Morgunblaðið - 03.09.1995, Page 14
14 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLADIÐ
LISTIR
Dreifð og
misjöfn
SIGURFLJÓÐ Jóna Hilmarsdóttir: Sjálfið.
MYNPLIST
Iðnó - Djúpið - Ilitt
húsið - Ráðhúskaffi -
Kaffi Org - Listakot -22
ÓHÁÐ LISTAHÁTÍÐ
MÁLVERK, BLÖNDUÐ
TÆKNI O.FL.
Samsýningar á Óháðri listahátið
Opið alla daga til 3. sept.
Aðgangur ókeypis
ÓHÁÐ listahátíð er nú haldin í
Reykjavík í þriðja sinn, og að þessu
sinni er dagskráin ekki síður yfir-
gripsmikil en fyrr á öllum sviðum
lista og menningar. Tónlistin virð-
ist vera í öndvegi þetta árið, sé
tekið mið af miklum fjölda tónleika
af ýmsu tagi, og bókmenntir hafa
einnig verið áberandi í formi upp-
lestra og leikræns flutnings, sem
hefur notið mikilla vinsælda. Hér
vegur þungt að nú nýtur Óháð lista-
hátíð þess að eiga sér heppilegan
miðpunkt og samastað í Iðnó, sem
í núverandi búningi þjónar ágæt-
lega því hlutverki að vera nokkuð
hrá umgjörð um nokkuð hráa en
lifandi menningarstarfsemi.
Myndlistin er nokkuð til hliðar í
ár, og kemur það helst fram í því
hversu dreifðar og ólíkar þær sýn-
ingar eru, sem tengjast hátíðinni.
Alls eru myndlistarsýningamar að
þessu sinni á átta stöðum, en þar
af er helmingurinn kaffihús, þar
sem verk listafólksins njóta sín mis-
jafnlega í því umhverfi sem þeim
er ætlað; hefðbundnari sýningar-
staðir koma mun betur út, sem
vænta mátti.
Sé fyrst litið til kaffíhúsanna
verður að segjast að sýningarnar
þar eru í þeirri stöðu að réttara
væri að tala aðeins um myndskreyt-
ingar við umhverfið fremur en upp-
setningar á listaverkum. Litríkir
líkamarnir í málverkum Sibbu njóta
sín vel á veggjunum á Café Org,
og verk Jóhanns Valdimarssonar,
einkum „Rifrildi“, draga að sér
athyglina á kaffihúsinu 22. Annað
er síðra, eða einfaldlega nýtur sín
ekki vegna umhverfisins.
Hitt húsið er tekið til starfa í
nýju (gömlu) húsnæði í Geysishús-
inu á horni Aðalstrætis og Vestur-
götu, og þar hefur verið sett upp
sýning af því tilefni í ágætu rými,
sem notað hefur verið undir mynd-
list undanfarin misseri. Þarna er
fyrst og fremst að fmna myndverk
yngsta fólksins, sem í flestum til-
vikum á nokkuð eftir í að ná þroska
í verk sín; hér má þó benda á verk
innan um, sem vísa vel á veg, svo
sem verk Birgis Thoroddsens og
Elvu Daggar Blumenstein; flest
annað tengist enn þreifingum æsk-
unnar.
Sýningin í Listakoti, litlu galleríi
og listmunasölu að Laugavegi 70,
er sú sýning sem er lengst frá
miðborginni, og tengist Óháðri
listahátíð aðeins með lauslegum
hætti. Hér sýna níu þroskaðar lis-
takonur ýmis smáverk, sem bera
vott um vandvirkni og fagmennsku,
fremur en þann flýti sem einkennir
of mörg verk á öðrum sýningum
hátíðarinnar. Er vert að benda hér
sérstaklega á klippimyndir Þórdísar
Sveinsdóttur, bjartar myndir Sæ-
unnar Þorsteinsdóttur og skvettur
Árdísar Olgeirsdóttur, sem ættu
að koma hveijum sem er í gott
skap.
Þungamiðja myndlistarsýning-
anna er í Iðnó, þar sem verk fylla
alla veggi og eru jafnvel úti á gólfi,
þó þar sé þrengt að reisulegu reður-
tákni á allar hliðar. Hér eru bæði
samankomin flest verkin, og jafn-
framt er hér að finna mestu breidd-
ina - frá áhugaverðum hlutum yfir
í daufan enduróm þess sem eitt
sinn var frumlegt.
Flestir þeir sem hér eiga verk
eru ungir að aldri, eru í listnámi
eða hafa nýlega lokið því; þeir síð-
arnefndu eru í sumum tilvikum enn
að sýna sömu verkin og á útskrift-
arsýningum, og er það óþarfa end-
urtekning.
Sé hins vegar litið til þess sem
helst dregur að sér athyglina hér
er ljóst að ungt listafólk heldur
áfram að þreifa fyrir sér um eigin
leiðir, og þar má á stundum sjá
skemmtilegar lausnir. Sonja Ge-
orgsdóttir hvítþvær þannig um-
ferðarmenninguna, og gefur henni
sín helgitákn úr hinu hversdags-
lega; Eysteinn
Traustason sýn-
ir tilbeiðslu æsk-
unnar í flenni-
stórum ljós-
myndum, sem
hljóta bæði að
vekja ugg og
aðdáun vegna
þess ákafa, sem
þar má greina í
andlitum; Sig-
rún Hrólfsdóttir
bregður upp
smámyndum af
þvi verndaða
umhverfi, sem
við gætum
kennt við góðan
heim, og Fjölnir
Bragason sýnir
okkur nýjar hliðar á guðsímynd-
inni, þegar hann setur upp eins
konar dauðagrímur undir heitinu
Guð.
Formmótun eru áberandi þáttur
hjá nokkrum hér, og reðurtákn
Daníels Sigmundssonar, sem þegar
er nefnt, er sterk ímynd úr reka-
viði, sem minnir um sumt á hina
frægu hausa á Páskaeyju. Helgi
Ásmundsson hefur með einföldum
hætti skapað tignarlega ímynd fyr-
ir hinn sanna hljóm, sem á vel við
í þessu rými, þar sem fjöldi tónleika
fer fram þessa dagana; og loks
má nefna hið innra sjálf, sem Sig-
urfljóð Jóna Hilmarsdóttir setur í
myndrænt form í verki sínu.
Hlutverk listahátíðar sem þess-
arar hlýtur að vera fyrst og fremst
fólgið í þeim opna möguleika, sem
hún veitir ungu listafólki, án of
mikillar yfirstjómar eða úrvals; slíkt
kemur nógu snemma á öðrum stöð-
um. Að lokinni yfirferð á alla sýn-
ingarstaðina er niðurstaðan sú að
hið besta í myndlistinni á sýningum
Óháðrar listahátíðar er vel þess virði
að listunnendur beiji það augum;
hitt mun gleymast fljótt hvort sem
er.
Eiríkur Þorláksson
Dagskrá
RúRek
1995
OPNUNARHÁTÍÐ RúRek 95
verður í Ráðhúsi Reykjavíkur,
Tjarnarsal, kl. 17. á sunnudag.
Jesper Thilo/Bent Jædig-
kvintettinn og Stórsveit
Reykjavíkur ríður á vaðið und-
ir stjórn Sæbjarnar Jónssonar,
söngvarar Ragnar Bjarnason
og Egill Ólafsson.
í Leikhúskjallaranum kl.
21.30 leikur Jesper Thilo/Bent
Jædig-kvintettinn. Á Fógetan-
um kl. 22 hljómsveit Kristjáns
Guðmundssonar. Tríó Ólafs
Stolzenwald og félagar verða
síðan á Kringlukránni kl. 22
Mánudagur 4. september
Tuggugu ára afmæli Jazz-
vakningar er í Ömmu Lú kl.
21.30, Boone/Jædig-kvintett-
inn, Sextett Guðmundar Stein-
grímssonar og Papa Djass
djamm.
Kl. 22 spilar Kvartett Ómars
Axelssonar ásamt Ragnari
Bjamasyni á Fógetanum,
Kvartett Jóels Pálssonar á
Jazzbarnum, Kvartett Ómars
Einarssonar á Kringlukránni
og Hljómsveit Eddu Borg í
Leikhúskjallaranum.
Margrét
Pálmadóttir
endurráðin
SJÖTTA starfsár Barnakórs
Grensáskirkju hefst næstkom-
andi þriðjudag kl. 17. Þá mæta
allir núverandi kórfélagar í
skráningu, nýir félagar mæta
kl. 18 og þreyta inntökupróf,
æskilegur aldur frá 6-13 ára.
Æfingadagar verða sem fyrr
laujfardagsmorgnar og þriðju-
dagseftirmiðdagar.
Margrét J.
Pálmadóttir,
stofnandi
kórsins, hef-
ur verið
endurráðin
og undirleik-
arar verða í
vetur David
Knowles Ját-
varðsson og
Árni Arin-
bjarnarson.
Kórinn starfar í tveimur deild-
um auk byrjendafræðslu og
tekur þátt í guðsþjónustum
auk þess að halda reglulega
tónleika á aðventu og á vorin.
Námskeið í
myndþerapíu
SKRÁNING á myndþerapíun-
ámskeið hjá Sigríði Björnsdótt-
ur, Brekkustíg 8, stendur nú
yfir. Námskeiðið er verklegt,
þar sem myndin er notuð til
tjáningar og samskipta og er
námskeiðið aðallega ætlað
kennurum, þroskaþjálfum,
hjúkrunarfræðingum, sálfræð-
ingum og öllu öðru fagfólki í
uppeldis-, félags- og heilbrigð-
isþjónustu.
Markmiðið með námskeið-
inu er að kynna starfsgreinina
í gegnum eigin reynslu og upp-
lifun þar sem þátttakendum
gefst kostur á að æfa sig í
ýmsum þáttum myndþerap-
íunnar, s.s. sjálfstjáningu í
gegnum eigið myndferli og
gagnkvæm samskipti í hópum-
ræðum, sjálfsprottinni mynd-
sköpun, hugmyndaflugi og
skapandi hugsun, innsæi, hóp-
efli og sjálfstyrkingu.
Kennari er Sigríður Björns-
dóttir, löggiltur félagi í „The
British Association of Art
Therapists" (BAAT).
Jazzleikskoli
bamanna
Börnin eiga
það be+ita <tkiluf
Skemmtilegur dans,
þjálfun í líkamsburði,
jafnvægisæfingar,
léttar fimleikaæfingar,
hreyfiþroski, hollar
teygjur og nauðsynleg
liðkun líkamans.
14 vikna byrjenda- og
framhaldsnámskeið.
2- 3 ára
3- 4 ára
5-6 ára
7-9 ára
10-11 ára
C^V
jjPI
■ náöa ftrwfi'm hesta/
DANSSTÚPÍÓ
SÖLVEIGAR
Kennsla hefst 11. september. Innritun t síma 553-0786 frá kl. 14-18 alla daga
Margrét
Pálmadóttir