Morgunblaðið - 09.04.1995, Side 26
26 B SUNNUDAGUR 9. APRÍL1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN N UA UGL YSINGA R
Tónlistarkennarar
Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar
vantar píanókennara til starfa á næsta skólaári.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri
í síma 97-41375.
Skólastjóri.
Fjármálafulltrúi
Sjálfsbjörg, landsamband fatlaðra, óskar eft-
ir að ráða fjármálafulltrúa.
Starfið
Fjármálastjóm, afstemmingar, áætlanagerð,
umsjón með happdrætti og tölvumálum.
Leitað er að ábyrgum einstaklingi sem er
sjálfstæður og hefur tileinkað sér skipulögð
vinnubrögð. Góð framkoma skilyrði.
Æskileg menntun: Viðskiptamenntun eða
haldgóð starfsreynsla.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Auður
Bjarnadóttirfrá kl. 9-12. Vinsamlegast send-
ið umsóknir til Ráðgarðs á eyðublöðum, er
þar liggja frammi, merktar: „Fjármálafull-
trúi“, fyrir 19. apríl nk.
RÁÐGARÐUR hf.
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17105 REYK[AVÍK SÍMI616688
Tónlistarskóli
Mosfellsbæjar
Söngkennari
Staða söngkennara er laus til umsóknar við
Tónlstarskóla Mosfellsbæjar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri, störf sendist fyrir 30. apríl nk.
Skólastjóri.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarforstjóra vantar til sumarafleysinga
á Heilsugæslustöð Ólafsfjarðar og hjúkrun-
ar- og dvalarheimilið Hornbrekku.
Um er að ræða 50% stöðu á heilsugæslu-
stöðinni í 6 vikur og 100% stöðu á hjúkrunar-
heimilinu í 3 mánuði.
Nánari upplýsingar gefa hjúkrunarforstjór-
arnir Halla Harðardóttir og Sonja Sveinsdóttir
í síma 96-62480.
VÉLSKÓLI
ÍSLANDS
Kennarar ítækni-
og raungreinum
Vélskóli íslands óskar að ráða kennara til
starfa við skólann. Kennslan er bæði verkleg
og bókleg.
Kennslugreinar eru: Vélfræði, rafmagns-
fræði, raungreinar og kennsla á vélarúms-
hermi.
Umsækjandi þarf að vera vélfræðingur með
starfsreynslu. Framhaldsmenntun í vél-, raf-
magnstækni- eða verkfræði er æskileg.
Laun samkv. launakerfi opinberra starfs-
manna.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist til skólameistara Vél-
skóla íslands, Sjómannaskólanum við Há-
teigsveg, 105 Reykjavík, fyrir 1. júní 1995.
Skólameistari.
Bókhald - framtíð
Óskum að ráða vanan bókara í heilsdags-
starf. Um er að ræða starf hjá fyrirtæki í
smásöluverslun.
Umsóknir óskast sendar afgreiðslu Mbl. fyr-
ir 20. apríl nk. merktar: „B - 5615“.
„Au pair“ í Þýskalandi
Þýsk fjölskylda óskar eftir „au pair“-stúlku
til að passa dreng á 5. ári í eitt ár frá og
með 1. ágúst nk. Má ekki reykja.
Uppl. veitir Lóa Björnsdóttir, núverandi
„au pair“-stúlka, í síma 00 49 421 3469898.
Familie Diederichsen,
Benquestrasse 15,
18209 Bremen, Þýskalandi.
Heilsugæslu-
stöðvarnar á Kópa-
skeri og Raufarhöfn
Hjúkrunarfræðing og/eða Ijósmóður vantar til
að leysa af á stöðvunum vegna sumarleyfa.
Allar nánari upplýsingar gefa:
Iðunn s. 96-52161, Ingibjörg s. 96-51145,
Guðný eða Guðrún s. 96-52109.
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraþjálfarar
Dvalarheimilið Höfði, Akranesi, auglýsir hér
með eftir hjúkrunarfræðingi og sjúkraþjálfara
til starfa frá apríl/maí að telja.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
Upplýsingar um störfin gefa framkvæmda-
stjóri og hjúkrunarforstjóri í síma 93-12500
á skrifstofutíma.
Dvalarheimilið Höfði,
Akranesi.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Lyngási 7-9 - 210 Garðabæ - Sími 668800 - Fax 651967
Stærðfræðikennara
vantar í Fjölbrautaskólann í Garðabæ frá og
með næsta skólaári. Um er að ræða kennslu
í framhaldsáföngum í stærðfræði. Kennsla í
tölvufræði kemur einnig til greina, svo og
umsjón og eftirlit með tölvum.
Mikil vinna í boði fyrir góðan mann.
Nánari upplýsingar veita aðstoðarskólá-
meistari og áfangastjóri í síma 565-8800.
Skólameistari.
Húsvörður
1. maí til 30. september.
Húsfélagið Austurbrún 4, Reykjavík, óskar
að ráða húsvörð til starfa tímabilið 1. maí
til 30. september.
Starfið felst í almennri húsvörslu og eftirliti
með eigninni.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar. Umsóknum skal skil-
að á skrifstofu okkar fyrir kl. 16 miðvikudag-
inn 12. apríl.
Guðni Iónsson
RÁÐGTÖF & RÁÐNINGARÞTÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22
Fiskeldisstöðin
Nauteyri
við ísafjarðardjúp
óskar eftir starfskrafti (helst fjölskyldu).
íbúð fylgir.
Skriflegar umsóknir, ásamt meðmælum,
sendist til afgreiðslu Mbl., merktar:
„Staða - 15790“, fyrir 19. apríl.
■ Fiskvinnslufólk
- Noregur
Frystihús í Noregi óskar eftir vönu starfs-
fólki í snyrtingu og pökkun.
Ráðningartími minnst 1 ár. Góð laun íboði.
Upplýsingar hjá:
IngvarCo, Aðalstræti4, 101 Reykjavík, sími
564 2717 eftir kl. 13 mánudag - miðvikudags.
íþróttakennari!
Skólanefnd Grunnskólans á Flateyri óskar
eftir að ráða íþróttakennara til starfa frá og
með 1. september nk.
Á Flateyri er glæsileg sundlaug og íþrótta-
hús, sem verður tekið í notkun nk. sumar.
Allar nánari upplýsingar veitir formaður
skólanefndar, Ragna Óladóttir,
í síma 94-7731.
Skólanefnd Grunnskóla Flateyrar.
Prentsmiður
Ert þú prentsmiður með reynslu og áhuga
á faginu?
Við erum ungt, framsækið fyrirtæki og leitum
að manni sem getur unnið sjálfstætt að
nákvæmnisvinnu við Ijósaborð.
Áhugasamir sendið umsóknir, ásamt upplýs-
ingum um menntun, fyrri störf og annað, sem
gæti komið að gagni, til Mbl. fyrir 20. apríl,
merktar: „P - 10“. Farið verður með allar
umsóknir sem trúnaðarmál.
OFFSET
PUÓNUSmN
Loðnubræðsla á Norðausturlandi
óskar að ráða
vaktformann
til framtíðarstarfa.
Mikil og trygg vinna.
Þeir, sem áhuga hafa á starfinu, sendi um-
sóknir með upplýsingum, m.a. um fyrri störf,
til afgreiðslu Mbl. í umslagi, merktu:
„Vaktformaður", fyrir 12. apríl nk.
FJÖLBRAUTASKÓLI SUÐURLANDS
Aðstoðarskóla-
meistari
Laus er til umsóknar staða aðstoðarskóla-
meistara við Fjölbrautaskóla Suðurlands á
Selfossi. Staðan er veitt til 5 ára frá og með
1. ágúst 1995.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, berist skólameistara eigi síðar
en 10. maí 1995.
Skólameistari.