Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995 D 31 I 1 I I I I I I I 1 ———— I HÍISBRÉF ■ HÚSRÉFALÁN — Lán inn- an húsbréfakerfisins eru svo- kölluð húsbréfalán. Þau eru veitt til kaupa á notuðum íbúð- um, til nýbygginga og til endur- bóta á eldra húsnæði. Annars I vegar er um að ræða fasteigna- veðbréf, sem gefín eru út af ■ íbúðarkaupanda, húsbyggjanda I eða íbúðareiganda, og eru þau skuldaviðurkenningar þessara aðila. Húsbréfin sjálf koma kaupanda ekki beint við. Selj- endur aftur á móti eignast hús- bréf með því að selja Húsnæðis- stofnun fasteignaveðbréfin. Þar með losna seljendur við að inn- \ heimta afborganir af fasteigna- \ veðbréfpnum og geta notað i húsbréfin á þann hátt, sem þeir ' kjósa; ýmist með því að selja þau áverðbréfamarkaði, eiga þau sem sparnað eða nota hús- bréfín til að greiða með annað- hvort við kaup, eða upp í skuld- ir sínar. Hér að neðan er birt dæmi um þann feril, sem á sér stað við kaup á notaðri íbúð. < Frekari upplýsingar, t.d. um lán < vegna nýbygginga, má fá hjá j Húsnæðisstofnun ríkisins. ■ KAUP Á NOTAÐRIÍBÚÐ • Frumskilyrði fyrir húsbréfal- áni, er að umsækjandi verður að sækja umskriflegt mat á greiðslugetu sinni hjá viður- kenndri fjármálastofnun, t.d. banka eða sparisjóði. ( • Þegar mat þetta er fengið, ( gildir það í eitt ár. . • Miðað er við að greiðslubyrði lána fari ekki yfír 18% af heild- arlaunum næstu 4 árin, að teknu tilliti til vaxtabóta. • ímatinukemurm.a. fram kaupverð íbúðar, sem væntan- legur íbúðarkaupandi skal að hámarki miða kauptilboð sitt við. 1 • Umsækjandi skoðar sigum I á fasteignamarkaðnum í leit að ( notaðri íbúð. • Þegar hann hefur í höndum samþykkt kauptilboð, kemur hann því til Húsnæðisstofnunar. • Metistofnunin kauptilboðið lánshæft, fær íbúðarkaupand- inn afhent fasteignaveðbréfið til undirritunar og hann getur I gert kaupsamning. • Fasteignaveðbréfið er síðan afhent seljanda eftir undirskrift. ^ • Því næst lætur kaupandi þinglýsa kaupsamningi og kem- ur afriti til seljanda. • Seljandi lætur þinglýsa fast- eignaveðbréfinu, útgefnu af kaupandanum, sem Húsnæðis- stofnun síðan kaupir og greiðir fyrir með húsbréfum. Afgreiðsla þeirra fer fram hjá Veðdeild Landsbanka íslands. • Stofnunin sér um innheimtu afborgana af fasteignaviðskipt- um. ■ LÁNSKJÖR — Fasteigna- veðbréfíð er verðtryggt. Láns- tími er 25 ár og ársvextir eru nú 5,1%. Þeir eru fastir og breytastþví ekki á lánstíman- um. Gjalddagar á nýjum fast- eignaveðbréfum eru nú mánað- arlega og afborganir hefjast á 1. ári. Á allar greiðslur, bæði vexti og afborganir, eru jafnan reiknaðar verðbætur í samræmi við lánskjaravísitölu. Lántöku- gjald er 1%. Mánaðarleg greiðslubyrði af 1 millj. króna láni erídag 5.924 kr. ■ ÖNNUR LÁN - Húsnæðis- stofnun veitir einnig fyrir- greiðslu vegna byggingar leigu- íbúða eða heimila fyrir aldraða, meiriháttar endurnýjunar og endurbóta eða viðbygginga við eldra íbúðarhúsnæði. Innan Húsnæðisstofnunar er einnig Byggingarsjóður verkamanna, sem veitir lán til eignaríbúða í verkamannabústöðum, lán til leiguíbúða sveitarfélaga, stofn- ana á vegum ríkisins og félaga- samtaka. Margir lífeyrissjóðir veita einnig lán til félaga sinna vegna húsnæðiskaupa, svo að rétt er fyrir hvern og einn að kanna rétt sinn þar. HÉSBY GG JENDFR ■ LÓÐAUMSÓKN - Eftir birtingu auglýsingar um ný byggingarsvæði geta væntan- legir umsækjendur kynnt sér þau hverfí og lóðir sem til út- hlutunar eru á hverjum tíma hjá byggingaryfirvöldum í við- komandi bæjar- eða sveitarfé- lögum — í Reykjavík á skrif- stofu börgarverkfræðings, Skúlagötu 2. Skilmálar eru þar afhentir gegn gjaldi, ef tilbúnir eru. Umsækjendur skulu fylla út nákvæmlega þar til gert eyðublað og senda aftur til við- komandi skrifstofu. í stöku til- felli þarf í umsókn að gera til- lögu að húshönnuði en slíkra sérupplýsinga er þá getið í skipulagsskilmálum og á um- sóknareyðublöðum. ■ LÓÐAÚTHLUTUN - Þeim sem úthlutað er lóð, fá um það skriflegatilkynningu, úthlutun- arbréf og þar er þeim gefínn kostur á að staðfesta úthlutun- ina innan tilskilins tíma, sem venjulega er um 1 mánuður. Þar koma einnig fram upplýsingar um upphæðir gjalda o.fl. Skil- yrði þess að lóðaúthlutun taki gildi eru að áætluð gatnagerð- argjöld o.fl. séu greidd á réttum tíma. Við staðfestingu lóðaút- hlutunar fá lóðarhafar afhent nauðsynleg gögn, svo sem mæliblað í tvíriti, svo og hæðar- blað í tvíriti og skal annað þeirra fylgja leyfísumsókn til bygging- amefndar, auk frekari gagna ef því er að skipta. ■ GJÖLD - Gatnagerðargjöld eru mismunandi eftir bæjar- og sveitarfélögum. Upplýsingar um gatnagerðargjöld í Reykja- vík má fá hjá borgarverkfræð- ingi en annars staðar hjá bygg- ingarfulltrúa. Að auki koma til heimæðargjöld. Þessi gjöld ber að greiða þannig: 1/10 innan mánaðar frá úthlutun, síðan 30% sex mánuðum eftir úthlut- un, 30% tólf mánuðum eftir úthlutun og loks 30% átján mánuðum eftir úthlutun. ■ FRAMKVÆMDIR - Áður en unnt er að heíjast handa um framkvæmdir þarf fram- kvæmdaleyfí. I því felst bygg- ingaleyfí og til að fá það þurfa bygginganefndarteikningar að vera samþykktar og stimplaðar og eftirstöðvar gatnagerðar- gjalds og önnur gjöld að vera ' greidd. Einnig þarf að liggja fyrir bréf um lóðarafhendingu, sem kemur þegar byggingar- leyfi er fengið og nauðsynlegum framkvæmdum sveitarfélags er lokið, svo sem gatna- og hol- ræsaframkvæmdum. í þriðja lagi þarf að liggja fyrir stað- setningarmæling bygginga á lóð en þá þarf einnig byggingar- leyfi að liggja fyrir, lóðaraf- hending að hafa farið fram og meistarar að hafa skrifað upp á teikningar hjá byggingarfull- trúa. Fylla þarf út umsókn um vinnuheimtaugarleyfí til raf- magnsveitu og með þeirri um- sókn þarf að fylgja byggingar- leyfi, afstöðumynd sem fylgir byggingarnefndarteikningu og umsókn um raforku með undir- skrift rafverktaka og húsbyggj- anda. Umsækjanda ertilkynnt hvort hann uppfyllir skilyrði rafmagnsveitu og staðfestir þá leyfíð með því að greiða heim- taugargjald. Fljótlega þarf að leggja fram sökklateikningar hjá byggingarfulltrúa og fá þær stimplaðar en að því búnu geta framkvæmdir við sökkla hafíst. Þá þarf úttektir á ýmsym stig- um framkvæmda og sjá meist- arar um að fá byggingafulltrúa til að framkvæma þær. ■ FOKHELT - Fokheldis- vottorð, skilmálavottorð og lóðasamningur eru mikilvæg plögg fyrir húsbyggjendur og t.a.m. er fyrsta útborgun hús- næðislána bundin því að fok- heldisvottorð liggi fyrir. Bygg- ingarfulltrúar gefa út fokheldis- vottorð og skilmálavottorð og til að þau fáist þarf hús að vera fokhelt, lóðarúttekt að hafa far- ið fram og öll gjöld, sem þá eru gjaldfallin að hafa verið greidd. Skrifstofur bæja- og sveitarfé- laga (í Reykjavík skrifstofa borgarstjóra) gera lóðarsamn- ing við lóðarleigjanda að upp- fylltum ýmsum skilyrðum, sem geta verið breytileg eftir tíma og aðstæðum. Þegar lóðar- samningi hefur verið þinglýst, getur lóðarhafí veðsett mann- virki á lóðinni. EIGNASALAN símar 551-9540 & 551-9191 - fax 551-8585 INGÓLFSSTRÆTI 12 - 101 REYKJAVÍK. Yfir 35 ára reynsla tryggir öryggi þjónustunnar. Magnús Einarsson, löggiltur fasteignasali. Sölum. Svavar Jónss., hs. 553-3363, og Eggert Elíass., hs. 557-7789. SAMTENGD SÖLUSKRÁ ÁSBVRGI iií;\asm \\ Opið laugardag kl. 11 -14 Einbýli/raðhús ( VESTURBORGINNI Eldra steinhús á tveimur hæðum. Húsið er alls um 140 fm. Allt í mjög góðu ástandi. Hagst. lán fylgja. SEUAHVERFI M.2 ÍB. Rúmg. og skemmtil. hús á góðum útsýnisstað. I húsinu eru 2 ib. Tvöf. bflsk. ESJUGRUND - [ SMÍÐUM 112 fm einb. á einni hæð (timbur) auk kj. u. öllu. Hægt að fá 50 fm bílskúr með húsinu. Til afh. í dag tilb. u. trév. og máln. Hagst. verð 7,9 millj. KRINGLAN - RAÐH. Mjög gott nýl, 260 fm raðhús á frábærum stað f nýja miðbænum. f húsinu eru stofur og 8 svefnherb. m.m. Frábær útiaðstaða fyrir börn. Bflskúr fylgir. Hagst. áhv. lán. 4—6 herbergja BLÖNDUHLÍÐ Góð 4ra herb. ib. á 2. haeð i fjórbhúsi. Nýi. verksmgler I gluggum. ib. laus nú þegar. TJARNARMYRI 4ra herb. íb. á 2. hæð í nýju fjölbhúsi. Allar innr. sérl. vandaðar. Ib. afh. fullfrág. án gólfefna. Afh. nú þegar. Stæði i bilskýli fylgir. HÁALEITISBRAUT Mjög góð 135 fm endaib. á góðum stað. 4 svefnherb. Stórar suðursv. Bein sala eða skipti á góðri 3ja herb. (b. ÁLFHEIMAR Vorum að fá í sölu góöa 4ra herb. íb. á 2. hæð í fjölb. Hagst. langtímalán áhv. LÆKJARFIT - GBÆ 4ra herb. mjög góð íb. á jarðh. í tvfb. íb. er 2 rúmg. stofur og 2 svefnherb. m.m. (geta verið 3 svefnh.). íb. er mikið endurn. Sérinng. LAUGATEIGUR Góö 4ra herb. íb. á 1. hæð. Rúmg. stofur og 2 svefnherb. m.m. (geta verið 3 svefnherb.). Suðursv. Bílskúr. BALDURSGATA 4ra herb. ib. é hæð í steinh. miðsv. í borginni. íb. er í góðu ástandi. Mikið útsýni. Stórar suðursv. BLÖNDUHLÍÐ - LAUS 4ra herb. góð íb. á 2. hæð i fjórb. Góöar suðursv. íb. er til afh. næstu daga. Við sýnum. 3ja herbergja GOÐHEIMAR Séri. vönduð og vel umgengin 3ja herb. fb. a 3. hæð f fjórbhúsi. íb. er 94,2 fm og skiptist í rúmg. stofu, 2 stór herb., eldh. og bað. Nýi. vönduð gótfefni. Sérhiti. Stórar svalir. Fráb. útsýni. TJARNARMÝRI - M. BÍLSKÝLI Glæsil. ný íb. á 3. (efstu) hæð. íb. fullfrág. en án gólfefna. Stórar suðursv. Óvenju glæsil. útsýni. íb. tilb. til afh. nú þegar. BLÖNDUHLÍÐ 3ja herb. rishæð i fjórbhúsi. íb. öll i mjög góðu ástandi. Laus nú þegar. EIRÍKSGATA Vönduð íb. á 3. (efstu) hæð. Nýtt parket á gólfum. Suðursv. Mjög gott útsýni. HRAFNHÓLAR M/BÍLSKÚR 3ja herþ. góð íb. á 3. h. (efstu). Bílskúr fyfgír. Gott útsýni. GRETTISGATA Tæpl. 80 fm góð íb. á 1. hæð í eldra steinh. Hagst. v. 5,6 m. FURUGRUND Góð 3ja herb. ib. á 3. hæð (efstu) i fjölb. Stórar suðursv. KRUMMAHÓLAR 3ja herb. íb. á hæð í lyftuh. Gotf útsýni. Suðursv. Bein sala eða skipti á 4ra herb. íb. GLAÐHEIM AR - LAUS 3ja herb. íb. á jarðh. í þrib. á góðum stað. íb. er m. sórinng. og sérhita. Til afh. strax. Við sýnum íb. Einstakl. og 2ja herbergja NÝLEG ÍBÚÐ í MIÐBORGINNI Vönduð nýl. 2ja herb. íb. m. bílskýli. Hagst. lán fylgja. Útb. aðeins kr. 1.200 þús. ENGIHJALLI Góð ib. i 3ja hæða fjölbhúsi Sér lóð. Góð sameign. Hagst. lón fyigja. FLYÐRUGRANDI Rúmg. og skemmtil. íb. í nýl. fjölbhúsi. Þvhús á hæðinni. (Verðiaunagarður). REYKJAHLÍÐ Séri. vönduð og vel umgengin jarðhæð í þribhúsi. Sórinng. Ný rafl. Nýl. parket á gólfum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.