Morgunblaðið - 19.11.1995, Side 26

Morgunblaðið - 19.11.1995, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ 26 B SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1995 RAÐA UGL YSINGAR Breyttur opnunartími Ræðismannsskrifstofa Spánar vekur athygli á breyttum opnunartíma skrifstofunnar. Frá 20. nóvember nk. verður skrifstofan, Skeif- unni 15, 108 Reykjavík, opin mánudaga, mið- vikudaga og föstudaga, frá kl. 10-12. Upplýs- ingar eru gefnar í síma 563 5030. Aðalsafnaðarfundur Ásprestakalls verður haldinn í safnaðarheimili Áskirkju miðvikudaginn 22. nóvember nk. og hefst hann kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarnefnd Áskirkju. Kópavogsbúar Þeir, sem flutt hafa í Kópavog og þeir sem hafa flutt innan bæjarins, eru beðnir að til- kynna nýtt heimilisfang fyrir 1. des. nk. á bæjarskrifstofum, Fannborg 2, eða á lög- reglustöðinni, Auðbrekku 10. Manntalsfulltrúi. Hluthafafundur Hluthafafundur í eingarhaldsfélaginu Al- þýðubankinn hf. verður haldin 28. nóvember 1995 kl. 17. Fundarstaður Hvammur á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá fundarins: 1. Tillaga stjórnar félagsins um breytta fjár- festingastefnu. 2. Gerð grein fyrir milliuppgjöri félagsins pr. 31. ágúst 1995. 3. Önnur mál, löglega uppborin. Stjórn eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf. Styrkir til háskólanáms í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð Stjórnvöld í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð bjóða fram eftirtalda styrki handa íslendingum til háskólanáms í þessum lönd- um námsárið 1996-97. Styrkirnir eru ætlaðir þeim sem komnir eru nokkuð áleiðis í há- skólanámi og eru miðaðir við 8-9 mánaða námsdvöl en til grein kemur að skipta þeim ef henta þykir. Til náms í Danmörku eru boðnir fjórir styrk- ir. Styrktarfjárhæðin er 4.260 d.kr. á mánuði. Til náms í Finnlandi er boðinn fram einn styrkur til háskólanáms eða rannsóknar- starfa. Styrktarfjárhæðin er 4.000 finnsk mörk á mánuði. Til náms í Noregi er einnig boðinn fram einn styrkur. Styrktarfjárhæð er 5.700 n.kr. á mánuði og skulu umsækjendur að öðru jöfnu vera yngri en 35 ára. Til náms í Svíþjóð er boðinn fram einn styrk- ur til háskólanáms og tveir til vísindalegs sérnáms. Styrktarfjárhæð er 7.000 s.kr. á mánuði. Umsóknum um styrkina, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu senar til menntamálaráðuneytisins, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 29. desem- ber nk. Sérstök eyðublöð og nánari upplýsingar fást í afgreiðslu ráðuneytisins á 1. hæð á Sölv- hólsgötu 4. Menntamálaráðuneytið, 16. nóvember 1995. Læknar, læknar Munið aðalfund Lífeyrissjóðs lækna mánudag- inn 20. nóvember kl. 17 í Hlíðasmára 8. Stjórnin. REVKJAVlKUR REYKJAVlKUR Múrararsamband íslands Að gefnu tilefni vilja Múrarafélag Reykjavík- ur, Múrarameistarafélag Reykjavíkur og Múrarasamband íslands vekja athygli al- mennings á því að flísalagnir, þ.e. lagning gólf- og veggflísa, er hluti af iðn múrara og nýtur lögverndar sem slík. Þeir sem láta aðra iðnaðarmenn eða ófag- lærða menn vinna slík verk eru því að taka þátt í broti á iðnaðarlögum auk þess sem ætla verður að verkkunnátta þeirra sé önnur og lakari en þeirra sem lært hafa þetta fag. Landsskrifstofa Leonardó og Sam- starfsnefnd atvinnulífs og skóla - SAMMENNT: Verðlaunasamkeppni um starsmenntaverðlaun Samstarfsnefnd atvinnulífs og skóla - SAM- MENNT, efnir til verðlaunasamkeppni um námsgögn sem ætluð eru til starfsmenntun- ar á framhaldsskólastigi. Um getur verið að ræða bók eða bækur, glærusafn, dæma- hefti, hugbúnað eða heildarskipulag á nám- skeiði sem felur í sér fleiri en einn af þessum þáttum. Markmiðið með þessari verðlaunaveitingu er að hvetja til námsgagnagerðar á fram- haldsskólastigi, þar sem námsefni er sér- sniðið fyrir starfsnám. Veitt verða ein verðlaun að upphæð 300.000 kr. sem renna óskert beint til höfunda(r) efn- is. Verðlaunaféð er greitt af Landsskrifstofu Leonardó-áætlunarinnar með styrk frá fram- kvæmdastjórn ESB, en áætluninni er ætlað að efla starfsmenntun í ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins. Sérstök dómnefnd sem í sitja fulltrúar mismunandi skólastiga og fulltrúar launþega og atvinnurekenda mun meta þau gögn sem berast og ákveða hver hlýtur verðlaunin. Umsóknum ber að skila til Samstarfsnefndar atvinnulífs og skóla fyrir 15. janúar 1995. Engin umsóknareyðublöð eru til staðar en í umsókn þarf að koma skýrt fram hver sé höfundur/höfundar, hver sé markhópur námsgagnanna og hvort þau hafi verið notuð og metin. Þá þarf að fylgja heilstætt eintak af þeim námsgögnum sem eiga að taka þátt í keppninni. Reiknað er með að verðlaunaafhending fari fram um miðjan febrúar 1996. Samstarfsnefnd atvinnulífs og skóla áskilja sér rétt til að nota það efni sem hlýtur verð- laun til að kynna námsgagnagerð vegna starfsmenntunar á framhaldsskólastigi. Nánari upplýsingar fást á Landsskrifstofu Leonardó og Samstarfsnefndar atvinnulífs og skóla: Tæknigarði, Dunhaga 5, 107 Reykjavík. Sími 525 4900. Fax 525 4905. Aðalfundur SVFR1995 verður haldinn í Víkingasal Hótels Loftleiða sunnudaginn 26. nóvember kl. 13.30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingatillögur liggja frammi á skrif- stofu SVFR til kynningar. Félagar eru hvattir til að mæta. Stjórnin. Landsskrifstofa Leonardó og Sam- starfsnefnd atvinnulífs og skóla - SAMMENNT: Styrkir vegna útgáfu á fræðilegu efni um starfs- menntun Samstarfsnefnd atvinnulífs og skóla lýsa eft- ir umsóknum um styrki sem Landsskrifstofa Leonardó mun veita höfundum fræðilegsefn- is um starfsþjálfun. Um er að ræða tvo flokka stykja: 1. Fræðilegt efni á íslensku sem lýtur að starfsmenntun. Veittir verða styrkir, hvor að upphæð kr. 200.000, til útgáfu á niður- stöðum kannana og rannsókna sem tengjast starfsmenntun á íslandi í víðum skilningi. Styrkirnir eru hugsaðir sem greiðsla til höfunda fyrir þeirra vinnu, en ekki til að greiða annan útgáfukostnað. Helmingur styrkupphæðar verður greidd- ur við úthlutun en síðari hlutinn þegar niðurstöðu, þ.e. frágengu handriti, er skil- að til styrkveitenda. 2. Fræðilegt efni á ensku sem lýtur að starfsmenntun. Veittir verða tveir styrkir, hvor að upphæð kr. 150.000, til þýðinga á verkum á íslensku yfir á erlend tungu- mál sem lúta að starfsmenntun á ís- landi, eða til þýðinga af erlendum tungu- málum yfir á íslensku um efni sem teng- ist starfsmenntun í Evrópu. Helmingur styrkupphæðar verður greiddur við út- hlutun og síðari helmingur þegar niður- stöðu er skilað. Skilafrestur á umsóknum vegna þessara styrkveitinga er til 15. janúar 1996 og ber að skila þeim á skrifstofu SAMMENNTAR, Tæknigarði, Dunahaga 5, 107 Reykjavík. Engin sérstök umsóknareyðublöð eru notuð, en umsóknir þurfa að fela í sér stutta lýsingu á viðfangsefni þess texta sem sótt er um styrk vegna og umsækjandi þarf að gera grein fyrir þýðingu hans fyrir umræðu um þróun starfsmenntunar á Islandi. Þá þurfa umsóknir að fela í sér tímaáætlun, en verk- efnum þarf að Ijúka á árinu 1996. Sérstök dómnefnd sem skipuð er fulltrúum Háskóla íslands, framhaldsskóla og aðilum vinnu- markaðarins mun meta umsóknir og gera tillögu um styrkveitingar til stjórnar Sam- starfsnefndar atvinnulífs og skóla. Nánari upplýsingar fást á Landsskrifstofu Leonardó og Samstarfsnefndar atvinnulífs og skóla: Tæknigarði, Dunhaga 5, 107 Reykjavík. Sími 525 4900. Fax 525 4905.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.