Morgunblaðið - 03.09.1995, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 03.09.1995, Blaðsíða 56
varða víðtæk fjármálaþjónusta Landsbanki íslands Bankl allra landsmanna póst gíró Ármúla 6 • 150 Reykjavík © 550 7472 MORGUNBLAÐW, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Ný reiknilíkön yfir gróðurhúsaáhrif .Röskun gæti orðið á haf- straumum EYÐING ósonlagsins kann að hafa áhrif á lífríki hafsins ekki síður en mannfólkið er meðal niðurstaðna erlendra rannsókna sem fram hafa far- ið. Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu, segir að rýrnun ósonlagsins geti haft áhrif á vöxt þörunga, frumframleiðni C - thafsins og þar með á fiskistofna. Þá benda ný reiknilíkön til þess að verði aukning á útlosun á koltvíildi í andrúmslofti jafnhröð og verið hefur síðustu ár geti hitastig hækkað um allt að 4 gráður sums staðar á jörðinni á einum mannsaldri og valdið röskun á hafstraumakerfum. Magnús segir að vísindamenn leggi mun meiri trúnað á líkön um gróðurhúsaáhrif en áður var. „Það voru deilur um það milli vísindamanna hvort hækkun koltví- ildis í andrúmsloftinu ylli hitastigs- hækkun. Þau líkön sem áður var stuðst við gáfu mismunandi niður- stöður. Nú hefur þeim verið breytt og þau talin gefa mun betri spá en áður um hvað muni gerast,“ sagði Magnús. Gæti leitt til þess að Golfstraumurinn færi annað Magnús flutti um þetta fyrirlest- ur nýlega á fundi Rótarýklúbbs Reykjavíkur. Þar kom m.a. fram að koltvíildi gæti tvöfaldast í and- rúmsloftinu á næstu 40-70 árum ef útlosun, þ.e.a.s. brennsla kol- efna, eykst með sama hraða og verið hefur á undanförnum árum. Ef þetta gerðist væri því spáð, með ýmsum fyrirvörum, að meðaltals- hækkun á hitastigi í andrúmslofti — gæti sums staðar á jörðinni orðið allt að 4 gráður en á öðrum svæð- um gæti orðið kólnun. „Þetta eru það stórkostlegar breytingar að þær gætu haft veru- leg áhrif hérlendis því hitastigs- hækkunin gæti raskað hafstrauma- kerfinu hér við land. Afleiðingin gæti t.d. orðið sú að Golfstraumur- inn kæmi ekki að íslandsströndum en færi eitthvert annað,“ sagði Magnús. ísiand byggilegt vegna aðstæðna í hafinu Þannig hefur verið litið á að ís- land væri fyrst og fremst byggilegt vegna þeirra aðstæðna í hafinu sem við búum við. „Það vill enginn hugsa þá hugs- un til enda að breytingar verði á hafstraumakerfinu," sagði Magnús og bætti því við að þessar spár sýndu það glögglega hve mikið hagsmunamál það væri að ríki heims næðu saman um aðgerðir til þess að draga úr hækkun koltvíild- is í andrúmsloftinu. „Við hljótum að leggja áherslu á að þarna eru það miklar breyting- ar sem gætu átt sér stað að allt verði gert sem hægt er til þess að koma í veg fyrir að sú áhætta verði tekin," sagði Magnús. Heitt vatn rann í Elliða- ámar HITAVEITUÆÐ sprakk í Hábæ í Árbæjarhverfi í fyrra- kvöld og rann heitt vatn út í Elliðaárnar skammt frá Ár- bæjarkirkju. Tveir ungir piltar, Bjartmar Alexandersson, t.h. og Loftur Þórarinsson, urðu varir við lekann og segir Bjartmar að litlu hafi mátt muna að hann brenndi sig á fæti í vatninu. Hjá Hitaveitu Reykjavíkur fengust þær upp- lýsingar að vatnið sem fór í árnar hafi verði u.þ.b. 60 gráðu héitt. Ekki sé vitað hvernig það komst úr niðurföllunum í brunnunum og yfir í árnar en að það verði kannað eftir helgi. Morgunblaðið/Þorkell Heimabanki Islandsbanka Reikningarnir greiddir heima ÍSLANDSBANKI býður nú við- skiptavinum sínum nýja þjónustu, svokallaðan heimabanka, sem gerir þeim kleift að sinna flestum banka- viðskiptum sínum heima hjá sér hve- nær sem þeim hentar. Allt sem þarf er tölva, sími og mótald. Þeir sem tengjast tölvukerfi heimabankans geta greitt reikninga, hvort sem það eru gíróseðlar eða afborgarnir af lánum, millifært af eigin tékkareikningum á aðra reikn- inga, skoðað stöðu og færslur á reikningum sínum og fengið upplýs- ingar um stöðu kreditkorta sinna. Þar á ofan er hægt er að reikna greiðslubyrði lána og fá aðgang að þjóðskrá. Þá getur fólk sótt um að- gang að reikningum og kreditkort- um allra á heimilinu að fenginni heimild reikningseigendanna. í frétt frá íslandsbanka segir að heimabankinn sé bæði einfaldur og auðveldur í notkun. Tenging við bankann kostar 1.500 krónur og árgjaldið er 960 krónur. Ekkert gjald er tekið fyrir greiðslur, millifærslur eða yfiriit. Handbók hefur verið gef- in út, viðskiptavinum heimabankans til leiðbeiningar. Meðal þeirra fyrstu sem tengjast heimabankanum er viðskiptavinur íslandsbanka sem býr í Lundúnum og annar sem býr á Fáskrúðsfirði en er með bankaviðskipti sín í útibúi í Reykjavík. Leiðakerfi Strætis- vagna Reykjavíkur Unnið að allsherjar endur- skoðun DANSKIR ráðgjafar hafa unnið að því undanfarið ár að skoða leiðakerfi SVR í samhengi við umferðarflæði í borginni. Munu þeir skila tillögum nú á haustdögum, en gert er ráð fyrir að breytingar taki gildi næsta vor. Ekki stendur til að auka heildar- tíðni ferða en til að auka þjónustu er gert ráð fyrir að fjölga vögnum á mesta álagstíma að morgni og síð- degis. Brottfarartímar úr hverfum verða einnig skoðaðir með tilliti til * betri dreifingar. Fleiri aðgerðir standa yfir hjá SVR til að auka þjónustu við farþega. Ein af þeim er að opna þjónustudeild á Hlemmi, þar sem viðskiptavinir geta fengið upplýsingar um hvemig hægt er að komast auðveldast og fljótast á milli staða. Tekur hún að fullu til ^ starfa á morgun. ■ Strætó gefur í/24 Evrópusambandið styrkir íslenska margmiðlun FYRIRTÆKIÐ Oz hf., sem sér- hæft hefur sig í tölvugrafík og margmiðlun, vinnur nú að tölvu- leik sem seldur verður um allan heim á tölvugeisladiski, svonefnd- um CD+ diski. Leikurinn ber heit- ið „Forever Interactive", og er að sögn eins þeirra sem að honum vinna „eins konar Ódysseifskviða" og verður markaðssettur næsta haust. Leikurinn byggist á nýrri tækni sem kallast CD+, en diska þeirrar gerðar má spila í venjulegum geislaspilara og hlusta þannig á þá tónlist sem á þeim er. Sé diskurinn hins vegar settur í tölvu les tölvan upplýsingar af honum og leikurinn getur hafist. Eyþór Arnalds og Móeiður Júníusdóttir semja tónlistina sem á diskinum verður, en þau semja einnig þá tónlist og þau áhrifs- hljóð sem fylgja leiknum. Eyþór segir að vinna sem þessi sé afskaplega tímafrek, ef gera eigi leikinn vel úr garði, og þann- ig hafí fimmtán manns unnið að honum meira og minna í sex mánuði. „Síðan eigum við aðra sex mánuði eftir áður en leikurinn verður tilbúinn á markað,“ segir Eyþór, en þá er eftir að markaðs- setja leikinn og staðfæra, til að mynda verður japönsk útgáfa hans að vera á japönsku, þannig að Iíklega kæmi hann á markað næsta haust. Eyþór segir að kostnaður við vinnu sem þessa sé gríðarlegur, ytra sé algengt að leikir af þessari stærðargráðu kosti 60 til 150 milljónir króna, en starfsmenn Oz hafí ýmsar hug- myndir sem geri vinnuna léttari og mun ódýrari og því verði kostn- aður líklega um 15 milljónir króna. „Það er þó nánast ógern- ingur að meta kostnaðinn af ein- hverri nákvæmni, því mikill kostn- aður liggur í vinnu innan fyrir- tækisins, aðstöðu og tækjum, sem hvergi er talinn." Oz hefur fengið styrk til verkefnisins frá Reykja- víkurborg sem atvinnuskapandi verkefni, en einnig hefur verkefn- ið fengið styrk frá margmiðlunar- sjóði Evrópubandalagsins, Media Fund. Eyþór segir að samskiptin við Media Fund hafi gengið afskap- lega vel og á fimmtudag hafi for- ráðamaður sjóðsins lýst að fyrra bragði áhuga á að styrkja verk- efnið enn frekar. „Það er mikil upphefð að fá styrk frá þessum sjóði," segir Eyþór, „en hann styrkir aðeins þau verkefni sem þykja skara framúr.“ Eyþór segir að þó að leikurinn sé ekki tilbúinn hafi Oz-menn kynnt hann ytra og fengið góð viðbrögð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.