Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. APRÍL1995 B 23 ATVINNUA UGL YSINGAR íf Matvælaverkfræðingur/- efnaverkfræðingur Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins óskar að ráða matvælaverkfræðing eða efnaverkfræðing til starfa hjá stofnuninni. Launakjör eru skv. launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknum skal skila á skrifstofu stofnunarinn- ar á Skúlagötu 4, Reykjavík, fyrir 18. apríl nk. Lögreglumenn Embætti sýslumannsins á Seyðisfirði auglýsir laus til umsóknar störf við sumarafleysingar hjá lögreglunni á Egilsstöðum, Seyðisfirði og Vopnafirði. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Miðað er við að ráðið verði í störfin frá 1. júní til 1. septem- ber nk., að undanskildri afleysingu á Egils- stöðum, þar sem ráðið verður frá 1. maí til 30. september 1995. Umsóknir, ertilgreini aldur, menntun og fyrri störf, sendist til undirritaðs á Bjólfsgötu 7, Seyðisfirði, fyrir 26. maí nk. Seyðisfirði, 6. apríl 1995. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði. Meðferðarheimili bama að Geldingalæk Félagsmálaráðuneyti og Barnaheill auglýsa eftir hjónum til að veita meðferðarheimili Barnaheilla að Geldingalæk á Rangárvöllum forstöðu. Um er að ræða fjölskylduheimili, en þar dvelja nú 6 börn á grunnskólaaldri sem þurfa á sérhæfðri meðferð og umönnun að halda. Væntanlegir umsækjendur skulu hafa háskólamenntun á sviði uppeldis- og/eða sálarfræði. Undirstöðugóð þekking og reynsla af vinnu með börnum er skilyrði. Nánari upplýsingar fást í félagsmálaráðu- neyti í síma 609100 og hjá Ingva Hagalíns- syni í síma 98-75164. Umóknum, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, skal skilað til félagsmálaráðu- neytisins eigi síðar en 1. maí 1995. Kirkjuvörður Sóknarnefnd Seltjarnarneskirkju auglýsir laust til umsóknar starf kirkjuvarðar í Seltjarnarneskirkju. Kirkjuvörður hefur umsjón með húsnæði og munum kirkjunnar. Hann aðstoðar sóknar- prest og aðra starfsmenn safnaðarins við störf þeirra. Kirkjuvörður annast skjalasafn kirkjunnar og sóknarnefndar og sér um kaup á rekstrarvörum. Leitað er að traustum einstaklingi sem hefur áhuga á kristilegu starfi og á auðvelt með að starfa með öðrum. Umsóknarfrestur er til 30. apríl nk. Umsóknir berist til Sóknarnefndar Seltjarnar- neskirkju, Seltjarnarneskirkju, Kirkjubraut 2, 170 Seltjarnarnesi. Nánari upplýsingar veita sóknarprestur í síma 611550 og formaður sóknarnefndar í síma 619267. Fasteignasala - rítari Stór fasteignasla óskar að ráða ritara. Starfssvið er umsjón með auglýsingum og innheimtu, sölumennska, skjalagerð og öll almenn skrifstofustörf. Umsóknir óskast sendar afgreiðslu Mbl. merktar: „Ritari - 15791“ fyrir 20. apríl. Gæðastjórnun íslensk gæðastjórnun auglýsir eftir starfs- krafti með menntun á sviði gæðastjórnunar. Við leitum að aðila, sem getur unnið sjálf- stætt að ráðgjöf o.fl. Meðeign í fyrirtækinu kemur til greina. Umsóknir, sem tilgreina menntun og fyrri störf, sendist til íslenskrar gæðastjórnunar, pósthólf 3005,123 Reykjavík, fyrir 30. apríl nk. BORGARSPÍTALINN Hjúkrunarfræðingar Slysa- og sjúkravakt Borgarspítalans vantar áhugasama hjúkrunarfræðinga í sumarafleysingar. Megin viðfángsefni deildarinnar er greining, forgangsröðun og meðhöndlun bráðveikra og slasaðra sjúklinga, en bráðahjúkrun hefur snertifleti við öll svið hjúkrunar. Þeim hjúkrunarfræðingum, sem hafa áhuga á að kynnast bráðahjúkrun, er bent á að hafa samband við Pálínu Ásgeirsdóttur deild- arstjóra, í síma 5696650 eða Ernu Einars- dóttur, hjúkrunarframkvæmdastjóra starfs- mannaþjónustu, í síma 5696356 hið fyrsta. Ifl Leikskólar Reykjavíkurborgar Leikskólastjórar Stöður leikskólastjóra við leikskólana Fálka- borg við Fálkabakka og Efrihlíð við Stiga- hlíð eru lausar til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 18. apríl nk. Leikskólakennaramenntun áskilin. Nánari upplýsingar gefur Bergur Felixson, framkvæmdastjóri, í síma 552-7277. Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklausir vinnustaðir. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími552-7277. Verkefnisstjóri - Þýskaland Þýskt byggingaverktakafyrirtæki í eigu ís- lenskra aðila óskar að ráða verkefnisstjóra til starfa fljótlega. Leitað er að nákvæmum og framtakssömum tækni- eða verkfræðingi, helst með reynslu af verklegum framkvæmdum. Mjög góð þýskukunnátta er skilyrði. Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar. Umsóknir, er tilgreini aldur, fjölskylduhagi, menntun og starfsreynslu, sendist skrifstofu okkar fyrir 20. apríl. Guðnt Tónsson RÁÐGTÖF & RÁÐNINGARÞTÓNUSTA HÁTEIGSVEGI7,105 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 Frá leikskólum Hafnarfjarðar Aðstoðar- leikskólastjóri Staða aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann Hvamm er laus til umsóknar. Allar nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 565-0499. Umsóknir skulu berast skólaskrifstofu Hafn- arfjarðar eigi síðar en 22. apríl nk. Skólafulltrúinn í Hafnarfirði. Innheimta/ tölvuvinna Opinber stofnun miðsvæðis í Reykjavík leitar að starfsmanni til að sinna innheimtu. Einnig þarf viðkomandi að geta aðstoðað og leið- beint við ýmislegt tengt tölvumálum skrif- stofunnar. Hæfniskröfur: Einhver reynsla eða þekking af innheimtu og bókhaldi. Góð tölvukunnátta og þekking á netkerfi skilyrði. Reynsla af Fjölni bókhaldskerfi æskileg. Vinnutími frá kl. 8-16. Ráðning verður sem fyrst. Um framtíðarstarf er að ræða. Umsóknarfrestur er til og með 19. aprfl nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofunni sem opin erfrá kl. 9-14. Skólavördustig 1 a - 101 Reykjavik - Simi 621355 Yfirverkstjóri Járnsmiðju- og vélaverkstæði Vegagerðin auglýsir eftir góðum og traust- um manni til starfa sem fyrst í starf yfirverk- stjóra járnsmiðju- og vélaverkstæðis Vega- gerðarinnar v/Stórhöfða í Reykjavík. Umsóknarfrestur er til og með 21. aprfl nk. Umsóknareyðublöð fást hjá Vegagerðinni, Borgartúni 5, 105 Reykjavík. Skriflegar umsóknir, merktar: „Yfirverkstjóri" sendist til: Vegagerðin, b.t. Ásgeir M. Kristinsson, Borgartúniö, 105 Reykjavík. Frá Háskóla íslands Laus er til umsóknar dósentsstaða í lög- fræði við lagadeild Háskóla íslands. Umsækjendur um stöðuna skulu láta fylgja umsóknum sínum rækilega skýrslu um vís- indastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf. Með umsóknunum skulu send eintök af vís- indalegum ritum og ritgerðum umsækjenda, prentuðum og óprentuðum. Laun skv. kjarasamningi Félags háskóla- kennara og fjármálaráðherra. Umsóknarfrestur er til 16. maí 1995 og skal umsóknum skilað til starfsmannasviðs Háskóla íslands, aðalbyggingu við Suður- götu, 101 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.