Morgunblaðið - 03.09.1995, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 03.09.1995, Qupperneq 44
44 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Músikleikfimin hefst mánudaginn 18. september. Góð alhliða þjálfun fyrir konur sem vilja bæta þol, styrk og liðleika á markvissan og skemmtilegan hátt. Byrjenda- og framhaldstímar. Kennsla fer fram í íþróttahúsi Melaskóla. Upplýsingar og innritun í síma 551 3022. Gígja Hermannsdóttir, íþróttakennari. Yogastöðin Heilsubót Síðumúli 15 •Sími 588 5711 uariar athugjðL KonurjHUiBl^BL--------- Vetrardagskráin byrjar 4. september. Við bjóðum mjög góðar alhliða æfingar sem byggðar eru á HATHA - YOGA, til viðhalds þrótti, mýkt og andlegu jafnvægi. Morgun-, dag- og kvöldtímar. Sértími fyrir Yogastöðin Heiioubót barnshafandi konur. síðumúiiis •sími 588 5711 Hættum að reykja Námskeið Heilsuvemdar- stöðvarinnar gégn reykingum . Takmarkaður fjöldi. Innritun stendur yfir á okt. '95 námskeið. Sími: 552-2400 kl. 9-16. Heilsuverndarstöð Reykjavíkur v/Barónsstíg. Lungna- og berklavarnadeild. IDAG BRIDS Umsjón Guöm. Páll Arnnrson „ÞAKKA þér fyrir, makker,“ sagði G.G. undurþýðri röddu þegar félagi hans lagði upp blindan. Sjálfstraustið geisl- aði af Geltinum grimma, hinni ófyrirleitnu söguper- sónu Victors Mollo, en slíkt er ótvírætt merki þess að samningurinn sé viðkvæm- ur. í þetta sinn er „viðkvæm- ur“ kannski ekki nógu fast að orðið kveðið. „Vonlaus", væri nær lagi: Vestur gefur; allir á hættu. „ . Norour ♦ G108 V 32 ♦ ÁK2 4 Á6543 Vestur Austur ♦ 976 4 543 4 DG9 lllll * 87654 ♦ DGIO 1 11111 ♦ 93 4 KDG10 4 987 Suður ♦ ÁKD2 V ÁKIO ♦ 87654 ♦ 2 Eftir opnun vesturs á laufi varð Gölturinn i suður sagn- hafi í sjö spöðum. Vestur doblaði lokasögnina og spil- aði út laufkóng. En ekkert er vonlaust í augum G.G. Hann drap á laufás og trompaði lauf með ás. Fór síðan tvívegis inn í borð á ÁK í tígli til að stinga tvö lauf til viðbótar með kóng og drottningu. Fimmta laufið var þá frítt og Göltur- inn spilaði næst spaðatvisti og svínaði áttunni. Staðan var þá þessi: Norður 4 GIO 4 32 ♦ 2 ♦ 3 Vestur Austur 4 97 ♦ 54 4 DG9 ♦ D ||||||. 4 8765 4 - 4 - Suður ♦ - 4 ÁKIO ♦ 876 ♦ - G.G. tók GIO í spaða og spilaði síðan laufþristi. Vest- ur varð að henda hjartaníu, svo Gölturinn fékk síðasta slaginn á hjartatíu. „Ég átti 12 punkta og tvær tíur!“ hrópaði vestur. „Gleymdu ekki mínum,“ svaraði austur, dapur í bragði. HÖGNIHREKKVÍSI VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Þriðja flokks veiðimennska SVERRIR Seheving Thorsteinsson hringdi til að kvarta yfír myndbirt- ingu Morgunblaðsins á baksíðu sl. fimmtudag af veiðimanni með tvö fallin hreindýr. Hann sagði að hann væri, eins og allir góðir veiðimenn, sárhneyksl- aður. Sér byði við því að dýr sé skotið í haus eða háls, það sé ekki viður- kennd aðferð. Tapað/fundið Hjól tapaðist DÖKKBLÁTT stórt karl- mannshjól af gerðinni Kilimanjaro hvarf frá Barmahlíð fyrir mánuði. Skilvís finnandi vinsam- lega hringi í síma 551-8619. Gleraugu fundust GLERAUGU í dökkbláu hulstri með grænum klút inni í fundust bak við Hafnarbúðir við Tryggvagötu í Reykja- vík. Gleraugun eru tví- skipt í brún-sanseraðri umgerð. Á öðrum armin- um er límmiði sem á stendur RK. Eigandi get- ur haft samband í síma 562 1817. Nisti tapaðist HELGI skrifaði Velvak- anda eftirfarandi bréf: „Sumarfríi mínu, frá miðjum júní, til miðs júlí, eyddi ég austur á Þórs- höfn á Langanesi. Skömmu áður en ég hélt á leið suður, tapaði ég Þessi mynd er skóla- bókardæmi um 3. flokks veiðimennsku. Maðurinn gerir beinlínis það sem enginn veiðimaður má gera, þ.e. skjóta á dýr, sé annað dýr nálægt í hættu. Um villimennsku er að ræða, ekki sport- veiði. Reglan er að skjóta svo stórt dýr í bóginn, sem næst hjartastað, en ekki í hálsinn. gullnisti, mér mjög kæru, þar sem það var gjöf frá dóttur minni. Nistið er sérkennilegt í lögun. Lengd þess er ca. 4 cm og breidd ca. 1 cm. Það sem einkennir það er að nafn mitt, Helgi, er mót- að í flöt þess, með svo- kölluðu „hieroglyphic" stafrófi eða forn-egypsku myndletri. Ég tel líkurnar vera meiri á því að ég hafi tapað því á Þórshöfn en get ekki fullyrt neitt um það. Hafi einhver fundið nistið eða einhver finni það, þó sex vikur séu liðnar frá því það tapaðist, bið ég þann vin- samlegast að hafa sam- band við mig. Helgi Thorvaldsson, Sólheimum 26, Reykjavík, sími 553 4932. Gæludýr Köttur óskast KASSAVANUR köttur, helst persneskur eða skógarköttur óskast á gott heimili. Vinsamleg- ast hringið í síma 568-0069. Víkveiji skrifar... STJÓRNMÁL á íslandi hafa liðið fyrir það, að mati Víkveija dagsins, að flokkar hafa verið of margir og of smáir. Sterkar eins flokks ríkisstjórnir, með skýr mark- mið og óskipta stjórnunarábygð, hafa ekki litið dagsins ljós. Kjósend- ur eiga heldur ekkert val, hvað rík- isstjórn eða stjómarstefnu varðar, þegar þeir ganga að kjörborði. Um allt slíkt er samið á bak þeirra, eft- ir kosningar. Jafnvel flokkar, sem fólk hefur hafnað í raun í kosning- um, geta samið sig inn í ríkisstjórn- ir — deilt og drottnað. Þetta kom upp í huga Víkveija við lestur viðtals Alþýðublaðsins við Magnús Torfa Ólafsson, fyrrver- andi þingmann og ráðherra, í vik- unni. Þar segir sá spaki maður: „Þá er það svo, að því rækilegar sem hlutfallskosningakerfið er út- fært, er líklegra að flokkar verði margir og smáir. Mér þykir trúlegt að flokkum fækkaði skjótt ef hér yrðu tekin upp einmenningskjör- dæmi. “ Slík kjördæmi yrðu og, að mati Víkveija, mun skemmtilegri, tengsl þingmanns og kjósenda nánari, kostir við kjörborðin skýrari. xxx VIÐ EIGUM einn sæmilega stór- an og sterkan stjórnmála- flokk, Sjálfstæðisflokkinn. Fram- sóknarflokkurinn stendur og vel út úr hnefa. En það verður naumast sagt í dag um Alþýðuflokk, Alþýðu- bandalag, Samtök um kvennalista eða Þjóðvaka. Kosningakerfið og kjördæma- skipunin hafa ýtt undir smáflokka. Þeir sem muna og þekkja söguna dulítið aftur í tímann kannast við nöfn eins og Þjóðvarnarflokkur, Lýðveldisflokkur, Óháði lýðræðis- flokkurinn, Samtök frjálslyndra og vinstri manna, Borgaraflokkur, Bandalag jafnaðarmanna o.sv.fv. o.sv.fv. Flokkagerið hefur síðan valdið því að mikill fjöldi atkvæða dettur „dauður niður“ í kosningum. Og smæð flokkanna hefur þau áhrif að þeir hafa hvorki reynzt fugl né fiskur á þjóðmálasviðinu. Einmenningskjördæmi hafa sína galla, eins og önnur kosningakerfi. Þau stuðla hins vegar að stórum og sterkum stjórnmálaflokkum. Kjósendur vita og fýrirfram hvers konar ríkisstjórnir þeir koma á koppinn með atkvæðum sínum. Og stjórnarstefnur verða skýrari og markvissari. xxx VO LENGI sem Víkveiji man, og það er býsna langt, hafa svokallaðir vinstri menn „fimbul- fambað“ um sameiningu. Hálfrar aldar síbylja skrafs og skrifa um þá sameiningu hefur þó jafnhraðan runnið út í sandinn. Vinstri flokkar hafa til þessa aðeins sameinast um að vera ósammála. Vinstri menn eru þó enn við sama heygarðshornið. Víkveiji sér það í blaðinu sínu að Jón Baldvin Hanni- balsson og Svavar Gestsson hafa fundað um þetta gamalkunna um- ræðuefni vinstri manna síðastliðinn mánudag — og farið á kostum í orði og æði sem þeirra var von og vísa! En máski liggur „lausn vandans“ í orðum Magnúsar Torfa Ólafssonar um einmenningskjördæmi, sem hér að framan voru tíunduð. í kosninga- kerfi einmenningskjördæma ættu vinstri flokkar ekki annan kost en að sameinast! Ella koðnuðu þeir niður. Kosningakerfi af því tagi er eins og forskrift að þeirri samein- ingu, sem vinstri menn hafa fjölyrt um í hálfa öld og heykst á jafn lengi. Ef hér væru einmenningskjör- dæmi — eða brezkt kosningakerfi — myndu trúlega myndast tvær, kannski þrjá, meginfylkingar. Sjálf- stæðisflokkur, flokkur fijálslyndra og hægri manna, Vinstri flokkur jafnaðarmanna og hugsanlega Miðjuflokkur. Smáflokkar hyrfu í blámóðu burt. Farið hefur fé betra! Með þeim hætti ættu og kjósend- ur val í kosningum, sem þeir eiga nánast ekki nú, hvað ríkisstjórn og stjórnarstefnu varðar. Þá geta þeir og dregið einn flokk til ábyrgðar á stjórn landsins, fellt eða stutt eftir atkvikum og frammistöðu. Skýrari línur, skýrari valkostir, samhentari ríkisstjórnir!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.