Morgunblaðið - 03.09.1995, Side 1
80 SIÐUR B/C
199. TBL. 83. ÁRG.
SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Kvennaráðstefnan
Hóta að
hætta
Huairou, Peking. Reuter.
FORRÁÐAMENN óopinberu
kvennaráðstefnunnar í Huairou
hafa gefið kínverskum stjómvöld-
um frest fram að hádegi í dag,
sunnudag, til að hætta ströngu eft-
irliti með og linnulausri áreitni á
þátttakendur ráðstefnunnar. Að
öðmm kosti hóta þeir að slíta ráð-
stefnunni.
Sæta eftirliti
Að sögn forráðamannanna hafa
fulltrúar mannréttindasamtaka ver-
ið undir ströngu eftirliti og fulltrúar
róttækra kvenréttindahreyfinga
þurft að þola margs konar átroðn-
ing og ónæði af hendi yfirvalda.
Eftirlit, áreitni, takmörkun ferða-
frelsis og ófullnægjandi aðstaða eru
nokkur gagnrýniatriði, sem for-
ráðamennirnir vildu ræða í gær við
kínverska ráðamenn, sem nálægt
ráðstefnuhaldinu koma.
Nokkrir ráðstefnugesta hafa lent
í því að öryggisverðir geri húsleit
í herbergjum þeirra um miðja nótt
og sumum hefur meira að segja
verið hent út úr hótelherbergjum
sínum.
Irene Santiago, framkvæmda-
stjóri ráðstefnunnar, sagði stjórn-
völdum í Peking hafa verið gefinn
frestur til hádegis í dag til að upp-
fylla skilyrði samkomulags, sem
skuldbindur þau til að láta af eftir-
liti og áreitni.
Á fréttamannafundi sem Human
Rights Watch hélt á föstudag til
að kvarta yfir afskiptum yfirvalda
sagði Dorothy Thomas, sem er yfir
þeirri deild samtakanna sem sér um
kvenréttindi, að „Kína sé gestgjafi
ráðstefnu, þar sem mannréttindi
kvenna eru aðalumijöllunarefnið,
en þrátt fyrir það þurfa þátttakend-
ur ráðstefnunnar að þola brot á
grundvallarmannréttindum.“
Blaðaútgáfa hindruð
í tengslum við óopinberu ráð-
stefnuna eru gefin út mörg frétta-
blöð og tímarit. Útgáfa eins þeirra,
The Earth Times, sem m.a. Hillary
Rodham Clinton, eiginkona Banda-
ríkjaforseta lagði til efni í, hefur
frestast í marga daga vegna af-
skipta Kínverja.
Áróðursmálayfirvöld stjórnarinn-
ar í Peking halda vakandi auga
yfir öllum fjölmiðlum og beitta rit-
skoðun. Kínverjar eiga mjög erfitt
með að sætta sig við að þurfa að
leyfa útgáfu erlendra blaða innan
landamæra alþýðulýðveldisins.
Reuter
Átök
á fundi
FUNDI vinnuhóps útlægra Tíb-
et-kvenna var slitið er miklar
deilur brutust út. Einungis níu
konum, sem eru í útlegð frá
Tíbet, tókst að fá vegabréfsárit-
un til að sækja óopinberu
kvennaráðstefnuna. Á fundin-
um var sýnt myndband, þar sem
tvær konur, sem flúið höfðu frá
Tíbet, lýstu lífi sínu undir stjórn
Kínveija. Að sýningu þess
loknu tók tíbetskur fulltrúi,
skipaður af Kínverjum, til máls
og gerði sig líklegan til að halda
ræðu. Utlagakonurnar sögðu
fulltrúanum að honum væri ein-
ungis leyfilegt að bera upp
spurningar en ekki halda nein-
ar ræður. Mikil hróp og læti
upphófust, sem fóru úr böndun-
um, svo slíta varð fundinum.
Bernard Janvier og Ratko Mladic ræða brottflutning þungavopna
NATO í viðbragðsstöðu
eftir óljós svör Serba
Belgrað, Zagreb. Reuter.
Reuter
Arafat hittir páfa
LITILL árangur varð af þrettán
klukkustunda viðræðum Bernards
Janviers, yfirmanns herafla Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) og
SÞ í Bosníu, og Ratkos Mladics,
hershöfðingja Bosníu-Serba, sem
stóðu fram á laugardagsmorgun.
Sólarhrings hlé var gert á loftárás-
um Atlantshafsbandalagsins á Bos-
níu-Serba á föstudag, sem átti að
gefa þeim ráðrúm til að draga
þungavopn sín umhverfis Sarajevo
til baka.
Mladic setti fram gagnkröfur
Mladic var ófáanlegur til að gefa
skýr svör á fundinum og veitti
Janvier engar tryggingar fyrir því
hvað herafli Bosníu-Serba myndi
gera á næstunni. Mladic, sem er
kunnur fyrir að tefla á tæpasta vað
í samningaviðræðum lagði fram
ýmsar gagnkröfur á fundinum. Eft-
ir að viðræðunum var slitið voru
orrustuflugvélar NATO settar í við-
bragðsstöðu á ný.
Farnar hafa verið rúmlega 800
árásarferðir og meira en 1.200
sprengikúlum skotið á Serba frá
því að árásirnar hófust á miðviku-
dag, en markmið þeirra er að þvinga
Serba að samningaborðinu.
Árásirnar hafa nú þegar leitt til
að Richard Holbrooke, sérlegur
sendimaður Bandaríkjastjórnar,
hefur tekizt að koma á friðarvið-
ræðum við Bosníu-Serba fyrir milli-
göngu Slobodans Milosevics, for-
seta Serbíu. Fyrir tilstilli Holbrook-
es hafa utanríkisráðherrar Bosníu,
Króatíu og „Júgóslavíu", Serbíu og
Svartfjallalands, fallizt á að mætast
á fundi í Genf í vikunni. Vonir eru
bundnar við að viðræðurnar marki
lok stríðsátaka og upphaf endan-
legra friðarsamninga. Rýr svör
Mladics til þessa hafa hins vegar
sett yfirstjórn herafla NATO og SÞ
í þá óþægilegu stöðu að þurfa að
velja á milli þess að halda loftárás-
unum áfram, treysta á friðarvið-
ræður eða sætta sig við minna en
krafizt hefur verið.
Stjórnarher múslíma í Bosníu
hefur lýst því yfir að hann muni
bijóta umsátrið um Sarajevo á bak
aftur ef NATO og SÞ standa ekki
við gefin loforð.
JÓHANNES Páll páfi átti á Iaug-
ardagsmorgun fund með Yasser
Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka
Palestínu, í sumarhöll sinni Ca-
stelgandolfo. Arafat er koniinn til
Ítalíu til viðræðna við ítalska ráða-
menn og Shimon Peres, utanríkis-
ráðherra Israels.
Sagan
endalausa
10
I landi
óttaog
ófriðar