Morgunblaðið - 09.04.1995, Síða 14
14 B SUNNUDAGUR 9. APRÍL1995
MORGUNBLAÐIÐ
I
Sigursælar
hákarlafælur
Úrval Paul
& Lauru
BANDARÍSKI dúettinn
Paul og Laura hefur búið
hér á landi í sjö ár, leikið
á tónleikum og gefið út
spólur. Fyrir stuttu kom
svo út lagaúrval þeirra í
Þýskaiandi.
Fyrir skemmstu gaf
þýska fyrirtækið
Hoppei di Hoy út sjö-
tommu raeð fímm lögum
Paul og Lauru. Um svipað
leyti hófu þau innflutning
á útgáfum Hoppel di Hoy
hingað til lands og hyggja
á frekara samstarf við
fyrirtækið.
Paul segir að sam-
starfið sé þannig til kom-
ið að bandarísk kunn-
ingjakona þeirra, Linda
Smith, sé á samningi hjá
fyrirtækinu og hún hafi
bent þeim á að snúa sér
þangað því víst væri að
eigandi fyrirtækisins,
Stefan, kynni að meta
þau. „Við skrifuðum hon-
um því og sendum kass-
etturnar tvær og hann
vildi strax gefa út úrval
af þeim á plötu."
Paul segir á sjötomm-
unni séu fimm lög, úrval
af tveimur spólum sem
þau hafa gefið út hér á
landi, Moebius Shrimp og
Ilmvatnajökli, bæði með
íslenskum textum og
enskum. „Þetta eru lög
sem við tókum upp hér
heima á einfaldan hátt,“
segir Paui og bætir við
að þau séu að velta því
fyrir sér að gefa út aðra
sjötommu á árinu enda
séu þau með nóg af nýjum
lögum í smíðum og hafa
tekið nokkuð upp. Hann
segir sjðtommuna hent-
uga til að kynna nýja tón-
list, hún sé ódýr í fram-
leiðslu og því hægt að
selja hana á lágu verði.
„Mér finnst líklegra að
fólk kaupi eitthvað sem
það ekki þekkir ef það
kostar ekki of mikið,“
segir hann, „við Laura
gerum það að minnsta
kosti,“ segir hann og hlær
við.
Á NÝÚTKOMINNI breið-
skífu, Einni stórri fjölskyldu,
sem á er tónlist úr sam-
nefndri kvikmynd, kennir
margra grasa. Þar á meðal
kveður ný hljómsveit sér
hljóðs, sem heitir því sér-
kennilega nafni Shark
Remover.
Shark Remover er tríó
þeirra Páls Garðarsson-
ar, Jóns Emils og Hafdísar
Huldu. Páll segir áð hijóm-
sveitin sé þriggja ára gömul,
hafi æft og samið lög þann
tíma, en ekki haldið tónleika,
hann leikur á gítar, Jón
Emil á bassa og Hafdís Huld
á trommur. Þau Páll og Haf-
dís segja að lagið á Einni
stórri fjölskyldu gefi nasa-
sjón af hljómsveitinni; „við
erum svona líka“ segir Haf-
dís, og Páll bætir við að í
lagasafni sveitarinnar sé
mikil breidd.
Eins og áður segir hefur
Ljósmynd/Kjól og Anderson
Hákarlafælur Hljómsveitin Shark Remover.
Shark Remover ekki haldið
tónleika til þessa, hefur lagt
nótt við dag til að gera lögin
tónleika- og útgáfuhæf, en
til að kynna sveitina lögðu
þau i myndbandsgerð. Tón-
leikahald er á dagskrá, en
þau segjast fara sér hægt
og skipuleggja væntanlega
tónleika af kostgæfni.
Sérkennilegt nafn sveit-
arinnar, Shark Remover,
segja þau komið úr draumi.
„Jón dreymdi að hann væri
í trumbuslagarakeppni á eyju
í Karíbahafi. Hann sigraði í
keppninni og vegna þess að
hann gat trommað alla há-
karla frá ströndinni var hann
kosinn „Shark Remover" árs-
ins. Eftir að hafa heyrt
drauminn kom ekkert annað
til greina sem nafn á sveit-
ina,“ segja þau ákveðin.
Morgunblaðið/Kristinn
Úrval Paul og Laura og
tveggja ára dóttir þeirra.
UBJÖRK Guðmundsdótt-
ir hefur haft í nógu að
snúast undanfarið, meðal
annars við upptökur á
væntanlegri breiðskífu.
Hún lauk fyrir skemmstu
við plötuna, sem koma á
út 5. júní, og nýtt Bjark-
arlag, Army of Me, kemur
út í vikunni eftir páska.
Ýmisir koma við sögu á
breiðskífunni, til að mynda
sér sérvitringurinn De-
odado um strengjaútsetn-
ingar, Tricky leggur Björk
lið í einu lagi, Howie B í
öðru, Black Dog kemur
einnig við sögu og LFO,
aukinheldur sem Nellee
Hooper leggur sitt af
mörkum í takkastjórn.
Smáskífan Army of Me
verður í tveimur útgáfum,
annars vegar venjuleg út-
gáfa lagsins með tveimur
aukalögum. Hin útgáfan
verður svo af laginu endur-
hljóðblönduðu með liðsinni
Beastie Boys, en útgáfur
eiga einnig Graham Mass-
ey og Skunk & Nancy.
Lagið verður meðal annars
á safnskífu með tónlistinni
úr kvikmyndinni Tank Girl
og verður fyrsta smáskífan
af þeirri plötu, en auk
Bjarkar eiga lög á plötunni
L7, Belly, Hole, Portishe-
ad, Ice-T og Devo.
DÆGURTONLIST
Hvad er á seydi í skúmumf
PÖNK4Ð
ROKK
Liverpool-sveit Boo Radleys, f.v. Tim Brown, Martin
Carr, Sice Rowbottom og Bob Cieka.
ÆFT FYRIR
FRÆGÐINA
FYRIR tveimur árum eða svo sendi breska rokksveitin Boo
Radleys frá sér sína þriðju breiðskífu. Platan seldist prýði-
lega og var valin plata ársins víða um heim. Þrátt fyrir það
kom flestum í opna skjöldu þegar fjórða plata sveitarinnar,
Wake Up! skaust beint í efsta sæti breska breiðskífulistans.
FYRIR rúmri viku lauk Mús-
íktilraunum Tónabæjar, þar
sem á fjórða tug sveita atti
kappi um ýmis verðlaun.
Hljómsveitirnar komu úr öll-
um áttum og léku flest af-
brigði rokk og popptónlistar,
sem gaf góða mynd af því
sem er á seyði í bílskúrum
landsins.
Fjölbreytni er jafna mikil
í Músíktilraunum og
greinilegt að tónlistaráhugi
ungmenna er ekki jafn eins-
leitur og ætla má af útvarpi
og umfjöll-
un fjöl-
miðla: það
þrífst
meira en
dans, diskó
og rokkað
popp.
Þannig var
til að
mynda með Músíktilraunir
1991 og 1992, þegar dauða-
rokkið var allsráðandi í skúr-
unum, en heyrðist aldrei í
útvarpi og lítið var hampað
í öðrum fjölmiðlum. Iðulega
fer þó saman fjölmiðlaum-
fjöllun og tónlist sem ungl-
ingarnir kunna að meta og
þannig var mikið um hljóm-
sveitir sem léku Seattle-rokk
að hætti Pearl Jam og Nirv-
ana, en einnig brá fyrir sveit-
um sem drógu dám af bresku
nýbylgjunni, Suede, Blur og
Oasis.
Sigursveitin í ár, hafn-
fírska tríóið Botnleðja, var
vel að sigrinum komin, gríð-
arlega þétt og kraftmikið tríó
sem lék pönkað rokk þeirrar
ættar sem er á hraðri uppleið
hér á landi um þessar mund-
ir og leysir líkiega af Seattle-
rokkið. Vonandi nýtast sigur-
laun sveitarinnar til þess að
hún komi frá sér plötu á ár-
inu.
Sitthvað athyglisvert
Eins og áður er getið eru
Músíktilraunir jafnan gott
tækifæri til að komast að
því hvað ungmennin eru að
fást við og þar bregður fyrir
mörgu sérkennilegu og
skemmtilegu. Þannig er eft-
irminnilega eina dauðarokk-
sveit tilraunanna, Tartarus,
úr Eyjafirði, sem var bráð-
skemmtileg og þétt. Það
voru fieiri sveitir sem vöktu
athygli á Músíktilraunum, til
að mynda Stólía, einnig tríó
úr Hafnarfirði. Hún lék án
söngvara, sem kom ekki að
sök, því sveitin fór létt með
að spila sig í úrslit og var
ekki langt undan Botnleðju
í öðru sæti. Mósaík var einn-
ig eftirminnileg þó ekki sé
hún fullmótuð og sumt hafi
ekki tekist sem skyldi. Tríóið
Bee Spiders, sem var valið
athyglisverðasta hljómsveit
tilraunanna, er líka eftir-
minnilegt, sérstaklega fyrir
frammistöðu söngvara sveit-
arinnar og gítarleikara, sem
kunni greinilega vel við sig
á sviðinu og fór á kostum,
en tónlist Bee Spiders var
líka athyglisverð og
skemmtileg.
Helstu verðlaun Músíktil-
rauna eru jafnan hljóðvers-
tímar og vonandi verða þeir
til þess að þær sveitir sem
hrepptu verðlaun sendi frá
sér diska á árinu eða lög á
safndiskum, því víst er að
allar verðlaunasveitirnar eiga
erindi á plast.
Boo Radleys er kvartett
frá Liverpool, sem hef-
ur verið að í ein sex ár og
átti mjög á brattann að
sækja framan af, voru meðal
annars kallaðir „Do Bad-
leys“ um tima. Höfuðpaurar
sveitarinnar lögðu þó ekki
árar í bát, enda höfðu þeir
æft sig fyrir frægðina í tíu
ár; meðal annars æft sviðs-
framkomu fyrir framan
spegil, æft gítarsveiflurnar
með hárburstum og tenn-
isspöðum, æft landgöngu úr
flugvélum og þar fram eftir
götunum. Með tímanum
náðu þeir líka tökum á tón-
smíðum og hljóðfæraleik og
eins og áður sagði kom þriðja
breiðskífan, Giant Steps,
Boo Radleys á framfæri svo
um munaði.
Wake Up! sem hóf lista-
veru sína með svo miklum
látum, er sérhönnuð til þess
að slá í gegn, að því þeir
félagar segja sjálfir, en þó
hreinræktuð Boo Radley-
plata, upp full með glensi
og gamni. Gagnrýnendur-*
hafa tekið plötunni tveim
höndum líkt og plötukaup-
endur og margur hlakkað
yfir því að enn ein Liverpool-
sveit sé kominn á toppinn.
eftir Árna
Motthíosson