Morgunblaðið - 09.04.1995, Qupperneq 36
36 B SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Fórnarlömb Estóníuslyssins
Samkomulag um skaðabætur
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SAMTÖK þeirra sem komust af og
þeirra er misstu sína nánustu er
feijan Estónía fórst í Evstrasalti í
september hafa fallist á þær skaða-
bætur, sem þeim voru boðnar.
Um 2.400 manns fá samtals til
skiptanna hálfan milljarð sænskra
króna, eða nær fímm milljarða ís-
lenskra króna.
Meirihluti aðstandenda þurfti að
samþykkja tilboðið til að það gilti
og 98 prósent þeirra samþykktu
það. Enn er ófrágengið hvernig
gengið verður frá tryggingarmálum
skipveija er komust af og aðstand-
enda þeirra.
Féð skiptist misjafnlega á að-
standenduma en bætur til þeirra
nema frá sem samsvarar 400 þúsund
íslenskum krónum upp í um 23 millj-
ónir. Þeir sem komust af fá um 1,5
milljónir íslenskra króna í sinn hlut.
Þar með er ljóst að af hálfu þessa
hóps verða ekki stórbrotin málaferli,
en margir þeirra höfðu höfðu fengið
tilboð frá ýmsum bandarískum lög-
fræðingum. Þeir buðust til að höfða
mál, gegn því að fá skerf af hugsan-
legum bótum. Aðstandendur og þeir
sem komust af höfðu verið varaðir
við að í þessum hópi væru ýmsir
viðsjárverðir náungar, en málaferli
af þessu tagi eru algeng vestra. Um
níu hundruð manns fórust með feij-
unni. í áfangaskýrslu rannsóknar-
nefndar um Estóníu-slysið, sem ný-
lega kom út, segir að helstu ástæður
slyssins hafi verið hraði feijunnar,
veður og röng hönnun á stefni ferj-
unnar. Aðrar feijur í Eystrasalti
höfðu dregið úr hraða vegna veðurs
nóttina þegar Estónía fórst og sigldu
með 10-11 hnúta hraða en Estónía
sigldi með 14,5 hnúta hraða. Ástæð-
an fyrir því að skipstjórinn dró ekki
úr ferðinni upplýsist vart nokkurn
tíma, því allir, sem voru í brúnni
fórust. Þessi mikli hraði við slæmar
aðstæður álítur rannsóknarnefnd
slyssins að sé ein af þremur megin
ástæðum slyssins. Hinar tvær eru
veðrið og hönnun og frágangur
stefnisins.
Lokaskýrsla uni slysið verður til-
búin en í árslok. Ákveðið hefur ver-
ið að steypa nokkurs konar skjöld
utan um skipið til að koma í veg
fyrir að kafað verði niður að skipinu
af óviðkomandi aðilum.
Tilkynning til handhafa Debetkorta
frá Landsbanka íslands
Að höíðu samráði við Samkeppnisstofnun og Neytendasamtökin hafa verið gerðar nokkrar breytingar á
viðskiptaskilmálum vegna Debetkorta. Til að gefa sem gleggsta mynd af því í hverju breytingarnar eru fólgnar, birtast
hér að neðan þær greinar, sem taka efnislegum breytingum þann 25. apríl nk. og til samanburðar eldri skilmálar.
Sérstök athygli er vakin á ákvæðum greinar 14.1.
ELDRI SKILMÁLAR - útg. í desember 1993
A. ALMENNT UM DEBETKORT
6.4. Korthafi ber ábyrgð á öllum greiðslum/úttektum, sem verða
vegna notkunar Debetkorts hans, sbr. þó 10. gr. 2. mgr.
6.6. Korthafi ábyrgist tjón gagnvart bönkum og sparisjóðum, sem
verður vegna vanrækslu hans við vörslu eða notkun Debetkorts eða
leyninúmers þess.
7.3. Útgefendur Debetkorta eru ekki ábyrgir fyrir tjóni, sem verður
vegna lagaboða, aðgerða stjórnvalda, náttúruhamfara, stríðs, verkfalls,
verkbanns, skæruverkfalla eða annarra slíkra aðstæðna,
rafmagnstruflana eða rafmagnsleysis, né vegna truflana í símkerfi eða
öðrum boðleiðum eða samgöngum. Tjón, sem gæti orðið af öðrum
ástæðum, bætist ekki af útgefanda hafi hann sýnt eðlilega aðgæslu.
7.4. Útgefendur Debetkorta eru ekki ábyrgir fyrir tjóni né óhagræði,
sem verður vegna þess að móttöku Debetkorts er hafnað.
9.1. Notkun Debetkorts erlendis er heimil þar sem merki
MAESTRO/CIRRUS eða VISA ELECTRON er uppi. Af erlendum
viðskiptum og úttekt reiðufjár erlendis reiknast þjónustugjald, skv.
gjaldskrá.
10.2. Sjálfsábyrgð korthafa takmarkast við jafnvirði ECU 150 í ísl.
krónum, ef kort hans er notað af óviðkomandi aðila, áður en hvarf þess
uppgötvast og er tilkynnt skv. 1. tölulið.
10.3. Sérstök athygli er vakin á að korthafi ber fulla ábyrgð á úttektum
með glötuðu korti, sé tilkynningaskyldu ekki fullnægt strax og hvarf þess
uppgötvast. r
11.2. Við útgáfu korts greiðir korthafi sérstakt stofngjald auk venjulegs
árgjalds.
11.3. Banka/sparisjóði er heimilt að færa korthafa til gjalda á
viðskiptareikningi hans mánaðarleg færslugjöld fyrir notkun kortsins,
kostnað vegna reikningsyfirlita, kostnað vegna endurnýjunar korts,
árgjöld á 12 mánaða fresti og gjald vegna útvegunar afrits af sölunótu,
allt samkvæmt gjaldskrá hverju sinni.
14.1. Bankar/sparisjóðir áskilja sér rétt til að breyta notkunarreglum
þessum og skilmálum, enda séu þær breytingar auglýstar. Ef Debetkortiö
er notað eftir að breytingar hafa verið auglýstar, skoðast það sem
samþykki korthafa á þeim. Að öðrum kosti skal notkun kortsins hætt og
það tilkynnt bankanum/sparisjóðnum. Ef engin slík tilkynning berst innan
fjórtán daga frá auglýstri breytingu, skoðast hún samþykkt af korthafa.
NÝIR SKILMÁLAR - taka gildi 25. apríl 1995
A. ALMENNT UM DEBETKORT
6.4. Korthafi ber ábyrgð á öllum greiðslum/úttektum, sem verða
vegna notkunar Debetkorts hans, sbr. þó 10.2. og 13.1. og 13.2.
6.6. Korthafi ábyrgist tjón gagnvart bankanum, sem verður vegna
vanrækslu hans við vörslu eða notkun Debetkorts eða leyninúmers þess,
sbr. 10.2.
7.3. Útgefendur Debetkorta eru ekki ábyrgir fyrir tjóni, sem verður
vegna lagaboða, aðgerða stjórnvalda, náttúruhamfara, stríðs, verkfalls,
verkbanns, skæruverkfalla eða annarra slíkra aðstæðna,
rafmagnstruflana eða rafmagnsleysis, né vegna truflana í símkerfi eða
öðrum boðleiðum eða samgöngum.
7.4. Útgefendur Debetkorta eru ekki ábyrgir fyrir tjóni né óhagræði,
sem verður vegna þess að móttöku Debetkorts er hafnað sem greiðslu
hjá söluaðila eða í sjálfsafgreiðslutæki, né öðrum skaða, sem leitt getur
þaraf, sbr. þó 13.1. og 13.2.
9.1. Notkun Debetkorts erlendis er heimil þar sem merki
MAESTRO/CIRRUS eða VISA ELECTRON er uppi.
10.2. Sjálfsábyrgð korthafa takmarkast við jafnvirði ECU 150 í ísl.
krónum, ef kort hans er notað af óviðkomandi aðila, áður en hvarf þess
er tilkynnt. Þetta á ekki við ef um stórfellt gáleysi eða svik af hálfu
korthafa hefur verið að ræða. Tilkynningaskyldu ber að fullnægja svo
fljótt sem verða má eftir að hvarf korts uppgötvast.
11.2. Bankanum er heimilt að færa korthafa til gjalda á
viðskiptareikningi hans gjöld skv. gjaldskrá, sbr. grein 11.1.
13.1. Telji korthafi að hann hafi orðið fyrir skaða vegna tæknilegrar
bilunar í hraðbanka eða öðrum sjálfsafgreiðslutækjum, þá ber bankanum
fyrir hönd viökomandi sölu- eða þjónustuaðila að færa fram fullgild rök
fyrir því að búnaðurinn hafi starfað rétt þá er umrædd viðskipti fóru fram,
en er ella ábyrgur fyrir tjóninu.
13.2. Ábyrgð bankans takmarkast við beint fjárhagslegt tjón korthafa, en
nær ekki til annars skaða eða óþæginda, sem leitt geta af bilun
sjálfsafgreiðslubúnaðar. Bankinn ábyrgist ekki tjón þegar tæknibilun á að
vera korthafa Ijós, svo sem þegar skilaboð þess efnis koma fram á
tölvuskjá.
14.1. Bankinn áskilur sér rétt til að breyta notkunarreglum þessum og
skilmálum, enda séu þær breytingar tilkynntar korthafa með minnst 15
daga fyrirvara. í tilkynningu um breytta skilmála skal vakin athygli á
því í hverju breytingarnar felist og á rétti korthafa til að segja
samningi upp. Noti korthafi kort sitt eftir að breyttir skilmálar hafa
tekið gildi, telst hann samþykkur breytingunni.
B. DEBETKORT SEM GREIÐSLUKORT
B. DEBETKORT SEM GREIÐSLUKORT
5. Greiðslur með Debetkorti koma fram á reikningsyfirliti þess
viðskiptareiknings, sem kortið er tengt og korthafi fær sent frá
banka/sparisjóöi með umsömdu millibili. Á yfirlitinu kemur fram nafn
seljanda, þar sem kortið var notað, ásamt dagsetningu og upphæð. Ef
um erlend viðskipti er að ræða kemur einnig fram upphæð kauplandsins.
Ef korthafi hefur athugasemdir við reikningsyfirlit sitt, ber honum að
tilkynna það banka/sparisjóði sínum innan 20 daga frá móttöku þess.
5. Greiöslur með Debetkorti koma fram á reikningsyfirliti þess
viðskiptareiknings, sem kortið er tengt og korthafi fær sent frá bankanum
með umsömdu millibili. Á ýfirlitinu kemur fram nafn seljanda, þar sem »
kortið var notað, ásamt dagsetningu og upphæð. Ef um erlend viðskipti fj
er að ræða kemur einnig fram upphæð kauplandsins. Ef korthafi hefur í!;
athugasemdir við reikningsyfirlit sitt, ber honum að tilkynna það
bankanum innan 20 daga frá móttöku þess. í vafatilvikum hvilir j
sönnunarbyrðin á kortaútgefanda.
Reglur og skilmálar um Debetkort liggja frammi á öllum afgreiðslustöðum bankans.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Tillögur
um skatta-
lækkun sam-
þykktar
Washington. Reuter.
FULLTRÚADEILD Bandaríkja-
þings hefur samþykkt tillögur repú-
blikana um skattalækkanir er nema
eiga um 189 milljörðum dollara á
næstu fimm árum. Búist er við að
tillögumar, sem eru eitt mikilvæg-
asta kosningaloforð repúblikana,
verði fyrir nokkrum breytingum í
meðferð öldungadeildarinnar og
mæti andstöðu af hálfu Bills Clint-
ons forseta.
Sumir af ráðgjöfum forsetans
segjast ráðleggja honum að beita
neitunarvaldi gegn tillögunum. For-
setinn hefur sjálfur lagt fram tillög-
ur um skattalækkanir en í þeim eru
áherslur aðrar en í hugmyndum
repúblikana.
Newt Gingrich, forseti fulltrúa-
deildarinnar, hrósaði mjög skattatil-
lögunum. sagði m.a. að með þeim
væri tryggt að fjölskyldan yrði efld
og atvinna ykist. Atkvæði féllu
246-188, tillögunum í vil og reynd-
ust 27 demókratar hafa slegist í lið
með repúblikönum í málinu. Repú-
blikanar hafa einnig meirihluta í
öldungadeildinni.
Skattar verða lækkaðir um sem
svarar 500 dollurum, 32.000 krón-
um, árlega á hvert barn hjá fjöl-
skyldum með tekjur í meðallagi eða
háar tekjur. Tekjuskattar fyrir-
tækja lækka og skattar á fjár-
magnstekjur lækka.
Flestir demókratar segja að repú-
blikanar hyggist með tillögunum
bæta hag auðugra Bandaríkja-
manna á kostnað fátækra og hug-
myndirnar geri erfiðara en ella að
jafna fjárlagahallann fyrir árið
2002 eins og stefnt er að.
------» ♦ ♦-----
Svínslegt
flug
London. Reuter.
FLUGVÉL á leið frá London til
Suður-Afríku var að snúa við og
nauðlenda í Bretlandi sökum
þess að hiti, þvag og sviti svína
sem um borð voru, settu bruna-
kerfi vélarinnar i gang.
Alls voru 72 svín og um 300
manns um borð í vélinni. Metan-
gas í þvagi dýranna og mikill
hiti sem myndaðist, settu bruna-
kerfið I gang og drápust fimmtán
svínanna er gas úðaðist úr sjálf-
virku brunavarnarkerfi flugvél-
arinnar.
TILBOÐ ÍAPRÍL
^Barnafe kr. 50
^^gnjiil^r_kc-ZQ
lítri kr. 274
2m
SVARTISVANURINN
SÖLUTURN - MYNDBANDALEIGA - ÍSBÚÐ
LAUGAVEGI 118 REYKJAVÍK - SÍMI 551 6040