Morgunblaðið - 03.09.1995, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995 45
ÍDAG
SKÁK
Umsjón Margeir
Pctursson
SVARTUR leikurog vinnur
Staðan kom upp á opnu
móti í Peking í vetur í við-
ureign tveggja Kínverja.
Zhu Chunhui (2.360) var
með hvítt, en stórmeistar-
inn Ye Rongguang
(2.510) var með svart og
átti leik.
1. - Hg6! 2. Hg3 (Eini
vamarmöguleikinn, því
eftir 2. Dxg6 — De2+
verður hvítur mát í borð-
inu) 2. — Hxg3 3. Dxg3 —
De2+ 4. Kcl — Bxf4! og
hvítur gafst upp því 5.
Dxf4 gengur auðvitað ekki
vegna 5. — Del mát. í til-
efni af alþjóðlegu kvennar-
áðstefnunni í Kína sem
mikið er í fréttum er vert
að geta þess að Kínveijar
eiga heimsmeistara kvenna
í skák og hún mun senn
freista þess að verja titil
sinn fyrir áskoran Zsuzsu
Polgar, elstu Polgarsyst-
urinnar. Styrkleikamunur
á körlum og konum í skák
er miklu minni í Kína en á
Vesturlöndum.
Pennavinir
LETTNESKUR háskóla-
stúdent með margvísleg
áhugamál:
Uldis Locmans,
O. Kalpaka Street
60-42,
Liepaja,
Latvia.
FRÁ Brasilíu skrifar karl-
maður, líklega á þrítugs-
aldri, með mikinn áhuga á
Islandi:
Anderson Carvalho,
Rua Caetano Pines
126,
Sao Jose Do Alegre
M.G.
Brazil.
TUTTUGU og þriggja ára
þýsk stúlka sem nemur forn-
íslensku við J.W. Goethe-
háskólann í Frankfurt vill
®fa sig í málinu með því að
eignast íslenska pennavin-
konu. Skrifar á góðri ís-
lensku:
Yvonne S. Bonnetain,
Eieonore-Sterling-Str.
62,
60433 Frankfurt
. Germany.
ATJÁN ára Ghanapiltur með
áhuga á bókum, ljósmyndun,
borðtennis, tónlist, ' kvik-
myndum og dansi:
Ebenezer A. Aubyn,
c/o P.O. Box 1088,
Cape Coast,
Ghana.
Árnað heilla
Ljósmynd: Hugskot
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 3. júní í Bústaða-
kirkju af sr. Pálma Matthí-
assyni Þuríður Georgs-
dóttir og Hlöðver Guð-
mundsson. Heimili þeirra
er á Gunnarsbraut 34,
Reykjavík.
BRUÐKAUP. Gefin vora
saman 3. júní sl. í Hvíta-
sunnukirkjunni Fíladelfíu af
Hafliða Kristinssyni EHn
Birgitta Blrgisdóttir og
Ketili Már Júliusson.
Heimili þeirra er í Hraunbæ
90, Reykjavík.
Hlutavelta
ÞESSAR duglegu stúlkur seldu flöskur og dósir
til styrktar Barnaspítala Hringsins og varð ágóð-
inn 6.935 krónur. Þau heita Linda Smáradóttir,
Tinna Berg Petersen og Lilja Dfs Ragnarsdóttir.
ÞESSAR duglegu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu
til styrktar Rauða krossi íslands og varð ágóðinn
1.100 krónur. Þær heita Margrét Ólafsdóttir og
Tinna Ósk Þorvaldsdóttir.
ÞESSAR duglegu stúlkur héldu nýlega basar til
styrktar krabbameinssjúkum börnum og varð
ágóðinn 7.534 krónur. Þær heita Ólöf Halla Guð-
rúnardóttir og Halldóra Ágústsdóttir.
ORÐABÓKIN
Erlendis
I þessum pistlum hefur
áður verið vikið að þessu
atviksorði í samböndum
eins og fara eða vera
er/end/s. Bent var á, að
óeðlilegt sé og raunar
rangt að tala um að /ara
erlendis í merkingunni
að fara til útlanda. í
nýjasta eintaki Tungu-
taks, sem málfarsráðu-
neytur Ríkisútvarpsins,
Ári Páll Kristinsson,
gefur út til leiðbeiningar
á þeim bæ sérstaklega,
er vikið að ao. erlendis.
Leyfi ég mér að taka
UPP helztu atriði úr
nefndu Tungutaki, þar
sem það varðar fleiri en
útvarpsmenn. Þar segir
m.a.: „Atviksorðið er-
lendis merkir að réttu
lagi „í öðru landi“ og
felur ekki í sér neina
hreyfingu. Þess vegna
er rangt að segja að
maður hafi „farið er-
lendis“ þegar átt er við
að hann hafi íarið til
útlanda. Hins vegar er
hægt að segja að maður
hafi verið erlendis." Er
þá átt við dvölina á
staðnum. Ari Páll bendir
réttilega á, að við höfum
annað ágætt orðalag um
hreyfingu til útlanda,
þ.e. að fara út. Eins er
líka talað um að fara
utan. Það orðalag hefur
vafalaust þekkzt í máli
okkar allt frá upphafi.
Vel minnist ég orðalags
sem þessa fyrir daga
flugferðanna: Hann fór
utan með Gullfossi eða
Hann fór utan með
Drottningunni (þ.e.
Dronning Alexandrine).
Ástæðulaust er að láta
ao. erlendis ryðja réttara
orðalagi úr vegi.
J.A.J.
STJÖRNUSPÁ
*
MEYJA
Afmælisbarn dagsins:
Þú kemur vel fyrir þig orði
íræðu ogriti ognýturþín
í margmenni.
Hrútur
(21. mars- 19. apríl)
Ýttu vinnunni til hliðar í dag
og einbeittu þér að fjölskyld-
unni. Það væri vel til fundið
að bjóða heim góðum gestum
í dag.____________________
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þótt á ýmsu gangi í dag tekst
þér að ljúka því sem þú
ætlaðir þér. Síðdegis tekst
þér einnig að leysa vandamál
vinar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júnl) 9»
Þú ert að reyna að ljúka verk-
efni heima, en félagslífið
heillar. Láttu eftir freisting-
unum, því vinnan getur vel
beðið.
Krabbi
(21. júnl — 22. júlf) HIS
Óþarfa gagnrýni getur sært
tilfinningar ástvinar. Reyndu
að bæta þar úr áður en það
er of seint. Umhyggjusemi
borgar sig.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú verður fyrir óvæntum út-
gjöldum, en þau eru minni-
háttar og viðráðanleg.
Reyndu því að njóta frístund-
anna með ástvini.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) sSÉ
Það gerir þér gramt í geði
hve erfitt ástvinur á með að
gera upp hug sinn í mikil-
vægu máli í dag. Reyndu að
sýna þolinmæði.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Gerðu ekki of mikið veður
út af smámunum, sem í raun
skipta litlu máli og auðvelt
er að leysa. Kvöldið verður
skemmtilegt.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú safnar orku og sefur fram
eftir í dag, en tekur svo ræki-
lega til hendi og kemur miklu
í verk. Slakaðu á heima í
kvöld.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Þig langar að sækja mann-
fagnað í dag, en ýr þvi verð-
ur ekki vegna annríkis. Þrátt
fyrir vonbrigði kemur þú
miklu í verk.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert vel fær um að sinna
smá viðgerðum heima, en
ættir að leita til sérfræðings
þegar um meiriháttar bilun
er að ræða.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðk
Láttu ekki smámuni spilla
góðu sambandi ástvina.
Reyndu að rétta fram sáttar-
hönd. Vinur veldur þér von-
brigðum í dag.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) *££
Þú átt erfitt með að gera upp
hug þinn árdegis, en seinna
verður þér ljóst hvað ber að
gera. Vinur kemur þér til
aðstoðar.
Stjömuspána á að lesa sem
dœgradvól. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
m'sindalegra staðreynda.
LEIKFIMI í BREIÐAGERÐISSKÓLA
Hressandi leikfimi fyrirfólk á öllum aldri hefst 12. september.
Sér konutímar og sér karlatímar á þriðjudögum og fimmtudögum.
Upplýsingar og skráning í síma 554 2982.
Arna Kristmannsdóttir,
íþróttakennari.
Vatnslelkfimi
Suðurbæjarlaug Hafnarfiröi
Upplýsingar í símum 554-6208
og 565-8270
VATNSLEIKFIMI
• HeUlandi
líkamsræktarform
• Brennsla, þrek og slökun
• Sundkennsla
fullorðinna -
bringusunds- og
skriðsundsnámskeið
Þjóðfélag án þröskulda
<%>
Samkeppni
um rítun leikþáttar
Þátturinn skal vera milli 20 og 30 mín í flutningi, persónur
2 - 3 og fjalla um aðgengis- og ferlimál hreyfihamlaðra.
Skilafresturertil 15. okt. nk.
Veitt verða þrenn verðlaun, 75,50 og 25 þúsund krónur.
Vel gæti svo farið að fleiri þættir yrðu valdir til flutnings
og þá fyrir venjuleg höfundarlaun. Verkin skulu merkt
dulnefni, en nafn og heimilisfang höfundar fylgja með
í lokuðu umslagi.
Verðlaunaþættirnir verða æfðir í nóvember og fluttir
3. desember á alþjóðadegi fatlaðra í tengslum við af-
hendingu á viðurkenningum fyrir gott aðgengi.
Nánari upplýsingar eru veittar í símum
552-9133 og 568-3038.
Starfsnefnd Sjálfsbjargar landsambands fatlaðra um ferlimál.
Hala- leikhópurinn, leiklist fyrir alla.
Leikfélagið Júlía á Akureyri.
Samband íslenskra sveitarfélaga.
Frábærir nýjir sport
brjóstahaldarar, sem
lyfta barminum í stað
þess aó gera lítið úr
honum. Peir eru
þægilegir, gefa góðan
stuðning og
kvenleikinn fær að
njóta sín.
AGUSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S.533 3358