Morgunblaðið - 19.11.1995, Síða 7

Morgunblaðið - 19.11.1995, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1995 B 7 OpiS laugard. kl. 10-16. Sunnud. kl. 13-17 Næg bílastæði - Nýtt kortatímabil - Næg bílastæði - Nýtt kortatímabil - kjarni málsins! MANIM LÍFSSTRAU MAR Heftir þú hugleitt hvað þao kostar þig í tíma og vinnu að finna hæft starfsfólk? Sparaðu þér óþarfa fyrirhöfn og láttu okkur aðstoða við leit að góðu fólki. Gott starfsfólk er grunnurinn að góðu fyrirtæki. RAÐNINGARÞJONUSTAN Jón Baldvinsson, Háaleitisbraut 58-60 Sími 588 3309, fax 588 3659 AUKIN URÉTTIN Námskeið til aukinna ökuréttinda hefst miðvikudaginn 22. nóvember kl. 18 Upplýsingar í síma 567 0300 frá kl. 13 - 20 alla virka daga. OKUSKOLINNI arabakka3, Mjóddinni, sími 5&7 0300. VERALDARVAFSTUR/'Wz/.f/ ný sólinn ísólkerfib? Guðsvísindi ská eftir fleti hennar. Ef átak kem- ur á fasta efnið, samsvarar það því að draga keðjuna eftir undirlaginu og hún skríður og leitar ekki í sama far. Kristallinn hefur aflagast. Af- lögunin felst í að óreglulegheit skríða til fyrir krafti að utan og leita ekki til sama horfs. Algeng- 'asta form aflögunar er sú að hluti af lagi einda í kristall hefur skriðið til um eitt sæti. Þetta lag afmark- ast af línu sem stærðfræðilega séð hlýtur að vera óslitin. Aflögun krist- alsins má skoða sem færslu þessara hliðrunarlína. Þær „rekur“ undan krafti sem beitt er á efnið. Styrking efnisins felst í að stöðva hreyfingu þeirra. Það er til þessa sem íblönd- un aukaefna í málma er gerð. íblandaða efnið er gjarnan haft í formi korna en ekki einstakra einda. Aðskotaefnið getur verið korn í formi annars kristals, sem snýr á einhvern veg á skakk við eindalög aðalkristalsins. Þetta og fleira veld- ur því að hliðrunarlínurnar komast ekki í gegnum íblandaða efnið, en leggjast utan um það, mynda lykkju, af því að þær geta ekki slitn- að, og sameinast aftur hinum meg- in við kornið og hafa skilið eftir sig hring utan um það. Þannig hlaðast nýir og nýir hringir utan um styrk- ingarefnið með aukinni áreynslu málmsins. Sýna má fram á að þetta veldur því að efnið verður veikara. í þessu felst málmþreyta, sem hef- ur t.d. grandað flugvélum. Nú orð- ; ið er þekkt hversu mikið heildará- lag hver efnablanda þolir og með því að halda dagbók yfir notkun . vélar eða vélarhluta má segja til um hvenær málmþreytan fari að segja til sín og endurnýja eigi hlut- inn. SVO stutt er ævi mannsins og jafn- vei saga mannkynsins alls, að sól- kerfið og stjörnuhiminninn virðast okkur óumbreytanleg. En þó skýra súmerískir textar frá atburðum, sem geta varpað nýju ljósi á þróun- arsögu jarðarinnar og sólkerfisins um leið og þeir eru bornir saman við nýjar stjörnufræðilegar upplýs- ingar. Um það er fjallað i bókinni Þegar jörðin næstum dó eftir J.B. Delair og D.S. Allan. Um leið stang- ast þessar nýju kenningar á við kenninguna um ísaldarskeiðin, sem jafnvel áttu að viðvara í milljón ár! Meira um það seinna. Hér mun hins vegar tekið pláss í það, að greina frá lýsingu manns nokkurs á væntanlegum sól- kerfisbreytingum á okkar heima- slóð. Upphaf þessa máls er heim- sókn ferðalangs nokkurs til Brasil- íumannsins Kra- spendon árið 1952. Sá nafnlausi maður talaði margt um sam- setningu aiheims- ins í smáu jafnt sem stóru, en flest eftir Einor Þorstein var það í ósamræmi við skilning okkar á þeim málum a.m.k. ennþá. En megintilefni heimsóknarinnar var þó að vara við notkun kjarnork- unnar, svo og að skýra væntanlega sólkerfisatburði: Önnur sól, af ofur- stærð, muni brátt bætast inn í sól- kerfi okkar, sem verður þá svo heppið að geta státað af tvístirnis- kerfi! Hin nýja sól muni í fyrstu ekki bera fulla birtu, er hún birtist okkur fyrst í merki Krabbans. En fljótlega eftir að hún hafi náð inn að miðju sólkerfisins, muni hún skína skært, fyrst rauðleit en síðan bláleit og finna jafnvægi við gulu sólina okkar. Sólirnar tvær muni síðan snúast á sporbaug hvor um aðra í nokkurri fjarlægð umhverfis miðpunkt sólkerfisins. Þetta hafi eftirfarandi í för með sér: Sporbaugar reikistjarnanna muni allir stækka. Þannig muni Merkúr færast á braut, sem er milli núverandi brauta Venusar og Jarð- ar. Venus færist á braut, sem ligg- ur milli núverandi brauta Jarðar og Mars. Jörðin lendi þar sem smá- stirnabeltið er nú og svo framvegis. Og um leið muni Máninn sleppa af sporbaug um Jörð og verða þaðan í frá reikistjarna um sólirnar tvær. Og tii að gera langa sögu stutta muni svo að síðustu Plútó sleppa út úr sólkerfinu (hann var áður máni Neptúnar) í leit að nýjum fé- lögum! Stöldrum hér við. Væri ekki sennilegar að með nýjum og meira en tvöföldum massa við miðju sól- kerfisins myndu reikistjörnurnar færast nær sólunum? Nei, segir gesturinn: Aðdráttarafl er ekki einn kraftur, heldur samsettur úr mörg- um kröftum, sem ýmist draga sam- an eða hrinda frá. Sólarljós hrindir jú föstum efnum frá ,sér og tvær sólir hrinda því hvor annarri frá sér um leið og þær ýta reikistjörnunum lengra frá sér en ein gat gert. „Eða getur þú skýrt fyrir mér hvers vegna tvístirni, sem er ein algeng- asta samsetning sólna í sólkerfum, falla ekki saman og verða að einni sól? Nóg er nú „aðdráttaraflið“ þar?“ En fleira muni gerast: Annar máni Mars losni frá honum á snún- ingi sporbrautar sinnar, sem vendir honum inn að miðju sólkerfisins. Hann muni stefna á Jörðina og getur því orðið nýr máni hennar, ef hann lendir ekki á móti snúningi Jarðarinnar. Ef svo verður muni hann splundrast og falla niður á hana á bilinu frá Mið-Ameríku að Evrópu og Norður-Afríku, og þar muni allt eyðast. En eftir þetta verði allt kyrrt á ný í nýju sólkerfi. Þetta muni eiga sér stað nálægt enda aldarinnar. Jörðin muni hefja nýtt tímabil með nýrri sól og nýrri birtu. Nýja sólin muni fá nafnið Sól réttlætisins. Koma hennar í sólkerfið muni vera fyrirboði komu hans, sem skín skærar en nokkur sól. Það væri ekki rétt að gera ráð- stafanir til þess að koma í veg fyr- ir komu þessarar nýju sólar inn í sólkerfið. Því að koma hennar ,sé vilji Guðs. Hún eigi að hreinsa Jörð- ina af öllum illum hugsunum og margir jarðveijar eigi ekki aftur- kvæmt á hana eftir þetta. Hinir sem vinni að uppbyggingu jarðarlífsins á ný muni fá til þess mikla hjálp utan frá. En þegar brasilíska jarðarbúan- um fannst nóg komið af trúarkeim í frásögnini, því að hann var trúlaus maður, sagði gesturinn við hann: Ef þú vilt skilja fyrirbæri náttúr- unnar verður þú fyrst að skilja nátt- úru Guðs: Guð er ísótrópísk lína, samsíða sjálfri sér og sveiflast um sjálfa sig í réttu horni við sig. Hann er eins og kerfi krossandi lína þar sem hver skurðpunktur er alls stað- ar samtímis. En mundu að þetta er ófullkomin tilraun til að skil- greina hið óskiljanlega á tungumáli ykkar jarðarbúa! Ætli bæði trúarbrögð og vísindi okkar reikistjörnu geti ekki samein- ast um að afneita skoðunum ferða- langsins sem tómu rugli? Tannverndarráð ráðleggur foreldrum að gefa börnum sínum jóladagatöl án sælgætis

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.