Morgunblaðið - 01.10.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1995«B D 7
dag. Síðan var það sýnt við geysi-
lega góðar viðtökur og þessar for-
sýningar slógu algerlega í gegn.
Eftir að sýningum lauk, settist Jim
aftur niður og er um það bil að ljúka
við að skrifa það fyrir stóra upp-
setningu í West End í Lundúnum.
Frumsýningin verður í upphafi
næsta árs og við verðum annað
landið í heiminum til að sýna það.
Það sem er merkilegt við Jim er
að hann skynjar svo vel áhorfend-
ur. Hann þekkir leikhúsið mjög vel,
treystir leikurum og það held ég
að sé mjög mikilvægt fyrir leikrita-
skáld.
Verkið er úttekt hans á lokum
7. áratugarins - sem hefur verið
ofarlega á baugi - en með
splunkunýtt sjónarhorn. Þetta er
úttekt á hippamenningunni, skrif-
uð utanfrá með augum nútíma-
manns. Þetta er fyrst og fremst
gamanleikur, ekki eins dapurlegur
og fyrri verk hans, en hefur vissu-
lega alvarlegan undirtón. Það er
mikil tónlist í verkinu sem er þó
ekki söngleikur."
Stone Free verður frumsýnt í
Borgarleikhúsinu um miðjan júlí
1996 en æfingar hefjast í maí.
Verkið er sett upp í samstarfi við
Leikfélag íslands.
Sá allt í leikhúsunum
Nú stofnaðir þú Gamanleikhúsið
þegar þú varst tólf ára, eða fyrir
réttum tíu árum.
„Já, og það hefur fylgt mér síð-
an,“ segir Magnús sposkur, „og það
er ennþá til. Engin ástæða til að
grafa það.“
Ertu með einhverjar áætlanir um
starfsemina?
„Nei, nei, ekki í augnablikinu.
Þetta var fyrst barnaleikhús, síðan
leikhús ungs fólks; óx með okkur.
Þegar ég var kominn í menntaskóla
og var að setja upp Línu langsokk,
þá fannst mér ég frekar vera
barnapía en einhver sem var að
reka leikhús og fannst kominn tími
til að hvíla mig á þessu.“
Hefurðu alltaf haft blæðandi
leikhúsdellu?
„Já. Alveg frá því ég man eftir
mér.“
Hvaðan kemur hún?
„Ég fór mikið í leikhús þegar ég
var barn. Leikhús af öllu tagi. Síðan
tók ég þátt í nokkrum sýningum í
Þjóðleikhúsinu og lék nokkrum
sinnum í kvikmyndum hjá Hrafni
Gunnlaugssyni. Eftir að Gaman-
leikhúsið var komið af stað, varð
ekki aftur snúið.“
Finnst þér rétt að fara með börn
á aðrar sýningar en þær sem eru
sérstaklega settar upp fyrir þau?
„Já, alveg tvímælalaust. Ef mað-
ur kynnist ekki leikhúsinu, getur
maður aldrei dæmt um hvort það
á erindi við okkur. Ég held að allar
listgreinar eigi erindi við börn.
Krakkar eru með opnara og ftjórra
ímyndunarafl en fullorðnir og ef
það fær ekki að þroskast með þeim,
tapa þau því.
Ég setti upp sýningu úti í Eng-
landi, ásamt leikhópi, sem er byggð
á grísku goðsögnunum. Þetta var
ódýr, lítil sýning sem hafði ekki
mikið af búningum og enga leik-
mynd. Við ferðuðumst með hana í
skólana á svæðinu og hún tókst
mjög vel. I nokkrum af þessum
skólum áttu síðan krakkarnir að
teikna það sem þau höfðu upplifað
í Ieikhúsinu. Þau teiknuðu skip,
skóg, haf, dreka og allt mögulegt
- en auðvitað var ekkert af þessu
á sviðinu, heldur hafði það verið
gefið í skyn með látbragði. Fyrir
þeim var þetta raunverulegt - og
það sýnir hversu móttækilegri börn
eru fyrir galdri leikhússins en full-
orðnir."
Eftir að við höfum rætt um nauð-
syn þess að taka börnin með sér í
leikhúsið, til að sjá hvað sem er,
stendur verkefnisstjórinn upp, því
það kostar mikla vinnu að fylgja
öllum þessum hugmyndum úr hlaði.
Hann er verðugur fulltrúi ungu
kynslóðarinnar í íslensku leikhúsi;
var barn þegar hann stofnaði leik-
hús með börnum fyrir börn - og
ég heyri það á mínu heimili hjá
þeim þörnum sem sáu sýningarnar
hans, að hann er þeirra leikhúsmað-
ur.
VINNUTÆKNI
VIÐ UMÖNNUN
eftir Þórunni Sveinsdóttur
og Ágústu Guömarsdóttur
Aö StWs tweft hötdatags
Vinnutækm
við umonnun
P<»gH<w vronunttö
Ágústa Guðmarsdóttir
Þórunn Sveinsdóttir
sjúkraþjálfarar
Borgarspkalinn - Vinnueftirlit ríki
| Bókin er ætluð sem hjálpargagn við
! kennslu í vinnutækni fyrir alla þá sem
' starfi sínu veita skjólstæöingum aðstoö við að færa sig úr stað.
Hún er einnig ætiuö sem uppsiáttarrit til upprifjunar á vinnuaðfer-
öum við dagleg störf.
Útsölustaöir:
Borgarspítalinn - sjúkraþjálfun
Vinnueftirlit ríkisins, Bíldshöfða 16, Rvk.
Hjálpartækjabanki RKÍ og Sjálfsbjargar, Hátúni 12, Rvk.
Bóksala Stúdenta við Hringbraut, Rvk.
Eymundsson búðirnar, Rvk.
Bókval Akureyri
Bókina er hægt að panta hjá Borgarspítalanum, sími 569 6366
Vel útlítandi konu líbur vel
N°7
* Ertu viss um aÖ þú sért að nota rétt krem?
* Færðu það besta út úr útliti þínu?
* Veistu nvernig ó aö útbúa gallalausa húð?
* Færðu það besta út úr förðun þinni?
Ef svarið er „Nei" er kominn tími til að fá ráðleagingar frá
sérfræðingum No7. Þeir húðgreina þia og ráðíeggja þér
hvernig þú getur nýtt þér það besta í útliti pinu með réttu meiki,
felurum og litum sem passa best fyrir þig.
Kynningar verða haldnar: Vörusalan Akureyri 2. okt.
Dalvíkurapótek 3. okt. Ólafsfjarðarapótek 4. okt. Raufarhöfn 5.
okt. Húsavík 5. okt. Siglufjörður 6. okt. Hagkaup Akureyri 7. okt.
Eqilsstaðir 9. okt. Fáskrúðsfjörður 10. okt. Reyðarfjörður 11. okt.
Eskifíörður 12. okt. Seyðisnörður 13. okt. Neskaupstað 14. okt.
Sauoárkrókur 16. okt. Blönauós 17. okt. Borgarnes 18. okt.
Geymjð auglýsinguna og njótíð þess að fá fríar ráðleggingar á kynningunum
Glæsilegt
Kanarítilboð í
október og nóvember
frá kr. 50.775
laferö'N
Heimsferðir hefja aftur beint flug sitt til Kanaríeyja þann 23. október og okkur er
ánægja að kynna glæsilegt kynningartilboð í haustferðir okkar þann 23. október og
22. nóvember. Veðrið á Kanarí á þessum árstíma er yndislegt, 25-28 stiga hiti, og að
sjálfsögðu nýtur þú rómaðrar þjónustu Heimsferða allan tímann.
Bókaðu strax og tryggðu þér sæti meðan enn er laust.
Nýr gististaður, Santa Fe. Frábær nýr valkostur fyrir
Heimsferðafarþega í vetur. Smáhýsagarðurinn Santa Fe
á miðri Ensku ströndinni. Öll smáhýsi með einu
svefnherbergi, stofu, eldhúskrók. baði og verönd.
Kr.
50.775 Kr 62.260
Verð m.v. hjón með 1 bam,
22. nóvember, Santa Fe.
Skattar innifaldir.
M.v. 2 í íbúð,
22. nóvember, Santa Fe.
Skattar innifaldir.
Los Salmones - nýr valkostur
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562 4600.