Morgunblaðið - 19.11.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1995 B 15
SKÓLASTRÁKAR í þeim hluta Mostar sem múslimar byggja virða fyrir sér ljósmyndarann. Að baki er heillegasti hluti aðalgötunnar, en þar minnir fátt á þá glæsilegu
120.000 manna borg sem Mostar var fyrir stríð. Það hefur tekið sinn toll af íbúum borgarinnar, þeim fjölgar t.d. óðum sem missa fætur eftir að hafa stigið á jarðsprengjur.
IVESTURHLUTANUM er iðandi líf á
ótal kaffihúsum á kvöldin. Þar hittum
við m.a. hermenn og liðsmenn úr
ýmiskonar sérsveitum Króata. Er líða
tekur á kvöldið verða hermennirnir æ
drukknari, þeir eru alíir vopnaðir og horfa
án afláts á myndavélar ljósmyndarans. Einn
þeirra tekur myndavél af honum og bregð-
ur skammbyssu á loft til að undirstrika
hver það er sem ræður. Félagarnir hlæja
ógurlega og ljósmyndarinn með, um leið
og hann grípur vélina aftur. Þá er honum
boðin skammbyssan í skiptum fyrir hana
en það þiggur hann ekki.
Þeim líst vel á hávaxna íslendinginn,
sjálfir eru þetta miklir rumar, svírasverir
og snöggklipptir. Þeir sem ekki eru í her-
klæðum klæðast svörtu. Bosníu-Króati sem
við ræðum við horfir með fyrirlitningarsvip
á þessa landa sína, segir þá alræmda hægri
sinnaða ofbeldisseggi sem fari um með rán-
um. Tekur það sérstaklega fram að þeir séu
Herzegóvínu-Króatar og hrifnastir af hvít-
um sokkum, Mercedes Benz og farsímum.
Nær enginn múslimanna í austurhlutan-
um hefur vinnu og í borginni er krökkt af
hermönnu.m enda ríkir vopnahlé og er það
haldið að mestu. Hermennimir eru vopnað-
ir Kalashníjkov-rifflum og gjóa augunum
tortryggnir á myndavélarnar. Ljósmyndar-
inn gætir þess vandlega að beina linsunni
ekki að þeim.
Illilegust augnatillit fáum við þó frá
tveimur ungum mönnum, dökkum yfirlitum,
með mikið skegg — sem annars sést ekki
á meðal múslimanna. Skýringuna fáum við
síðar um daginn. Mennirnir eru í samtökum
heittrúaðra múslima, líklega Hizbollah, sem
hafa náð töluverðri fótfestu í Mið-Bosníu.
Um er að ræða múslima frá Norður-Afr-
íkuríkjum, Mið-Austurlöndum og öðrum
íslömskum ríkjum, sem hafa komið af ýms-
um ástæðum, sumir hafa barist við hlið
bosnískra trúbræðra sinna, aðrir veitt þeim
ýmsa aðra aðstoð. Ungir Bosníu-múslimar
hafa gengið til liðs við þá og æ fleiri konur
sjást nú hylja sig en áður. Okkur er sagt
að það hafi verið nær óþekkt fyrirbæri í
Bosníu áður en stríðið skall á en nú fjölgar
konum, ekki síst ungum, sem kjósa að hylja
sig. Ástæðan fyrir óvildinni sem við finnum
fyrir á rætur sínar að rekja til haturs margra
heittrúaðra múslima á útlendingum, sem
þeir telja hafa brugðist múslimum og að
þeir séu nánast réttdræpir.
ETTA HATUR blossaði upp nokkr-
um dögum áður en við vorum þar
á ferð eftir að breskir hermenn í
friðargæsluliði Sameinuðu þjóð-
anna skutu ungan Hizbollah-mann sem
ógnaði þeim með byssu nærri borginni
Zenica í Mið-Bosníu. Þetta vakti gífurlega
reiði trúbræðra hans sem hótuðu öllum
Bretum lífláti. Hófu þeir að leita í bílum
að breskum ríkisborgurum og hafa fjöl-
margir Bretar verið fluttir á brott frá Bosn-
ía. Við mættum löngum bílalestum Bret-
anna á hraðleið yfir til Króatíu og hittum
breska hjálparstarfsmenn sem hafði verið
skipað að hafa sig á brott hið snarasta.
Þegar rætt er við múslimana vilja þeir
hins vegar lítið ræða um heittrúaða bræður
sína og maður fær á tilfínninguna að þeir
séu lítt hrifnir af þeim. Þegar konurnar eru
spurðar hvort þær óttist það að neyðast ef
til vill til að ganga með blæju yppta þær
kæruleysislega öxlum og neita.
Kannski ekki að furða, þær eru klæddar
á evrópskan hátt, mála sig, reykja og
drekka og hafa sjálfsagt flestar borðað
svínakjöt. Veruleiki íslamsks ríkis virðist
órafjarri en engu að síður reynast þær allar
þekkja konur sem hafa ákveðið að hylja
sig. Enn sem komið er virðast heittrúar-
menn eiga*sterkust ítökin í Mið-Bosníu, í
minni þorpum og bæjum. í borgunum er
slíkt enn víðsfjarri.
ÓTRÚLEG eyðilegging á víglínunni í
Mostar. Þar sem áður stóð verslanamið-
stöð stendur ekki steinn yfir steini.
HIN sögufræga 16. aldar steinbrú yfir
ána Neretva í Mostar eyðlagðist í átök-
um Króata og múslima.
HERMENN Sameinuðu þjóðanna eru
hvarvetna á ferli í Bosníu, þar sem þeir
halda m.a. uppi eftirliti á vegum.
SÍGAUNARNIR eiga ekki í nein hús að
venda í Mostar og hafa komið sér fyrir
í húsarústum á víglínunni.