Morgunblaðið - 03.12.1995, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995 B 23
„Ég taldi mikla hættu á hörðum
árekstri ef ég sigldi alveg að skip-
inu sem ýmist hvarf í ágjöfunum
eða skaut upp með öldunni. Ég
ákvað þó að taka þá áhættu ef
honum tækist ekki að ná lykkj-
unni.“
Baráttu Gunnars var ekki lokið:
„Þegar mér skaut upp eftir eina
fylluna hafði ég misst skóna. Ég
kom auga á breska björgunarbát-
inn: „Á ég að taka áhættuna og
stökkva?"
Nei, það var alveg eins og áður,
mér fannst þyrlan ekki vera fyrir
ofan til að lýsa upp og báturinn
var með- ölduna á aðra hliðina
þannig að mér fannst hann ekki
tilbúinn að sigla strax að mér ef
ég færi í sjóinn. Hverfandi líkur
voru á að björgunarmennirnir sæju
mig eða gerðu sér yfirhöfuð grein
fyrir hvprt eða hvenær ég yfirgæfi
skipið. Ég var sem fyrr staðráðinn
í að reyna að komast með þyrlunni
og ákvað að bíða örlítið.
Ég var í stöðugri baráttu við
að halda mér en lítill tími var til
stefnu því skipið var að sökkva.
Nú var þyrlan að koma og ég sá
vírinn nálgast. Mér tókst fljótlega
að grípa um hann og bregða lykkj-
unni utan um mig en óttaðist að
slakinn á vírnum flæktist í skipinu
þegar híft yrði. Ég sá fram á að
ef það gerðist myndi ég lenda af
miklu afli utan í. Ég togaði slak-
ann til mín, beið í stutta stund og
sagði í hálfum hljóðum með varirn-
ar herptar:
„Hífið þið nú, hífa núna, það er
allt klárt!“
En allt kom fyrir ekki. Aldrei
strekktist á vírnum. Þetta var
skelfilegt - þyrluflugmennirnir
voru sambandslausir við mig í
grenjandi fárviðri, vírinn óklár og
skipið valt og gekk upp og niður
á öldunni. Ný fylla hreif mig með
. sér. Sjórinn tók mig heljartaki og
ég missti aftur af lykkjunni í hama-
ganginum.
Þegar vírinn kom í fjórða skipt-
ið náði ég enn á ný að grípa í
hann og setti lykkjuna utan um
mig.
Ég beið og beið en ekki var híft.
Nú kom önnur alda.
„Er ég aftur að fara úr vírn-
um?“ hugsaði ég.
Ég fór á bólakaf og hélt dauða-
haldi um lykkjuna. Þegar mér
skaut upp var hún enn þá utan
um mjg - mér fannst heil eilífð
líða. Ég reyndi að stappa í mig
stálinu og sagði við sjálfan mig:
„Nú kemur það, ég verð hífður
upp - þetta hlýtur að koma núna.“
Ég fann að slakinn fór af vírnum
og hann hertist að mér. Ég var
að lyftast upp. Loksins, loksins.
Þetta var að hafast. „Á ég þá eft-
ir að lifa af eftir allar þessar hörm-
ungar okkar?“ hugsaði ég þar sém
ég hékk í lausu lofti. Sú einkenni-
lega hugsun greip mig þegar ég
losnaði frá skipinu hvort það væri
rétt af mér að yfirgefa það. Mér
fannst síðasti sólarhringur hafa
verið hrylliiegur - ég vissi að eitt-
hvað hafði ekki verið eins og skyldi.
Mér fannst ég bera ábyrgðina og
spurði mig hvort ég ætti uppreisn-
ar von eftir þetta slys. Ég hugsaði
til fjölskyldu minnar heima en
mestar áhyggjur hafði ég af því
hvort allir úr áhöfn minni væru
heilir á húfi. Ég hafði ekki haft
tök á að fylgjast með öllum björg-
unaraðgerðunum. “
Mennirnir í þyrlunni tóku nú á
móti Gunnari og létu hann setjast
niður. Skipstjórinn kom ekki auga
á Ragnar, Steinar og Vigni því
þeim hafði verið komið fyrir á öðr-
um stað í vélinni. Gunnari var rétt-
ur bolli með heitu tei. Björgun virt-
ist lokið og Nicholas Houghton flug-
stjóri og Maurice Hutchens báru
saman bækur sínar í gegnum tal-
stöð - hafði öllum úr áhöfn Tungu-
foss örugglega verið bjargað?
\0
°,\^.\b
\
\
Glæsileg sending
af sófasettum og hornsófum
(D Valhúsgögn
ÁRMÚLA 8, SÍMAR 581 2275 og 568 5375
QÁattumiée^Jóé
Fyrir síðustu jól hefur skátahreyfingin selt
sígrœn eðaltré í hœsta gœðaflokki og hafa
þau piýtt mörg hundruð heimili. Svo eðlileg
eru trén að fuglar gœtu átt það til að gera
sér hreiður í greinum þeirra. Sígrœnu
jólatrén frá skátunum eru grœn og falleg jól
eftir jól.
Jólatré til að hengja á vegg.
Borðjólatré með skreytingu og
Ijósaseríu, 38 og 60 cm.
Handunnar jólastjörnur til að hengja
niður úr lofti, 3 stœrðir.
Jólahringir 30 og 45 cm.
Jólahengja 3 m löng.
Handriðshengjur með og án Ijósa
Krúttlegir jólasveinar í 3 stœrðum.
10 ára ábyrgð
8 stœrðir, 90 - 305 cm
Stálfótur fylgir
Eldtraust
íslenskar leiðbeiningar
O
I
185 cm hátt eðaltré á stálfœti með sérvöldum og mjög vönduðum jólaskreytingum og
má velja á milli þriggja mismunandi skreytinga: „Hvít jól", „sígild jól" og „náttúruleg jól". Allar
skreytingarnar eru einstakar, margar hverjar handunnar og fást almennt ekki annars staðar.
(S%/fMÍaðw:
Skátahúsið Snorrabraut 60
Hekluhúsið Laugavegi 174
línan. Óttar Sveinsson skráði. /s- lenska bókaútgáfan (áður Bóka- klúbbur Artvar og Örlygs) gefur út. Verð 3.380 kr. Blaft allra landsmanna!
- kjarm malsms!