Morgunblaðið - 24.09.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1995 B 27
þessa óvenjulegu túlkun á hlut-
verkinu. Hún lék einnig aðalhlut-
verkin í kvikmynduðum verkum
frægustu leikskálda Dana og Svía,
m.a. Heddu Gabler eftir Ibsen og
Fröken Júlíu eftir Strindberg.
„Die freudlose Gasse“ (1925),
Gata sorgarinnar, eftir George
Wilhelm Pabst er ein af þekktustu
myndum Astu. Myndin lýsir á ex-
pressjónískan hátt efnahagslegri
hnignun og siðferðislegri úrkynjun
og segir frá lífi nokkurra íbúa við
ömurlega götu í Vín eftir fyrri
heimsstyijöldina. Pabst skar sig
úr hópi expressjónistu kvikmynda-
gerðarmannanna að því leyti að
myndir hans báru oft á tíðum keim
af óvægnu þjóðfélagslegu raunsæi
og sýndu vesöld götulífsins,
biðraðirnar, innantómt skemmt-
analífið og vændiskonurnar. „Hver
er tilgangurinn með rómantík,"
spurði Pabst, „þegar veruleikinn
er nægilega rómantískur og hrylli-
legur eins og hann er?“ I mynd-
inni leikur Asta gleðikonu á miðj-
um aldri ásamt ekki ófrægari leik-
konum en Gretu Garbo og Marlene
Dietrich. Þetta var þriðja mynd
Garbo í fullri lengd og leikur hún
dóttur prófessors sem berst við
að bjarga fjölskyldu sinni frá því
að svelta í hel. Marlene Dietrich
er statisti í myndinni.
Endalok þögla
tímabilsins
Þegar hljóðið kom til sögunnar
seint á þriðja áratugnum fór ferill
Astu hnignandi, þar sem tæknin
sem hún hafði þróað með sér á
þögla tímabilinu skilaði sér ekki í
talmyndum. Hún hætti kvik-
myndaleik árið 1932 og sneri sér
aftur að sviðsleik í Þýskalandi og
Austurríki, þar sem hún lék m.a.
Kamelíufrúna og fór síðan til Dan-
merkur. Þar skrifaði hún sjálfsæ-
visögu sína, Þögla gyðjan I og II,
stórmerkilega bók, sem lýsir á lif-
andi hátt tíðaranda þögla tímabils-
ins og hvernig kvikmyndagerð fór
fram á því tímabili. Samhliða skrif-
um sínum lagði hún fyrir sig tau-
þrykk og gerði mörg klippiverk
úr taui, m.a. nokkrar sjálfsmyndir
og eru tvær þeirra varðveittar á
danska og franska kvikmynda-
safninu.
Hún giftist í þriðja sinn þegar
hún var 88 ára að aldri listaverka-
salanum Anders Thede, sem var
18 árum yngri en hún. Asta lést
árið 1972, 91 árs að aldri, og var
logð til hvíldar í Vestur-kirkju-
garðinum í Kaupmannahöfn. Á
kvikmyndahátíðinni verður boðið
upp á myndirnar Hyldýpið, Litla
engilinn, Götu sorgarinnar, heim-
ildarmyndina „Die Asta“ eftir
Jörgen Roos og S 1 (1913), sem
er ein af elstu myndum Astu og
sýnir hvílíkt erfiði kvikmyndagerð
var á þessu nýmótaða tímabili
kvikmyndasögunnar. Myndin var
nærri gleymd þar til hún fannst
nýverið í Moskvu og var gerð upp.
í þessum myndum gefst kvikmyn-
daunnendum sjaldfengið tækifæri
til að sjá þessa þöglu, norrænu
kvikmyndagyðju sem á sínum tíma
hlaut alheimsfrægð.
Á kvikmyndahátíðinni verður
boðið upp á myndirnar „Hyldýp-
ið“, „Litla engilinn", Götu sorgar-
innar“, heimildarmyndina „Die
Asta“ eftir Jörgen Roos og S1
(1913), sem er ein af elstu mynd-
um Astu og er gerð undir merkjum
föðurlandsástar og þýskrar þjóð-
ernishyggju. Eins og margar
myndir frá tímum fyrri heimsstyrj-
aldarinnar lýsir S1 ótta almenn-
ings við hervæðingu og njósnir og
skömmu eftir frumsýningu mynd-
arinnar í Berlín var hún tekin til
sýninga í herbúðum Þjóðveija.
Myndin var nærri gleymd þar til
hún fannst nýverið í Moskvu og
var gerð upp. í þessum myndum
gefst kvikmyndaunnendum sjald-
fengið tækifæri til að sjá þessa
þöglu, norrænu kvikmyndagyðju
sem á sínum tíma hlaut heims-
frægð.
Höfundur er kvikmyndafræðing-
ur og sjálfstætt starfandi blaða-
maður.
Ef þú hefur áhuga á eða
> hyggju að breyta til og
skipta um umhverfi, þá
leitum við að
hársnyrti
á nýtískulega hársnyrtistofu.
'Á' Við höfum hársnyrtistofu f
góðum rekstri með spennandi
viðskiptamannahóp og gott og
nútímalegt starfsumhverfi.
"Á Við leggjum áherslu á að
fylgjast með nýjungum í
faginu, s.s. í tískustraumum
og hársnyrtivörum.
★ Við getum boðið fastan frfdag
einu sinni í viku.
■Á Föst laun og prósentur.
★ fbúð búin húsgögnum
(ef óskað er).
Fáið nánari upplýsingar í síma 47 70 07
6849 frá þriðjud. kl. 9-16.30, laugard.
kl. 9-14, eða íheimasíma
47 70 07 75 11 (Magnhild).
FORM FRISÖR
6100 Volda, Noregi
Hársnyrtistofan er í Volda, ca 50 km frá Ulesund. í
Volda búa ca 4000 manns. Þar eru góðir möguleikar
á skíðaiðkun og útilífi í fallegu fjalla- og
strandarumhverfi. í Volda er háskóli m. ca 2000
ncmendum.
s • •
NYTT TOLUBLAÐ fc W\ T1!, // n
Á NÆSTA BLAÐSÖLUSTAÐ
Allt um
Kombukha sveppinn lív t
Handan lífs o§ dauða - Slökunartækni * '%■:. n ..
Síþreyta - íslensk seiðmenning V Á'
Rafsegulsviðsóþol % i
Er framhaldslífið staðreynd - Tarot Tji"
Stjörnuspeki - Draumráðningar o.fl. T' | 4jg
- tímarit um það sem skiptir máli - ' -Vfl- f ▼ l*um 1 iutim;u Uá?hTti»
Áskriftarsími 581 3595 @
ÞÚ GETUR TREYST FAGOR
ÞVOTTAVÉLAR
UPPÞVOTTAVÉLAR
OG ELDUNARTÆKl
Á EINSTÖKU VERÐI
FAGOR S-23N
.. Kælir: 2121- Frystir: 16 I
RONNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 568 5868
HxBxD: 122x55x57 cm
Innbyggt frystihólf
FAGOR D-32R
Kælir: 282 I - Frystir: 78 I
HxBxD: 171x60x57 cm
Stgr.kr.
sui
FAGOR C31R - 2 pressur
Kæiir: 270 I - Frystir: 110 I
HxBxD: 170x60x57 cm
Tvöfalt kæiikerfi
« 67.800
SAMWtí
HASKOLABIO
X i6crfeAric>ié X
M** Qj \\ Á\ jf j u) ii i n\
iwJKSOBKf' \V/\ w Á-^\ (T WW i’ JL/i JUJ