónlistarflutningi áfram og kynna norræna og íslenska tónlist víðar í Asíu. Nærtækast sé að halda tónleika í Kína, ekki síst vegna væntanlegra stjórnarskipta í Hong Kong. ,jÞað á vel við nú, ekki síst þegar Island hefur styrkt stöðu sína í Kína með nýskipuðum sendi- herra. Þess má geta að Hjálmar Hannesson sendiherra og kona hans hafa í hyggju að heiðra okk- ur með nærveru sinni á tónleikun- um í júní,“ segir Kristín. Fleira er í deiglunni hjá þre- menningunum. För Jóseps Fungs til Kína með Nordic Ensemble á sínum tíma leiddi til stofnunar kammerhópsins The Chinese Virtuosi, hóps sem á engan sinn líkan í flutningi nýrrar kínverskrar tónlistar á aldagömul kínversk hljóðfæri, að sögn Kristínar. Hún segir að Hilmar Örn Hilmarsson hafí sýnt áhuga á að skrifa tónlist fyrir Rímur og The Chinese Virtu- osi til samans, þ.e. að blanda sam- an hefðbundnum kínverskum hljóðfærum og vestrænum í eina „kosmíska heild“. Þau séu mjög spennt fyrir þessu. Nægt svigrúm í svipuðu formi og Rímur starf- ar kammerhópurinn „I fiatti dolci“, sem Kristín hefur verið með frá fyrstu tónleikum í maí í fyrra. „I fiatti dolci“, sem útleggst Ljúf- ir vindar, er hópur tréblásara sem langar að skapa sér starfsvettvang með flutningi kammertónlistar, tónverka sem hafa verið skrifuð sérstaklega fyrir tréblásara, þ.e. flautu, óbó, klarinett og fagott. Á tónleikunum í fyrra voru flutt tríó fyrir flautu, óbó og fagott. Ekki lætur Kristín þar staðar numið, því á tónleikum 9. mars sem hún bar allan veg og vanda af, voru leikin verk fyrir óbó, klari- nett, fagott og píanó. Léku þau David þar á fagott og píanó, óbó- istinn var bandarísk kona, Rhondda May, og klarinettleikar- inn Karen Ellis Chong flaug alla leið frá Jakarta í Indónesíu, þar sem hún er búsett, til að vera með þeim. Voru leikin verk eftir Saint- Saéns, Francis Poulenc, Ben-Haim og þá Jacques Ibert og Rudolf Maros. Tókust tónleikarnir með miklum ágætum. Kjörræðismaður íslands, Anthony J. Hardy, og Anna Birgisdóttir, sendiherrafrú í Beijing, voru viðstödd tónleikana. Vegna tónleikanna voru hljóð- færaleikararnir boðaðir í viðtöl hjá tveimur aðal útvarpsstöðvunum, í annað skiptið í beina útsendingu. Einnig var skrifað um þau og tón- leikana í eitt dagblaðanna. Kristín segir að Fringe-klúbburinn sé vett- vangur ungra listamanna á upp- leið og tækifæri fyrir þá sem ekki hafa annars færi á að koma sér á framfæri. Fringe sé opinn fyrir öllum nýjungum og starfsemin frumlegri en gengur og gerist í Hong Kong. Kristín kveðst vera ánægð. Hong Kong sé stórborg. Næga atvinnu að hafa. Þau hjónin kenna bæði. Líka séu nægar stöður til að leika og launin góð. Tónlistar- flutning skapi maður sér mikið sjálfur. Þarna sé ekki mikil kam- mertónlist og hún sé svolítið ein- hæf. Megi segja að vanti frum- leika, sköpunargleði og framtaks- semi, sem sé þó að glæðast. Ekki sé eins mikið um tónleika og,heima á íslandi og þeir séu lítið auglýst- ir. Tónlistarlífið hefur breyst mikið á undanförnum 20 árum. Einmitt þessvegna sé svo spennandi að auka kammermúsíkflutning í Hong Kong. Það sé spennandi að rækta jarðveginn, og reyna að koma með eitthvað nýtt, segir hún. Kristín segir að þeim líði mjög vel i Hong Kong og hugsi sér að búa þar áfram í að minnsta kosti 2 ár. Hún kvaðst samt alltaf í og með sakna vinanna og fjölskyld- unnar heima. Faðir hennar er Jak- ob Kristinsson lyfjafræðingur og móðir hennar Kristín Gísladóttir sem starfar hjá Bóksölu stúdenta. Hún sagðist ætla að koma heim í frí í sumar, en einhver bið yrði samt á tónleikum frá hennar hendi á íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.