Morgunblaðið - 09.04.1995, Side 21
20 B SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1995 B 21
Guðmundur Páll Ólafsson hefur lokið við gerð bókarinnar „Ströndin í náttúru
--31------------------------:..............................................—
Islands“ og Mál og menning gaf bókina út í vikulokin. Þetta er þriðja bókin
í ritröð um náttúru landsins og mikið verk, rétt eins og fyrri bækumar, „Fuglar
— ■ ■ 7-----------------------■— —y .................................—
í náttúm Islands“ og „Perlur í náttúm Islands.“ Guðmundur Guðjónsson
ræddi við nafna sinn um áfangann, verkefnið og hvað framundan er.
Þrefað um kvóta.
Ströndin
í náttúru
Islands
EG VAR tvö ár að vinna
að Fuglabókinni á sínum
tíma og upplifði mikinn
söknuð eða tómleikatil-
fínningu er hún Ioksins kom út.
Þetta var svipuð tilfinning og konur
lýsa þegar þær hafa fætt barn. Ég
fékk ekki beinlínis svoleiðis tilfínn-
ingu þegar Perlurnar komu út,
fremur eins konar doða eða deyfð,
en ég er hræddur um að þetta hell-
ist yfír mig aftur núna, því með-
ganga þessarar bókar var lengst
og að mörgu leyti þyngst," segir
Guðmundur, en hann hellti sér af
fullum krafti í bókina um strend-
umar síðari hluta ársins 1991.
„Perlumar" komu hins vegar út
árið 1990.
Þegar Guðmundur talar um
þunga meðgöngu á hann ekki hvað
síst við lokasprettinn, „álagið hefur
aukist jafnt og þétt og kórónaðist
í sjálfu prentverkinu. Síðustu tvær
vikumar hef ég lítið sofið, vann
kannski 18 til 20 tfma á sólar-
hring," segir hann.
Blendnar tilfinningar
Guðmundur er fæddur og uppal-
inn á Húsavík, en hefur búið vítt
og breitt um landið. Auk þess að
búa erlendis á meðan á námi stóð,
hefur hann og fjölskylda hans átt
heima í Reykjahverfí í Suður-Þing-
eyjarsýslu, á Blönduósi, Akureyri,
í Flatey á Breiðafirði og á Stokks-
eyri. Nú í seinni tíð búið í Stykkis-
hóimi, frúin, Ingunn K. Jakobsdótt-
ir, við kennslu, en Guðmundur í
„bókaútgerð" eins og hann kallar
það.
Guðmundur hafði kynnst bókaút-
gáfu áður en þrennan hans sem hér
hefur verið nefnd kom út. Eftir
hann er námsefni í líffræði fyrir
gmnnskóla gefíð út af Námsgagna-
3lofnun. Á seinni árum hafa einnig
komið út barnabækur um fugla,
húsdýr og fjörulífverur, gefnar út
af Máli og menningu. En hvemig
varð til sú hugmynd að færa út
kvíamar með svo eftirminnilegum
hætti?
„Mig hafði lengi langað til að
gera bók um náttúm landsins. Hug-
myndin var lengi að þróast en loks
eftir að samvinna var komin á við
bjartsýnan útgefanda fór dæmið
heldur betur að stækka. Það að
vinna svona verk er ákaflega heill-
andi, spennandi og jafn framt erf-
itt. Mikið andlegt álag og fjárhags-
lega mjög þungt í vöfum. Þótt verk-
efnið sé skemmtilegt þá er vinnan
ekki ávalt tekin út með sældinni.
Óttinn til dæmis við villur er voða-
legur. Þetta virðist samt hafa bless-
ast til þessa," segir Guðmundur.
Margar hugmyndir
Hefur hugmyndin gengið eins og
hún var lögð upp í byrjun?
„Já og nei. í upphafí var ég með
8 til 10 hugmyndir að bókum af
þessum toga. Perlumar vom til að
mynda ekki ein þeirra, en falla samt
vel í hópinn.“
Ertu að segja að út komi 8 til
10 bækur í þessari ritröð?
„Nei, ég er alls ekki að segja
það. Það hefur til dæmis ekkert
verið ákveðið um framhald á þessu
stigi. Hugmyndalega er ég kannski
vel birgur af efni fram undir miðja
næstu öld, en hugmynd eða löngun
er stundum annað en vemleiki.
Þessi verk mín hafa þó gengið eins
og í lygasögu. Vinnan við Fuglana
hófst 1986 og nýjasta bókin er að
koma út árið 1995. “
En hvað er annars um nýju bók-
ina, „Ströndin í náttúru Islands",
að segja?
„Bókin skiptist í tvo meginhluta.
Fyrri hlutinn heitir „Við öldubrot"
m * ■» M >
Blóðberg í óvenjulegu
umhverfi.
„Falla fossar...“
og fjallar um eðlislæga þætti
strandarinnar, s.s. sjóinn, gmnn-
sævi við ísland, ströndina í víðustu
merkingu orðsins, fomar strendur,
yngri strendur og núverandi strend-
ur. Það tengist allt í þessu, veður-
far, straumar, þróun lífs í hafínu
og myndun Norður-Atlantshafsins
og Islands.
Seinni hlutinn heitir „Seiður ís-
lenskra stranda“. Sá hluti skiptist
í tvennt. Sá fyrri heitir „Lífheimar
við sjó“ og seinni „Saga íslenskra
stranda". Fyrri kaflinn fjallar eins
og nafnið gefur til kynna um lífver-
ur á ströndinni. Ekki einungis sjáv-
ar- og fjörudýr, heldur einnig önnur
sem við sögu koma, s.s. fugla, seli,
hagamýs ofl. Þá er fjaran sjálf skoð-
uð vandlega og þar fá allar helstu
fylkingar lífheimsins sína umfjöll-
un.
Þá em skoðaðar nytjar í sam-
hengi við fæðuvef hafsins og þróun-
arsagan rakin nokkuð," segir Guð-
mundur.
Fyrirmyndirnar
Hvað má Segja að komi skemmti-
legast á óvart í þessum efnum?
„Það mætti nefna margt. Eflaust
er það hve strandlengjan er óhemju-
íjölbreytt fyrirbæri. Kannski kemur
sumum það á óvart hvað margar
fyrirmyndir uppfínningamanna em
að fínna meðal hinna ýmsu lífvera.
Flest af því sem við köllum nútíma
tæki og tól hafa áður verið þróuð
meðal smárra lífvera. Kúluhúsin em
t.d. ígulkerin. Borvélar em skráp-
tennur kuðunga, þrýstidælur em
sogfætur og sjóæðakerfi skrápdýra.
Lögun bíla og flugvéla, það er allt
að fínna í lífheiminum. Það er virki-
lega heillandi að skoða þessar sam-
svaranir," segir Guðmundur. Og
hann heldur áfram og greinir frá
lokakafla bókarinnar, „Saga ís-
lenskra stranda“.
„Þar reyni ég að flokka strendur
gróflega, svo sem eyjar, fírði, sanda
• —--------------------------------------------------------------
Litasam-
spil í fjöru-
polli.
Sumarnótt við strendur Breiðafjarðar.
Toppskarf-
ar og ritur
í kjörlendi
sínu í Flat-
eyjarskor.
Við ósa
Ölfusár.
Úr Flatey.
t
og þess háttar. í kaflanum er bæði
yfirlit og einstök svæði tekin fyrir.
Þetta efni er samofin náttúrusaga,
íslandssaga, gripið í atvinnusögu,
útþrá íslendinga, landafundi fyrri
tíma að ógleymdum ljóðum, þjóð-
sögum, munnmælum og dulúð
hvers konar. Það var raunar af svo
mörgu að taka að örðugt var að
takmarka efnið . Bókin fór hundrað
síðum fram úr áætlun. Hún hefði
auðveldlega getað orðið þúsund síð-
ur.“
í lokin er kafli sem ber heitið
„Dýrmæta strönd“ þar sem verð-
mæti strandar er tíundað og mikil-
vægi þess að varðveita strendur
landsins. Guðmundur, hvaða 1
kemur næst?
„Eins og ég sagði áðan, þá ve
bókaútgerðarmenn sem og fl
útgerðarmenn, að búa við mi
óvissu í artvinnumálum. Mig sk(
ir kannski ekki kvóta, en fran
þessara ritverka byggir á viðtök
fólks og getu til að kaupa svc
dýrar bækur. Ég vona svo sann
lega að bókaþjóðin þori að ferð
um ævintýralendur íslensl
stranda, framhaldið byggir á {;
og svo auðvitað því, eins og gar
fólkið er vant að segja, „ef guð 1
ar“,“ svarar Guðmundur F
Ólafsson.
Úthafsaldan.
á að seljast
Rýmum fyrir nýjum tækjum
Þvottavélar/Þurkarar
Eldavélar
Smátæki
Fyrstir koma - fyrstir fá
ALLT AÐ
Ofnar
Helluborð
Opið sunnudug Frú 10-iS
fleira oo fleira
Suðurlandsbraut 16, s. 880500.
M 9504