Morgunblaðið - 03.09.1995, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995 13
fréttirnar þurfi að vera mergjaðar
til að halda athygli áhorfenda.
Lewis Lapham segir í formála
að bókinni „Understanding Media“
að höfundur bókarinnar, Marshall
McLuhan, hafi uppgötvað fyrir
þrem áratugum að tengslin milli
sjónvarpsfrétta og huggunarríkra
helgimynda auglýsinganna séu jafn
sterk og nauðsynleg og hin fornu
tengsl helvítis og himnaríkis. Áhorf-
endur fá nasasjón af hneykslismál-
um og hörmungum; myndir eru
sýndar af líkum í Bosníu, nýjasta
harmleik krakkfíkla í New York og
morðtilræðum. Slæmu fréttirnar
skapa þörf fyrir góðar fréttir og
þær koma í auglýsingunum eftir
fréttatímann.
Auglýsingarnar eru því nokkurs
konar sælustaður, eins og Eden í
biblíunni. Meginskilaboðin sem
áhorfendur fá eru að þótt heimurinn
sé ankannalegur, ofbeldisfuliur og
ömurlegur, þá geti þeir keypt vör-
ur, sem haldi honum frá þeim.
Lýóræóió afskræmt
Robert Hughes ritar grein í The
New York Review þar sem hann
gagnrýnir stóru sjónvörpin íjögur í
Bandaríkjunum. Að mati hans er
megintilgangur þeirra að
koma á framfæri auglýs-
ingum og þau telja sig
ekki lengur gegna neinum
skyldum gagnvart menn-
ingunni eða lýðræðinu.
Hughes telur að aug-
lýsingasjónvörpin, CBS,
NBC,ABC og Fox-5, gefi
ýkta mynd af ókostum
sjónvarpsins, til að mynda
í samanburði við bókina.
Stóru auglýs-
ingavörpin
sýna að sjón-
varpið megi
ekki lúta
óheftum lög-
málum mark-
aðsaflanna
90 sekúndum í morgunsárið áður
en líkamsræktartröllið tekur við.
Lítið sem ekkert er fjallað um aðrar
listgreinar, nema þegar einhver
auðkýfingurinn kaupir málverk eft-
ir snillinga eins van Gogh fyrir
metfé.
Sjónvörpin gefa einnig átakan-
lega útþynnta mynd af umheimin-
um. Aðeins er skýrt frá heimsvið-
burðum ef um blóðuga bardaga er
að ræða eða ef þeir tengjast hags-
munum Bandaríkjanna á augljósan
hátt. Þannig varð Manuel Noriega,
fyrrverandi einræðisherra í Pan-
ama, að djöfli í mannsmynd um
hríð en gleymdist síðan.
Lúfi ekki óheftum
markaóslegmálum
Hughes segir í greininni að þróun
stóru auglýsingavarpanna sýni að
sjónvarpið megi ekki lúta óheftum
lögmálum markaðsaflanna. Hann
telur reyndar hjákátlegt að tala um
„frjálsan markað" í þessu sam-
bandi, því stofnkostnaðurinn sé svo
gríðarlegur og tíðnisviðin svo tak-
mörkuð að sjónvarpið sé skólabók-
ardæmi um fákeppni.
Leiðtogar repúblikana hafa lagt
til að ríkið dragi úr framlögum sín-
_____ um til sjónvarpsins Public
Broadcasting System
(PBS), sem er að hluta
fjármagnað með styrkjum
frá ríkinu. Hughes telur
það firru að stuðningurinn
sé of mikill og segir að
auglýsingasjónvörpin hafi
fengið úthlutað tíðnisvið-
um án nokkurrar greiðslu
og það jafngildi feykileg-
um stuðningi. Líta beri á
SUDUR-AFRÍKA ENDURHEIMTIR
FORYSTUHLUTVERK SITT
A
Sjónvörpin kenni fólki að einfalda
hlutina um of og höfði fram úr
hófi til tilfinninga, ekki vitsmuna.
Að sögn Hughes eru réttarhöldin
yfir O.J. Simpson eitt af mörgum
dæmum um þær villigötur sem aug-
lýsingasjónvörpin eru á. Verði kveð-
inn upp dómur yfir Simpson fyrir
árslok hafi réttarhöldin fengið meiri
tíma í sjónvörpunum en gjörvöll
saga Bandaríkjanna.
Sjónvörpin hafa afskræmt stjórn-
arfarið í Bandaríkjunum, að mati
greinarhöfundar. Hann segir sjón-
vörpin ijalla um stjórnmál eins og
íþróttir, svo sem skylmingar,'gagn-
tekin af því hver sé að tapa og
hver að vinna, í stað þess að huga
að málefnunum.
í öðrum lýðræðisríkjum er stjórn-
málaflokkum gefinn kostur á að
kynna stefnu sína í sjónvarpi án
þess að greiða fyrir það. Þetta er
talin nauðsynlegur og eðlilegur
þáttur í lýðræðislegri umræðu.
Auglýsingasjónvörpin í Banda-
ríkjunum telja sig ekki hafa slíkar
skyldur. Þar greiða frambjóðendur
fyrir auglýsingar, sem einkennast
oftast af ótrúlegri einfeldni og hróp-
legri ósannsögli um andstæðingana.
Af þessum sökum getur sæti í
öldungadeild Bandaríkjaþings kost-
að sem svarar 600 til 1.300 milljón-
um króna. Til að standa straum af
þessum kostnaði þurfa frambjóð-
endur annaðhvort að afla framlaga
frá einstaklingum og fyrirtækjum
(sem kalla má mútur) eða vera
nógu auðugir og fullir aðdáunar á
sjálfum sér til að reiða fram allt
að 1,3 milljarða til að komast í
valdastöðuna.
Listwm aýnt tómlæti
Áhorfendur virðast einnig geta
orðið ónæmir fyrir afþreyingarefn-
inu, ekki síður en ofbeldi, og sjón-
vörpin verða því sífellt að ganga
lengra. Sjónvarpsefnið verður að
vera æ „skemmtilegra“ og meira
spennandi til að halda athygli áhorf-
enda, sem geta ákveðið á örfáum
sekúndum að efnið sé leiðinlegt og
skipt um rás.
Afleiðingin er sú að sjónvörpin
ganga enn lengra í lágkúrunni.
Sjónvarpsefnið einkennist æ meir
af yfirgengilegum áhuga á synda-
játningum manna eins og leikarans
Hugh Grants, taumlausri forvitni
um líf fræga fólksins, falskri tilfinn-
ingasemi og uppgerðarmannúð.
Sjónvörpin sýna öðrum listgrein-
um en kvikmyndum nær algjört
tómlæti. Stöku sinnum kemur þó
fyrir að rithöfundi tekst að skrifa
bók sem veldur deilum og fær tæki-
færi til að útskýra efni hennar á
tíðnisviðin sem sameiginlega eign
þjóðarinnar.
PBS er að stærstum hluta fjár-
magnað með framlögum fyrirtækja
og einstaklinga. 13,5% af tekjunum
koma frá ríkinu, eða 250 milljónir
dala (rúmir 16 milljarðar króna),
sem er einn dalur á hvern Banda-
ríkjamann. Hughes telur að auka
beri þennan stuðning og skapa
öflugt mótvægi við auglýsingasjón-
vörpin.
Greinarhöfundurinn segir núver-
andi ástand óviðunandi. Banda-
ríkjamenn þurfi sjónvarp sem komi
fram við áhorfendur sem þegna í
lýðræðisríki, ekki aðeins neytendur;
sem hugsandi mannverur, ekki að-
eins áhorfendur. Öflugt sjónvarp,
„óháð ríki, kirkju og mammon",
veiti auglýsingavörpunum aðhald
og samkeppnin frá þeim eigi að
koma í veg fyrir að sjónvarpið verði
drepleiðinlegt.
FNÁM apartheid-stefnunnar í
Suður-Afríku, sem leið enddn-
lega undir lok með kjöri Nelsons
Mandelas til forseta lýðveldisins í
fyrra, rauf hina pólitísku og efna-
hagslegu einangrun, sem þetta
öflugasta ríki sunnan Sahara hafði
þurft að búa við um áratuga skeið.
Nágrannaríki Suður-Afríku horfa
nú til Jóhannesarborgar með blöndnu
hugarfari. Síðastliðinn mánudag fór
í fyrsta sinn fram í höfuðborg Suður-
Afríku fundur Þróunarsambands
suðurhiuta Afríku (Southern Africa
Development Community, SADC),
sem er ríkjabandalag um efnahags-
samvinnu, sem Suður-Afríku var
fyrst leyft að ganga í fyrir ári.
SADC var stofnað fyrir 15 árum
með það að markmiði að draga úr
því hve háð ríkin í sunnanverðri álf-
unni voru Suður-Afríku. En mikil-
vægi þessa efnahagslega langsterk-
asta ríkis sunnan Sahara fyrir efna-
hag þess hluta álfunnar er óbreytt.
Efnahagskerfi þess er fjórum sinnum
stærra en hinna 10 aðildarríkja
SADC til samans.
Óhjákvæmilega gegnir því Suður-
Afríka forystuhlutverki í þessum
heimshluta. Nágrannaríkin horfa til
hennar annars vegar með þá von í
huga að S-Afríka geti hjálpað þeim
til að komast út úr þeim efnahagsörð-
ugleikum sem þau eiga sjálf í. Á
hinn bóginn óttast þau að nú muni
S-Afríka eignast markaðinn á öllu
svæðinu.
„Allir líta til S-Afríku sem efna-
hagslegs aflvaka álfunnar,‘^var haft
eftir vestrænum sendiherra í höfuð-
borg Zambíu, Lusaka. „Hún verður
að vera Þýzkaland álfunnar sunnan
Sahara. Hverjum öðrum er til að
dreifa?" sagði hann. „En á sama tíma
er beizkja í garð S-Afríku mjög
greinilega fyrir hendi. Menn eru
hræddir um að risar taki en gefi
ekkert."
Lokaó hagkerfi
Stjórn Suður-Afríku á enn eftir
að átta sig á hinum breyttu aðstæð-
um og marka sér stefnu í samskipt-
unum við nágrannaríkin. Alfred Nzo,
utanríkisráðherra S-Afríku, sagði
þegar á fundi SADC í Botswana í
NAGRANNARIKI SUÐUR AFRIKU
Mannfj. 1993 millj. [~ 0,0 J Þjóbarframl. 1993, milljarbar dollara
Heimild: The Economist i
ágúst í fyrra, að nágrannaríkin ættu
ekki að búast við of miklu af S-Afr-
íku.
Hin áralanga einangrun mótaði
efnahagslíf S-Afríku. Til varð mjög
lokað hagkerfi, sem á erfitt með að
opna sig eftir hið nýfengna frelsi.
Þetta hefur sín áhrif á þróun við-
skipta við grannríkin. Sum þeirra
kvarta yfír of mikilli einstefnu; vöru-
skiptajöfnuðurinn er í öllum tilfellum
S-Áfríku í hag. Til dæmis á vefnaðar-
vöruiðnaður Zimbabwe nú undir
högg að sækja eftir að suður-afrísk-
ar vörur eru teknar að flæða inn á
markaðinn, á meðan S-Afríka kaupir
mjög lítið af vörum frá Zimbabwe.
Sérstaklega á Zambía erfitt upp-
dráttar í viðskiptum við S-Afríku.
Þar er einstefnan í milliríkjaviðskipt-
unum nær algjör.
Stjórnmálaskýrendur segja það þó
engum vafa undirorpið, að framtíð
þessa heimshluta reiði sig á að S-Afr-
íka láti meira til sín taka. Nú, þegar
S-Afríka er friðsamlegri en nokkru
sinni á sl. 30 árum, finnst vestrænum
ráðamönnum tími til kominn að beita
því trausti sem Mandela forseti nýtur
til að styðja undir lýðræðisþróun í
grannríkjunum, sem átt hefur erfitt
uppdráttar.
Fyrir sex árum voru aðeins þijú
ríki í Afríku þar sem fjölflokka-lýð-
* Mi6a$> vib innflutning til Subur-Afríku
§ I tollasambandi vii> Subur-Afríku
ræðiskerfi var að finna, en 30 eins-
flokks-, hernaðar- og einræðisríki.
Síðan þá hefur þetta hlutfall snúizt
við, en víða stendur lýðræðið veikum
fótum, þótt naldnar hafí verið eða
til standi að halda lýðræðislegar
kosningar.
Stefnumörkunar beóió
En þær vonir sem grannríkin
binda við hina „nýju“ S-Afríku er
að hún beiti efnahagsstyrk sínum til
að fjárfesta hjá þeim og kaupa af
þeim vörur í auknum mæli, þ.e.a.s.
að efnahagsstyrkur S-Afríku verði
þeim lyftistöng. Helztu fyrirtæki S-
Afríku hafa reyndar þegar hafið fjár-
festingar víða um álfuna, en eins
lengi og innra skipulag efnahag-
skerfisins í landinu er eins lokað og
það er mun þróun viðskiptatengsla
efnahagsrisa svæðisins við nágranna
sína áfram verða hæg.
Á meðan heldur straumur farand-
verkafólks ólöglega yfir landamærin
til S-Afríku í leit að vinnu. Allt þetta
þrýstir á S-Afríkustjórn að móta
skýra stefnu sem er í samræmi við
breytta stöðu forysturíkis suðurhluta
Afríku. Og sú stefna verður að snú-
ast um markvissa opnun efnahag-
skerfisins.
Heimildir: The Daily Telegraph,
The Economist.
VIÐ
QAv&Airns
saman
Danssmiðjan og Dansskóli Hermanns Ragnars
sameinast ífrábæru húsnæði að Engjateig 1.
Innritun stendur yfir á haustnámskeiðin. Bamadansar,
samkvæmisdansar, Jassleikskólinn, kántrýdansar,
stepp, rokk...
Kennslustaðir: Engjateigur 1, Frostaskjól, Gerðuberg,
Fjörgyn Grafarvogi og Stjömuheimilið Garðabæ.
...þú kemur - við kennum.
Dajissm
Enyjate
anns Ragna