Morgunblaðið - 01.10.1995, Blaðsíða 18
18 B SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Stcingrímur
CHATEAU Bonnet í Éntre-deux-Mers. CHATEAU La Louviére í Pessac-Léognan.
MATUR OG
«
André Lurton er með
áhrifameiri víngerðar-
mönnum í Bordeaux,
segir Steingrímur
Sigurgeirsson, sem
nýlega heimsótti nokk-
ur „chateaux “ í eigu
Lurton-fjölskyldunnar
ÞÆR eru margar ættimar sem
takast á um völdin í Bordeaux-hér-
aðinu í suðvesturhluta Frakk-
lands. Lurtonamir era með þeim
áhrifameiri í suðurhluta Bordeaux
en bræðurnir André og Lucien
Lurton eiga samtals vel á annan _
tug víngerðarhúsa á flestum svæð-
um Bordeaux. Tókst Lucien að
láta þann draum sinn rætast að
afhenda öllum börnum sínum sitt-
hvert chateaux-ið, sem er ekki svo
André
Lurton
lítið afrek í ljósi þess að erfíngjar
hans eru níu talsins!
André Lurton hefur aðallega
einbeitt sér að norðurhluta Gra-
ves, sem er hérað suður af borg-
inni Bordeaux, og var hann einn
helsti baráttumaður þess að sér-
staða og gæði vína frá nyrsta hluta
Graves yrði viðurkennd og að þau
fengju eigin appelation, sem ber
nafnið Pessac-Léognan.
A þessu svæði á André Lurton
víngerðarhús á borð við Chateau
de Cruzeau, Chateau Couhins-
Lurton, Chateau La Louviere og
Chateau Rochemorin. Vínið
Chateau Coucheroy, sem nýlega
fór af reynslulista yfír á aðallista,
er einmitt síðara vin Rochemorin.
Þá má nefna að bróðirinn Lucien
er eigandi Chateau Bouscaut í
Pessac-Léognan.
Heimili André Lurton er hins
vegar í héraðinu Éntre-deux-Mers
í Chateau Bonnet. Þar starfrækir
hann einnig litla gróðurstöð þar
sem hann ræktar upp allan vínvið,
sem gróðursettur er á vinekrum
hans. Telur hann það vera einu
leiðina til að fá vínvið er uppfyllir
strangar gæðakröfur hans og ná-
kvæmlega þau afbrigði vínviðarins
er hann sækist eftir.
Chateau Bonnet (sem einnig
uppfyllti kröfur reynslulistans og
fæst nú í öllum verslunum ÁTVR)
er þekktast fyrir hvítvín. Það er
af flestum sem til þekkja talið eitt
allra besta hvítvín Entre-deux-
Mers, hvítvín sem hefur markað
nýjan stíl í hvítum Bordeaux-vín-
um. Hver segir að hvít Bordeaux-
vín þurfí að vera óspennandi? Bon-
net er ferskt, ungt með góðu sýra-
jafnvægi og léttu bragði er minnir
á græn epli. Lurton framleiðir
einnig hvítan Bonnet, sem geymd-
ur er á eik, en það er ekki fáan-
legt hér á landi. Því miður þar sem
þar er um einstaklega gott vín að
ræða.
Rauðvínin frá Bonnet era ekki
jafnþekkt en engu að síður allrar
athygli verð rekist menn á þau.
Ég smakkaði um daginn tíu ára-
gamalt Chateau Bonnet við hliðina
á La Louviere og það kom einstak-
lega vel út.
Stíll vína þeirra Lurton-bræðra
er nokkuð ólíkur. Vín Lucien Lurt-
ons era sígild Bordeaux-vín en vín
André Lurton nýtískulegri og al-
þjóðlegri. André Lurton hefur unn-
ið mikið þróunarstarf á sviði vín-
gerðar og notar eigin tækni á
mörgum stigum sjálfrar víngerð-
arinnar. Nýtur hann mikillar virð-
ingar í vínheiminum og var fyrir
nokkram árum falið að sjá um
rekstur Chateau Dauzac í Mar-
gaux.
Dauzac er þekkt chateau en á
siðasta áratug, er ijárfestingar í
viniðnaði vora í tísku meðal stór-
fyrirtækja, festi franskt trygg-
ingafyrirtæki kaup á því. Fyrir-
tækið endurgerði húsið fyrir stórfé
(en kannski ekki mjög smekklega)
og lagði mikið í alla ytri umgjörð
Dauzac. Til að mynda var sett upp
innanhúsmyndbandakerfi í öll her-
bergi víngerðarhússins. Þannig
gátu fulltrúar tryggingafélagsins
leitt gesti sína um húsið og var
hvert stig víngerðarinnar sýnt á
skjám. Sniðugt í skamman tíma
eða þar til að rakinn i víngerðar-
húsinu eyðilagði kerfíð fína og
alla skjáina. En það sem verra
var: Vínframleiðslunni var ekki
sinnt sem skyldi og orðstír Dauzac
fór hrakandi. Hann er nú hins
vegar á uppleið á ný eftir að Lur-
ton tók við og sjónvai-psskjáimir
hanga enn uppi sem áminning um
það sem skiptir máli og það sem
skiptir ekki máli.
Sonur André Lurtons, Jacques,
hefur haft mikil áhrif á víngerð
fyrirtækisins en hann er einn af
fáum víngerðarmönnum Frakk-
lands sem gætu fallið undir skil-
greininguna „flying winemaker",
eða vingerðarmaður, sem þeytist
á milli heimsáfa. Hefur hann m.a.
starfað hjá Petaluma í Ástralíu
og í Chile og Argentínu. Hann
rekur ásamt bróður sínum Frango-
is (sem einnig er sölustjóri í fyrir-
tæki föðursins) eigið fyrirtæki sem
selur vín hans.
SAUVIGNON Blanc-græðlingar í ræktarstöð Lurtons.