Morgunblaðið - 03.09.1995, Page 26
26 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KYIKMYNDIR/Sambíóin sýna spennumyndina Crimson Tide með þeim Denzel Washing-
ton og Gene Hackman í aðalhlutverkum. Þeir leika yfirmenn um borð í kafbáti, sem takast
á um völdin þegar neyðarástand ríkir vegna hugsanlegrar kjamorkuárásar
Valdatafl 1
undirdjúpum
OGNARÁSTAND ríkir um borð
í bandaríska kjarnorkukaf-
bátnum USS Alabama eftir að
þangað hefur borist skeyti um að'
hugsanlega geti verið yfirvofandi
kjarnorkuárás frá uppreisnar-
mönnum í Rússlandi. Yfirmönnum
kafbátsins er skipað að vera í við-
bragðsstöðu og skömmu síðar
berst ógreinileg dulmálsskipun um
stöðu mála, en vegna bilunar um
borð í kafbátnum verður hann
sambandslaus við umheiminn og
því ekki hægt að ráða að fullu
merkingu skeytisins. Skipherrann
um borð í USS Alabama, kafteinn
Ramsey, teiur sig hafa fengið skip-
un um að gera kjarnorkuárás á
rússnesku uppreisnarmennina, en
hægri hönd hans um borð, sjóliðs-
foringinn Ron Hunter, er ekki
sama sinnis. Þessir tveir yfirmenn
mestu drápsvélar mannkynsins
takast því á um yfirráðin um borð
og vegna sambandsleysis við kaf-
bátinn fylgist umheimurinn með
án þess að geta nokkuð gert.
Leikstjóri Crimson Tide er hinn
breski Tony Scott, en framleiðend-
ur myndarinnar eru þeir Don Simp-
son og Jerry Bruckheimer, og er
þetta annar sumarsmellur þeirra
þetta árið, en þeir framleiddu einn-
ig Bad Boys, sem sýnd er í Sambíó-
unum.
Fjölmargir breskir leikstjórar,
sem hófu feril sinn í auglýsinga-
gerð, t.d. Alan Parker og Adrian
Lyne, hafa náð verulegum árangri
sem kvikmyndaleikstjórar, en fáir
þeirra hafa notað sölubrellur aug-
lýsinganna í jafnmiklum mæli í
myndum sínum og Tony Scott.
Hann er fæddur í Newcastle í
Englandi 21. júní 1944, en þar var
faðir hans hafnarverkamaður, og
að Ioknu námi við listaskóla í Le-
eds og London, þar sem hann lærði
iistmálun og ljósmyndun, gekk
hann til liðs við fyrirtækið RSA
Productions, sem Ridley bróðir
hans hafði þá stofnað.
Þetta var árið 1973 og á næstu
árum gerði Scott fjölda auglýs-
inga, sem margar hverjar unnu til
verðlauna, en einnig gerði hann
sjónvarpsmyndir og fræðslumynd-
ir. Fyrstu kvikmyndina gerði hann
svo 1983, en það var The Hunger
með þeim David Bowie og Cather-
ine Deneuve í aðalhlutverkum.
Myndin þótti framúrstefnuleg og
hlaut iitla náð fyrir augum áhorf-
enda, og sagði Scott síðar að hann
hefði augljóslega þurft að leggja
meiri áherslu á tilfinningalíf aðal-
persónanna í myndinni.
í kjölfar myndarinnar stóð hon-
um fátt til boða en svo fór að lok-
um að framleiðendurnir Don Simp-
son og Jerry Bruckheimer, sem
voru að leita að hæfum manni til
að leikstýra Top Gun, komu auga
á Scott og fengu hann til verks-
ins. Varð Top Gun aðsóknarmesta
myndin 1986 og sömuleiðis varð
næsta mynd Tony Scotts, Beverly
Hills Cop II, aðsóknarmesta mynd-
in 1987. Gagnrýnendur líktu þess-
um myndum hans við sjónvarps-
auglýsingar og tók hann þau um-
mæli sem hrós, en haft var eftir
honum i blaðaviðtali að hann liti
svo á að 30 sekúndna auglýsing
gæti verið jafnmikið listaverk og
100 mínútna löng kvikmynd.
En þrátt fyrir þetta viðhorf fór
svo að næstu þijár kvikmyndir
Scotts ollu vonbrigðum og náðu
ekki vinsældum þrátt fyrir að þær
væru stjömum skrýddar. Þetta voru
myndimar Revenge (1990) með
Kevin Costner í aðalhlutverki, Days
of Thunder (1990) með Tom Cruise
og The Last Boy Scout (1991) með
Bruce Willis í aðalhlutverki. Scott
rétti þó fljótlega úr kútnum aftur
því árið 1993 gerði hann metnaðar-
ÁHÖFNIN um borð í USS Alabama fylgist spennt með fregnum
af yfirvofandi árás rússneskra uppreisnarmanna á kafbátinn.
YFIRMENNIRNIR tveir takast á um völdin um borð þegar þá greinir
á um hver viðbrögðin eiga að vera við hugsanlegri árás.
fyllstu mynd sína til þessa, en það Tarantino. Síðan varð nokkurt hlé Iiðnum, en myndin hefur hlotið
var hin vinsæla True Romance, sem hjá Tony Scott, eða þar til Crimson mjög góða dóma og notið geysimik-
gerð var eftir handriti Quentins Tide leit dagsins ljós í maí síðast- illar aðsóknar.
AÐ eru sannkallaðar stór-
stjörnur sem fara með
aðalhlutverkin í Crimson Tide,
en báðir hafa þeir Denzel Was-
hington og gamla kempan Gene
Hackman unnið til óskarsverð-
launa fyrir frammistöðu sína á
hvíta tjaldinu.
Denzel Washington, sem leik-
ur hinn hugaða sjóliðsforingja
Ron Hunter, er fæddur 28. des-
ember 1954 í Mt. Vernon í New
York-fylki og innritaðist hann í
læknisfræðinám við Fordham
University. Hann sneri þó fljót-
lega við blaðinu eftir að hann
varð gripinn miklum leiklistar-
áhuga þegar hann fór með hlut-
verk I skólasýningu, og að loknu
háskólanámi fékk hann inn-
..göngu í American Conservatory
Theatre í San Francisco þar sem
hann var við nám í tvö ár.
Leiklistarferil sinn hóf Wash-
ington þegar hann lék með leik-
félaginu Shakespeare in the
Park í New York, og í kjölfarið
fylgdu fjölmörg hlutverk í upp-
setningum off-Broadway. Eftir
nokkur hlutverk í sjónvarps-
myndum Iék hann í kvikmynd-
inni Carbon Copy 1981, en fyrsta
aðalhlutverk hans var í mynd-
inni A Soldier’s Story, sem frum-
sýnd var 1984. Washington hef-
ur síðan leikið í fjölda kvik-
mynda, og var hann tilnefndur
til óskarsverðlauna fyrir hlut-
verk sitt í Malcolm X, en fyrir
það hlaut hann meðal annars
verðlaun á kvikmyndahátíðinni
Þunga-
vigtar-
menn
Gene Hackman
i Berlín sem besti leikari og
verðlaun gagnrýnenda í New
York. Meðal annarra kvikmynda
sem Washington hefur leikið í
eru Philadelphia, The Pelican
Brief, Much Ado About Nothing,
Mississippi Masala, Mo’Better
Blues, Glory, en fyrir hlutverk
sitt i henni hlaut hann óskars-
verðlaun sem besti leikari i
aukahlutverki, Cry Freedom,
sem hann hlaut óskarstilnefn-
ingu fyrir, Ricochet, Heart
Condition, The Mighty Quinn,
For Queen and Country og Pow-
er. Washington hefur nýlokið við
að leika i myndinni Virtuosity,
og einnig leikur hann i myndinni
Devil in a Blue Dress, sem frum-
sýnd verður í haust.
Gene Hackman, sem leikur
hinn harðneskjulega kaftein
Ramsey, á að baki langan feril
í kvikmyndum, en hann hefur
nú leikið í hátt í 70 myndum.
Hackman er fæddur í Riverside
í Kaliforníu 30. janúar 1930, en
hann ólst upp i Danville í Illino-
is þar sem faðir hans var prent-
ari hjá dagblaði. Hackman gekk
í Iandgöngulið bandaríska flot-
ans þegar hann var aðeins 16
ára gamall og laug hann til um
aldur til að komast í herinn. Að
hermennskunni lokinni lagði
hann stund á nám í málaralist
og ferðaðist síðan um Bandarík-
in og tók að sér ýmis störf hjá
sjónvarpsstöðvum víðsvegar um
landið. Hann sneri að lokum
heim til Kaliforníu á nýjan leik
og gekk þar til liðs við Pasadena
leikfélagið þar sem hann kom i
fyrsta sinn fram á leiksviði, og
upp frá því lék hann í ýmsum
leikritum jafnframt því sem
hann sá fjölskyldu sinni farborða
með hinum og þessum störfum
á daginn. Leið Hackmans lá svo
til New York í leiklistarnám hjá
Lee Strasberg Actors Studio, og
brátt fór svo að hann fékk smá-
hlutverk í stórborginni bæði á
sviði og í sjónvarpi. Fyrsta
myndin sem hann lék í var Mad
Dog Coll, sem gerð var 1961, en
þar fór hann með smáhlutverk,
og árið 1964 lék hann á móti
Warren Beatty og Jean Seberg
í Lilith. Hackman hefur tvívegis
hlotið óskarsverðlaun fyrir
frammistöðu sína, en hann
hlaut verðlaunin fyrir besta
leik í aðalhlutverki í mynd-
inni The French Connecti-
on og fyrir besta leik í
aukahlutverki í myndinni
The Unforgiven. Áð auki
hefur hann hiotið þrjár til-
nefningar en það var fyrir
myndirnar Mississippi Burn-
ing, I Never Sang for My
Father og Bonnie and
Clyde. Meðal annarra
mynda sem þessi vinsæli
og virti leikari hefur leik-
ið í eru Wyatt Earp, The
Firm, Class Action,
No Way Out, Hoosi-
ers, The Convers-
ation, The Posei-
don Adventure,
Downhill Raeer
og
Scarecrow.
Fyrr á
þessu ári
lék hann
svo á móti
Sharon
Stone í
The Qu-
ick and the
Dead, sem
Stjörnubíó er
að hefja sýning-
ar á, og á næstunni verða frum-
sýndar myndirnar Get Shorty,
þar sem Hackman leikur á móti
John Travolta og Danny DeVito,
og Birds of a Feat-
her, þar sem hann
leikur á móti
Robin Williams.
Denzel
Washington