Morgunblaðið - 01.10.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.10.1995, Blaðsíða 14
-+ 14 B SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ í HLJÓMSVEIT Gunnars Ormslevs með Ólafi Gauk, Eyþóri Þorláks, Gunnari Ormslev og Steina Steingríms. MEÐ GUÐMUNDI Ingólfssyni og Þórði Högnasyni í Jónshúsi í Köben. i ÆTLI ÉG hafi ekki verið íjórtán, fímmt- án þegar ég vissi að til var maður að nafni Guðmundur Steingrímsson og lamdi trommur í helstu danshljómsveit ís- lands í þá daga, KK-sextettinum. Þetta var á upphafsárum rokksins 1957 eða 1958. Ég sá KK-sextettinn spila í mið- borg Reykjavíkur 17. júní, líklega hefur það verið á Lækjartorgi. Það var rigningasuddi, eins og jafnan fyrr og síðar á þjóðhátíðardegi, og í endur- minningunni man ég að ég var heill- aður af dökkhærða, hrokkinhærða piltinum sem sat hálfboginn yfir trommusettinu og lamdi allt hvað af tók og hugsaði sem svo. - Skyldi hann vera í akkorði, þessi maður? Síðan þá eru liðin tæp íjörutíu ár. Fyrirmyndir unglingsáranna voru James Dean og Elvis Presley og hér heima Ragnar Ejamason og gott ef ekki Guðmundur Steingrímsson. Sér- staklega eftir að Stjörnubíó sýndi mynd um ævi hins kunnatrommuleik- ara Gene Krupa með Sal Mineo í í A K K 0 R D * Otrúlegt en satt. Það eru liðin 50 ár síðan Guðmundur Stein- grímsson hóf feril sinn sem hljóðfæraleikari. Það er hálf öld frá því að hann kom fyrst fram opinberlega hljómsveit. Ólafur Ormsson rekur sitthvað af langri starfs- ævi þessa kunna hljómlista- manns og fær þrjá menn sem hafa þekkt Guðmund um árabil til að segja frá kynnum sínum afhonum. aðalhlutverki. Þeir vom nefnilega ekki svo ósvipaðir í útliti, Guðmund- ur Steingrímsson og Sal Mineo, Guð- mundur þó öllu myndarlegri maður á velli. Sannkallaður gleðigjafi í hálfa öld hefur Guðmundur Steingrímsson verið sann- kallaður gleðigjafí. Hann hefur starfað með öllum helstu hljómsveitum lands- ins og þótt hann hafi svo sem ekki verið að hreykja sér hátt eða tíunda afrek sín opinberlega þá hefur hann um langt árabil verið einn helsti drifkrafturinn í dansmús- íkinni og þá ekki síður í þeirri jazz- vakgingu sem átt hefur sér stað hér á landi á síðari árum og jazzáhuga- menn nefna hann sín á-milli, Papa Jazz. Guðmundur Steingrímsson var einn stofnenda Jazzvakningar fyrir rúmum tuttugu árum. Þá þegar landskunnur trommuleikari af dans- húsum landsins og hróður hans hef- ur borist víða um Evrópu þar sem hann hefur komið við sögu með ýmsum hljómsveitum íslenskum og erlendum. Mánudaginn 4. september síðastliðinn var Guðmundi veitt silf- urmerki Félags íslenskra hljómlistar- manna, FIH, á veitingahúsinu Ömmu Lú. Það bar upp á sama tíma og Jazzvakning fagnar 20 ára af- mæli sínu, Tónlistaskóli FlH 15 ára afmæli og RúRek jazzhátíðin 5 ára afmæli. Upphafið og áhrifavaldar í stuttu spjalli við Guðmund Stein- grímsson rifjaði hann upp sitthvað er á daga hans hefur drifið í starfi sínu sem hljóðfæraleikari í 50 ár. - „Skólaböllin í Flensborg í Hafnar- firði voru upphafið að öllu saman. Við Eyþór Þorláksson stofnuðum hljómsveitina Ungir piltar og það var fyrsta hljómsveitin sem ég lék í opin- berlega. Einhvem tímann á árunum 1945-46 kemur Gunnar Ormslev til íslands frá Kaupmannahöfn og við byijum að spila með hljómsveit hans sem trommu- lm’lvavn í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.