Morgunblaðið - 03.09.1995, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995 33
óopinberar heimildir meina að fjöldi
kristinna manna í Kína sé margfalt
meiri en opinberar tölur segja til um.
Þess má geta að kaþólska kirkjan í
Kína starfar sjálfstætt og án tengsla
við Vatikanið í Róm.
Þrátt fyrir meint trúfrelsi hafa,
samkvæmt upplýsingum frá Am-
nesty International, hundruð manna
verið hneppt í varðhald vegna trúar-
skoðana á undanförnum árum, þar
á meðal kristnir menn.
Það vakti athygli okkar að biskup-
inn sem sendinefnd Alþingis heim-
sótti er jafnframt þingmaður og sit-
ur í stjórnarnefnd þingsins. Hann
hlýtur því að vera nokkuð áhrifamik-
ill stjórnmálamaður. Þótti það draga
nokkuð úr trúverðugieika hans,
hvort sem sú tilfinning var á rökum
reist eða ekki.
Á fundinum ræddi biskupinn
stöðu kristinnar trúar í Kína sem
hann taldi að væri nokkuð góð.
Kristin trú væri í sókn og kirkju-
starf blómstraði. Að loknum fundi
gafst sendinefndinni tækifæri til að
skoða kirkjuna og hlýða á upphaf
messu sem fór fram á ensku. Kirkj-
an var ekki stór en hún var full af
fólki. Einbeitingin skein úr andlitum
messugesta. Þeir leituðu greinilega
huggunar í trú sinni og fékk ég það
á tilfinninguna að kirkjan væri eina
haldreipi margra sem þarna voru
samankomnir. Enda hlýtur trúin að
veita mönnum dýrmæta von í því
vonleysi sem stór hluti kínversks
almennings býr við.
Áður en við kvöddum færði ég
biskupnum íslenska Biblíu að gjöf.
Hann bað mig fyrir kveðju til bisk-
ups Islands með von um samstarf
kristinna manna í Kína og á Islandi
í framtíðinni. Biskupinn afhenti mér
að gjöf veggteppi af hinni heilugu
kvöldmáltíð ásamt myndabók og
öðrum fræðsluritum um kaþólsku
kirkjuna í Peking. Ég mun afhenda
biskupi íslands hr. Olafí Skúlasyni
veggteppið þar sem mér finnst við
hæfi að það sé í varðveislu biskups-
embættisins.
Kvennaráðstefnan í Peking
Það vakti greinilega athygii
fréttamanna að kona gegndi æðsta
embætti þjóðþingsins (Alþingis) á
Íslandi. Ung sjónvarpsfréttakona
tók við mig langt sjónvarpsviðtal í
lok heimsóknarinnar. Eftir að hafa
leitað álits á viðhorfi mínu til
ástandsins í Kína eftir heimsóknina,
með tilliti til þjóðmála, efnahagsupp-
byggingar, lífskjara í Kína o.s.frv.
vildi hún m.a. fræðast um jafnréttis-
og fjölskyldumál á íslandi.
í lok viðtalsins kom hún inn á
fyrirhugaða Kvennaráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna og
vildi heyra mín við-
horf til hennar. Ég
sagði henni að ég
teldi mikilvægt að
konur víðsvegar að
úr heiminum gætu
hist og borið saman
stöðu mála, sem
væru afar mismun-
andi. í sumum
heimshlutum væri
staða jafnréttismála
góð, bæði lagalega
og félagslega. Ann-
ars staðar væri jafn-
rétti frá lagalegu
sjónarhorni en
skorti því miður á
framkvæmdir, sem
félagslegar hömlur
og gamlir fordómar
koma í veg fyrir.
Sums staðar eru
konur almennt undirokaðar og kúg-
aðar.
Kvennaráðstefnan væri mikilvæg-
ur vettvangur til að styrkja konur í
baráttunni gegn hverskonar misrétti
og vekja athygli heimsins á ástand-
inu.
Frábær gestrisni
Ferðin var skipulögð í þaula af
gestgjöfum okkar og nutum við frá-
bærrar gestrisni allan tímann sem
við dvöldum í Kína. Dagskráin var
ströng, hún hófst hvern dag klukkan
átta að morgni og stóð óslitið til
klukkan átta að kvöldi a.m.k.
Það er ástæða til að þakka sendi-
fulltrúahjónum Kína á íslandi fyrir
allan undirbúning og fyrirgreiðslu í
sambandi við för okkar, sem þau
lögðu sig í líma við að yrði okkur
bæði fróðleg og ánægjuleg.
Salome Þorkelsdóttir, fyrrv. forseti
Alþingis.
Höfundur er fyrrverandi forseti
Alþingis.
GREINARHÖFUNDUR í fylgd forseta
kínverska þjóðþingsins, Qiao Shi,
og varaforseta, frú Chehmuha.
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!
Eru flutt að Engjateigi 1 , símar 557 3340 og 568 7580.
Alflietm náffl<skeid
fyrir alla, ungar stúlkur og pilta
hefjast sunnudaginn 10. æpt.
Skemmtilegt, fjölbreytt og mjög fróðlegt námskeið í
framkomuþáttum, hreinlæti, snyrtingu, borðsiðum,
umgengisvenjum heima og heiman og allt sem prýða má
fallega framkomu og snyrtimennsku.
Þetta er almennt námskeið fyrir alla.
Við erum flutt í ný húsakynni og tökum vel á móti ykkur.
M
VISA
Innritun og upplýsingar í síma 557 3340. Unnur Arngrímsdottir.
Kennslustaðir:
Reykjavík, Brautarholti 4.
Mosfellsbær, Varmárskóli.
Hveragerði, grunnskólinn.
Innritun í síma 552 0345
kl. 17-23 daglega til 9. sept.
Keflavík, Sandgerði, Garður
og Grindavík: Innritun daglega
í síma 42 67680 kl. 22—23.
og í síma 552 0345 kl. 17—23.-
fjffenrmm alla samkvæmisdansa.
Þjálfum keppnisdansara og
sýningarfólk.
s œ s sm. iim ma fm
m ^ » w
*
HANDSAUMUÐ BUTASAUMSRUMTEPPI.
KODDAVER FYLGIA MEÐ - EINNIG STÖK KODDAVER
SOLUSYNING I DAG
MILLI KL. 12.00-18.00.
OPIÐ VIRKA DAGA
KL. 10.00-18.30
: 1
1
I
Tvíbreið. 220 x 260 Queen, kr. 14.900
4 aeroir - 3 stæroir:vh ht m* 220^.9.800
...1........................... 260 x 270 King kr. 16.700
kynningarafsl.
af verði í dag.
Einníg raðgreiðslur
Silkiteppi, ein stœrð 220x260 Queen, kr. 22.600______________________^
Me oÆ M-V "Min t®' WU ' V uúf '#5? 4!« ■'éak W iWi&sy
Heildsala - smásala.
1. hæð, Borgarkringlunni, v/hlið 10/11 verslunarinnar,
sími 588-7030.
' «9» asaí » sss » &&
Póstsednum.