Morgunblaðið - 03.09.1995, Side 11

Morgunblaðið - 03.09.1995, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995 11 Stöð 2. Bankinn þuifi að koma miklu fjármagni fyrir í hverjum ein- asta mánuði og hafi talið þetta álit- legan kost, ef allt gengi að óskum. Hann telur ekki að neitt annað vaki fyrir bankanum. Önnur sjónarmið hefðu hins vegar getað verið með í reikningsdæminu ef um hefði verið að ræða erlenda sjónvarpsstöð, eins og komið hefði til greina. Bendir hann á að þó þessi samningur þyki stór á íslandi sé hann aðeins miðl- ungssamningur í Bandaríkjunum. „Það er gott fyrir íslenskt viðskipta- líf að erlendur banki skuli hafa áhuga á að fjárfesta hér. Það gæti hjálpað öðrum fyrirtækjum að fjár- magna góðar hugmyndir,“ segir Guðmundur. Sigurður segir að erlendu banka- mennirnir hafi greinilega vitað hvað þeir voru að gera. „Það kom mest á óvart hvernig þeir nálguðust verk- efnið. Þeir þekkja ljölmiðla út og inn og gengu beint til verks, spurðu um alla þá hluti sem hægt var að láta sér detta í hug að spurt yrði um og rúmlega það. Veltu um hveijum steini í fyrirtækinu og skoðuðu und- ir,“ segir Sigurður. Oppenheimer dró sig meira í hlé þegar búið var að koma á sambandi milli Chase og íslenska útvarpsfé- lagsins. Eftir það áttu íslensku hlutahafarnir bein samskipti við starfsmenn bankans, einkum Jón Ólafsson, Siguijón Sighvatsson og Sigurður G. Guðjónsson. Sigurður segir að ágætis samband hafí mynd- ast milli manna. Segir að erlendu bankamönnunum hafi litist vel á þá Jón og Sigurjón sem leiddu viðræð- urnar af hálfu Islendinganna og þeir hafi til dæmis talið Jón einkar færan á þessu sviði. Patrick Cleary var aðalsamningar Chase Manhattan-bankans og skál- aði við ráðmenn íslenska útvarpsfé- lagsins eftir undirskriftina í mynd- veri Stöðvar 2 að morgni laug- ardagsins. Ert þú hræddur? Guðmundur Franklín hefur það eftir Oppenheimermönnum að síð- ustu dagarnir fyrir undirritun samn- inganna og frágangur þeirra hafi verið mikil þrautaganga. Þeir hafi ekki komist í hann krappari í svona viðskiptum. Hann vill hins vegar ekki fara nánar út í þá sálma. Hvorki Guðmundur Franklín né Beesmayer og Duttenhofer voru hér þegar skrifað var undir og fylgdust því meira með úr íjarlægð. Þegar skrifa átti undir samninga Útheija og íslenska sjónvarpsfé- lagsins við Chase á föstudaginn fyr- ir viku kom í ljós að Chase hafi ekki náð samningum um breytingar á skuld íslenska útvarpsfélagsins við Lyngháls hf. sem fjármagnað hafði myndlyklaskiptin á Stöð 2. Tafðist undirskriftin vegna þess. Sigurður G. Guðjónsson segir að það mál hafi aldrei teflt málinu í tvísýnu því fulltrúar bankans hafi lýst því yfir að þeir myndu einfaldlega greiða þennan 400 milljóna króna samning upp ef ekki tækist sam- komulag við Lyngháls. Þennan sama dag komu fréttir í útvarps- og sjónvarpsstöðvunum um áform nýju sjónvarpsstöðvarinnar, þar sem fram kom að Árvakur hf., útgáfufélag Morgunblaðsins, hefði ákveðið að gerast hluthafí. Einn hluthafí úr minnihlutanum telur að þessari frétt hafi verið lekið í fjöl- miðla í þeim tilgangi að reyna að eyðileggja þau viðskipti sem verið var að ganga frá milli hluthafa Stöðvar 2 og við erlenda bankann. Fréttin hafí haft slæm áhrif á við- kvæmum tíma. Bendir hann á að þessi frétt hafí fyrst komið á út- varpsstöðinni FM sem er í eigu Árna Samúelssonar í Sambíóunum, aðal hvatamanns að stofnun nýju sjónvarpsstöðvarinnar. Þar var fjall- að um Islenska sjónvarpið hf. og þátttöku Árvakurs hf. í dægur- mælaþætti á föstudagsmorguninTi og aðrar stöðvar tóku málið upp í framhaldinu og fengu þetta stað- fest. Sigurður G. Guðjónsson neitar því að fréttir af væntanlegri sam- keppni hafi haft áhrif á samningana þennan föstudag. „Bankinn vissi , allt um þetta mál. Líka þátt Morg- unblaðsins í því.“ Hann staðfestir þó að þetta hefði verið rætt um Skálað SÍMON Á. Gunnarsson endurskoðandi og Sigurjón Sighvatsson skála við aðalsamningamann Chase Manhattan, Patrick Cleary. Fallist í faðma JÓN Ólafsson og Patrick Cleary fagna samkomulagi með því að fallast í faðma og Sigurður G. Guðjónsson fylgist ánægður með. kvöldið. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins sagðist Patrick Cle- ary, aðalsamningamaður Chase Manhattan-bankans, vita um vænt- anlega samkeppni þegar Jón Ólafs- son spurði hann um það. Banda- ríkjamaðurinn hefði þá spurt Jón hvort hann væri hræddur en Jón svarað: Nei, en ert þú hræddur? Og svarið hafi enn verið nei. Þannig hafi málið verið afgreitt milli þess- arra tVeggja manna. Sigurður kann- ast við þessi orðaskipti og fleiri milli íslensku og erlendu samninga- mannanna um þetta mál. En það hefði ekki raskað ró manna og báð- ir aðilar fagni samkeppninni. Fleira gekk á um kvöldið og að- faranótt laugardagsins. I samning- um um kaup á bréfum minnihlutans undirgangast seljendur kvaðir um að þeir taki ekki þátt í samkeppni næstu fjögur árin. Einn seljandinn segir að um nóttina hafi Siguijón Sighvatsson heyrt að einhver úr minnihlutahópnum ætlaði að vera með í nýju stöðinni og hafi Siguijón ítrekað mjög ákveðið við lögfræðing minnihlutans að staðið yrði við þessi ákvæði og sagt að því yrði fylgt eftir. Seljandinn segir að það hafi verið nefnt við sig og fleiri úr minni- hlutanum að ganga til liðs við eig- endur nýju stöðvarinnar en hann vissi ekki til þess að neinn myndi gera það, þó ýmsir möguleikar væru á því að komast fram hjá skilyrðum samningsins. Verðlagt eftir sjóðsstreymi Spurningar hafa vaknað um verð hlutabréfanna, hvort fjórfalt nafn- verð sé ekki hátt, miðað við að þeg- ar valdabaráttan var í fullum gangi fór verðið hæst upp í þrefalt nafn- verð. Guðmundur Franklín segir að það hafi verið töluvert mál að kom- ast að sanngjörnu markaðverði. Aðilar hafi að lokum komist að sam- eiginlegri niðurstöðu. Sigurður Guð- jónsson segir að seljendurnir hafi verið með hugmyndir um mun hærra verð, þó ekki hafi komið fram ákveðið gengi. Hins vegar hafi meirihlutanum verið ljóst að þeir kæmu verði bréfanna ekki niður fyrir fjórfalt nafnverð. Miklar deilur voru um stjórn fyr- irtækisins og fulltrúar minnihlutans stóðu í harðri baráttu fyrir hags- munum sínum. Sigurður segir að þó ljóst hafi verið að ekki væri hægt að stjórna fyrirtækinu áfram við þessar aðstæður hafi deilurnar ekki orðið til að hækka verð bréf- anna. „Þau voru verðlög á faglegan hátt, fyrst og fremst út frá sjóðs- streymi i fyrirtækinu,“ segir hann. Það kemur fram hjá Guðmundi og Sigurði að bandaríska verðbréfafyr- irtækið og bankinn verðleggja Stöð 2 meira út frá rekstrinum sjálfum, ekki síst fjármunamyndun í fyrir- tækinu, en líta ekki eins mikið á eigið fé og skuldir og gert er við sambærilega vinnu hér á íslandi. Ný samkeppni getur haft áhrif á þessa þætti og segir Sigurður að erlendu bankamennirnir hafí tekið mið af því hvaða áhrif hún gæti mest haft á rekstur Stöðvar 2 í sín- um áætlunum. Sigurður lætur þess sérstaklega getið í samtali við blaðamann að Stöð 2 hafi samninga við alla stærstu dreifingaraðila sjónvarps- efnis. Sjónvarpsrétturinn fylgi ekki sjálfkrafa kvikmyndahúsunum inn í nýja sjónvai-psstöð. Um hann verði að semja sérstaklega. 100 milljónir í sölulaun Gömlu eigendurnir virðast vera ánægðir með söluverðið. Talið er að margir hafí keypt hlutabréf sín á genginu 1,7 og selja því á meira en tvöfalt hærra verði. Þeir fá því dálaglegan söluhagnað, eins og fram hefur komið. Þess ber þó að geta að við útreikning söluhagnaðar þarf að draga sölukostnað frá sölu- verðinu og sölulaun í þessum við- skipum eru hærri en tíðkast al- mennt í viðskiptum hér á landi. Seljendur hlutabréfanna greiða Op- penheimer 7% sölulaun, auk kostn- aðar. Er talið að sölukostnaðurinn nemi um eða yfir 100 milljónum kr. Samsvarar það 10% af þeim millj- arði sem skipti um eigendur. Auk þessa þurfa seljendur væntanlega að greiða lögfræðikostnað hér heima og ýmsan annan kostnað. Chase Manhattan-bankinn greið- ir Oppenheimer fyrir að hafa komið á sambandi um lánssamninginn en þar er um mun lægri fjárhæðir að ræða, hugsanlega 1% af 1,2 millj- arði kr. eða 12 milljónir kr. Til samanburðar má geta þess að einkavæðingarnefnd síðustu rík- isstjórnar greiddi Verðbréfamarkaði íslandsbanka rúmar 11,4 milljónir fyrir verðmat og sölu á SR-mjöli hf. Samsvarar það tæpu 1,6% af söluverðinu sem var 725 milljónir kr. Var sala ríkisfyrirtækjanna að jafnaði boðin út til verðbréfafyr- irtækja, svo og kostnaður við undir- búning. Annað dæmi er Lyfjaversl- un íslands hf. sem seld var fyrir um 400 milljónir kr. Var það talin flóknari sala vegna þess að hluta- bréfin voru seld til margra aðila og sölulaunin því hærri. Landsbréf tóku 2,15% sölulaun en kostnaður við verðmat var tiltölulega mikill, 2 milljónir kr., vegna þess að meta þurfti fyrirtækið tvisvar. Sölukostn- aðurinn var alls 10,6 milljónir eða sem svarar 2,65% af söluverði. Sá mikli sölukostnaður sem selj- endur hlutabréfanna í Stöð 2 greiddu lækkar að sjálfsögðu raun- vérulegt gengi bréfanna, eða úr 4 í um 3,6. Þrátt fyrir það hefur raun- verð stórs hluta hinna seldu hluta- bréfa tvöfaldast í höndum eigend- anna á tiltölulega stuttum tíma. Og þeir fá bréfin staðgreidd. Þeir hljóta því að geta vel við unað, sérstaklega í ljósi þess að þeir höfðu ekki mikla trú á verðgildi þessarra pappíra eft- ir að nýir aðilár náðu yfirráðum í fyrirtækinu. Einn úr minnihlutahópnum segist ekki vilja vera í þeim sporum að vera kaupandi að hlutabréfunum í íslenska útvarpsfélaginu á þessu verði. Hann kunni ekki þær reikn- ingskúnstir sem dugi til að réttlæta þetta verð fyrir svona skuldum vaf- ið fyrirtæki. Búið sé að ráðstafa hagnaði fyrirtækisins mörg ár fram í tímann. Hann gagnrýnir stjórnun fyrirtækisins og segir að margir séu óánægðir með dagskrá Stöðvar 2. Ekki þurfí mjög margir áskrifendur að segja upp áskrift sinni þegar ný sjónvarpsstöð tekur til starfa til að hagnaðurinn hverfí. Vonast eftir samstarfi við erlenda sjónvarpsstöð Eigendur félagsins líta þetta öðr- um augum, samkvæmt upplýsingum blaðsins. Nauðsynlegt hafí verið að losna út úr deilum við minnihlutann en fleira hafí komið til. Þeir hafa allt þetta ár verið í þreifingum við erlendar stjónvarpsstöðvar um þátt- töku í fyrirtækinu og í þeirra röðum eru vonir bundnar við að hægt verði að selja hluta af bréfunum innan árs. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru þeir ekki að hugsa um fjörfalt nafnverð, heldur tvöfalda þá fjárhæð. Því til viðbótar kæmi yfírburðastaða í efniskaupum fyrir íslenska markaðinn. i frétt Morgun- blaðsins í lok apríl kom fram hjá Sigurði G. Guðjónssyni að það væri til í dæminu að ieita til erlendra aðila sem hefðu áhuga á að eignast hlut í félaginu og reka það í sam- vinnu við núverandi eigendur. Er- lendir aðilar hafi löngum sýnt félag- inu áhuga. Væntanlega er verið að vísa til þess sama nú. Á þessum tima var nefnd sú skýr- ing á áhuga bandarískra fjölmiðla- fyrirtækja á að eignast hlut í ís- lenska útvarpsfélaginu, að evrópsk- ar sjónvarpsstöðvar væru nú skuld- bundnar til að hafa stóran hluta efnis síns evrópska framleiðslu. Vegna þessa sæu bandarísku stöðv- arnar fram á að erfíðara verði að selja allt það efni, sem þar er fram- leitt, á evrópskum markaði. Eigi bandarískir aðilar hins vegar hlut að evrópskri sjónvarpsstöð teijist framleiðsla hans evrópsk og þannig komist hann bakdyramegin inn á þennan stóra markað. Flest bendir til þess að búast megi við framhaldi af sögunni enda- lausu á Stöð 2.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.