Morgunblaðið - 03.09.1995, Page 52
52 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA / ITALIA
Roberto Baggio ánægður með að hafa skipt úr Juve í AC Milan:
Er sem heima og við
erum með besta liðið
ITALSKA meistarakeppnin í knattspyrnu er hafin. Juventus á tit-
il að verja en nágrannarnir í AC Milan hafa ekkert til sparað til
að komast aftur í fremstu röð og hafa m.a. keypt Roberto Baggio
frá Juve. Framlína liðsins með Baggio, Dejan Savicevic og Georg-
es Weah þykir ekki árennileg og er þegar farið að nefna þremenn-
ingana draumasóknina en að því hefur verið látið liggja að lið
komi til með að leggja meiri áherslu á sóknarleik en áður. Þjálf-
ari Roma segist ætla að taka áhættu í þá veru og sem fyrr er
liðinu spáð góðu gengi í byrjun tímabils en Parma hefur aldrei
verið sterkara og sagt er að liðið hafi ekki fyrr eins mikla mögu-
leika á titlinum.
Hörðustu stuðningsmönnum Ju-
ventus kom aldrei til hugar
að fýrirliðinn Roberto Baggio ætti
eftir að færa sig um set í Mílanó
og leika með AC Milan. Engu að
síður verður það staðreynd á morgun
þegar AC Milan sækir Padova heim
í fyrstu umferð ítölsku deildarkeppn-
innar. Og nú óttast sömu stuðnings-
mennirnir að það versta sem fyrir
þá getur komið fylgi í kjölfarið —
að Baggio hjálpi AC Milan til að
endurheimta titilinn — en hann lagði
sitt af mörkum þegar Juve hafði
betur en AC Milan í baráttunni um
meistaratitilinn á liðnu tímabili.
Þó félögin hafi ákveðið að vinna
saman að markaðsmálum er sam-
keppni þeirra síst minni en áður inni
á vellinum. Hins vegar er Baggio
sannfærður um að AC Milan takist
ætlunarverkið — að verða meistari
og öðlast þar með sæti í Evrópu-
keppni meistaraliða á ný. „Eftir að
hafa séð hvað [George] Weah getur
og með skipulagningu okkar á vellin-
um í huga eru engar efasemdir í
huga mínum. Við erum með besta
lið Ítalíu og ég er sem heima hjá
mér,“ sagði landsliðsmaðurinn.
AC Milan varð þrisvar sinnum
meistari í Evrópukeppni meistaraliða
á tímabilinu 1989 til 1994 og í öðru
sæti 1993 og 1995. Félagið, sem
' vann ekki til verðlauna á síðustu
sparktíð, vill vera með liðið í keppni
þeirra bestu og eyddi mest allra liða
deildarinnar í nýja leikmenn fyrir
tímabilið í þeim tilgangi að ná
markmiðinu. Auk þess að kaupa
Baggio fjárfesti það í Weah frá Lí-
beríu sem lék með PSG í Frakklandi
en hann hefur tvisvar verið kjörinn
knattspyrnumaður ársins í Afríku.
Aðrir erlendir leikmenn í dýrum hópi
eru Dejan Savicevic frá Svartfjalla-
landi, Frakkinn Marcel Desailly,
Króatinn Zvonomir Boban og Paulo
Futre frá Portúgal. „Við verðum að
ná meistaratitlinum," sagði
Savicevic. „Helsta markmið AC
Milan er að taka aftur þátt í Evrópu-
keppni meistaraliða og við erum til-
búnir að sækja.“
Juventus með nær sama lið
Juventus hefur oftast allra liða
orðið ítalskur meistari, 23 sinnum.
Félagið ákvað að halda tryggð við
hetjurnar frá því í vor og bætti að-
eins einum erlendum leikmanni í
hópinn, argentíska vamarmanninum
Juan Pablo Sorin sem er 19 ára.
Mikils er vænst af Gianluca Vialli
og eru bundnar vonir við að krúnur-
akaði miðherjinn kryddi glæstan fer-
il með því að lyfta Evrópubikar
meistaraliða í vor og vinni sér sæti
í ítalska landsliðinu á ný fyrir úrslita-
keppni Evrópumótsins í júní. Ales-
sandro Del Piero, sem er 20 ára og
að byija þriðja tímabil sitt hjá Juve,
tekur væntanlega stöðu Baggios
eins og hann gerði þegar Baggio var
frá vegna meiðsla í fyrra.
Parma aldrei sterkara
Parma er í litlum bæ en félagið
er stöndugt og það ætlar sér stóra
hluti eins og kaup Búlgarans Hristos
Stoichkovs frá Barcelona á Spáni
bera með sér. Hann verður í góðum
sóknarfélagsskap með Faustino
Asprilla frá Kólombíu og ítalanum
Gianfranco Zola og er talið að
Parma, sem fagnaði sigri í Evrópu-
keppni félagsliða í vor og varð í
þriðja sæti í deildinni, hafi aldrei átt
eins mikla möguleika á efsta sæti
en félagið hefur ekki enn orðið deild-
armeistari.
Lazio var í öðru sæti með betri
markatölu en Parma en virðist eiga
erfiðara tímabil fyrir höndum. Félag-
ið seldi enska landsliðsmanninn Paul
Gascoigne til Glasgow Rangers í
Skotlandi og hefur ekki fundið verð-
ugan eftirmann. Óeining hefur ríkt
í hópnum og 5:0 tap í æfingaleik
gegn Evrópumeisturum Ajax í Hol-
landi fyrir skömmu kallaði fram efa-
semdir um vörnina.
Roma hefur gjarnan verið spáð
góðu gengi áður en átökin hefjast
þrátt fyrir að hafa ekki staðið undir
væntingum þegar á hefur reynt.
Carlo Mazzone, þjálfari, segist ætla
að breyta til og sækja meira en áður.
„Við verðum með meira sóknarlið
en áður í þeim tilgangi að sigra í
fleiri leikjum en jafnframt tökum við
meiri áhættu að tapa fleiri.“
KAPPAKSTUR
Dýrasti
ökumaður
sögunnar
i^jóðveijinn Michael Schumac-
her, verður launahæsti kapp-
akstursökumaður allra tíma á
næsta keppnistímabili. Hann er
núverandi heimsmeistari í Formula
1 kappakstri og ekur fyrir breska
Benetton keppnisliðið. En á næsta
ári mun hann ganga til liðs við ít-
alska Ferrari liðið sem mun greiða
honum sem svarar 3,2 milljörðum
króna í laun á næstu tveimur árum.
Þá er áætlað að hann geti að auki
selt auglýsingar á keppnisgalla sinn
fyrir 330 milljónir króna.
13,7 milljónir á klukkustund
Schumacher er aðeins 26 ára
gamall og býr í Monakó, þar sem
hann nýtur skattafríðinda, eins og
margar íþróttastjörnur er þar búa.
Honum mun ekki veita af góðum
endurskoðanda næstu tvö árin með
Ferrari. Ef tíminn sem hann eyðir
um borð í bílnum í hveiju móti er
áætlað að hann sé með um 13,7
milljónir í laun á klukkutímann, en
hann situr undir stýri í 7 klukku-
tíma í kringum hveija keppni. Ferr-
ari finnst hann hverrar krónu virði,
en að mati margra er hann einni
sekúndu fljótari hvern hring en
aðrir ökumenn. Ferrari liðið hefur
ekki verið sterkt undanfarin ár, en
Verðandi meistarar?
AC MILAIM veröur meö geyslsterkt llö í vetur, hafa m.a. feng-
Ið Roberto Bagglo frð melsturum Juventus. Leikmenn fá ör-
ugglega mörg tækifæri til aö fagna í vetur, en hvort þeir
fagna í vor þegar úrslitin liggja fyrir skal ósagt látið.
Meistara-
keppni
kvenfólksins
í fyrsta sinn
BRYDDAÐ verður uppá nýj-
ung í kvennahandboltanum í
vetur því búið að koma á
meistarakeppni kvenna, þeg-
ar mætast Islands- og bikar-
meistarar síðasta árs. Það
verða því íslandsmeistarar
Stjömunnar og bikarmeistar-
amir í Fram sem eigast við
27. september næstkomandi.
Völsungur
ekki með í
2. deild
VÖLSUNGUR frá Húsavík
hefur hætt við þátttöku í 2.
deild karla í handknattleikn-
um og em því liðin í 2. deild
tíu. Völsungar hafa hinsvegar
sótt um að taka þátt í keppni
B-liða meistaraflokks og var
það samþykkt af mótanefnd.
Handbolti í
september
OPNA Reykjavíkurmótið í
handknattleik fer fram 7. til
10. september I Laugardals-
höll, íþróttahúsinu í Austur-
bergi og Seljaskóla. Vegna
utanlandsferðar Stjömunnar
lék hún hinsvegar við Víkinga
í gærkvöldi. Búið er að draga
í riðla. í A-riðli era Valur,
Grótta, FH, ÍH og Breiðablik,
B-riðli KA, KR, Haukar, BÍ
og Fylkir, C-riðli Víkingur,
Stjarnan, Selfoss og Fram en
í D-riðli UMFA, ÍR, ÍBV og
HK.
Sá besti og sá dýrasti
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
MICHAEL Schumacher verður á þessum Ferraribíl á næsta ári. Hann fær sem svarar 3,2
mifljörðum króna í laun á næstu tvelmur árum, fyrlr aö aka bílnum.
koma Schumacher til liðsins gæti
fært þeim það sem vantar.
Schumacher er í toppformi lík-
amlega og er ekki að ósekju talinn
sá hraustasti í Formula 1 kapp-
akstri. Stundum hefur verið sagt
að vart sjái á Schumacher eftir
keppni, á meðan aðrir eru að niður-
lotum komnir. Hann hefur ótrúlegt
lag á að stjórna hjartslætti sínum,
þ.e. halda honum í skefjum, þó al-
gengt sé að mjög ör hjartsláttur sé
fylgifiskur þess að keppa í kapp-
akstri. Á unglingsárunum ók hann
kartbílum og varð þýskur meistari.
Benz bílaverksmiðjan réð hann til
sín. Hann keppti í kappakstri á
Benz kappakstursbílum, en það var
síðan Eddie Jordan, keppnisstjóri
Jordan F’ormula 1 Iiðsins, sem upp-
götvaði hæfileika hans. Eftir nokk-
ur mót með Jordan var hann seldur
fyrir hátt verð til Benetton. Þar
hefur hann síðan blómstrað og er
nú verðmætasti ökumaður allra
tíma — enn ungur að árum.