Morgunblaðið - 03.12.1995, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995 B 25
ATVIN NIMAUGL YSINGA R
Bókasafnsfræðingur (500). Fjölmiðlafyrir-
tæki óskar að ráða bókasafnsfræðing í fullt
starf sem getur byrjað strax. Starfsreynsla
er æskileg. Starfið er krefjandi.
Sölumaður (508). Sölustarf fyrir hádegi hjá
heildverslun. Æskilegt er að viðkomandi sé
snyrtifræðingur að mennt og hafi reynslu af
sölumennslu. Góð ensku- og tölvukunnátta
er nauðsynleg. Laust strax.
Ritari (516). Hlutastarf fyrir hádegi hjá einka-
fyrirtæki. Viðkomandi þarf að geta skrifað
texta eftir upplestri á ensku og íslensku.
Aðstoðarmaður (517). Framleiðslufyrirtæki
í Reykjavík (austurbæ) vill ráða aðstoðar-
mann í mötuneyti fyrirtækis. Góð laun eru í
boði. Framtíðarstarf.
Snyrtifræðingur (518). Bláa lónið vill ráða
snyrtifræðing til starfa vegna aukinna um-
svifa. í boði er mjög áhugavert framtíðar-
starf við sölu bæði innanlands og erlendis.
Viðkomandi þarf að hafa góða tungumála-
kunnáttu og reynslu í skrifstofustörfum.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar númeri viðkomandi starfs fyrir 8.
desember nk.
Daglegur
rekstrarstjóri Oksnes
apóteks í Noregi
0ksnes-apótek er í sveitarfélaginu 0ksnes í
Nordland-fylki í Noregi. Apótekið er útibú frá
Sortland-apóteki í næsta sveitarfélagi. Staða
daglegs rekstrarstjóra apóteksins (bestyrer)
er laus frá og með febrúar 1996.
Apótekið er lítið en nýtískulegt. Apótekið
opnaði árið 1992 og er staðsett í heilsuvernd-
arstöð á vegum sveitarfélagsins.
EDB er notað í ríkum mæli.
Sortland-apótek veitir faglega aðstoð og
aðstoð varðandi framleiðslu og afleysingar.
Starfsmenn eru lyfjatæknir í hálfri stöðu og
tvö og hálft stöðugildi fyrir apótekstækna.
Veltan árið 1994 nam um 5,6 milljónum
norskra króna.
Við leitum að daglegurri rekstrarstjóra/for-
stöðumanni með norræna lyfjafræðimennt-
un og áhuga á að starfa með öðrum hópum
innan heilbrigðisþjónustunnar; sem hefur
hæfileika til að starfa sjálfstætt og stjórna
öðrum.
Viðkomandi þarf að hafa vald á dönsku,
sænsku eða norsku, skriflega jafnt sem
munnlega og æskilegt er að hafa reynslu af
EDB.
Sortland-apótek mun útvega húsnæði. Dag-
legur rekstrarstjóri fær greidd laun í sam-
ræmi við samninga á milli Apótekarafélags
Noregs og Félags norskra lyfjatækna.
Viðkomandi fær fimm vikna leyfi frá störfum
ár hvert og frí á laugardögum.
Nánari upplýsingar veitir Ingunn Mandt apó-
tekari í síma 00 47 761 21006 (fax
00 47 761 23269) eða Nina Nilsen forstöðu-
maður í síma 00 47 761 34555.
Skriflegar umsóknir ber að senda til: Sortland
apotek, 8400 Sortland, Norge, fyrir
1. febrúar 1996.
Alls búa 5000 manns í sveitarfélaginu 0ksnes. Helsta bæjarfé-
lagið heitir Myre. 0ksnes er eitt helsta sjávarútvegspláss þessa
landshluta. Það er staðsett í Lofoten og Vesterálen.
Náttúran er hrjúf og fögur og einkennist af eyjum, fjöllum og hafi.
íbúar svæðisins er opnir, mikið er um að vera og auðvelt að
komast inn í hlutina. Barnavænt umhverfi. Skipulagt tóm-
stundarstarf fyrir öll börn í grunndskóla.
Á staðnum er tónlist- og íþróttaskóli. Virk kórastarfsemi. Alhliða
íþróttastarf. Fjallgöngur. Góð aðstaða til útiveru.
Teikíiari
Óskum eftir aö ráöa hugmyndaríkan teiknara
meö góöa kunnáttu á helstu Macintosh teikniforrit.
Skrifiegum umsóknum um menntun og fyrri störfskai
skilaö til afgreiöslu Morgunbiaösins fyrir
fimmtudaginn 7. desember.
Merkt: SHOW TOOLBOX Á
Stopp!
Skemmtilegt og gefandi starf
Ef þú ert efnilegur, duglegur og faglegur
sölumaður þá höfum við rétta starfið fyrir
þig! Við bjóðum þér krefjandi, spennandi og
lifandi sölustarf sem býður upp á marga
möguleika.
Þú þarf að vera sterkur í mannlegum sam-
skiptum, ákveðinn og metnaðargjarn. Æski-
legt væri að þú hefðir einhverja tölvukunn-
áttu og kunnir skil á ensku og einu Norður-
landamáli.
Fyrirtækið er þekkt og traust, staðsett í
Reykjavík.
Algjörum trúnaði heitið.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlega sendu skriflega umsókn ásamt
mynd til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
fyrir 8. desember nk.
Hagvangurhf
Skeifunni 19
Reykjavík
Sími 581 3666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
Borgey hf.
Hornafirði
Borgey hf. er sjávarútvegsfyrirtæki þar sem
stefnt er að hröðum vexti í landvinnslu og
aukinni tæknivæðingu.
Fyrirtækið óskar eftir að ráða forstöðumann
viðhalds- og tækniþjónustu.
Starfssvið:
1. Yfirstjórn tækni- og viðhaldsmála.
2. Þróun og viðhald tæknilegra lausna fyr-
ir vinnsluferla, þar sem áhersla verður
lögð á aukna sjálfvirkni.
3. Gerð áætlana um viðhaldskostnað og
rekstur deildarinnar.
4. Þátttaka í stefnumótun fyrirtækisins
með öðrum stjórnendum.
Við leitum að manni með menntun á sviði
verkfræði/tæknifræði. Iðnmenntun og
reynsla af störfum við viðhald véla og tækja
æskileg.
Þekking á frystitækjum, locistic, layout, við-
haldi, sjálfvirkni og skipum nauðsynleg/æski-
leg.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt,
en sömuleiðis að vera góður í liðsvinnu.
Góð enskukunnátta er nauðsynleg. IMauð-
synlegt að viðkomandi sé í raun tilbúinn
að búa á Hornafirði.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
„Borgey 511“ fyrir 13. desember nk.
Stofnanir, fyrirtæki
og félagasamtök
Við viljum vekja athygli ykkar á því, að um
áramótin 1995-1996 útskrifast hópur félags-
ráðgjafa frá Háskóla íslands.
Við óskum eftir framtíðarstarfi, hvar sem er
á landinu.
Um er að ræða hæfileikaríka starfskrafta á
ýmsum aldri, með fjölbreytta menntun og
starfsreynslu.
Atvinnutilboð sendist afgreiðslu Mbl., merkt:
„Heildarsýn - '96.“
Styrktarfélag vangefinna
Forstöðumaður
skammtímavistunar
Staða forstöðumanns við skammtímavistun
félagsins í Víðihlíð 9 er laus til umsóknar.
Þroskaþjálfamenntun eða önnur menntun á
uppeldis- og félagssviði, ásamt reynslu í
starfi með fötluðum áskilin. Um er að ræða
fulit starf sem krefst góðra skipulags- og
stjórnunarhæfileika.
Þroskaþjálfar
stuðningsfulltrúar
Einnig vantar þroskaþjálfa og stuðningsfull-
trúa til starfa í skammtímavistun. Um er að
ræða vaktavinnu.
Ráðið verður í ofangreind störf frá 1. janúar
og ber að skila umsóknum á sérstökum eyðu-
blöðum, sem fást á skrifstofu Styrktarfélags-
ins, fyrir 15. desember.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Sigmunds-
son starfsmannastjóri á skrifstofu félagsins,
Skipholti 50c og í síma 551 5987.
Skammtímavistun í Víöihlíð 9 veitir þjónustu fötluðum einstakl-
ingum, 12 ára og eldri, sem hafa þroskaheftingu sem aðalfötl-
un. Stöðugildi eru 7,5 og í skammtímavistun geta dvalið allt að
6 einstaklingar í einu.
SKYGGNIR HF
Skyggnir hf. er öflugt hugbúnaðarfyrirtæki með fjöl-
þætta starfsemi á ýmsum sviðum hugbúnaðargerðar.
Hjá Skyggni starfa 15 starfsmenn með mikla reynslu
af hugbúnaðargerð og þjónustu við viðskiptahugbúnað.
Skyggnir er söluaðili fyrir viðskiptahugbúnaðinn Fjölni
sem hlotið hefur frábærar viðtökur hjá íslenskum fyrir-
tækjum sökum sveigjanleika og rekstraröryggis og einn-
ig Navision Financials sem er arftaki Fjölnis í Windows-
umhverfinu. Hjá Skyggni er lögð sérstök áhersla á þró-
un og þjónustu við ýmis sérkerfi í Fjölni og Financials,
s.s. framleiðslukerfi fyrir sjávarútvegs- og iðnfyrirtæki,
gæðakerfi og heildarlausnir fyrir sveitarfélög. Skyggnir
býður viðskiptavinum sínum einnig lausnir í Lotus Not-
es- hópvinnukerfinu og á veraldarvefnum.
Hugbúnaðargerð
Vegna aukinna umsvifa óskast starfsmenn
til starfa hjá Skyggni hf.
Störfin felast í forritun í Fjölni og Navision
Financials. Leitað er að einstaklingum með
verkfræði- eða tölvunarfræðimenntun.
Reynsla af forritun í C/C++ og haldgóð
þekking á Windows umhverfinu (NT,
Windows95) æskileg.
í boði eru vel launuð störf með góðum
framtíðarmöguleikum.
Með umsóknir og fyrirspurnir verður farið
sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon í
síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar: „Skyggnir hf.“ fyrir 15.
desember nk.
RÁÐGARÐURhf
STIÓRNUN AR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
FURUGERÐI 5 108 REYKJAVÍK ^533 I8(X)