Morgunblaðið - 09.04.1995, Page 17
16 B SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
EINS OG EIN STOR FJOLSKYLDA
Sýningar hófust á Einni stórri fjölskyldu um
síðustu helgi. Bæði ungir og aldnir koma fram í myndinni og margir hveijir eru að stíga
sín fyrstu spor á leiklistarbrautinni. Pétur H. Blöndal tekur nokkra þeirra tali.
ÁSDÍS Gunnarsdóttir og Jón Sæmundur í hlutverkum sínum.
„LÍT Á MIG SEM
LISTVINSAM-
LEGAN MANN“
ur. Þetta er vondur og
andstyggilegur maður,
sem svona góður og
persónulegur maður
eins og ég vildi helst
ekki þekkja."
HundUrinn
brotnaði saman
Kristjáni varð sér-
lega minnisstætt atvik
sem átti sér stað við
tökur á myndinni: „Það
sem er ef til vill furðu-
legast við þessa sögu
að þetta atriði tók að-
eins nokkrar sekúndur
í myndinni.“ Atriðið
sem við er átt er þegar
Dóri rekur hundinn
hans Jóa út úr húsi með
hávaða og látum.
„Jonni sagði mér að
reka hundinn út með
höstum rómi, en alltaf
þegar ég byrsti mig hljóp hundurinn
undir kvikmyndatökuvélina. í átján
„Lék ég
í þessari mynd?“
KRISTJÁN Amgrímsson leikur
Dóra, geðstirðan tengdaföður
Jóa, af mikilli innlifun. Jói á sér
ekki viðreisnar von hvort sem er
inni á heimilinu eða á vinnustaðn-
um, því hvert sem hann snýr sér
er hann undir járnaga tengdaföður
síns. Þegar mælirinn verður loks
fullur gerir hann uppreisn, segir
upp dótturinni og fer út á galeiðuna
með gullkort Dóra að vopni.
Kristjáni Amgrímssyni bauðst
hlutverk Dóra í myndinni þar sem
hann sat inni á Sóloni íslandusi og
sötraði kaffí með vinum sínum.
„Jonni settist hjá okkur og bauð
mér að leika í myndinni,“ segir
Kristján. „Hann hefur vafalaust séð
hvað ég var í góðum félagsskap og
langað til að slást í hópinn," bætir
hann við og hlær vinalega.
„Það stóð ekki á svari frá mér,
enda lít ég á mig sem mjög listvin-
samlegan mann. Mér finnst alveg
sjálfsagt að verða við svona bón,
vegna þess að íslenskir kvikmynda-
gerðarmenn standa alltaf í þessu
af vanefnum. Ef maður getur lagt
þeim eitthvað til, þó ekki væri nema
vegna dugnaðarins og viljafestunn-
ar, er það meira en sjálfsagt.“
Las ekki handritiA
Þetta er ekki fyrsta kvikmynd
sem Kristján leikur í, en hann fór
með hlutverk í Morðsögu á sínum
tíma. Hann segir að sér hafi ekki
fundist erfitt að undirbúa sig fyrir
tökur á Einni stórri fjölskyldu.
„Ég fékk að vísu handrit, en las
það ekki,“ segir Kristján. „Ég lít
svo á að mitt hlutverk sé að fara
að vilja leikstjórans. Það lýsir ef til
vill best hlutverki mínu að leiðbein-
ingarnar fólust mest í því að Jonni
bað mig um að öskra á Pétur eða
öskra á Pál. Einu sinni bað hann
mig reyndar um að vera eðlilegur,
en átti þá við illmannlegur."
Hvað varðar viðhorf Dóra til lífs-
ins eiga hann og Kristján lítið sam-
eiginlegt. „Ég er fullkomlega ósam:
mála Dóra,“ segir Kristján. „í
myndinni leik ég Ijótan og leiðinleg-
an eiginmann, föður og tengdaföð-
skipti gekk þetta svona fyrir sig,
þar til hundurinn drattaðist loks út
í eitt skipti. Þá reyndist upptakan
vera ómöguleg og þurfti því að taka
atriðið upp á nýtt nokkrum dögum
síðar. Þegar að því kom reyndist
hundurinn ennþá vera hræddur við
mig. Ég hef það fyrir satt að hann
hafi fengið áfall og brotnað gjör-
samlega saman eftir að hafa hlust-
að á hastan róminn í mér í öll þessi
skipti.“
KAR Beck er vinnufélagi Jóa
og fer óumræðilega itaugarn-
ar á honum. Hann er sífellt að þvaðra
um sömu stúlkuna og kvarta undan
afgreiðslunni á kaffihúsinu sem þeir
sækja. Loks fær ein afgreiðslustúlk-
an nóg og sprautar tómatsósu yfir
Óskar: „Tómatsósuatriðið fannst mér
mjög auðvelt," segir
Eiríkur Thorarensen,
sem fer með hlutverk
Óskars í sinni fyrstu
kvikmynd. „Ég varð
mjög reiður og það var
alvörureiði, enda var ég
allur úti í tómatsósu.
Þetta var síðasti töku-
dagur og einu jakkaföt-
in sem ég hafði, þannig
að mikið reið á að atrið-
ið gengi upp — og það
tókst."
Tökur á atriði þar
sem Óskar hleypur út á
götu af kaffihúsinu út-
ataður í tómatsósu
stóðu hins vegar lengur
yfir. „Mér er það mjög minnisstætt
að ég þurfti að standa með tómatsós-
una harðnandi á mér meðan á tökum
stóð. Þegar þær voru svo 'loksins
yfirstaðnar þurfti ég að brjóta tóm-
atsósuna af mér.“
Skítugur raunveruleiki
Ein stór fjölskylda hefur fengið
misjafna gagnrýni í fjölmiðlum. Ei-
ríkur er spurður hvort hann sé sam-
mála þeim dómum sem myndin hefur
fengið. „Persónulega finnst mér
mjög gaman að myndinni. Það er
reyndar réttilega bent á það í fjöl-
miðlum að hljóðgæðin í myndinni eru
léleg. Annars finnst mér skemmtilegt
hvað hún dregur upp skítugan raun-
veruleika hjá ungu fólki í Reykjavík.
Myndin sem Jóhann dregur upp
er mjög kunnugleg. Fylliríin, að vera
hent út af veitingastað, píustand,
klósettin o.s.frv. Eitthvað sem allir
á þessum aldri geta fundið sig í. Það
er líka athyglisvert að í myndinni
leikur samansafn af fólki sem Jóhann
kynntist á börum og kaffihúsum. Ég
held að það sé óhætt að segja að
hann hafi drifið myndina svo að segja
upp úr engu.“
Stress, galsi og fíflaskapur
Það má segja að Eiríkur hafi feng-
ið hlutverk í myndinni vegna vin-
skaps við Jóhann: „Ég kynntist Jó-
hanni fyrir mörgum
árum. Hann sagði þá
þegar við mig að svo
kynni að fara að hann
bæði mig um að leika í
kvikmynd. Þegar hann
kom svo til mín og sagði
við mig að ég væri rétti
maðurinn í þetta hlut-
verk hugsaði ég mig
ekki tvisvar um.“
Eiríkur segir að það
hafi á vissan hátt verið
erfitt að leika í mynd-
inni: „Það var sérstak-
lega erfitt að setja sig í
stellingar og passa sig á
því að skella ekki upp
úr. Þessu fylgir ákveðið
stress og þá kemur alltaf í mann
galsi og fíflaskapur. Biðin eftir tök-
um getur líka orðið leiðingjörn. Þá
þarf maður stundum að sitja á rassin-
um klukkutímum saman og það eina
sem maður hefur við tímann að gera
er að reykja eða sötra kaffi.“
Kom mér í opna sköldu
Eiríkur mætti ásamt öðrum að-
standendum Einnar stórrar fjöl-
skyldu á frumsýninguna fyrir rúmri
viku og þá kom honum ýmislegt í
opna skjöldu. „Myndin kom mér held-
ur betur á óvart. Það höfðu verið
gerðar miklar breytingar miðað við
handritið. Ég átti til dæmis ekki von
á því að Jón Sæmundur myndi verða
í hlutverki sögumanns og kalla mig
þorskhaus," segir Eiríkur og hlær.
„Það má segja að mín persóna
hafí tekið verulegum skakkaföllum
við þessar óvæntu breytingar, en það
er víst mjög algengt. Mér er sagt
að það komi oft fyrir að fólk spyiji
sjálft sig agndofa: Lék ég í þessari
mynd?“
Eiríkur Thorarensen
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1995 B 17 L
Asdís
Gunnarsdóttir
Rembdist
og öskraði
í HLÚTVERKI
Maríu, unnustu
Jóa sem talar nið-
ur til hans eins og
aðrir á heimilinu,
er Ásdís Gunnars-
dóttir. Hún hefur
áður komið ná-
lægt leiklist, en
það var í upp-
færslu Sumarleik-
hússins á Vél-
gengu glóaldini.
„Það er tvennt ólíkt,“ segir hún.
„Ég gat engan veginn gert mér
grein fyrir því hvað var að gerast
við tökur á myndinni. Leikstjórinn
hefur alla þræði í hendi sér. I leik-
húsi er verkið hinsvegar flutt
nokkrum sinnum í heild sinni og
maður á því auðveldara með að
setja sig inn í atburðarásina."
„í fyrstu stóð mér ekki á sama
þegar ég horfði á myndina. Síðan
ákvað ég að slappa af og var sátt
við mína frammistöðu. Hún reynd-
ist svipuð og ég bjóst við.“
Ásdís segir að fæðingarsenan
hafi ekki verið mikið mál. „Ég
þurfti bara að rembast og öskra
og svo var það yfirstaðið. Mér
fannst einna verst að það var klínt
á mig smjöri til að gera þetta
meira sannfærandi. Það var hálf
ógeðslegt. Þegar ég svitnaði
næsta dag fannst mér ég finna
smjörlykt."
Ekki krefj-
andi hlutverk
REBEKKA Silvía
Ragnarsdóttir-
leikur aðra af vin-
konunum sem Jói
hittir við tjörnina.
Aðdragandi þess
að hún fékk hlut-
verk í myndinni
var ekki langur.
„Ég var á rölti í
bænum þegar ég
hitti Jonna. Ég
þekkti hann ekki
neitt, en hann spurði mig hvort
ég vildi leika í kvikmynd. Ég
spurði hvernig mynd það væri.
Þá svaraði hann því til að ég og
Nína ættum að fara út að borða
með manni. Mér fannst það nú
ekki flókið og sló til.“
Rebekka gerir lítið úr sínum
þætti í myndinni: „Þetta var nú
ekki krefjandi hlutverk." Þegar
hún er spurð hvort hún hyggist
halda áfram í leiklist svarar hún
aðeins: „Ekkert frekar. Hæfileik-
ar mínir liggja ekki beint á þessu
sviði.“
Henni fannst kvikmyndatök-
urnar fara fram nokkurn veginn
eins og hún hafði ímyndað sér,
nema hvað hún bjóst ekki við þess-
um miklu töfum. Var hún svo
ánægð með árangurinn? „Mér
fannst myndin skemmtileg," segir
Rebekka. „Hún er ef til vill ekki
neitt listaverk, en það kom mér
samt á óvart hvað hún fékk slæma
gagnrýni."
Ungt fólk
forvitið
ÞEGAR Elsa verð-
ur á vegi Jóa er
hún við Tjörnina
með vinkonu sinni
og þeim verður
afskaplega star-
sýnt á kauða.
Hann tekur eftir
því og býður þeim
út að borða, sem
er aðeins byrjunin
á ævintýrum kvöldsins. „Ég fékk
símhringingu frá Jonna, þar sem
hann bað mig um að hitta sig á
Hressó," segir Nína Björk og
þannig kom það til að hún fékk
hlutverk Elsu í myndinni.
Nína Björk hefur Hkaallt gott
um myndiua að segja. „Ég fór á
frumsýninguna og fannst myndin
bráðskemmtileg," segir Nína
Björk. „Það má auðvitað alltaf
gagnrýna allt, en ég held að hún
Rebekka
Sllvia Ragn-
arsdóttir
Nína Björk
falli vel í kramið hjá ungu fólki
og ég veit um marga sem eru
mjög forvitnir."
Nína Björk segist hafa verið
mjög spennt fyrir tökurnar, en
henni hafi þó ekki fundist neitt
sérlega erfitt að leika: „Það geta
allir leikið, bara misvel." Það sem
stóð upp úr að hennar mati var
fæðingarsenan. „Mér fannst hún
alveg æðisleg. Ég get þó ekki neit-
að því að mér fannst dálítið skrít-
ið að fylgjast með mér í fæðingars-
enu, sérstaklega með tilliti til þess
að vinkona mín, sem sat við hlið-
ina á mér var sjálf ólétt.
Kveið fyrir
kossaatriðinu
JÓI sér Lísu þar sem hún er að
kaupa sér kaffikönnu og fellur
Sara Dögg
Meulenbroek
hann kylliflatur
fyrir henni. Hann
tekur til sinna
ráða og innan
skamms eru þau
bæði komin heim
til hans undir því
yfirskyni að sötra
kaffi.
Sara Dögg Meu-
lenbroek fer með
hlutverk Lísu í
myndinni, en það er ekki í fyrsta
skipti sem hún spreytir sig í leikl-
ist. Hún hefur áður leikið í skó-
lauppfærslu á verkinu Sjúk í ást
eftir Sam Shepard. „Mér finnst
mun skemmtilegra að leika í leik-
húsi. Bæði er að þá fer minni tími
í tafir og síðan er gaman að fá
viðbrögð frá áhorfendum í lokin.
Myndin kom betur út en ég bjóst
við,“ segir Sara. „Það má segja
að ég hafi kviðið svolítið fyrir
kossaatriðinu þegar ég horfði á
myndina, enda sat ég við hliðina
á kærastanum mínum. Það var
óþarfi, því hann tók því bara vel.“
Sara segir að það hafi ekki tekið
neitt sérstaklega áað fylgjast með
sjálfri sér í myndinni. „Mér fannst
ég bara taka mig vel út á hvíta
tjaldinu."
*
Oþægilegt að
heyra röddina
SIGRÚN Hólmgeirsdóttir fer með
hlutverk einnar af þeim stúlkum
sem lenda í nánum kynnum við
Jóa í myndinni. Henni bauðst hlut-
verkið þegar hún hitti Jóhann á
kaffihúsi og segist ekki hafa æft
sig neitt sérstaklega fyrir það eða
lesið handritið.
„Ég ætlaði reyndar ekki á frum-
sýninguna fyrr en tveimur dögum
Sigrún
Hólm-
geirsdóttir
áður, en þá notaði
ég það sem átyllu
að ég gæti alla-
vega fylgst með
atriðinu þar sem
Árni Óli kernur til
sögunnar.“
Til gamans má
geta þess að Árni
ðli, unnusti Sig-
rúnar, átti í fyrstu
ekki að vera í
myndinni, en þeg-
ar einn leikarinn forfallaðist, tók
Árni Óli hlutverk afbrýðisama
kærastans að sér og sparkaði aðai-
söguhetjunni Jóa með tilþrifum
úr húsinu.
Sigrún segir að sér hafi fundist
myndin fín og hún hafi getað hleg-
ið að henni. Henni hafi ekki fund-
ist erfiðast að horfa á sig á breið-
tjaldi Háskólabíós. „Mér fannst
óþægilegra að heyra röddina,“
segir hún. „Ég tala ekki svona!“
Vorátak fyrir heilsuna og útlitid
Síðustu TT námskeiðin
hefjast 22. apríl
TOPPI TIL TÁAR
Námskeiö sem hefur veitt ótalmörgum
konum frábæran <
Þetta kerfi er eingöngu ætlaö konum sem
berjast viö aukakílóin. Uppbyggilegt lokaö
námskeiö.
-Fimm tímar í viku, sjö vikur í senn.
-Strangur megrunarkúr sem fylgt er eftir
daglega meö andlegum stu&ningi,
einkaviötölum og x " -•
fyrirlestrum um
mataræði og
hollar lífsvenjur.
-Heilsufundir þar sem
fariö er yfir förðun,
klæönaö, hvernig á
aö bera líkamann og
efla sjálfstraustið.
Kortakerfið
Græn kort:
Frjáls mæting
6 daga vikunnar
fyrir konur
á öllum aidri.
Allirfinna flokk við
sitt hæfi hjá J.S.B.
NÝTT - NÝTT
imhalds TT
við upp á
íflokka fyrir TT konur.
ar í hverri viku.
■ aðhald
INNRITUN HAFIN
ALLA DAGA
í SÍMA 581 3730.
LÍKAMSRÆK T
LÁGMÚLA9.