Morgunblaðið - 19.11.1995, Síða 20
JftipmutiftlsiMfr
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ATVINNUA UGL YSINGAR
Hárgreiðslumeistari
eða sveinn
Hárgreiðslustofan Hafsteina óskar eftir að ráð
hárgreiðslumeistara eða sveinn. Nánari uppl.
á stofunni eða í síma 588 0060 frá kl. 9-18.
Kennari óskast
Vegna forfalla vantar kennara í kennslu yngri
barna í Hofstaðaskóla Garðabæ.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma
565 7033.
Skólastjóri.
Barngóð
manneskja óskast til þess að gæta tveggja
barna (6 mán. og 3 ára) og sinna léttum
verkum á reyklausu heimili í vesturbænum
frá miðjum janúar. Meðmæli óskast.
Hafið samband í síma 561 2311.
Vélstjóri óskast
á Höfðavík AK-200 frá og með 1. desember nk.
Umsóknir skulu sendast til Krossvíkur hf.,
Vesturgötu 5, 300 Akranesi. Nánari upplýs-
ingar veitir Svanur í síma 431-4340.
St. Franciskusspítali,
Stykkishólmi
Meinatæknar
Meinatæknir óskast til starfa sem fyrst.
Um er að ræða 100% vinnu fram til mánaða-
móta febrúar/mars nk., en 50% vinnu frá
1. mars 1996.
í Stykkishólmi er góður leikskóli fyrir tveggja
til sex ára börn, einsetinn grunnskóli með
framhaldsdeildum (2 ár) auk kröftugs tónlist-
arskóla.
Hafir þú áhuga á skemmtilegu en oft krefj-
andi starfi í okkar fallega umhverfi, hafðu
þá samband við hjúkrunarforstjóra (systir Lid-
winu) eða framkvæmdastjóra (Róbert)
í síma 438-1128.
HAGKAUP
snyrtivörudeild
fram að áramótum
Starfskraftur óskast strax í snyrtivörudeild
okkar í Kringlunni, 2. hæð.
Við leitum að aðila með menntun í snyrti-
fræðum og/eða reynslu á því sviði.
Um er að ræða hlutastörf eftir hádegi og
um helgar strax. Einnig allan daginn þegar
nær dregur jólum.
Áhugasamir komi í viðtal á mánudag
kl. 14.00-18.00 á staðnum.
Hagkaup, Kringlunni.
Fjölbrautaskóli Vesturlands
á Akranesi auglýsir
Laus kennsla
ístærðfræði, íslensku, íþróttum
og sögu
Á Akranesi: Forfallakennsla í íslensku (1/1)
og sögu (3/4). Laus staða í stærðfræði. Um
er að ræða heila stöðu til frambúðar fyrir
réttan aðila. í boði er mikil vinna við heill-
andi verkefni. í skólanum er mjög góð vinnu-
aðstaða.
í Reykholti: Laus er til umsóknar kennsla í
íþróttum og félagsmálum. Við leitum að
kennara, sem hefur áhuga á að vinna með
unglingum að þroskavænlegu starfi á sviði
íþrótta- og félagsmála ásamt samhentum
hópi samkennara.
Umsóknarfrestur er til 5. desember.
Umsóknir skulu sendar Fjölbrautaskóla Vestur-
lands á Akranesi, Vogabraut 5, 300 Akranesi.
Skólameistari.
FJÓROUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
A AKUREYRI
Vegna afleysingar er laus til umsóknar
Staða yfirsjúkraþjálfara eða
deildarsjúkraþjálfara
Staðan veitist í eitt ár, frá janúar '96.
Nánari upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari í
síma 463 0844 og í heimasíma 463 1387.
Umsóknir sendist fyrir 5. des. til Lucienne
ten Hoeve, yfirsjúkraþjálfara, Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri, pósthólf 380,
602 Akureyri.
Veitingastörf
Óskum eftir að ráða matreiðslufólk, fram-
reiðslufólk og aðstoðarfólk í sal.
Umsækjendur skili inn umsókn á Hótel Borg
fyrir þriðjudaginn 21. nóvember.
Fiskifræðingur
Hafrannsóknastofnunin óskar að ráða fiski-
fræðing við útibú stofnunarinnar á Akureyri.
Hluti starfsins felst í kennslu í fiskifræði við
sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Steingrím-
ur Jónsson, útibússtjóri, í síma 463 0948.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun,
fyrri störf og ritstörf, sendist útibúi Hafrann-
sóknastofnunarinnar á Akureyri fyrir 15. des-
ember næstkomandi.
Hafrannsóknastofnunin,
útibú Akureyri,
pósthólf875,
602 Akureyri.
Blómabúð
Óskum eftir að ráða hressa, laghenta mann-
eskju, helst vana í blómabúð, 30 ára eða
eldri.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
23. nóvember, merktar: „Blóm - 15914“.
Frá Háskóla Islands
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar hlutastöð-
ur í læknadeild Háskóla íslands sbr. 3. mgr.
10. gr. laga nr. 77/1979:
• Dósentsstaða (37%) í handlæknisfræði.
• Dósentsstaða (37%) í geðsjúkdómafræði.
• Dósentsstaða (37%) í húð- og kynsjúk-
dómafræði.
• Dósentsstaða (37%) í meinefnafræði.
• Dósentsstaða (37%) í taugasjúkdóma-
fræði.
• Dósentsstaða (50%) í svæfingalæknis-
fræði.
• Dósentsstaða (37%) í meltingarsjúkdóm-
um innan lyflæknisfræði.
• Lektorsstaða (37%) í svæfingalæknis-
fræði.
• Tvær lektorsstöður (37%) í heimilislækn-
isfræði.
• Lektorsstaða (37%) í eiturefnafræði innan
lyfja- og eiturefnafræði. Staðan er ætluð
sérfræðingi í eiturefnafræði og skal hann
jafnframt sinna eiturefnafræðilegum rann-
sóknum, þar á meðal réttarefnafræðileg-
um rannsóknum á Rannsóknastofu í lyfja-
fræði.
• Lektorsstaða (37%) í klinískri lyfjafræði
innan lyfja- og eiturefnafræði. Staðan er
ætluð sérfræðingi í lyflæknisfræði erstarfi
á lyflæknisdeild spítala í Reykjavík og er
æskilegt að hann sinni jafnframt tilraunum
í klinískri lyfjafræði á vegum Rannsókna-
stofu í lyfjafræði.
Gert er ráö fyrir að stöður þessar verði veitt-
ar til fimm ára frá 1. júlí 1996 að telja. Þó
ergertráð fyrirað önnurlektorsstaðan (37%)
í heimilislæknisfræði verði veitt frá 1. októ-
ber 1996 til 30. júní 2001. Umsóknum þarf
að fylgja greinargóð skýrsla um náms- og
starfsferil, stjórnunarreynslu og vfsindastörf
og einnig eintök af helstu fræðilegum rit-
smíðum. Umsækjendur þurfa að gera grein
fyrir því hvað af rannsóknaniðurstöðum sín-
um þeir telja vera markverðastar og jafnframt
hlutdeild sinni í rannsóknum sem lýst er í
fjölhöfundagreinum. Ennfremur er óskað eft-
ir greinargerð um þær rannsóknir sem um-
sækjendur hyggjast vinna að verði þeim veitt
staða og þá aðstöðu sem til þarf. Laun eru
samkvæmt kjarasamningum Félags háskóla-
kennara og fjármálaráðherra.
Umsóknum skal skilað í tvíriti á skrifstofu
starfsmannasviðs Háskóla Islands, aðal-
þyggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík, fyrir
1. janúar 1996.