Morgunblaðið - 03.09.1995, Page 8
8 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kvennalistinn auglýsir eftir efnahagsbatanum og talar um:
Uss, þú ert með bandvitlaus gleraugu, Stína mín. Maður þarf að vera með réttu græjurn-
ar til að geta fílað efnahagsbatann, góða....
Arctic Air Tours 1 samstarf
við breska fyrirtækið IAG
FORSVARSMENN flugfélagsins
Arctic Air Tours og breska flug-
rekstrarfyrirtækisins IAG skrifuðu
undir samstarfssamning í aðalstöðv-
um IAG í Bretlandi síðastliðinn föstu-
dag.
Að sögn Gísla Amar Lárussonar,
framkvæmdastjóra Arctic Air Tours,
felst meðal annars í samningnum að
IAG sjái um reglulegt flug fyrir
Arctic Air á milli Lundúna og Kefla-
víkur, frá og með 1. október næst-
komandi. Akveðið sé að fargjald
fram og til baka kosti 19.880 auk
flugvallarskatts, óháð því hvenær
farið sé bókað. „Samningurinn stað-
festir einnig vilja forráðamanna IAG
um að koma inn sem hluthafar í
Arctic Air Tours. Nánar verður geng-
ið frá því auk annarra tæknilegra
atriða samningsins á næstu dögum.
Þá er fyrirhugað að hluthafahópur-
inn verði stærri þegar fram í sækir.“
Fyrirtækið LAG er sérhæft í rekstri
ferðaskrifstofa og flugreksturs. Það
á þijár Boeing 737-200 flugvélar en
leigir auk þess og rekur fleiri vélar.
„Einnig rekur fyrirtækið ferðaskrif-
stofur víða í Bretlandi og hefur
einkaleyfi á að selja ákveðinn fjölda
sæta fyrir flugfélög á borð við Amer-
ican Airlines og Lufthansa. Flug-
rekstrarfyrirtækið IAG býður þau
sæti til um tólf hundruð ferðaskrif-
stofa. Arctic Air kemur til með að
hafa aðgang að því kerfi og hefur
þar með möguleika á að bjóða far-
þegum sínum sérfargjöld á flugi frá
Lundúnum". Hann segir að búið sé
að sækja um ferðaskrifstofuleyfi hér
á landi fyrir Arctic Air- Tours. Þang-
að til slíkt leyfi verði veitt munu
aðrar ferðaskrifstofur sjá um útgáfu
á farmiðum fyrir félagið. „Á næstu
dögum mun félagið einnig sækja
fonnlega um flugrekstrarleyfi.“
í dag eru tveir hluthafar í Arctic
Air Tours, annars vegar Gísli Öm
Lárusson og hins vegar fyrirtækið
Allrahanda í eigu Þóris Garðarssonar
og Sigurdórs Jónssonar.
• Suöuramerískir dansar
• Standard dansar
• Barnadansar
• Gömlu dansarnir
Nýtt: • ROKK • ROKK • ROKK,
kennari Óli Geir.
Einkatímar í boði. Systkina-, fjölskyldu- og
staögreiösluafsláttur.
Innritun og upplýsingar
september kl. 10 - 22
1. - 10.
i-22^
í sima 564 1111.
Opið hús öll laugardagskvöld.
Kennarar og aöstoöarfólk ; vetur: Sigurður,
Óli Geir, Þröstur, Hildur Yr, Edgar og
Ragnheiður, auk erlendra gestakennara.
Dansskóli Siguröar
Auðbrekku 17, Kópavogi.
Iðnó - Menningarhús við Tjörnina
Framtíð Iðnó
er í stórhættu
Inga Bjarnason
TILLÖGUR hafa
verið lagðar fram
af nefnd á vegum
Bandalags íslenskra lista-
manna um nýtingu Iðnós
sem menningarhúss. í
nefndinni áttu sæti Inga
Bjarnason leikstjóri,
Hjálmar H. Ragnarsson
tónskáld og Guðrún Al-
freðsdóttir leikari. í tillög-
um nefndarinnar er gert
ráð fyrir að starfsemi
verði í húsinu allan ársins
hring. Starfsemin myndi
og ná til flestra listgreina.
Þar myndu fara fram leik-
sýningar af öllu tagi,
bæði atvinnuhópa og ann-
arra. Það sama ætti við
um tónlist, í húsinu væri
hægt að standa fyrir tón-
leikum starfandi tón-
listarfélaga sem og „fijálsra“
tónlistar- og sönghópa; jafnvel
mætti setja upp smærri óperu-
verkefni í húsinu. Standa mætti
fyrir smærri dans- og myndlist-
arsýningum og halda bókmenn-
takvöld og -hátíðir. Húsið hent-
ar og vel til funda- og ráðstefnu-
halda, dansleikja, sumarsýninga
fyrir erlenda ferðamenn o.s.frv.
í tillögunum er gert ráð fyrir
að Iðnó yrði í eigu Reykjavíkur-
borgar en að hlutafélög utanað-
komandi aðila stæðu að rekstri
hússins. Yfirumsjón hefði 3-5
manna hússtjórn skipuð fulltrú-
um eigenda, rekstraraðila og
fulltrúa Bandalags íslenskra
listamanna. Framkvæmdastjóri
yrði í fullu starfi og sæi um
daglegan rekstur, bókanir og
kynningar á starfsemi hússins.
Húsvarðar- og skrifstofustarf
yrði hvort um sig hálft starf.
Inga Bjarnason segir að Iðnó
eigi að vera vettvangur fyrir
hvers konar menningarstarf-
semi. „Það þarf að virkja allan
þennan sköpunarkraft sem býr
í listamönnum hér. Við erum
t.d. að gera tilraun til að sýna
fram á hvernig hægt er að nota
húsið með því að setja þar upp
Trójudætur eftir Evrípídes. Við
ætlum að vera með málverka-
sýningu meðfram uppfærslunni
en sýningin er byggð upp á
samstarfi margra listgreina;
þátt taka dansarar, leikarar,
óperusöngvarar og hljóðfæra-
leikarar. Við sem stöndum að
þessari uppfærslu eigum enga
peninga en ætlum ekki að láta
það hindra okkur því -okkur
þykir við bera skyldu til að leika
harmleikina grísku.“
- Hefur þú áhyggjur af
framtíð Iðnós?
„Ég hef lengi haft áhyggjur
af Iðnó og ég er dauð-
hrædd um að það
verði eitt kaffihúsið í
bænum í viðbót. Hús-
ið er í raun í stór-
hættu. Þetta er eitt
sögufrægasta hús á landinu
hvað varðar menningu, þarna
voru t.d Galdra-Loftur og
Fjalla-Eyvindur frumsýndir og
þarna voru haldnir dansleikir
og tónleikar á sínum tíma. Við
viljum að svo verði áfram. Mér
sýnist að það sé nóg af stofnun-
um sem hýsa menningarstarf-
semi en það vantar óháð fjöl-
nota hús sem allar listgreinar
eiga aðgang að og meira er lagt
upp úr innihaldi en umbúðum.
Ég held því að það væri nokkuð
►Inga Bjarnason er fædd í
Reykjavík árið 1951. Hún nam
leiklist á Bretlandi og starfaði
þar sem leikari í 7 ár. Hún
hefur fengist við leikstjórn og
kennslu á Bretlandi og fs-
landi. Hér hefur hún aðallega
starfað fyrir Alþýðuleikhúsið
en nú er hún leikstjóri Hvunn-
dagsleikhússins. Eftir áramót
mun hún setja upp Kvásar-
valsinn eftir Jónas Árnason í
Borgarleikhúsinu.
klókt af stjómvöldum að gefa
okkur listamönnum tækifæri til
að reka í húsinu menningar-
starfsemi í hálft ár án íhlutunar
eins eða neins. Við gætum svo
séð til hvað kemur út úr því.
Við höfum séð þetta gert nú
nýlega af forsvarsmönnum
Óháðu listahátíðarinnar og mér
sýnist sem það hafi gengið vel.“
- Myndi ríkið ekki alltaf
þurfa að bera kostnaðinn af
starfseminni að einhveiju leyti?
„Á íslandi er varið minna fé
til lista en í öllum öðrum sið-
menntuðum löndum þannig að
þessi margumtalaða jata okkar
er afskaplega mögur. Ríkið þarf
einungis að gera okkur kleift
að vera sjáifstætt fólk og þá
held ég að það sé nægur mark-
aður fyrir iist á íslandi. Lista-
menn þurfa heldur ekki að hafa
eins mikið af drasli í kringum
sig og fólk heldur. Það er ekki
eins mikið fyrirtæki og fólk
heldur að reka svona menning-
arhús. Því til áréttingar get ég
bent á að ég legg u.þ.b. 60.000
krónur í uppfærslu mína á
Trójudætrum.
- Hvað finnst þér um gler-
viðbygginguna á Iðnó?
„Ég verð að segja
að mér finnst þetta
mun fallegra en sá
skúr sem var þarna
fyrir. Það virtist
reyndar enginn hafa
neina skoðun á þeirri byggingu.
Mér finnst það svo mikil sóun
að rífa glerskálann; það væri
hægt að nota þær tvær milljón-
ir sem niðurrifið kostar í lagfær-
ingar innandyra. Auk þess nýt-
ist skálinn húsinu ágætlega. Ég
held að fólk hljóti að venjast
þessu eins og öðru. Þar að auki
þykir mér innihaldið mikilvæg-
ara en útlitið og það 'er það sem
ég er að reyna að segja með
uppfærslu minni á Trójudætr-
um.
Nægur mark-
aður fyrir list
á íslandi